Morgunblaðið - 03.10.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991
21
Kvikmyndahátíð Listahátíðar:
Atta myiidir með
íslenskum texta
H SAMTÖK heilbrigðisstétta
hafa sent eftirfarandi áskorun til
skólayfirvalda: „Ofbeldi meðal barna
og ungliiiga verður sífellt stærra
áhyggjuefni í nútíma þjóðfélagi.
Einnig eru slys og dauðsföll af þeirra
völdum allt of tíð í þessum aldurshóp-
um. Augu manna beinast nú í aukn-
um mæli að því, hvernig koma megi
í veg fyrir þetta og draga úr heilsu-
tjóni. I vetur var haldin ráðstefna á
vegum Samtaka heilbrigðisstétta er
nefndist: Æska án ofbeldis - leiðir
til lausnar. Þar fjölluðu sérfræðingar
m.a. á sviði uppeldis- og mennta-
mála um tíðni og orsakir ofbeldis hjá
æsku landsins. Að fengnum niður-
stöðum þessarar ráðstefnu og mál-
þings, vilja Samtök heilbrigðisstétta
beina þeim eindregnu tilmælum til
forsvarsmanna framhaldsskóla að
þeir beiti áhrifum sínum á fram-
kvæmd hinna svokölluðu busavígs-
lna. Það þykir sýnt að leikur og fögn-
uður ungmenna hafa á stundum snú-
ist upp í andhverfu sína og leikur
orðið að slysagildrum og fögnuður
að ótta. Samtökum heilbrigðisstétta
er umhugað um að busavígslur séu
gleðilegar athafnir án hættu og von-
ast til að góð samvinna fáist um það
við nemendur sjálfa.“
Lausnin er: Enzymol
Nýtt í Evrópu
EUBO-HAIR
á Islandi
■ Engin hárígræðsla
' í gerfiná
JkJp HEngin lyfjameðferð
■Einungis tímabundin notkun
Eigid hár með hjálp lífefha-orku
p“RíSÍm?i2i Rvik ® 91 - 676331 e.kl.16.00
OPNUNARMYNDIN á Kvikmyndahátíð Listahátíðar, sem hefst í Regn-
boganum nk. laugardag, verður norska myndin Til hins óþekkta eða
„Til en ukjent“ eftir einn af gestum hátíðarinnar, Unni Ostraume.
Aðrir gestir hátíðarinnar verða þýski
leikstjórinn Margaret von Trotta og
vestur-íslenski kvikmyndagerðar-
maðurinn Sturla Gunnarsson. Þetta
kom fram á blaðamannafundi sem
kvikmyndahátíðarnefnd efndi til í
gær þar sem kynnt var efni hátíðar-
innar.
Fram kom að alls verða sýndar
28 myndir á hátíðinni sem stendur
frá 5. til 15. okt. Flestar eru þetta
nýjar eða nýlegar myndir, þrjár frá
þessu ári og 17 frá í fyrra. Sú ný-
breytni verður á þessari hátíð að
átta myndir verða með íslenskum
texta og er textasetningin unnin í
samvinnu við Regnbogann. Myndirn-
ar koma víðsvegar að úr heiminum
eða frá alls 13 löndum.
Unni Straume er fædd árið 1955
en Til hins óþekkta er hennar fyrsta
mynd. Margaret von Trotta er fædd
og uppalin í Berlín og er einn af
fremstu kvikmyndagerðarmönnum
Þjóðveija. Mynd hennar á hátíðinni
er Heimkoman („Die Ruckkehr") frá
síðasta ári. Sturla Gunnarsson er
fæddur á Islandi en fluttist til
Kanada sex ára gamall og er búsett-
ur í Toronto. Hann hefur unnið við
heimildarmyndir en verk hans á há-
tíðinni, Friðhelgin („Diplomatic Im-
munity), er fyrsta leikna mynd hans
í fullri lengd.
Meðal annarra mynda sem sýndar
verða á hátíðinni eru Taxablús og
Satan frá Rússlandi, Stingur dauð-
ans frá Japan, Lögmál lostans frá
Spáni, Henry: Nærmynd af fjölda-
morðingja frá Bandaríkjunum,
Svartur snjór frá Kína, Erkiengillinn
frá Kanada, Launráð frá Bretlandi,
Of falleg fyrir þig frá Frakklandi,
Stúlkan með eldspýturnar frá Finn-
landi og Vegur vonar eða Vonarferð-
in frá Sviss o.fl.
