Morgunblaðið - 03.10.1991, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Valsmenn
svekktir með
jafnteflið
sá, en ekkert dæmt. Einar Páll
hafði verið veikur, en var hitalaus
í gær og átti að láta reyna á hvort
hann gæti spilað í nokkurn tíma,
en hann stóð sig vel og hélt út all-
an leikinn. „Mönnum varð heitt í
hamsi við þetta, en brottreksturinn
á eftir var ekki réttlátur," sagði
Ingi Björn.
Heimamenn komust aftur inn í
leikinn eftir jöfnunarmarkið án þess
að skapa umtalsverða hættu, en
jafnteflið nægði þeim til að komast
áfram.
Valsmenn voru mjög svekktir
með jafnteflið og það að komast
ekki í 2. umferð, en kenndu lánleys-
inu um í fyrri leiknum.
„Strákarnir stóðu sig allir vel.
Þeir spiluðu ágætlega og baráttan
var góð. Við getum því borið höfuð-
ið tiltölulega hátt, en að vera
svekktur með 1:1 jafntefli á útivelli
í Evrópukeppni sýnir að þetta er í
áttina hjá okkur,“ sagði Ingi Björn.
Reuter
Arnaldur Loftsson Valsmaður í baráttu um knöttinn við Svisslendinginn Orlando í gærkvöldi, en það var einmitt
Orlando sem jafnaði fyrir Sion.
Tórínó gerði fjögur mörk á átta mínútum
mörk á sjö mínútum.
„Það var áfall að fá annað mark-
ið, því þá var ekkert að gerast og
dómarinn farinn að líta á klukk-
una,“ sagði Guðni Kjartansson,
þjálfari KR, við Morgunblaðið. „Við
rétt náðum að byrja á miðju, en
einbeitinguna vantaði í bytjun
seinni hálfleiks og auk þess hafði
Tórínó heppnina með sér. En strák-
arnir voru ekki vakandi og því fór
sem fór.“
KR-ingar fengu tvö marktæki-
færi eftir hlé. Fyrst skaut Björn
Rafnsson þrumuskoti í slá af stuttu
færi og þremur mínútum fyrir leiks-
lok komst Bjarki Pétursson einn á
móti markverði, en varnarmaður
komst á milli og náði boltanum.
„Það var óþarfí að fá svona mörg
mörk á okkur," sagði Guðni. „Það
á ekki að gerast ef menn spila agað
og skynsamlega allan leikinn, en
menn gleymdu sér um tíma.“
Atli Eðvaldsson og Sigurður
Björgvinsson voru bestir hjá KR,
en Rúnar Kristinsson var í strangri
gæslu Annonis allan leikinn og fékk
því lítið svigrúm til athafna. Þá
átti Gunnar Skúlason ágætis leik.
Reuter
Þorsteinn Halldórsson sækir að Brasiiíumanninum Walter Casagrande í
Tórínó í gærkvöldi. Til vinstri er Spánveijinn Rafael Martin Vazguez.
Sion-Valur i:i
Sion, Evrópukeppni bikarhafa í knaitspyrnu, seinni leikur í fyrstu umferð (Sion vann fyrri
leikinn 1:0), miðvikudaginn 2. október 1991.
Mark Vals: Gunnlaugur Einarsson (67).
Mark Sion: David Orlando (78.).
Rautt spjald: Sævar Jónsson og Blaise Piffaretti í byijun seinni hálfleiks.
Gult spjald: Steinar Adolfsson og Davíð Garðarsson.
Áhorfendur: 6.100.
Lið Vals: Bjarni Sigurðsson, Gunnlaugur Einarsson, Arnaldur Loftsson, Þórður Bogason
(Davíð Garðarsson vm. á 68.), Einar Páll Tómasson, Sævar ónsson, Jón Helgason, Stein-
ar Adolfsson, Anthony Karl Gregory, Jón Grétar Jónsson, Baldur Bragason.
Lið Sion: Lehmann^Sébastian, Michel, Brigger, Alain, Piffaretti, Alvaro, Reto, Orlando,
Guiseppe, Baljic.
KR-Tórínó 1:6
Tórínó á Ítalíu, Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, seinni leikur í fyrri umferð (Tórínó
van fyrri leikinn 2:0), miðvikudaginn 2. október 1991.
Mark KR: Gunnar Skúlason (16.).
Mörk Tórínó: Giorgi Bresciano (15.), Rolíeilo Policano (45.), Rafael Martin Vazquez
(48.),.Vincenzo Scifo (52. og 64.), Giuseppe Carillo (54.)
Gult spjald: Óskar Þoi’valdsson (68.).
Áhorfendur: 15.000.
Dómarí: Colic frá Júgóslavíu. Dæmdi ágætlega en sleppti augljósri vítaspyrnu á Tórínó.
Lið Tórínó: Marchegiani, Annoni, Policano, Mussi, Benedetti, Fusi, Scifo, Carillo (Ventur-
in vm.), Bresciano, Vasquez, Casagrande.
Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Atli Eðvaldsson, Sfgurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson,
Þorsteinn Halldórsson (Bjarki Pétursson vm. á 68.), Björn Rafnsson (Óskar Þoi-valdsson
vm. á 55.), Gunnar Skúlason, Sigurður Ómarsson, Heimir Guðjónsson, Ragnar Margeirs-
son, Rúnar Kristinsson.
KR-INGAR máttu sætta sig við
6:1 tap gegn Tórfnó í seinni
leik liðanna í Evrópukeppni fé-
lagsliða, en ítalska liðið vann
2:0 ífyrri leiknum. KR-ingar
voru taugaóstyrkir í byrjun, en
náðu sér fljótlega á strik og
áttu i fullu tré við heimamenn
ífyrri hálfleik — léku reyndar
mjög vel. En fjögur mörk á átta
mínútum gerðu útslagið og KR
er úr leik.
Tórínó byijaði af miklum krafti
og náði forystunni eftir stund-
arfjórðung, en Gunnar Skúlason
jafnaði með skalla eftir sendingu
frá Atla Eðvaldssyni tveimur mínút-
um síðar. Markið setti heimamenn
útaf laginu og KR-ingar fengu tvö
ágætis marktækifæri skömmu síðar
án þess að bæta við. í annað skipt-
ið var Atla haldið, þegar hann ætl-
aði að skalla í markið af stuttu
færi og vildu KR-ingar fá víta-
spyrnu, en dómarinn var á öðru
máli. Annað mark Tórínó kom á
síðustu mínútu hálfleiksins og virk-
aði sem vítamínssprauta á heima-
menn, sem byijuðu seinni hálfleik-
inn með látum og uppskáru þá þijú
VALUR gerði 1:1 jafntefli við
Sion á útivelli í seinni leik lið-
anna í Evrópukeppni bikarhafa
í knattspyrnu í gærkvöldi. Vals-
menn léku vel, en voru óheppn-
ir að missa ieikinn niður i jafn-
tefli. Þar með komst Sion
áfram, en Svisslendingarnir
unnu 1:0 í Laugardalnum.
Bjarni Sigurðsson, markvörður
Vals, var maður leiksins og
varði stórglæsilega hvað eftir ann-
að. Sion sótti stíft, en Valsmenn
léku vel inni á milli og um miðjan
seinni hálfleik gerði Gunnlaugur
Einarsson glæsilegt mark — skaut
af 22 til 25 m færi og boltinn fór
í stöng og inn.
„Þetta var frábært mark,“ sagði
Ingi Björn Albertsson, þjálfari Vals,
við Morgunblaðið. „Eftir það náðum
við undirtökunum og jöfnunar-
markið var óverðskuldað. Við vor-
um ósáttir við það og fannst á okk-
ur brotið.“
í byijun seinni hálfleiks lentu
fyrirliðar liðanna í návígi úti á kanti
með þeim afleiðingum að báðum
var vísað af velli og þótti það
strangur dómur. Mínútu áður gerð-
ist umdeilt atvik inni í teig Vals-
manna, þegar Einar Páll Tómasson
var sleginn í andlitið svo á honum
18 tíma
írútu!
Valsmenn koma heim í dag
frá Lúxemborg og ef af
líkum lætur reynist ferðalagið
þeim eiTiðara en leikurinn. Sion
er í suður frá Basel nálægt
landamærum Ítalíu og flugu
Valsmenn til Lúxemborgar, en
fóru þaðan með rútu til Sion.
Ferðalagið frá Lúxemborg tók
um níu tíma og sami háttur var
hafður á í nótt. Eftir leikinn
fengu leikmennirnir að borða,
en síðan beið þeirra níu tíma
rútuferö í nótt. Valsmenn voru
því í 18 tíma í rútu vegna Evr-
ópuleiksins og er víst að þeir
láta þann leik ekki endurtaka
3ig.
Evrópukeppnin
Öll úrslit leikja á Evrópumót-
unum þremur í gærkvöldi eru
á bls. 45. Þar má sjá hvaða
iið komust áfram í aðra um-
ferð — UEFA-meistararnir
frá því í vor, Internazionale
frá Mílanó, eru til dæmis úr
leik!
KR-ingar
sofnuðu á
verðinum
Við erunn í hátíðarskapi
Afmælistilboð
í tilefni 5 ára afmælis Átfaborgar bjóðum við viðskiptavinum okkar til veislu dagana 30/9 - 5/10 '91. Samtals 650
m2 af flísum að verðmæti 2 milljónir - seljast á 1 milljón., 10% atsláttur af öðrum vörum.
ALFABORG ?
mm
E VISA”
Hikæ
Polaris 60x60 Nevada 45x45 Siríus 42x42 Alleghe 20x20 Lipsia15x15 Miraggio 15x20
kr. 2.635 m2 kr. 1.874 m2 kr. 1.289 m2 kr. 901 m2 kr. 999 m2 kr. 970 m2 Raðgreiðslur
Byggingamarkaður - Knarrarvogi 4
104 Reykjavík - Sími 686755