Morgunblaðið - 03.10.1991, Side 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR íS. OKTÓBBR ó 9Ó1
Mjólkurframleiðslan:
Fullvirðisréttur-
inn seldur á allt
að 126 kr. lítrinn
FULLVIRÐISRÉTTUR í mjólkurframleiðslu hefur verið seldur á allt
að 126 kr. lítrinn frá því viðskipti milli framleiðenda með fullvirðis-
rétt voru gefin frjáls í júní síðastliðnum, en grundvallarverð til fram-
leiðenda er nú 52 kr. fyrir lítrann. Að sögn Stefáns Tryggvasonar,
framkvæmdastjóra Landssambands kúabænda, hefur verslun með full-
virðisrétt átt sér stað nánast í öllum héruðum landsins. Hann sagði
ekki liggja fyrir neinar staðfestar upplýsingar um það magn fullvirðis-
réttar sem selt hefur verið né það verð sem bændur hafa greitt fyrir
réttinn, en þó væri ljóst að það væri ekki eins mikið og menn hefðu
óttast í upphafi.
vera það að kaupendur áttuðu sig á
því hve mikið magn þeir gætu keypt
á hæsta verði. „Það skiptir auðvitað
öllu ef verið er að ræða um að kaupa
rétt án þess að þurfa að kosta neinu
öðru til, þ.e. ef ekki þarf að kaupa
kýr og ef básar eru til staðar. Sé
t.d. um 1-2 kýr að ræða, eða á bilinu
5-10 þúsund lítra, þá getur kaupand-
inn kannski sætt sig við að vera
kauplaus við þetta á þriðja ár, því
beini útlagði kostnaðurinn er þá fyrst
og fremst vegna kjarnfóðurkaupa.
Ef síðan er reiknað með því að eftir
að þetta hefur verið greitt niður sé
komin hagkvæmari framleiðsluein-
ing, þá verður að líta svo á að þetta
skili sér margfalt til baka.“
Stefán sagði að hæsta verð sem
hann hefði heyrt að greitt hafi verið
fyrir fullvirðisrétt væri 126 kr. lítrinn
á Eyjafjarðarsvæðinu, og á Suður-
landi hefði rétturinn verið boðinn á
120-125 kr. lítrinn í fimm þúsund
lítra einingum.
„Ég hef þá tilfinningu að algeng-
asta verðið sé í kringum 100 kr., en
verð yfir 120 kr. held ég að heyri
til algjörrar undantekningar. Verðið
er þó eitthvað breytilegt eftir því
hvort um staðgreiðslu er að ræða,
og þá er leigður réttur seldur á eitt-
hvað lægra verði, eða kannski 60-70
kr,“ sagði hann.
Stefán sagðist telja aðalatriðið í
viðskiptum bænda með fullvirðisrétt
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Á grænfóðurakri
Kýr eru enn hafðar úti víðasthvar á landinu. Síðsumars og á haustin er þeim beitt á grænfóður. Myndin
var tekin á Kópsvatni í Hrunamannahreppi á dögunum.
Heimsmeistaramótið í brids:
Islenska liðið gæti
hæglega iinnið mótið
- segir Bobby Wolff, margfaldur heimsmeistari í brids
Yokohama, Japan. Frá Guðniundi Hermannssyni hlaðainanni Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA landsliðið hefur enn örugga forustu í sínum riðli á heims-
meistaramótinu í brids. Það vann tvo leiki í gær með minnsta mun,
þar af annan gegn Argentínu, sem er í 3. sæti riðilsins, og gerði
jafntefíi við Breta, sem eru í öðru sæti. Ekkert nema stórslys getur
nú komið í veg fyrir að Island spili í úrslitakeppninni því nú munar
50 stigum á Islandi og þjóðinni, sem er í 5. sæti riðilsins. Spila-
mennska íslendinganna til þessa bendir ekki til að ástæða sé til að
óttast það. Frammistaða Islendinganna vekur mikla athygli og
margir eru farnir að reikna alvarlega með þeim í keppninni um
verðlaunin.
„Auðvitað gæti íslenska liðið
unnið mótið, það hefur spilað vel
og jafnt. En erfiðari hlutinn er
samt eftir," sagði Bobby Wolff,
margfaldur heimsmeistari og til-
vonandi forseti Alþjóðabridssam-
bandsins, í gærkvöldi.
