Morgunblaðið - 03.10.1991, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991
11
leg og ábúðarmikil fortjöld
postmódernismans. Þetta kemur
t.d. greinilega fram í stærstu al-
þjóðlegu sýningu á arkitektúr, sem
haldin hefur verið í heiminum og
lýkur nú 8. október. Inntakið á
hinu athyglisverðasta á arkitekt-
úrtvíæringnum, sem staðið hefur
í Feneyjum í sumar má segja að
sé „eltingaleikur við fegurðina".
Þetta er sótt í forsíðugrein menn-
ingarblaðs Politiken í Kaupmanna-
höfn frá 18. september, er bar
yfirskriftina „Jagten paa skön-
hed“.
Þetta kemur auðvitað öllum
framsæknum sjónlistamönnum við
og ber að vekja athygli á því.
Sé svo gengið út frá þessum
nýju viðhorfum má segja, að hin
ábúðarmiklu fortjöld postmódern-
ismans séu það sem helst einkenn-
ir myndverk Guðjóns Ketilssonar.
Myndir hans eru stórar og formin
táknræn, um leið og hann leggur
mikið upp úr dulúðinni, sem er
helsta einkenni hinnar þýðversku
listar síðari ára með Anselm Kiefer
í fararbroddi. En þeir eiga ekkert
sameiginlegt í útfærslu mynda
sinna nema yfirbragð óræðisins og
dulhyggjunnar.
Helsta ögrunin í myndum Guð-
jóns eru hin stóru klunnalegu form,
sem einhvern veginn eru svo gjör-
sneydd yndisþokka og eru í sumum
tilvikum jafnvel fráhrindandi, en
næst kemst hann hinum nýju við-
horfum í myndinni „Sumarnótt" —
tilvitnun (10), sem er einnig best
málaða mynd hans; einnig er hin
sérkennilega mynd „Varðan" (7)
verð allrar athygli fyrir sérkenni-
lega uppbyggingu og stígandi.
Skúlptúrar Guðjóns frammi á
gangi, sem gerðir eru í tré sem
hann lakkar og málar, eru allir
athyglisverðir fyrir sinn innbyrgða
form- og dulræna kraft, og ekki
er hægt að gera upp á milli þeirra.
Grétar Reynisson stendur mun
nær Kiefer í útfærslu verka sinna
og í þeim eru ýmis form, sem eru
mjög einkennandi fyrir meistarann
svo sem spírallinn, en hins vegár
er glíman við alheiminn, hring- og
sporöskjulaga form af eldri og al-
þjóðlegri uppmna.
Myndir Guðjóns eru mjög dökk-
ar og efniskenndar og yfir þeim
er viss dulúð, en einhvern veginn
njóta sumar þeirra sin ekki nægi-
lega vel á staðnum. Er það hyggja
mín, að í réttu umhverfi myndu
þær skila sér mun betur til skoðan-
dans. Grétar er andstæða Guðjóns
í vinnubrögðum að því leyti að
hann er mun mýkri og fágaðri og
leggur meira upp úr einfaldri form-
rænni sviðsmynd.
Athyglisverðasta verk Grétars á
sýningunni þykir mér vera stóra
myndin á endaveggnum „Án titils"
(4), olía á járn, blásaumur, messing
og flauel, en þar glímir hann við
fleiri þætti forma og uppbyggingar
en í öðrum verkum og fram koma
fjölþættari átök við allt í senn;
form, efni, áferð og línu. Þá er
myndin nr. 6, blýantur og akrýl á
krossvið, ákaflega vel byggð upp
og markviss.
Þetta er um margt athyglisverð
sýning, þótt ekki geti hún talist
beinlínis skemmtileg fyrir hinn al-
menna skoðanda, en menn mættu
minnast þess að fegurðin er sem
fyrr um margt afstætt hugtak.
MJÚK
Bókmenntir
Ingí Bogi Bogason
Anna S. Björnsdóttir: Blíða
myrkur. (60 bls.) Höf. gefur út,
1991.
Hér er um að ræða þriðju ljóðabók
Önnu. Áður hafa komið út eftir hana-
Örugglega ég (1988) og Strendur
(1990).
Bókin skiptist í fjóra hluta sem
eru nokkurn veginn jafn langir: „Ver-
uleiki", „Milli steina“, „í blænum“
og „Vindur í hári“.
Það er örðugt að benda á eitt-
hvert tiltekið meginyrkisefni í þess-
ari bók. Sum ljóð eru fyndin (Sam-
skipti), önnur meinhæðin (Til veiði-
manns). Fleiri eru ljóðin sem lýsa
vonum og vonbrigðum, þrá og
óþreyju, (Hryggð og Bið). Uggurinn
um óvæntar og óvelkomnar umbreyt-
ingar er yfirleitt nærri án þess þó
að vera í heildina eins sár og stund-
um í fyrri bókum höfundarins:
Hugð
í miðju
ævintýrisins
eru allir
óhultir.
Aðeins þegar
að lokum
þess dregur
setur ugg
að mannabörnum.
Dauðinn, í margbreytilegri mynd
sinni, er ofinn í og um mörg ljóðin.
