Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
265. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Júgóslavía:
Átök tefja
flutninga
frá Vukovar
Belgrad. Reuter.
TILRAUNIR til að flytja særða
menn, gamalmenni og börn frá
Vukovar fóru út um þúfur í gær
vegna bardaga milli króatískra
þjóðvarðliða og sambandshers-
ins. Langflestir Króatanna hafa
þó gefist upp en nokkur hópur
heldur enn uppi mótspyrnu.
Vopnahléið, sem um samdist fyr-
ir helgi, hefur ekki verið virt og
hefur sambandsherinn haldið
uppi stórskotaliðsárásum og
loftárásum á borgir og bæi víða
í Króatíu.
Fyrirhugað var, að bílalest frá
króatíska hemum færi til Vukovar
til að sækja þangað um 400 særða
menn, 110 börn og 100 gamal-
menni en hætt var við þessa áætlun
þegar bardagar brutust út skammt
frá sjúkrahúsinu í borginni. Síðar
var þó skýrt frá því, að sambands-
hermenn hefðu náð sjúkrahúsinu á
sitt vald. Embættismaður í upplýs-
ingamálaráðuneytinu í Zagreb, sem
Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði
hins vegar, að ástæðan væri aðal-
lega sú, að sambandsherinn hefði
margbreytt leiðinni, sem bílalestin
ætti að fara. Hugsanlega vegna
þess, að hann treysti ekki eigin
mönnum og allra síst serbnesku
sjálfboðaliðunum, cetnikunum, til
að ráðast ekki á lestina. Sagði hann,
að enn væru í Vukovar um 2.000
böm og ástandið á þeim og aðstæð-
urnar skelfílegri en orð fengju lýst.
Hafa þau hírst í húsakjöllurum
ásamt fullorðna fóikinu í þá 86
daga, sem árásir sambandshersins
hafa staðið yfir.
Króatíska æðstaráðið, sem er
skipað fulltrúumi ríkisstjórnarinnar
og hersins, hefur skipað Króatanum
Stipe Mesic, forseta júgóslavneska
sambandsríkisins, að segja'af sér.
Sagði í samþykktinni, að þetta
embætti væri í raun ekki til lengur.
Sjá frétt á bls. 21.
Nakta Maja
tekin niður
New York. The Daily Telegraph.
ENDURPRENTUN málverksins
Nöktu Maju eftir spænska málar-
ann Goya hefur verið tekin niður
af vegg skólastofu nokkurrar í
Penn State háskólanum í Banda-
ríkjunum. Ástæðan er sú að
kvenkyns prófessor við skólann
kvartaði undan því að málverkið
truflaði kennsluna.
Endurprentunin hefur hangið í
tónstofu háskólans undanfarin tíu
ár. Sýnir það hertogaynjuna af Albá
liggja brosandi á dívan og var mál-
að um aldamótin 1800. í síðustu
viku ályktaði Kvennanefnd skólans
sem fjallar um samskipti kynjanna
að myndin skyldi tekin niður og var
svo gert. í áliti nefndarinnar sagði
að kvenkyns kennarar skólans ættu
í erfiðleikum með að varðveita fag-
lega ímynd sína með mynd af nak-
inni konu á veggnum bak við þær.
Ekki fylgir sögunni hvort annað
málverk Goya, Klædda Maja, verð-
ur hengt upp í staðinn.
Reuter
Bandaríkjamaðurinn Thomas Sutherland faðmar eiginkonu sína Jean
en þau hittust á hersjúkrahúsi í Wiesbaden í Þýskalandi í gær eftir
rúmlega sex ára aðskilnað.
Terry Waite og Thomas Sutherland:
Gíslamálinu gæti
lokið um áramótin
Lundúnum. Reuter.
VESTRÆNU gíslarnir tveir, sem látnir voru lausir í Líbanon á
mánudag, hittu fjölskyldur sínar í gær eftir að hafa verið hlekkjaðir
í dimmum herbergjum í áraraðir. Þeir sögðust báðir vona að endi
yrði senn bundinn á gíslamálið.
Bretanum Terry Waite var fagn-
að sem þjóðhetju er hann kom til
herstöðvar í suðurhluta Englands
eftir 1.763 daga gíslingu. Á meðal
þeirra sem tóku á móti honum voru
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, og fyrrverandi og núver-
andi biskupar af Kantaraborg.
Waite sagði að mannræningjarnir
í Líbanon hefðu sagt að síðustu
bandarísku gíslingarnir þrír y-rðu
leystir úr haldi fyrir lok mánaðarins
og kvaðst vona að tveimur Þjóðverj-
um yrði einnig sleppt fyrir áramót.
Þjóðverjarnir eru í haldi hreyfingar,
sem er einkum skipuð ættingjum
tveggja shíta er sitja í fangelsi í
Þýskalandi.
„Þeir hafa komist í mikinn vanda
með því að halda gíslunúm,” sagði
Bandaríkjamaðurinn Thomas Suth-
erland, sem var einnig látinn laus
á mánudag, er hann kom á banda-
rískt hersjúkrahús í Wiesbaden í
Þýskalandi. „Þeir hafa áttað sig á
að slíkt borgar sig ekki.”