Wolff er meðal skýrenda við sýn-
ingartöfluna og í gær, á meðan á
leik íslendinga og Breta stóð, fór
hann miklum viðurkenningarorðum
um íslenska liðið. Hann sagði það
hafa komið á óvart í byijun móts-
ins, en nú væri ljóst að íslendingar
hefðu komið til að vera, ef orð
hans eru þýdd beint á vonda
íslensku. Hann sagði greinilegt að
í íslenska liðinu væru hæfileikarík-
ir spilarar sem spiluðu jafnt og vel
og því yrði að reikna sterklega með
þei_m í úrslitakeppninni.
íslendingar spiluðu við Egypta í
fyrsta leik sínum í gær. Leikurinn
var í jámum allan tímann en var
frekar vel spilaður af hálfu beggja
liða. Guðmundur Páll Arnarson og
Þorlákur Jónsson, og Guðlaugur
R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson
spiluðu leikinn fyrir ísland og fá
keppnisstig skiptu um eigendur.
Ísland náði á endanum að vinna
með þriggja keppnisstiga mun, sem
þýddi 16-14 í vinningsstigum.
Eftir 7. leikinn fengu liðin ný
rásnúmer fyrir síðari hálfleik riðla-
keppninnar, en þar er spiluð tvö-
föld umferð. íslendingar mættu
Bretum í 8. leiknum en það sem
af er eru Bretar eina liðið sem
hefur unnið það íslenska.
Jón Baldursson og Aðalsteinn
Jörgensen komu inn fyrir Guðlaug
og Órn. íslenska liðið bytjaði frek-
ar illa við bæði borðin, en leikurinn
við bæði borð var sýndur í sjón-
varpskerfi. Bretar voru komnir með
nokkra forustu þegar þetta spil
kom fyrir:
V/Allir.
Norður
♦ D53
¥ DG975
♦ ÁD103
*K
Austur
♦ KG
¥108643
♦ 2
+ D10863
Suður
♦ Á42
¥-
♦ KG98765
♦ ÁG8
Við annað borðið runnu Guð-
mundur og Þorlákur í sex tígla,
og eina hættan virtist vera sú að
Bretarnir Forrester og Robson
færu í alslemmu, sem vinnst eins
og spilið liggur, vegna þess að
hægt er að trompa niður ÁK í
hjarta. En Jóni tókst að trufla Bret-
ana með taktískri opnun:
Vesíur Norður Austur Suður
Jón Robson Aðals. Forr.
2 spaðar Pass Pass 3 tíglar
Pass 3 hjörtu Pass 4 Líglar
Pass Pass Pass
Opnun Jóns sýndi 5-lit í spaða
og að minnsta kosti 4-lit í láglit
tii hliðar. Það þurfti þó kjark til
að nota opnunina á hættunni með
þessa liti, en eftir það er erfitt að
sjá hvernig breska parið átti að ná
slemmunni með öryggi. Báðir gátu
þó sagt meira, t.d. Forrester stokk-
ið í 5 tígla eftir 3 hjörtu sem lofa
einhveijum tígulstuðningi, og Rob-
son hækkað 4 tígla í fimm. Þeir
fengu aðeins 190 fyrir 4 tígla sem
sagði lítið í 1.370 sem ísland fékk
við hitt borðið.
Eftir þetta átti íslenska liðið
góðan kafla, sérstaklega Guð-
mundur og Þorlákur, og það tók
forustuna en Bretar náðu að jafna
muninn aftur. Lokastaðan var
15-15 sem var sanngjörn niður-
staða í baráttuleik. „Þetta var harð-
ur leikur og menn geta ekki búist
við að sleppa villulaus frá slíku,“
sagði Guðmundur.
Síðasti leikur dagsins var gegn
Argentínumönnum. Eftir að Íslend-
ingar gersigruðu Argentínumenn í
3. leik mótsins, tóku þeir á mikinn
sprett, unnu hvem stórsigurinn á
fætur öðrum og voru nú komnir í
3. sæti í riðlinum. Guðlaugur og
Örn komu í stað Guðmundar og
Þorláks og enn einn baráttuleikur-
■ lIELGI Jóhannsson forseti
Bridssambands íslands kofn til
Yokohama í gær í þann mund sem
ísland var að ljúka sínum sjötta
sigurleik. „Það er munur að koma
í þessari stöðu en þeirri á Evrópu-
mótinu í sumar,“ sagði hann. Þeg-
ar Helgl heimsótti Evrópumótið
á Irlandi í sumar, hafði ísland
spilað einn leik, gegn Bretum og
tapað honum 3-25.
