Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 13
tiltölulega mikið „lýðræði“ ríkti. Valdamenn gátu ekki látið sér duga að treysta á fé sitt og vopn, þeir urðu sífellt að reyna að fá menn til fylgis við sig, mynda bandalög, fylgjast vandlega með gerðum og viðbrögðum andstæð- ingsins og taka erfiðar ákvarðanir. Þetta hlýtur að hafa valdið því að áhuginn á sögu og stjórnmálum hefur verið óvenju mikill og þar er kominn grundvöllurinn að þeirri skilgi-einingu á stjórnmálarefskák- inni sem við kynnumst í Heims- kringlu. Sjálfur hefur Snorri líklega litið fyrst og fremst á sig sem raunsæis- mann í þessum leik. Hann var sagnfræðingur, var því vel kunn- ugt hve hamingjan er hverful og hafði lýst falli margra stórmenna. Aðfaranótt 23. september 1241 var hans eigið skapadægur runnið upp. Hann hafði leikið af sér í stjómmálaskákinni og fjendur hans hjuggu hann til bana á stór- býlinu í Reykholti. Hann gat ef til vill huggað sig við það að þar sem hann hefði verið einn af helstu höfðingjum á íslandi í fullan mannsaldur myndi hann ekki deyja eins og hver önnur dægurfluga og gleymast eins og flest fólk; hans yrði minnst eftir dauðann. Snorra hefur varla órað fýrir því að bók- menntirnar yrðu það sem héldi nafni hans á lofti og þær yrðu lesn- ar löngu eftir að sá heimur sem hann var hluti af var gleymdur og grafínn. Höfundur er prófessor í miðalda- sögv við Björgvinjarháskóla í Noregi og grein þessi birtist í dagblaðinu Aftenposten 23. sept- ember sl. Efstir í a-v urðu: Sveinn Sigurgeirsson - Þórður Sigfússon 281 Jón Viðar Jónmundsson - Eyjólfur Magnússon 247 Friðrik Jónsson - Hermann Friðriksson 245 Spilamennska hefst alltaf á föstu- dögum, í Sigtúni 9, kl. 19.00 stund- víslega og verður spilaður eins kvölds Mitcell-tvímenningur á hveijum föstu- degi í vetur. Skráning fer fram við mætingu. Keppnisstjóranámskeið Bridssamband íslands efnir til námskeiðs í keppnisstjóm og tölvu- útreikningi dagana 6., 7. og 8. des- ember nk. í tengslum við útkomu nýrrar þýðingar á bridslögunum. Námskeiðið verður sett upp á sama hátt og þau námskeið sem Danska bridssambandið hefur gengist fyrir, að viðbættri þjálfun í útreikningi á tölvu. Námskeiðið verður haldið í húsi Bridssambands íslands, Sig- túni 9, og skráning á námskeiðið er einnig þar. Takmarka þarf fjölda þátttakenda við 26 og hámark tvo frá hveiju félagi. Félögin þurfa að sækja um fyrir þátttakendur á sínum vegum og verði þátttaka mjög mikil er hugsanlegt að halda sams konar námskeið úti á landi eftir áramótin. Allar nánari upplýs- ingar er að fá á skrifstofu BSÍ í síma 91-689360. Bridsfélag kvenna Nú er Mitchell-tvímenningnum iok- ið með sigri Þorgerðar og Steinþórs. Annars varð röð efstu para þannig: Þorgerður Þórarinsdóttir - Steinjwr Asgeirss. 989 Lovísa Jóhannsdóttir - Kristin Karlsdóttir 973 Halla Bergþórsdóttir - Soffía Theodórsdóttir 955 Sigríður Möller — Freyja Sveinsdóttir 919 Kristín ísfeld - Hrafnhildur Skúladóttir 898 Kristín Þórðardóttir - Ása Jóhannsdóttir 885 Margrét Margeirsdóttir - Júlíana ísebam 884 I næstu keppni félagsins verður Barómeter-tvímenningur og geta pör skráð sig í síma 32968 (Ólína). Keppn- in verður 4-5 kvöld, eftir þátttöku. Nýtt fólk er velkomið. Bridsfélag Hornafjarðar Hafin er þriggja kvölda Mitchell- tvímenningur og taka 16 pör þátt í keppninni. Staðan eftir fyrsta kvöldið: Ámi Stefánsson - Jón Sveinsson 209 Skeggi Ragnarsson - Baldur Kristjánsson 205 Grétar Vilbergsson — Vífill Karlsson 191 JónNíelsson-ÁmiHannesson 189 Sigurpáll Ingibergsson—Jón G. Gunnarsson 185 RagnarBjömsson-BirgirBjömsson 174 Kópavognr: MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991 t r r i---n-----r.....!' ■11 t1~>■‘Trrr^T-Tr,'f" -: v>f t ‘ 24 kaupleigíbúðir afhentar HÚSNÆÐISNEFND Kópavogs aflienti sl. sunnudag nýjum íbúð- areigendum tuttugu og fjórar nýj- ar kaupleiguíbúðir við Trönu- hjalla 19-23 í Kópavogi. Þetta er fyrsta fjölbýlishúsið sem byggt er í Kópavogi þar sem í eru eingöngu kaupleiguíbúðir. Ibúðunum er skilað fullfrágengnum. I húsinu eru sjö 2ja herbergja íbúð- ir, fjórtán 3ja herbergja íbúðir og þijár 4ra herbergja íbúðir. í stigahús- unum nr. 21 og 23 eru fimmtán fé- lagslegar kaupleiguíbúðir en í stiga- húsinu nr. 19 eru níu almennar kaup- leiguíbúðir. I félagslega kaupleigukerfinu er miðað við tekjuhámark og að kaup- andi/leigjandi leggi fram hámark 10% andvirðis íbúðarinnar en fái 90% að láni. í almenna kaupleignkerfinu er ekki tekjuhámark. Þar er miðað við að kaupandi/leigjandi greiði sjálf- ur allt að 30% andvirðis íbúðarinnar í upphafi. Úthlutað var lóð fyrir húsið árið 1989 og það var steypt upp á síð- asta ári. Arkitekt hússins er Benjam- ín Magnússon en Byggingafélagið Kambur hf. steypti það upp. Fjöl- margir fleiri verktakar komu við sögu. í Kópavogi eru nú 238 félagslegar eignaríbúðir (verkamannabústaðir) og 66 kaupleiguíbúðir, að meðtöldum þeim 24 íbúðum sem afhentar verða á sunnudag eða samtals 304 íbúðir. Áformað er að hefja byggingu á 65 íbúðum á þessu ári, 55 félagsleg- um eignaríbúðum og tíu kaupleigu- íbúðum. Formaður húsnæðisnefndar Kópa- vogs er Marta Jónsdóttir, en fram- kvæmdastjóri er Gissur Jörundur Kristinsson. Gunnar Birgisson for- maður bæjarráðs af- hendir íbúðareiganda lykla að íbúð hans á Trönuhjalla 19-23. Trönuhjalli 19-23. lísadagar Fallegar flísar prýða hvert heimili. Þær eru ekki bara fallegar, heldur hka sterkasta efni á veggi, sem völ er á. Við seljum næstu daga mikið af gólf- og veggfhsum á heimsþekktum ðendum, með 10-50% afslætti. V-V * mainingar F,, pjúnustan hf aVanesl íar vma HAFNARFIRÐi M METRO í MJÓDD G.A. Böðvarsson hff. SELFOSSI Járn & Skip KEFLAVÍK lAHfflSnká, GrensAavegi 11 • Reykjavfk • Simi 83500 V SAMEINAÐA / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.