Morgunblaðið - 03.10.1991, Page 12
?“[
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991
StJ órnmálamaður inn og* sagn-
fræðingurinn Snorri Sturluson
eftir Sverre Bagge
Um þessar mundir eru 750 ár
frá því að Snorri Sturluson dó.
Snorri var meðal helstu höfð-
ingjum á Islandi á 13. öld og
einn fremsti fulltrúi stórveld-
istíma þjóðarinnar í bókmennt-
um og menningu. Frægasta rit
hans, Heimskringla, sem fjallar
um sögu Noregskonunga frá
fyrstu tíð fram til 1177, hefur
þó ef til vill enn frekar orðið
hluti af menningararfi Norð-
manna.
Vissulega skipa verk Snorra
ekki sama sess í norskum skólum
og þau gerðu fyrir fáeinum ára-
tugum. Nútímaleg heimildarýni og
söguskoðun, þar sem lögð er
áhersla á þróun samfélaganna,
hafa rutt þeim úr vegi. Sama er
að segja um rannsóknir fræði-
manna, einnig á þeim vettvangi
eru verk hans ekki jafn mikilvæg
og þau voru þar til í upphafi aldar-
innar. Ekki að ástæðulausu; við
getum ekki treyst honum jafn
gagnrýnislaust og eitt sinn tíðkað-
ist.
Því fer þó fjarri að Snorri sé
minni maður fyrir vikið. Enn síður
er mikilvægi hans fyrir skilning
okkar á fortíðinni orðið minna, ef
til vill hefur það fremur aukist.
Þegar við áttum okkur á því hvern
þátt hann átti sjálfur í að móta
efnið sem hann kom á framfæri
skiljum við fyrst hve stórkostlegur
sagnfræðingur hann var. Þegar
við kynnumst röksemdafærslum
hans, skýringum og mati á atburð-
um getum við öðlast innsýn í
þankagang, viðmið og hegðun
fólks í norsku og íslensku samfé-
lagi á tólftu og þrettándu öld.
Höfundur ökkar var nefnilega
maður sem var sjálfur virkur í því
valdakerfi sem hann er að lýsa og
hafði jafnframt til að bera nægi-
lega athyglisgáfu, yfirsýn og
íhygli til að miðla okkur af þekk-
ingu sinni með þeim hætti að við
hljótum að dá hann.
Snorri telur að stjórnmál séu
leikur sem stundaður sé af fá-
mennum hóp manna er öllu ráði,
manna er keppi sín í milli um völd
og áhrif, ekki til að stuðla að fram-
gangi hugsjóna eða skipulagðra
hagsmuna einst^kra hópa. Einn
af þessum stjórnmálamönnum er
Einar þambarskelfir er lék veiga-
mikið hlutverk í afdrifaríkum við-
burðum áranna 1030-1035.
Olafur helgi Haraldsson, sem
lauk við að kristna Noreg, var í
lok stjórnarferils síns orðinn óvin-
sæll konungur og hann féll í orr-
ustunni á Stiklarstöðum í baráttu
við bandalag norskra höfðingja og
bænda við danska konunginn Knút
ríka. En eftir fall Olafs konungs
fara að gerast merkiiegir atburðir.
Sjúkir sem snerta lík hans verða
heilbrigðir. Ári eftir dauða sinn
er konungur jafn unglegur og
vænn yfirlitum og í lifanda lífi,
hár hans og skegg hafa einnig
vaxið. Nýju dönsku valdhafarnir
setja ströng lög og verða fljótt illa
þokkaðir. Þegar svo er komið
málum gengur Einar fram á svið-
ið. Hann hefur einnig ástæðu til
að vera óánægður og gerir sér
grein fyrir því hvað er í vændum.
Þótt hann hefði á sínum tíma
skipað sér í raðir andstæðinga
Ólafs konungs og tekið virkan
þátt í að treysta nýju valdamenn-
ina í sessi hafði Einar einn mikinn
kost; hann hafði ekki barist gegn
konungi á Stiklarstöðum. Hann
kunni vel að notfæra sér þessa
staðreynd.
„Einar þambarskelfir hafði ekki
verið í mótgöngu við Ólaf konung.
Hrósaði hann því sjálfur. Einar
minntist þess er Knútur hafði heit-
ið honum jarldómi yfir Noregi og
svo það að konungur efndi ekki
heit sín. Einar varð fyrstur til
þess ríkismanna að halda upp helgi
Ólafs konungs“.
Snorri var vafalaust á sama
máli og samtímamenn hans sem
álitu að Ólafur hefði verið helgur
maður og að Guð hefði gripið inn
í rás viðburða eftir dauða hans.
En raunveruleiki sem byggist á
yfirnáttúrulegum atburðum er
einnig raunveruleiki og þar sem
það hentaði Einari vel að Ólafur
yrði talinn helgur maður hví skyldi
hann þá ekki verða fyrstur til að
láta sannfærast? Snorri veitir okk-
ur sannfærandi lýsingu á því
hvernig gamli klækjarefurinn
skammar vantrúaða danska
drottninguna þegar hún neitar að
trúa á undrin sem verða við lík
Ólafs. Einar sér til þess ásamt
Kálfi Árnasyni, voldugum höfð-
ingja úr Þrændalögum og einnig
gömlum andstæðingi Ólafs, að
ungur sonur Ólafs, Magnús, verð-
ur konungur. Og þegar höfðin-
gjarnir jafnt sem almenningur
styðja nýja konunginn geta
dönsku valdhafarnir ekki lengur
haldið Noregi.
