Morgunblaðið - 03.10.1991, Page 47
s
I
]
I
í
í
I
í
J
J
3
J
I
taot M,- m,:.,,y.WMnfnrvtsMi (I.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Trúi ekki að Fram
arar séu áhugamenn
- sagði Vasilis Daniel, þjálfari Panathinaikos, eftir markalaust jafntefli í Aþenu. Grikk-
irnir komast í aðra umferð vegna markanna sem þeir gerðu á Laugardalsvelli
FRAMARAR féllu út úr Evrópu-
keppni meistaraliða með
sæmd eftir markalaust jafntefli
gegn grísku meisturunum Pan-
athinaikos í síðari leik liðanna
á Ólympíuleikvanginum í
Aþenu í gærkvöidi. „Framarar
léku mjög vel í þessum leik.
Þeir vita greinilega hvernig á
að spila fótbolta. Leikurinn var
erfiður en ég var ekki ánægður
með mína menn," sagði Vasilis
Daniel þjálfari Panathinaikos
eftir leikinn og bætti því við að
hann ætti bágt með að trúa
því að leikmenn Fram væru
áhugamenn. Daniel hældi Pétri
Ormslev sérstaklega og sagði
að þar færi mjög góður leik-
maður.
Valur B.
Jónatansson
skrifarfrá
Gríkklandi
Islensku strákarnir eiga hrós skil-
ið fyrir góðan leik og mátti ekki
á milli sjá hvort liðið var skipað
atvinnumönnum. Auk þess sem
dómarinn, sem kom
frá Albaníu, var
tólfti maður gríska
liðsins og dæmdi lið-
inu meðal annars
vítaspyrnu sem var alveg út í hött.
En þrátt fyrir allt geta Framarar
borið höfuðið hátt því þeir voru góð
auglýsing fyrir íslenska knatt-
spymu. Þeir geta þó nagað sig í
handarbökin yfir því að hafa ekki
unnið þetta lið á Laugardalsvelli
því það varð þeim að falli í keppn-
inni að þessu sinni.
Framarar fóru rólega af stað í
fymi hálfieik enda kom gríska liðið
ákveðið til leiks og ætlaði að sýna
íslendingum í tvo heimana. Framar-
ar bökkuðu og létu heimamönnum
eftir svæði úti á vellinum en léku
sterka vörn. Hvorki gekk né rak
Pétur Ormslev lék mjög vel í Aþenu í gærkvöldi. Stjórnaði liði Fram eins og herforingi.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ RÍKHARÐUR Dnðason ætlaði
til West Ham sagði eftir leikinn í
gær að ekki væri víst að hann færi.
Hann fann til í hnénu eftir leikinn
og óttaðist að það myndi bólgna.
■ KRISTJÁN Jónsson fer ekki
með landsliðinu til Kýpur. Hann
, sagði að þetta hefði verið ákveðið -
fyrir þónokkru og Ásgeir ætlaði
að skoða fleiri leikmenn í þeirri ferð.
■ PANA THINAIKOS fékk rúm-
lega 68 milljónir drakma, eða um
22 milljónir íslenskra króna, í að-
gangseyri í gærkveldi.
■ FORRÁÐAMENN Fram fóru
í heimsókn um borð í listisnekkju
forseta Panathinaikos, George
Vardinoyannis, í gær. Forsetinn
kom sjálfur í fylgd með fríðu föru-
neyti til að fylgja Frömurum um
borð í snekkjuna. Halldór B. Jóns-
son formaður knattspyrnudeildar-
innar átti ekki til nógu sterk lýsing-
arorð til að lýsa herlegheitunum.
■ TENGDAFAÐIR forseta fé-
lagins var meðal áhorfenda í gær. '
Skömmu eftir að Saravakos mis-
notaði vítaspyrnuna fékk sá gamli
hjartaáfall og var fluttur á spítala
í snarhasti og er vart hugað líf.
■ EIN ferðataska skilaði sér ekki
til Fram fyrir leikinn í gær. í henni
voru gjafir til dómaratríósins, en
Framarar höfðu ekki mikiar
áhyggjur af því eftir leikinn þó það
fengju ekkert frá félaginu.
■ SOFFÍA Guðmundsdóttir eig-
inkona Ásgeirs Elíassonar þjálf-
ara, sem er hjúkrunarkona, var á -
leikskýrslu í leiknum í gær. Er þetta
í fyrsta sinn sem kona er á bekkn-
um hjá íslensku liði í Evrópukeppni.