Anna S. Björnsdóttir
Þarna er lýst manneskjum sem deyja
hvort frá öðru, deyja sjálfum sér eða
eru lifandi dauð (Gát, Örlög, Veg-
ferð, Samúð).
Stíll höfundarins er frekar átaka-
lítill og talmálslegur. Styrkur hans
felst kannski í því að tiifinningar eru
settar ofar listrænni yfirlegu. Mikið
er af mjúkum orðum, blíðum orðum.
Þetta sést vel á myndmálinu. Þar er
töluvert um flug, fugla, svif og fleira
í þeim dúr. Sem dæmi um mýktina
má tilfæra Rökkurljóð:
Augun þín
rökkurfíðrildi
sem fljúga
gegn um
huga minn
lygnan
fanginn
af fiðrildavængjum
tveim.
Aup mín
varpa
vængjuðum skuggum
á heiminn.
Vatnslitamyndir Mússu eru lífleg-
ar og undirstrika mýktina. Vafamál
er samt hvort skærlituð bókarkápan
hljómi nógu einarðlega við bókarhei-
■ Á TVEIMUR VINUM er fram-
undan mikil rokkhelgi. Fimmtu-
dagskvöld skemmtir Síðan skein
sól en þeir eru að fara í 3-4 mán-
aða frí og því síðustu forvöð að sjá
þá í bili. Föstudagskvöld skemmta
GCD með Bubba Morthens og
Rúnar Júlíusson í fararbroddi. Það
er sama með þá og Sólina að þeir
eru að leggja skóna á hilluna og
eru þetta einir af síðustu tónleikun-
um með þeim. Laugardagskvöld
leikur svo Loðin rotta eftir tvær
vikur í æfíngabúðum og koma fram
með nýtt prógramm.
■ STJÓRNARFUNDUR í
Starfsmannafélagi ríkisstofnana
1. október 1991 ályktar eftirfar-
andi: „SFR mótmælir vinnubrögð-
um stjórnvalda varðandi breytingar
á Skipaútgerð ríkisins. Þau ein-
kennast af tilskipunum og er engin
tilraun gerð til þess að leita eftir
upplýsingum hjá starfsfólki. Þegar
um grundvallarbreytingar á starf-
semi er að ræða er það lágmarks-
krafa að um þær sé rætt við starfs-
fólk og samtök þess. Breytingar
þær á rekstri Skipaútgerðar ríkisins
sem samgönguráðherra hefur boðið
virðast ekki styðjast við efnisleg rök
heldur vera takmark í sjálfu sér.
SFR varar við því að skerða þá
þjónustu við landsbyggðina sem
Skipaútgerð ríkisins hefur veitt."
Fyrsta skóflustunga tekin að 2. áfanga Setbergsskóla.
starfa við skólann 40 kennarar og
annað starfsfólk.
Arkitekt skólans er Björn Halls-
son, lóðina teiknaði Þráinn Hauks-
son og verktaki við þær jarðvegs-
framkvæmdir sem nú eru að hefj-
ast er Loftorka.
(Fréttatilkynning)
Við afliending’u steingerds bols. Fremst eru fulltrúar gefenda, f.v.
Stefán Jóhannsson, Kristbjörg S. Olsen og Gunnlaugur M. Olsen, en
að baki er Sveinn Jakobsson, forstöðumaður Nátturufræðistofnunar.
ÚTI ER ALLTAF AÐ SNJÓA A ÞAÐ ER DRAUMUR AÐ VERA MEÐ DATA A ALLT
HÓTEL ÍSLAND OG STEINAR HF. KYNNA NÝJA STÓRSÝNINGU Á HÓTEL ÍSLANDI: >
F0^/í)
Doníel ÁgústHaroldsson
BerglindJjörkJónosdóltif
Sigrún'Evo Ármonnsdóttir
ISLENSMRTONAR
Í30ÁR1950-1980
Tugir laga frá gullöld íslenskrar
dœgurtónlistar fluttur af nokkrum bestu
dœgurlagasöngvurum landsins ásamt
Dœgurlagacombói Jóns Olafssonar.
Sérstakir gestasöngvarar í október:
Þuriöur SigurÖardóttir,
Ólafur Þórarinsson (Labbi í Mánum)
Guðbergur A uðunsson
Stjórnandi: Björn Emilsson • Handrit: Ómar Valdimarsson
• Kóreógrafía: Ástrós Gunnarsdóttir • Hljóðmeistari: Ivar
Ragnarsson • Ljósameistari: Kristján Magnússon
• Sviðsstjóri:Ágiíst AgústssonG Búningar: Halla Haróar-
dótlir • Kynnir: Útvarpsmaöurinn vinsali,
Sigurður Pélur Harðarson, stjórnandi þáttarins
„Landið og miðin“
FÖSTUDACS
KVÖLD OG
LAUGARDAGS
KVÖLD
Húsið opnað
kl. 19.00
Borðhald hefst
kl. 20.00
Sýning hefst
kl. 22.00
"S=.:K3=fr
m
2
c
2
BORÐAPANTANIRISIMA 687111
FLUGLEIDIR
VERTU SÆT VIÐ MIG A STRAX í DAG A DISKÓ FRISKÓ A GÖNGUM YFIR BRÚNA
ro
S
F
c
30
>
30