Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 25
MORGlfNBLAWn VELVAKANDI súnnódYgíSYv. ÖKTÖBER 1991
C 25
*
Utþensla alheims er víkkun í
tíma. Fáir skilja víðtæka
heimssýn azteka, tolteka og maya,
eða himinslönguguðinn Quetzalaeo-
atl. Landbúnaður, lífræn meðferð
jarðvegs og vatnakerfis náði há-
marki í Inkaríki Andesíjalla. Talar
Guð í þögninni sjálfri með hugskeyt-
um við alla skepnu? Að því höfðu
fyrirþjóðir Eyjaálfu og Kalahari
auðnar komist. Segulmögn jarðar
og afstaða til himintungla sem viðm-
iðun í náttstað, einnar nætur eða
fleiri. Fótum troðnar þjóðir Ameríku
og Eyjaálfu þekktu allt þetta, einnig
fyrirþjóð Síberíu, Ainoar Japan.
Ymsar þjóðir í Asíu, Afríku og Evr-
ópu, t.d. Samar.
Evrópumenn fundu jú alla hluti,
aðra en sjálfa sig. Heilar heimsálfur
byggðar mönnum í umhverfisvæn-
um samfélögum. Bíla? Einum þeirra
var ekið um keisaragarðinn í Kína
sextánhundruð og eitthvað! Listir?
Sjá má á Bali, Laos og Saq „sawa-
man! Skráning staðreynda? Auk orða
getur quipu trafletur skráð öll þau
hljóð, sem eyrað fær greint.
Sigurlaugur Brynleifsson ásakar
þá mörgu, sem ekki vilja lofsyngja
dáðir Kólumbusar og dróttar að
marxisma, í skjóli náðar ritstjóra
Lesbókar. Glópalánið, staðvindurinn
bar hann yfir Atlantshafið. Hann
vildi aldrei viðurkenna hvar hann
var staddur og hann á heiðurinn af
því að hafa rænt fólki, sundrað fjöl-
skyldum og flutt það nauðugt yfir
úthaf í öfuga átt við þann megin-
straum er síðar varð. Rétt er að ít-
reka enn einu sinni: Marxismi, naz-
ismi, fasismi, kapítalismi og zíonismi
eru óaðskiljanlegir hlutar af vest-
rænni menningu og sögu hennar.
Dauðasynd vestrænnar menningar
er hóflaus græðgi og keppnisandi,
menn kunna hvárki að deila með sér
aflahlut eða akurgróða, sem svo aft-
ur leiðir til visthruns.
Evrópumenn fundu líka upp tón-
listina við Miðjarðarhaf á elleftu öld
e. K. Gildir að einu, þótt Kínveijar
hafi átt söngleiki, kóra, stórhljóm-
sveitir og skráð tónverk, fimmtán
hundruð árum áður. Samgöngur
voru greiðar vítt um stóra megin-
landið. Meistarinn Konfúsíus þreytt-
ist seint á því að lofsyngja gildi
góðrar tónlistar, en vara við skað-
semi þeirrar lélegu. Hann lék jafn-
vel sjálfur á steinklukkur í Vei, þessu
til staðfestingar. Steinklukkur voru
10 til 20 gijóthellur sem römbuðu
og gáfu frá sér tón væri á þær sleg-
ið. Rétt samsettur jarðvegur undir
verkaði sem kröftugur hljómbotn.
Dulítið skondið að Konfúsíus skyldi
fordæma lélega tónlist. Kínveijar
þeirra tíma áttu engin rafmögnuð
hljóðfæri, magnara eða hljóðnema
til að hálfgleypa en vera má að þeir
hafi getað sungið falskt, rödd brost-
ið í miðju lagi, og haft hallærislega
texta.
Skömm er að halda landafundi
hátíðlega án þess að trega ótímabær
mannslát hundruð milljóna manna í
beinni útrýmingu, á plantekrum og
í námum. Hvergi mun „Abels blóðið”
hrópa hærra til himins, en hérna.
Eitt sinn var Vestur-Bengal og
Bangla Desh ríkust landa Asíu. Gjöf
vestrænnar menningar til heimsins,
er þrúgandi örbirgð frá vöggu til
grafar fyrirflesta og síðan allsheijar
visthrun. Eigum við að vera stolt
af því?