■ BALDUR Bjarnason fékk
slæmt spark í hnéð þegar 10 mín
voru eftir. Hann sagði eftir leikinn
að þetta væru samskonar meiðsli
og hijáðu hann fyrir Iandleikinn
gegn Spánverjum en vonaðist þó
til að verða orðinn góður fyrir leik-
inn gegn Kýpur, þ.e.a.s. ef hann
yrði valinn.
Hvað sögðu þeir?
hjá Panathinaikos og eftir fimmtán
mínútna leik var Anton Björn
sparkaður gróflega niður og varð
að fara útaf meiddur. Þetta atvik
varð til þess að Framarar efldust
og komu meira inní leikinn, léku
af skynsemi, héldu boltanum vel
og byggðu á skyndisóknum sem
fóru að mestu fram upp vinstri
vænginn. Þar var Baldur Bjarnason
í essinu sínu, plataði varnarmenn
Grikkja oft upp úr skónum og náði
góðum fyrirgjöfum.
Besta færi fyrri hálfleiks fékk
Pétur Arnþórsson er hann átti
hörkuskot frá vítateigslínu sem
smaug rétt yfir þverslánna.
Síðari hálfleikur var ekki nema
tveggja mínútna gamall þegar al-
banski dómarinn dæmdi vítaspyrnu
á Pétur Arnþórsson, sem var alveg
út í bláinn. „Ég kom ekki einu sinni
við manninn, hvað þá boltann. Ég
reyndi að hindra að hann kæmi
boltanum fyrir markið með því að
renna mér fyrir hann. Þessi dómur
var algjörlega út í hött,“ sagði Pét-
ur eftir leikinn.
Fyrirliði Panathinaikos, Sarava-
kos, tók spypnuna og skaut hátt
yfir markið. Áður en fyrirliðinn tók
vítaspyrnuna sagði Pétur Orsmelv
við hann: „Þú ert ekki öfundsverður
af því að taka þetta víti sem þú
fékkst á óheiðarlegan hátt.“ Þetta
virtist slá kappann út af laginu.
Grikkirnir fengu nokkur hálffæri
en Birkir Kristinsson greip vel inn
í leikinn þegar á þurfti að halda.
Undir lok leiksins fengu þeir gott
færi þegar einn leikmanna fékk
sendingu innfyrir og var einn á
markteignum, kolrangstæður en
ekkert var dæmt. Birkir gerði sér
lítið fyrir og varði meistaralega í
horn.
Framarar réðu ferðinni strax eft-
ir vfaspyrnuna — nánast allan
seinni hálfleikinn. Baldur Bjarnason
pijónaði sig skemmtilega í gegnum
vöm Grikkja á 56. mínútu en mark-
vörðurinn varði meistaralega skot
hans. Skömmu síðar átti Þorvaldur
Örlygsson skalla að marki eftir
sendingu frá Kristjáni Jónssyni en
enn var pólski landsliðsmarkvörður-
inn í liði Panathinaikos á réttum
stað.
Grikkirnir voru greinilega búnir
að sætta sig við jafntefli og reyndu
að spila af öryggi án þess að taka
neina áhættu. Pétur Arnþórsson
átti lokaorðið fyrir Fram í leiknum
en markvörðurinn varði enn og aft-
ur gott skot hans.
Allir leikmenn Fram stóðu sig
vel en enginn þó betur en Pétur
Ormslev sem stjórnaði leik sinna
manna af miklu öryggi. Þeir nýttu
vel breidd vallarins og sköpuðu sér
færi sem á góðum degi hefðu nýst,
en heppnin var ekki þeim hliðholl
að þessu sinni.
Grísku áhorfendurnir voru
greinilega ekki sáttir við frammi-
stöðu sinna manna. Mótspyrna
Framara fór í taugarnar á þeim og
grýttu þeir flöskum og smápening-
um inná vallarhelming Framara.
Tvívegis varð að stöðva leikinn
vegna þessarar framkomu, en ekki
lentu flöskurnar né peningarnir á
leikmönnum Fram þó oft hafi mun-
að litlu.
Eg vissi allan tímann að þetta
yrði erfitt en við áttum mögu-
leika. Þetta kennir okkur að við
verðum að vinna á heimavelli til
að eiga möguleika í svona keppni.
Dómarinn var ekki uppá það besta
en maður hefur svo sem séð svona
dómgæslu áður,“ sagði Ásgeir
Elíasson sem stjórnaði Framliðinu
í síðasta sinn í gær.
„Ef við hefðum náð að vinna
heimaleikinn held ég að það hefði
verið auðveldara að halda því.
