Morgunblaðið - 03.10.1991, Blaðsíða 37
þögull en áhugasamur hlustandi.
Kynni okkar hjóna við Birnu og
Ásgeir hófust fyrir meira en 20
árum. Þau kynni þróuðust í vináttu
sem aldrei hefur fallið skuggi á síð-
an. Ótaldar eru þær ánægjustundir
sem við höfum átt á heimilum hvors
annars, bæði meðan börnin voru
ung og ekki síðut' eftir að þau uxu
úr grasi. Þá er ekki síður að minn-
ast íjölda ferða innanlands þar sem
gist var við hinar margvíslegustu
aðstæður, allt frá tjöldum, verbúð-
um, veiðiskálum að sumarhúsum
og hótelum. Að lokum viljumn við
nefna fjölda ánægjulegra golf- og
sólarferða til Spánar og Flórída.
Fyrir allar þessar ógleymanlegu
stundir viljum við þakka. Þær eru
það sem vega hvað þyngst í sjóði
minninga okkar. Eftirlifandi eigin-
manni, Ásgeiri Nikulássyni, börnum
þeirra, Hrund og Ásgeiri, aldraðri
móður og systkinum vottum við
samúð okkar og biðjum Guð að
styrkja þau í sorg þeirra.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við kæra vinkonu. Megi
friður Guðs og blessun fylgja henni
á nýjum leiðum.
Inga og Viðar
í dag verður til foldar færð merk-
is- og sómakonan Birna Torfadótt-
ir, sem barist hefur í hartnær 3 ár
hetjulegri og æðrulausri baráttu við
hinn illvíga sjúkdóm krabbmein,
sem því miður fellir svo marga langt
um aldur fram.
Árið 1971, hinn 31. desember,
giftist bróðir minn Ásgeir, Birnu,
og eignast þar frábæra eiginkonu,
háttvísa og hógværa, sem öllum
vildi gott gjöra sem henni kynnt-
ust. Sérstakar þakkir eru færðar
fyrir daglegt samband hennar við
móður okkar systkina og allt sem
hún fyrir hana gjörði til hennar
hinstu stundar.
Eftir nám Birnu í Samvinnuskó-
lanum 1958 til 1960 hóf hún störf
1961 í Samvinnusparisjóðnum, síð-
an í Samvinnubankanum til ársins
1972 og endar starfsferil sinn sem
aðalféhirðir. Allt hennar líf í leik
sem starfi bar merki heiðarleika,
festu og yfirvegunar. Heimilið var
hennar kastali, þar naut hún sín
best með hjartkærum samhentum
eiginmanni, börnum, tengdasyni og
barnabarni, sem hún kallaði gull-
molann sinn.
Birna var barnfæddur Reykvík-
ingur, dóttir hjónanna Jónu Bjargar
Björnsdóttur húsmóður og Torfa
Þorsteinssonar, vélstjóra og verk-
stjóra í vélsmiðjunni Héðni. Hann
lést 1975, 59 ára gamall. Börn
þeirra hjóna voru, auk Birnu, Auður
deildarstjóri hjá Sláturfélagi Suður-
lands, sem hefur reynst systur sinni
frábærlega vel í hennar erfiðu veik-
indum ásamt aldraðri móður. Óli
Björn, vélfræðingur hjá Goðá hf.,
indæll drengskaparmaður og star-
far sem slíkur.
Við vottum öllum ættingjum og
vinum okkar innilegustu samúð.
Guð blessi ykkur öll.
Steingímur Nikulásson og
fjölskylda.
-------*-*-»------
Leiðréttingar
í inngangi minningargreina um
Guðmund Vilbergsson í blaðinu í
gær misritaðist fæðingardagur
hans. Hann var fæddur 3. desem-
ber árið 1924.
I kveðjuorðum um Svein Pálsson
í þriðjudagsblaði varð misritun í
ljóði Tómasar Guðmundssonar. 3.
lína fyrra erindis á að hljóða svo:
Oft bar hann þrá til þín í huga sín-
um ...
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
V ________/
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991
Unnur A. Jóns-
dóttir - Minning,
Fædd 1. ágúst 1917
Dáin 8. september 1991
Þá eik í stormi hiynur háa,
hamra því beltin skýra frá
en þá fjólan fellur bláa,
fallið það enginn heyra má
en angan horfin innir fjrst,
að urtabyggðin h’vers hefur misst.
(Bjarni Thorarensen.)
Mig langar að minnast Unnar
með örfáum orðum. Mér finnst svo
stutt síðan við hittumst, og var hún
þá furðu hress, þrátt fyrir mikil
veikindi, en bjartsýn var hún og
vongóð.
Unnur fæddist 1. ágúst 1917,
dóttir hjónanna Sólveigar Stefaníu
Benjamínsdóttur og Jóns Guð-
mundssonar sem bjugggu á Seija-
nesi við Ingólfsfjörð. Voru þau sjö
systkinin, og er hún sú fyrsta af
þeim sem kveður þennan heim.
Unnur giftist Jóni Guðmundssyni
og bjuggu þau á Stóru-Ávík í
Strandasýslu. Eignuðust þau 11
börn. Mann sinn missti Unnur 25.
janúar 1974 og einn sona sinna
missti hún í nóvember sama ár, og
var hann um tvítugt er hann lést.