Báðir mennirnir voru taldir betur
á sig komnir en búist hafði verið við.
Utvarpið í Teheran sagði að lausn
mannanna tveggja benti til þess að
mannræningjarnir í Líbanon hefðu
ákveðið að láta alla gíslana lausa.
„Búist er við að endi verði bundinn
á gíslamálið að fullu og öllu,” sagði
útvarpið.
Mannræningjarnir í Líbanon
höfðu krafist þess að Líbanir, sem
eru í haldi ísraela, yrðu látnir laus-
ir. ísraelar halda enn 300 Líbönum
og ísraelsstjórn sagði í gær að ekki
kæmi til greina að láta þá lausa.
Hún sagði þó síðar að líbanskir
fangar kynnu að verða leystir úr
haldi ef greint yrði frá örlögum ísra-
elsks flugmanns, sem var skotinn
niður yfir Líbanon.
Sjá fréttir á bls. 20.
Sovétríkin:
utanríkisráðherra á ný
Moskvu. Reuter. The Daily Telegraph.
MÍKHAÍL Gorbatjsov, forseti Sovétríkjauna, útnefndi Edúard She-
vardnadze í embætti utanríkisráðherra Sovétríkjanna í gær. Því
starfi gegndi Shevardnadze frá árinu 1985 þangað til í desember
1990. Þá sagði hann af sér vegna þess að myrkraöflin væru að taka
völdin í landinu eins og hann orðaði það. Borís Pankín, sem gegnt
hefur embætti utanríkisráðherra frá valdaráninu í Sovétríkjunum í
ágúst, verður sendiherra Sovétríkjanna í London.
Shevardnadze sem er 63 ára
gamall hefur löngum verið einn
helsti bandamaður Gorbatsjovs og
átti stóran þátt í að móta Umbóta-
stefnu forsetans. Hann fór með
utanríkismál Sovétríkjanna þegar
samskipti ríkisins við vestræn ríki
og bandalagsríki í Austur-Evrópu
tóku stakkaskiptum. Afsögn Shev-
ardnadze í desember síðastliðnum
kom gífurlega á óvart en það átti
eftir að koma á daginn að varnaðar-
orð hans voru á rökum reist. „Ein-
ræði vex fiskur um hrygg. Umbóta-
sinnarnir hafa yfirgefið sjónarsvið-
ið,” sagði Shevardnadze á fundi
fulltrúaþings Sovétríkjanna í des-
ember í fyrra þegar hann skýrði
afsögn sína. Hann lét áfram til sín
taka í stjórnmálum og stofnaði
ásamt fleirum Lýræðisumbóta-
hreyfinguna svonefndu. Eftir valda-
ránið misheppnaða var hann beðinn
um að taka að sér embætti utanrík-
isráðherra á ný en hafnaði því á
þeirri forsendu að ekki væri ljóst
hvers fulltrúi hann yrði þá, framtíð
Sovétríkjanna væri á huldu.
Shevardnadze er Georgíumaður
og var flokksformaður þar á árun-
um 1972 til 1985. Zviad Gamsak-
hurdia, núverandi forseti Georgíu,
sem á þeim árum var andófsmaður,
ber Shevardnadze ekki vel söguna
og segir að stjórn hans á lýðveldinu
hafi verið blóðug.
í viðtali við sovéska sjónvarpið,
sem sýnt var í gær en var tekið
fyrir nokkrum dögum, segir She-
vardnadze að mesta hættan sem
steðji að heimsbyggðinni sé óstöð-
ugleiki í Sovétríkjunum.
George Bush Bandaríkjaforseti
fagnaði ákvörðun Gorbatsjovs í
gær. „Við þekkjum [Shevardnadze]
vel og berum mjkla virðingu fyrir
honum,” sagði Bush.
Gorbatsjov tilkynnti ennfremur f
Edúard Shevardnadze
gær ýmsar breytingar á sovésku
utanríkisþjónustunni. Nafni ráðu-
neytisins verður breytt og undir það
falla utanríkisviðskipti. Sendiherrar
í Frakklandi, írlandi, Grikklandi og
Svíþjóð verða fluttir til innan utan-
ríkisþjónustunnar.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, fagnaði í gær skipan
Pankíns í sendiherrastöðu í London.
Gorbatsjov hafði hringt í Major og
spurt álits á þessari tilhögun og
svaraði Major um hæl að hún væri
mjög svo ásættanleg. Heimildar-
menn sem þekkja Pankín vel segja
að honum hafi fundist sem ráð-
herrastaðan ætti ekki við sig og
hafi hann mælst til þess að Gorb-
atsjov flytti hann til.
Havel vottaður stuðningur
Þúsundir námsmanna lýstu í gær yfir stuðningi við Vaclav Havel for-
seta Tékkóslóvakíu á útifundum í Prag. Havel hefur farið fram á
aukin völd til að afstýra gliðnun ríkisins en öflug sjálfstæðishreyfing er
í Slóvakíu. Havel vill m.a. fá heimild til að ijufa þing og stjórna með
tilskipunum fram að þingkosningum.
Edúard Shevardnadze