■ÍSLAND er eina þjóðin, enn
sem komið er, sem hefur skotið
úrskurðum keppnisstjóra mótsins
til dómnefndar. Það hefur gerst
Jón Baldursson sló andstæðing-
ana hvað eftir annað út af lag-
inu í gær.
inn hófst. Það voru sérstaklega Jón
og Aðalsteinn sem reyndu hvað
þeir gátu til að gera andstæðingn-
um erfitt fyrir, þótt þeir hefðu ekki
alltaf árangur sem erfiði. Guðlaug-
ur og Örn spiluðu einnig vel og
sögðu tvær slemmur sem Arg-
entínumenn misstu. Aðra þeirra að
vísu eftir að Jón sló þá út af laginu:
A/AV
Norður
♦ G1087
♦ G842
♦ 954
♦ 75
Austur
♦ K432
¥ ÁK953
♦ 73
♦ 64
Suður
♦ D965
¥10
♦ KG108
♦ DG93
tvisvar, og í bæði skiptin hefur
úrskurðurinn fallið Íslandi í vil. í
síðari leiknum gegn Argentínu
töldu Argentínumennirnir að
Guðlaugur hefði sagt slemmu
eftir að Örn tók sér umhugsun
fyrir eina sögn sína, og þannig
gefíð til kynna að hann ætti betri
spil en sögnin sjálf gaf til kynna.
Keppnisstjóri var sammála Arg-
entínumönnunum og dæmdi slem-
muna af, en Guðlaugur hélt því
fram að hann hefði hvort sem er
átt fyrir því að hækka í slemmu.
Dómnefndin var sammála Guð-
Vestur Norður Austur Suður
Örn Lambardi Guðlaug- Lucena
ur
— — 1 hjarta Pass
2 lauf Pass 2 hjörtu Pass
4 grönd Pass 5 hjörtu Pass
5 grönd Pass 6 lauf Pass
6 hjörtu Pass Pass Pass
Eftir að Guðlaugur opnaði í aust-
ur voru þeir Örn fljótir að segja
slemmuna sem vannst þótt trompið
lægi illa.
Vestur Norður Austur Suður
Muzzia Jón Poleschi Aðals.
— — Pass Pass
1 lauf 1 grand! dobl Pass
Pass 2 lauf Pass Pass
dobl redobl Pass 2 tíglar
dobl redobl Pass 2 spaðar
Pass Pass dobl Pass
Jón upphóf mikinn björgunar-
leiðangur eftir að hafa hætt sér inn
á sterkt lauf vesturs, en redoblin
voru bæði hróp á hjálp frá Aðal-
steini við að finna einhvern annan
tromplit. Argentínumennirnir
uppskáru að lokum 500 fyrir að
dobla 2 spaða en það sagði lítið
upp í 1.430 sem ísland fékk við
hitt borðið.
Staðan í riðli íslands eftir 9
umferðir af 14 var þessi: ísland
171,25, Bretland 155, Argentína
143, Bandaríkin 139,5, Venezúela
123, Ástralía 116, Egyptaland 113,
Japan 95. í hinum riðlinum leiða
Svíar og Brasilíumenn með 162
stig en Pólvetjar og B-sveit Banda-
ríkjanna eru í næstu sætum. í dag
spilar ísland við Egypta, Ástrali
og Japani en riðlakeppninni lýkur
á föstudag. Þá taka við undanúr-
slitin þar sem liðin spila tvö og tvö
96 spila útsláttarleiki.
laugi og slemman fékk að standa.
■BRETAR gera sér góðar vonir
um að lið þeirra verði heimsmeist-
ari í mótslok. Patrick Jourdan,
fréttamaður Daily Telegraph,
sagði mér að honum hefði verið
lofað því að ynni breska liðið yrði
frétt um það á forsíðu blaðsins.
„Það yrði í fyrsta sinn sem brids
kæmist á forsíðu breskra blaða,
síðan Boris Schapiro og Ter-
ence Reese voru ákærðir fyrir
að svindla á heimsmeistaramóti
fyrir 26 árurn," sagði hann.
Vestur
♦ 109876
¥ÁK2
♦ 4
♦ 9752
Vestur
♦ Á
¥ D76
♦ ÁD62
♦ ÁK1082