Hér á landi er von þjóðar um frest-
un lífskjarahruns, bundin við orkuf-
rekan iðnað. Mannvirki Landsvirkj-
unar bera af um snyrtilegan frá-
gang. Friðlönd hennar ofan við
Tungnaá eru að verða rauð af eyrra-
rós, fallega blóminu er dætur nor-
rænna indíána, löngum nafn af
drógu. Aukinn kostnaður við raf-
orkuver er ekki í þágu almennings.
Hinsvegar skipta gjöld fyrir heil-
brigðisþjónustu .hann miklu máli.
Skipulags- og áætlunarbúskapur
er best jarðsunginn með sovéskum
kommúnisma, en minna má á_að illu
heilli var öllum bröggum á íslandi
tortímt, til skaða fyrir söguna. Rétt-
urinn til að verða sér úti um land,
reisa sér þar heimili, og/ eða at-
vinnustarfsemi einnig, ráða gerð
þess og útliti, eru frumstæðust
mannréttinda. Skerum niður óþarf-
ann í skriffinnskubákni ríkisins og
flytjum skipulag ríkisins og Náttúru-
verndarráð í heilu lagi ósködduð nið-
ur á Árbæjarsafn til varðveislu um
kommúníska starfshætti í liðinni tíð,
á ísa Fróni.
Bjarni Valdimarsson
Sterkasti maður heims
fékk engar móttökur
að var með reiði sem ég las í
Pressunni þann 17. október
að Magnús Ver Magnússon hafi
komið til landsins með sömu flug-
vél og bridsmennirnir. En hann fékk
enga ræðu né móttöku. Þetta er til
háborinnar skammar.
Ég ætla alls ekki að draga at-
hygli frá hinum frábæra árangri
bridsmannanna en hvað um Magn-
ús Ver? Ég krefst þess að opinber
rannsókn fari fram til þess að at-
huga hvers vegna hinn nýkrýndi
sterkasti maður heims fékk ekki
ræður og móttökur. Það er heilög
Magnús Ver Magnússon.
skylda íslensku þjóðarinnar að allir
íslendingar sem hafa verið landi og
þjóð til sóma njóti sömu réttinda.
Vilhjálmur Alfreðsson
Byggðastefna - Hvað er það?
Hefur einhveijum frammámanni
eða konu á Alþingi dottið í hug
að það væri ekkert byggðastefnu-
vandamál og það mætti taka orðið
úr íslenskunni. Ef, í fyrsta lagi, ekki
væri og hefði aldrei .verið ausið fé í
fyrirtæki sem ekki bera sig. Það
hljóta allir hugsandi menn og konur
að sjá, að sé fyrirtækjum leyft að
verða gjaldþrota í friði, og fyrirsjá-
anlegt að enginn grundvöllur er fyr-
ir rekstrinum í byggðinni þá færast
bæði fyrirtækin og fólkið í byggð-
inni þangað sem grundvöllur er fyr-
ir arðbærum rekstri.
Ef ekki væru alltaf misvitrir menn
að „hjálpa” byggðastefnunni þá
tækist fólkinu í landinu, ásamt fyrir-
tækjunum, að stefna sjálfkrafa
þangað sem arðbært er að vera.
Þegar hlutunum er leyft að gerast
sjálfkrafa verður engin stórfelld
röskun á byggð og þar af leiðandi
þarf enga byggðastefnu. Það eru
engin svik við forfeðurna þótt fólk
kjósi sökum atvinnu eða af öðrum
sökum að búa þétt og mynda stóra
þéttbýliskjarna. Það sjá allir kostina
við stóra bæi. Tökum sem dæmi ef
Vestfirðingar hefðu allir flust á ísa-
flörð, þar væri nú stór bær sem
myndi laða að sér fyrirtæki, bærinn
fengi að halda þeim gjaldeyri sem
hann aflaði. Þannig gæti hann orðið
sjálfum sér nógur hvað varðar sam-
göngur, skólamál og fleira í þá átt-
ina. Ef ekki hefðu verið einhveijir
misvitrir menn að finna upp á
byggðastefnu hefði þróunin orðið
svona og ekki einungis á Vestfjörð-
um heldur í öllum landshlutum.