Skipuleg
skjalastjórnun
Meðferð upplýsinga í ýmsu formi.
Lítill tími fer í leit, ef hvert skjal er á sínum stað.
Jóhanna
Kristin
Skjalamagn hjá fyrirtækjum og stofnunum
eykst stöðugt. Samtímis eru gerðar auknar
kröfur til starfsmanna um skjótan aðgang
að upplýsingum.
Víða er ástand þessara mála slæmt hjá
fyrirtækjum og stofnunum hér á landi, þar
sem markviss stjórn á skjölum og
upplýsingum er ekkl fyrir hendi.
Á námskeiðinu verður gerð grein fyrir
einstökum þáttum skjala- og
upplýsingastjórnar, hvernig þeirtengjast
innbyrðis og mynda sameiginlega
heildarskipulag skjalamála fyrirtækis eða
stofnunar.
Þátttakendur öðlast þekkingu á
grundvallaratriðum í skjalastjórn hjá stofnunum
og fyrirtækjum og læra hagnýt vinnubrögð við
stjórn og meðferð skjala og annarra gagna.
Tími: 15. og 16. október kl. 13 til 17.
Leiðbeinendur:
Kristfn Ólafsdóttir,
bókasafnsfræðingur og ráðgjafi.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, bókasafnsfræðingur
ográðgjafi.
Stjórnunarféiag íslands
Ánanaustum 15 Sfmi 621066
Útvarpsráð:
Þingflokkur
mun tilnefna
nýja fulltrúa
ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis-
flokks mun á næstunni tilnefna
fulltrúa í útvarpsráð í stað Ingu
Jónu Þórðardóttur og Magnúsar
Erlendssonar aðalfulltrúa og Frið-
riks Friðrikssonar varamanns.
Að sögn Geirs H. Haarde, for-
manns þingflokksins, þarf að leggja
fyrir Alþingi tillögu um nýja fulltrúa
í útvarpsráð, og eru þeir síðan kosn-
ir af þinginu. Nú situr einn aðalmað-
ur fyrir flokkinn í útvarpsráði það
er Davið Stefánsson og tveir vara-
menn þau Sr. Hjálmar Jónsson og
Halldóra Rafnar.
-----» ♦ 4----
Póstur og sími:
Unnið að stofn-
un fjarskipta-
eftirlitsdeildar
POSTUR og sími undirbýr stofnun
deildar er sjá mun um fjarskipta-
eftirlit sem áður fór fram í radíó-
eftirliti og símaprófunum. Auglýst
hefur verið eftir húsnæði fyrir
deildina og staða yfirmanns verð-
ur auglýst á næstunni.
Þorgeir Þorgeirsson, framkvæmd-
astjóri umsýslusviðs, sagði að stofn-
un sérstakrar deildar um fjarskipta-
eftirlit væri í samræmi við reglugerð
um starfrækslu Pósts og síma frá
því í maímánuði. Þar væri kveðið á
um hlutverk deildarinnar sem væri
að annast reglugerðir um fjarskipti,
tegundaprófanir og viðurkenningar
á notendabúnaði og öðrum fjar-
skiptabúnaði. Sagði Þorgeir að þessi
starfsemi hefði áður farið fram í
radíóeftirliti og símaprófunum. Þor-
geir sagðist vonast til að fjarskipta-
eftirlitið gæti tekið til starfa innan
nokkurra mánaða.
I stjórn hinnar nýju deildar eru
fulltrúar Pósts og síma, Samgöngu-
málaráðuneytisins og tveir utanað-
komandi aðilar. Fulltrúar Pósts og
síma eru Ólafur Tómasson, Póst og
símamálastjóri, og Gústaf Amar,
yfirverkfræðingur.
Það verður leikur einn ef þú ekur
LANCER
MEÐ SÍTENGT ALDRIF 4x4
Meiri veghæð: Felgur 14" - Hjólbarðar 175/70
Meiri orka: 1800 cm3 hreyfill með fjölinnsprautun
Þriggja ára ábyrgð - Verð kr. 1.286.400
e
HEKLA
LAUGAVEG1174
SÍMI695500
HVARFAKÚTUR
MINNI MENGUN
X
MITSUBISHI
MOIDRS