Gríska liðið byijaði með látum en
þeir náðu aldrei að ógna marki
okkar verulega. Við fengum okkar
færi en heppnin var ekki með okk-
ur. Við leyfðum þeim að spila upp
í hornin en fyrirgjafir þeirra voru
slakar og áttum við ekki í erfiðleik-
um með þær .
Ég hefði viljað kveðja Fram með
því að komast í aðra umferð en það
brást. Það vantaði svo lítið uppá
og það var heimaleikurinn sem réði
úrslitum,“ sagði Ásgeir.
Svekktur
„Ég er svekktur yfir því að við
náðum ekki að komast í aðra um-
ferð. Við lékum vel og hefðum al-
veg eins átt að getað sigrað. Dóm-
gæslan var algjört hneyksli og ég
hef aldrei orðið vitni að öðru eins.
Dómarinn beið greinilega eftir því
að geta fært þeim sigurinn á silfur-
fati. Þetta var mjög erfiður leikur,
hitinn var mikill og ég var alveg
búinn í lokin,“ sagði Pétur Arnþórs-
son.
Sæmilega sáttur
„Ég er sæmilega sáttur við leik-
inn, hann gat farið á báða vegu.
Markmiðið var að halda hreinu og
það tókst. Annars var mjög erfitt
að spila þennan leik, hitamollan
hafði þannig áhrif að mér fannst
ég vera þyngri en venjulega. Það
var engu að síður gaman að spila
fyrir framan svona marga áhorf-
endur,“ sagði Birkir Kristinsson.
Grófari en við
„Það er alltaf erfitt að spila þeg-
ar maður hefur dómarnn líka á
móti sér. Grikkirnir voru miklu
grófari en við en samt var alltaf
dæmt á okkur í návígum. Ég bjóst
við að þeir myndu pressa á okkur
framar á vellinum en það var að-
eins í byrjun sem þeir gerðu það,
síðan vorum við jafn mikið inni í
leiknum," sagði Kristján Jónsson.
Svekkjandi
„Fyrstu fimmtán mínúturnar
voru erfiðar en síðan náðum við að
komast ágætlega inn í leikinn. Við
máttum ekki koma nálægt þeim þvf
þá var flautað um leið. Það var
svekkjandi að ná ekki að vinna, en
það er engu að síður gott að ná
jafntefli hér,“ Þorvaldur Örlygsson
sem lék sinn síðasta leik með Fram.‘,
Full langt gengið
„Ég hef upplifað ýmsilegt varð-
andi dómgæslu en þetta tók öllu
fram. Þó þeir séu á heimavelli var
þetta full langt gengið. Mér fannst
leikurinn ekki svo erfiður, við feng-
urn okkar færi en það vantaði
heppnina að þessu sinni. Það var
alveg til í dæminu að fara áfram í
keppninni þrátt fyrir að vera á
móti tólf andstæðingum," sagði
Pétur Ormslev, fyrirliði Fram.
Panathinaikos - Fram 0:0
Ólympíuleikvangurinn í Aþenu, Evrópukeppni meistaraliða, síðari leikur i 1. umferð, mið-
vikudaginn 2. október 1991.
Gult spjald: Kristján Jðnsson (30.), Baldur Bjamason (83.) og Pétur Ormsiev (86.).
Ahorfendur: 45.758. Dómari: Cunej frá Albaníu.
Lið Frain: Birkir Kristinsson, Kristján Jónsson, Jón Sveinsson, Pétur Ormslev, Jón Eriing
Ragnarsson (Pétur Marteinsson 78.), Kristinn R. Jónsson, Pétur Arnþórsson, Þorvaldur
Öriygsson, Baldur Bjarnason, Steinar Þór Guðgeirsson, Anton Björn Markússon (Ríkharð-
ur Daðason 14.)
Panathinaikos: Wandzik, Apostolakis, Kaltzis, Christodouiou, Kalitzakis, Mavridis, Sarava-
kos (Donis 76.), Karageorgiou, Athanasiadis, Georgakopoulos (Antoniou 81.), Maraeos.
2. DEILD
Hörður þjálfar Stjömuna
Hörður Helgason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Stjörnunn-
ar í knattspyrnu næstu tvö árin. Hörður hefur þjálfað mikið á und-
anförnum árum og hefur þjálfað ÍA, KA og Val í fyrstu deild. í sumar
var hann með 2. flokk Akurnesinga auk þess sem hann þjálfaði landslið
íslands skipað leikmönnum 18 ára og yngri.