Morgunblaðið - 03.10.1991, Page 43

Morgunblaðið - 03.10.1991, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1991 43 VELVAKAMDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . Vísa með Rannveigu og krumma Amma hringdi og sagðist hafa séð endursýningu á Rannveigu og krumma í sjónvarpinu á dögunum. Þá sungu þau lag sem hana lang- ar ósköp mikið til þess að fá text- ann við. Hana minnir að hann hafi ijallað um tvær litlar stúlkur sem voru í pössun hjá afa og ömmu og afinn fór með þær í bíltúr og þau gerðu fleira skemmt- ilegt. Amma heldur að textinn sé eftir Hinrik Bjarnason en hana langar svo til að vita hvernig hann er svo hún geti kennt barnabörn- unum sínum hann. Svartur hattur tekinn á balli Þórunn glataði svörtum hatti á háskólaballi 19. september á Hót- el íslandi. Hun segir að sést hafi til tveggja stelpna með hattinn síðar á ballinu og þá hafi þær verið að rífast um það hvor þeirra ætti að eiga hann. Þórunn biður þá sem tók hattinn að skila honum allra vinsamlegast til sín í Lerki- hlíð 7., 105 Reykjavík. Hjóli stolið Blágrænleitt DBS karlmanns- hjól var tekið aðfararnótt 27. sept- ember (föstudag) frá Meistara- völlum 21. Þetta var því sem næst nýtt þriggja gíra hjól. Upp- lýsingar má gefa í síma 28817 eða 23992. Fundarlaunum heitið. Svart leðurveski Sunnudaginn 29. september tapaðist svait lítið leðurveski. Það er nýlegt með stuttri ól og í því var talsveit af snyitivörum en lít- ið af peningum. Til greina kemur að veskið hafi tapast á tveimur stöðum. Annars vegar hjá Þjóð- leikhúsinu en hins vegar á bíla- stæðinu við Hamraborg 20 í Kópavogi. Við upplýsingum tekur Eygló í síma 651024. Gullhringur fannst Gullhringur fannst á Sporða- grunni 25. september. Upplýsing- ar í síma 36037. Guð launar fyrir hrafninn Hvað er orðið af hrafnastofninum? Þessum íslandsfugli sem sést nú vart og margir sakna? Er það svo að landsmenn hafí strádrepið tegund sem nam hér land á undan þeim? Leggur einhver blessun sína yfir útrýmingu á hröfnum? Hvað segir Dýraverndunarfélagið um fækkun hrafna? Vonandi segja fleiri sit.t álit á þessu máli. Þ.J. Hitalagriir í „Velvakanda“ í Morgunblaðinu 26. september sl. er fyrirspurn varð- andi hitalagnir í gangstéttum og skal hér upplýst um gang mála hvað þetta snertir. Borgaryfirvöld hafa í vaxandi mæli stuðlað að upphitun yfirborðs gatnanna til hálkueyðingar. Þá hafa húseigend- ur einnig í vaxandi mæli nýtt sér frárennsli frá hitakerfum húsa sinna til að hita upp innkeyrslur og aðkomu að húsum sínum með því að veita vatninu um hitaslaufur sem lagðar eru um lóðina áður en því er veitt út í viðtaka. Þegar ver- ið er að endurnýja gangstéttir, t.d. í gamla bænum, er húseigendum því bent á þessa hagræðingu að nýta fráveitu hitakerfa húsanna þannig í stað þess að hún fari ónýtt beint út í holræskakerfið. Réttur framgangsmáti er að við- komandi húseigandi láti hanna slík ...„•luareyx scm við orðið „ofbcMi’. Eru hitalagnirnar sam- þykktar af borginni? Iv-K»r tg hryrði við U1 i Bjrlfd- ðe*l*ng»".) unni morguninn 19. reptcfnber við Já. og veit »lalUljóri af þerevi ‘Ililrúa FramsðknarflokkMm I aukalncjum „verktakana'i •TtaUjAni, um erMa (jirtajfa 3 • cg brrytlar framkva'lmU- • IliUvrilu KeykjavtVur, .........- ■ ' minum apurninp m kerfi og sendi inn uppdrátt til borg- aryfirvalda og fái þannig fuam hvað stórt yfirborð viðkomandi húseign getur haldið hálkufríu. Það er fijálst val hvort húseigendur vilja vera með í þessari hálkueyðingu en æski- legast er að sem flestir stuðli að þessu öryggi fyrir hinn gangandi vegfaranda. Ingi U. Magnússon gatnamálaslj óri Þau hafa vakið umtal Þau hafa vakið deilur Þau hafa verið fordæmd Þau hafa verið aðhlátursefni En hvað sem því líður er það staðreynd ÞAU VIRKA! MONDIAL armbandið Y fir tvær milljónir Evrópubúa, þar á meðal þúsundir íslendinga, nota nú Mondial daglega og eykst fjöldi nolenda stöðugt. Virkni MONDIAL armbandsins felst í pólunum, seni eru hlaönir 6 millivolta spennu og talið er aö hafi áhrif á plús- og mínusorku líkam- ans í átt til jafnvægis og eykur þannig vellíðan. Hollensk gæði og frábært verð. Mondial armbandið fæst í 5 stærðum: XS - 13-14 cm ummál S - 14-16 cm ummál M - 17-18 crn ummál L - 19-20 cm ummál XL - 21-22 cm ummál VERÐIÐ ER HAGSTÆTT: Silfur.......2.990,-. Silfur/gull . 