Snorri var íslenskur stórhöfð-
ingi og skoðanir hans á samfélag-
inu voru mjög í anda viðhorfa yfir-
stéttarinnar. Á hinn bóginn væri
rangt að fullyrða að hann hafi
talið að alþýðufólk skipti engu
máli. Hann lýsir því hvernig sumir
tóku forystu fyrir fólki en einnig
hvernig það var leitt á villigötur;
í sagnfræðiritum samtímans í Evr:
ópu er sem alþýðan sé ekki til. í
stjórnmálum er meginviðfangsef-
nið að vinna fólk á sitt band og
þótt það fylgi yfirleitt leiðtogum
sínum verður það að fá eitthvað
fyrir sinn snúð. Af þessum sökum
Sverre Bagge
er ljóst samhengið milli kaldrana
Snorra er hann lýsir stjórnmála-
baráttunni og þess hve mikla
áherslu hann leggur á hlutverk
alþýðufólks.
Sagnfræðiritun af þessu tagi
var afar fátíð á miðöldum. Sé það
svo að við teljum það helstu prýði
sagnfræðings að hann geti skil-
greint gerðir og pólitíska stefnu
manna - og við teljum að svo sé
- hlýtur Snorri að teljast einhver
mesti sagnfræðingur miðalda í
Evrópu, ef ekki fremstur þeirra
allra.
Skýringuna á sérstöðu Snorra
er að verulega leyti að fínna í ís-
lenska samfélaginu sem hann lifði
og hrærðist í og því hvernig menn
tókust þar á í stjórnmálum. Barist
var um völdin fyrir opnum tjöldum,
1
1
(
►
Glæsileg herradeild á Laugaveginum
Vönduð jakkaföt á kr. 24.900.-
verið lengi í eldlínunni þessir kappar. Til vinstri er Valtýr
Jónasson frá Siglufirði. Hann hefir verið í fremstu röð spilara á
Norðurlandi í áratugi. Með honum á myndinni er Albert Sigurðsson
sem verið hefir keppnisstjóri á Akureyri og á mótum norðanlands l
um áratuga skeið.
__________Brids_____________
Umsjón: Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 30. september lauk
minningarmótinu um Kristmund Þor-
steinsson og Þórarin Andrewsson.
Keppni varð jöfn og hörð og margir
um hituna. Kvöldskorin varð eftirfar-
andi:
A-riðill:
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 202
Júlíana Gísladóttir - Jón Gíslason 189
HeimirTryggvason - Leifur Kristjánsson 177
B-riðill:
Sigurður Siguijónsson - Trausti Finnbogason 208
Gunnar Birgisson - Jóngeir Hlinason 191
Bjöm Svavarsson - Sigurður Aðalsteinsson 17 5
C-riðill:
Bima Þorsteinsdóttir - Sófus Berthelsen 208
Júlíana Sigurðardóttir - Kristján Bjömsson 193
Sigrún Arnórsdóttir - Bjöm Höskuldsson 177
Lokastaðan varð þessi:
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 377
Ingvarlngvarsson-KristjánHauksson 373
Júlíana Sigurðardóttir - Kristján Bjömsson 365
Sigurður Siguijónsson - Trausti Finnbogason 361
Björn Amarson - Guðlaugur Ellertsson 358
ArronÞorfinnsson-Jónlngþórsson 355
Næsta mánudag hefst fjögurra
kvölda hausttvímenningur með hinu
vinsæla barómeter-fyrirkomulagi
ásamt tölvugefnum spilum. Skráning
verður á staðnum, en til að tryggja
sér þátttökurétt er vissara að mæta
snemma.
Jafnframt verður byijendum boðið
upp á að spila sveitakeppni innbyrðis
og aðstoðaðir við að mynda sveitir og
jafnvel pör. Öllum er því óhætt að
mæta og brids er ósvikin skemmtun.
Spilað er í íþróttahúsinu við Strand-
götu og hefst keppni kl. 19.30. Keppn-
isstjóri er Einar Sigurðsson.
Bridsfélag Sauðárkróks
Síðastliðið mánudagskvöld var spil-
aður eins kvölds tvímenningur með
forgjöf.
Efstu pör urðu:
Jónas Birgisson - Jón Tryggvason 87
SteinarJónsson-ÓlafurJónsson 80
Sigurgeir Angantýsson - Birgir Rafnsson 76
Lárus Sigurðsson - Siguröur Gunnarsson 67
Næsta keppni félagsins er tveggja
kvölda barometer. Jón Örn sér um
skráningu. Hs. 35319. Vs. 35050.
Vetrar-Mitchell BSÍ
Vetrar-Mitcell BSÍ var að venju
spilaður föstudagskvöldið 27. sept-
ember. 20 pör mættu til leiks og efstir
í n-s urðu:
Guðmundur Skúlason - Indriði Rósinbergsson 252
Grímur Guðmundsson - Ingi Agnareson 242
Elín Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir..233