Hefur þetta verið erfiður tími fyrir
Unni, en börnin og tengdabörnin
studdu hana og styrktu.
Eftir lát manns hennar var Unn-
ur samvistum með Guðmundi syni
sínum og tengdadóttur í Stóru-
Ávík, þar til þau fluttu til Akra-
ness, þar sem Unnur bjó út af fyr-
ir sig, og hugsaði hún um sig sjálf
til dauðadags.
Unnur var systir tengdamóður
minnar og kynntist ég henni vel,
þar sem hún hélt góðu sambandi
við systur sína og hennar fólk.
Fór hún í fej;ð til Spánar, með
tendaforeldrum mínum og Jenný
systur sinni í apríl sl. Eftir heim-
komuna fór hún í læknisrannsókn,
og kom þá í ljós meinið, sem varð
henni að aldurtila.
Unnur var glaðvær kona, og fáa
þekki ég, sem hlógu eins smitandi
hlátri og hún. Hun var mikil hann-
yrðakona og eru pijónuðu dúkarnir
hennar hreinasta listaverk. Einnig
var hún mjög músíkölsk og hafði
góða söngrödd.
Minningarathöfn var haldin á
Akranesi, áður en hún var flutt í
sveit sína í hinsta sinn. Hún var
jarðsett í Árnesi, þar sem hún hvíl-
ir við hlið manns síns og sonar.
Mig langar til að þakka Unni
fyrir allt, það var mannbætandi að
kynnast slíkri konu.
Ástvinum hennar öllum, sendum
við Halldór og börnin okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Unnar.
Helga Björnsdóttir
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför sonar míns, föður og bróður,
GRÉTARS AXELSSONAR.
Karen Guðjónsdóttir,
Jón Arnar Grétarsson,
systkini og fjölskyldur þeirra.
t
Sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN AÐALBJÖRNSSON,
Vorsabæ 7,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 4. október
kl. 15.00.
Þorbjörg Grímsdóttir,
Fanney Stefánsdóttir, Sigurður Ingi Sigmarsson,
Laufey Ninna Stefánsdóttir, Magnús Ólafsson,
Eygló Stefánsdóttir, Gunnar Erlendsson,
Aðalbjörn Stefánsson, Sigurbjörg Kristinsdóttir,
Anna Björg Stefánsdóttir, Halldór Hákonarson,
Guðmundur Helgi Stefánsson,
Guðni Falur Stefánsson, Signý Björk Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS TÓMASSON,
Tryggvagötu 7,
Selfossi,
andaðist á Ljósheimum, Selfossi, 27. september.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 5. október
kl. 11.00.
Tómas Magnússon. Sigríður Pálsdóttir,
Matthías Magnússon, Jóna Lárusdóttir,
Jenný Magnúsdóttir, Ragnar Hermannsson,
Þórhallur Magnússon, Hafdís Guðbergsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
HELGU SÆMUNDSDÓTTUR,
Miðbraut 26,
Seltjarnarnesi.
Karl Þórðarson,
Guðný Kristjánsdóttir,
Páll Kristjánsson,
Kristjana Kristjánsdóttir,
Bjarni Þór Kristjánsson,
Gunnar Kristjánsson,
Anna Katrín Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Alfreð Þorsteinsson,
Martína Sigursteinsdóttir,
Edeltrud Mantel,
Sigríður Karlsdóttir,
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
MARGRÉTAR RUNÓLFSDÓTTUR,
Droplaugarstöðum.
Starfsfólki Droplaugarstaða þökkum við sérstaka alúð og um-
hyggju.
Kjartan Hjartarson, Ásdís Finnsdóttir,
Geir Hjartarson, Sirrý Jóhannsdóttir,
Ingólfur Þórir Hjartarson, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir,
Kristín G. Hjartardóttir, Jónas Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabarn.
kæls- 06 rmtsmsmpm
[*GEPl ÍSKALT HAUSTTILBOÐ
Gerð: RF I8I/80 - Verð kr. 4I.900,- stgr. !!
ATLAS
( ÍSSKÁPAR Rúmmá lítrar Hæð cm Tilboðs | verð
MR 284 með innbyggðu frystihólfi 280/27 145 36.900
MR 243 með innbyggðu frystihólfi 240/27 122 31.900
VR /56 með innbyggðu frystihólfi 150/15 85 26.900
KÆLISKÁPAR
RR29I án frystihólfs 280 145 34.900
RR 247 án frystihólfs 240 122 29.900
RR 154 án frystihólfs 150 85 24.900
KÆU- / FRYSTISKÁPAR
RF 289 tvískiþtur, frystir að ofan 280/45 145 39.900
RF 181180 tviskiptur, frystir að neðan 280/80 145 41.900
FRYSTISKÁPAR f*€533l
VF-223 fimm hillur 220 145 44.900
VF 123 fjórar hillur 'i: 120 85 32.900 J
Nýkomin
sending af Atlas
kælitækjum á
einstöku verði!
RÖNNING
SUNDABORG 15
^91 -685868