2.990,- Gull...........3.990,- Ummæli nokkurra ánægðra notcnda MONDIAL armbandsins: • „Ég hef ekki sofið eins vel í mörg ár síðan ég eignaðist MONDIAL armbandið." • „Ég er búin að eiga MONDIAL armbandið í viku og hef ckki feng- iö mígrenkast sían ég setti það upp.“ • „Eftir að ég eigaðist MÓNDIAL armbandið er ég í betra andlegu jafvægi en ég hef fundið fyrir lengi." • „Ég er svo miklu betri af astmanum, eftir að hafa gengið með MONDIAL armbandið i nokkra mánuði, að ég hef getað sleppt meðulunum." • „Ég tók allt í einu eftir því, eftir nokkurra vikna notkun á MON- DIAL armbandinu, að sviðinn í axlarvöðvunum var horfinn." Póstkröfuþjónusta Greiðslukortaþjónusta Pantanasímar: (91)623336 og 626265 beuRJair Laugavegi 66 101 Rvík.Símar 623336, 626265 VIÐ VEITUM PERSONULEGA ÞJÓNUSTU OG RÁÐGJÖF Ljóð og óljóð Ágæti Velvakandi! Nokkrir lesenda blaðsins hafa lagt orð í belg varðandi skrif Guð- mundar Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra, „Ljóð og óljóð“. Ég er honum þakklát fyrir að hefja máls á þeim reginmun sem er á ljóðagerð nútímans og gömlu ljóðskáldanna, sem þjóðin elskaði. Oft heyri ég fólk tala um, að ekki sé hægt að læra þessi órímuðu ljóð, enda er það staðreynd að það gera fáir. En það er eins og lesendur séu hræddir við að setja fram skoðanir sínar, hvað þetta varðar, af ótta við að verða taldir fávísir. Margrét Jónsdóttir skrifaði einnig í Velvak- anda 27. sept. og viidi gera „bragar- bót“ á þekkingu þjóðarinnar á okk- ar bestu skáldum. Auðvitað eigum við mörg góð ljóðskáld í nútíman- um, hvort sem þau yrkja rímað eða órímað, en mörg eru „óljóðin" sem birtast á prenti, svo ruglingsleg að innihaldi, að maður verður að beita sjálfan sig hörðu til að lesa þau til enda. Þegar ég las stöku Svavars Sig- urðssonar (sem birtist í Velvakanda 27. sept.), sem sennilega átti að vera eins konar svar til Guðmundar Guðmundssonar, datt mér í hug gömul saga sem ég heyrði í æsku: Hópur manna var að vinna við byggingu skólahúss. Tveir þeirra eru nafngreindir hér, Sigurður og Halldór. Er kom að því að sperrur voru reistar, kom til kasta þess manns, sem ekki var lofthræddur, og var það Ilalldór. Gekk hann eft- ir sperrunum eins og línudansari, og renndi sér á kaðli frá mæni og niður á gólf. Sigurður vildi bera lof á Halldór með þessari stöku: Títt á teiginn renndi sér tarfur austan af landi. í tuttugu þúsund feta hæð renndi hann sínu bandi. Halldór svaraði, og lýsti vangetu Sigurðar sem ólæknandi sjúkdómi. Siggi fær víst legu langa, leitt er það um góðan dreng. Við hann oft í hópum hanga hortittar á nafiastreng. Kærar þakkir til Velvakanda fyrr og síðar. María K. Einarsdóttir Seljum af lager flestar gerðir af þessum þekktu þýsku gírmótorum og rafmótorum. Hagstætt verð! Sérpantanir afgreiddar með stuttum fyrirvara. Sala og þjónusta á sama stað. ^(snjtLPíRDCKíl midstá-fa HÖFOABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMAR 91-670000 og 91-685656 FRYSTIKISTUR VERÐHRUN 152 lítra 191 lítra 230 lítra 295 Iftra 342 lítra 399 lítra 489 lítra 587 lítra kr. 31.950,- kr. 32.390,- kr. 36.995,- Kr. 37.760,- kr. 40.995,- kr. 41.485,- kr. 47.995,- kr. 62.995,- HEIMILISKAU P H F • HEIMÍÚSTÆKJÁÐEILO FÍtKAHS . SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 814670 Innrabyrði úr hömruðu áli Lok með ljósi, læsingu, jafn- vægisgormum og plastklætt Djúpfrystihólf Viðvörunarljós Kælistilling Körfur Botninn er auðvitað frysti flötur ásamt veggjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.