Þannig hefði sparast stórfé fyrir
þjóðina og niðurlæging fyrir fólkið
sem býr í byggðum með svokölluð
byggðastefnuvandamál. Þó við höf-
um gott Iandrými ber okkur engin
skylda að búa svo dreift sem við
gerum. Að þessum orðum rituðum
vil ég biðja þá sem völdin hafa að
leggja byggðastefnuna niður og taka
orðið úr íslenskunni. Leyfið hlutun-
um að gerast af sjálfu sér.
Annað sem einnig mætti hafa í
huga, að í stað þess að sóa fé í von-
laus fyrirtæki sem rekin eru af mis-
heiðarlegum mönnum, engum til
hagsbóta nema þeim sem geta
stungið undan fé í gjaldþrotum.
Væri ekki ódýrara að senda þeim
sem misstu vinpuna atvinnuleysis-
bætur og þá á ég ekki við tímabund-
ið heldur eins lengi og þarf. Það er
ekkert nema dulið atvinnuleysi að
halda uppi fyrirtækjum á styrkjum
og niðurgreiddum lánum.
Svona í lokin vil ég þakka Davíð
Oddssyni fyrir að þora að hafa orð
á hlutunum, en hefur hann kjarkinn
til að framkvæma.
Þetta skrifar hugsandi húsmóðir
í Njarðvíkum.
Guðrún Guðmundsdóttir
Þessir hringdu ...
Smekklaust tal
Jóhann hringdi og vildi koma
eftirfarandi athugasemd á fram-
færi:
í sjónvarpsfréttum 24. október
talaði biskupinn, herra Ólafur
Skúlason, um átak kirkjunnar til
hjálpar vegna aukinna sjálfsvíga
hér á landi. Af þessu tilefni sagði
biskupinn frá því að fyrir tveimur
árum hefði hann komið til bæjar
úti á landi og það hefði verið eins
og að koma í draugabæ! Enginn
verið á ferli. Skýringin var sú að
sjálfsvíg hafði verið framið í bæn-
um. Það vekur undrun hvernig
talað er um atburð sem vakið
hefur sorg og harm í bænum. Við
hveiju bjóst biskupinn? Hér hefði
þurft að koma til nærgætni og
samúð af hans hendi og notkun
orðsins „draugabær” er að núa
salti í sárin. Aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Jakki tekinn í misgripum
Föstudaginn 18. október var
blár jakki tekinn í misgripum fyr-
ir annan á Holliday Inn hótelinu.
í jakkanum sem skilinn var eftir
vom lyklar. Sá sem tók jakkann
óvart er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 813791.
Úr tekið í sundlauginni
í Laugardal
Jónína fór í sundlaugina í Laug-
ardal fimmtudagskvöldið 24.
október með glænýtt úr sem hún
hafði fengið að gjöf. Úrið er af
gerðinni Delma og það var tekið
úr búningsklefanum. Jónína biður
þá sem að tók úrið vinsamlegast
að skila því aftur annaðhvort til
starfsmanna í Laugardagslaug-
inni eða hafa samband við sig í
síma 814031. Fundarlaunum heit-
ið.
Gefins kisur
Tveir kassavanir kettlingar fást
gefins. Upplýsingar í síma
678318.
3 dagar
17.900
HOLIDAY INN
Með morgunverðarhlaðborði. Aðgangur að heildverslun Makro.
= FLUGFEROiR
= SDLFIRFLUG
Vesturgata 1 7, Sími 620066.
ÖII verð eru staðgreiðsluverð ón flugvallaskatta og fbrfallatryggingar.
Meira en þú geturímyndað þér!
Endingargóð
og þroskandi leikföng
KAUPMENN, KAUPFÍLÖG!
VÖNDUÐ LEIKFÖNG
ÁÆVINTÝRALEGU VERÐI
Nylint
SOUNDMACHINE
I.GUÐMUNDSSON S.Co. hf
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Q) 91- 24020
Bílar, bótar og flugvélar
Lítillen heillandi heimur
Mjög vandaðir bílar
sem gefa fró sér
raunveruleg hljóð
frá tjoioob)
frá Cgaloob)
Brúðan sem brosir svo
fallega