Morgunblaðið - 20.11.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NOVEMBER 1991
Jólatrén valin
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrir jólin mun Skógræktarfélags íslands í fyrsta sinn setja á markað-
inn um 300 tré, rauðgreni og stafafuru, úr 30 hektara landi sem félag-
ið hefur á leigu í Brynjudal inn af Hvalfirði. Það voru þeir Jón Geir
Pétursson og Jón Sólmundsson sem felldu fyrstu trén og sagði Brynj-
ólfur Jónsson framkvæmdastjóri félagsins, að þetta væri í fyrsta sinn
sem félagið aflaði sér tekna með sölu á jólatrjám en það'er Land-
græðslusjóður í Fossvogi sem tekur hana að sér.
Sláturhús KASK uppfyllir heilbrigðiskröfur EB:
Kjöt flutt út á EB-mark-
að eftir fjögnrra ára hlé
Búizt við að 200 tonn verði flutt út af 6001 sem heimilt er að selja til EB
SLÁTURHÚS Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Höfn í Hornafirði
fékk í gær staðfestingu frá Evrópubandalaginu um að húsið full-
nægði ölium heilbrigðiskröfum bandalagsins og mætti því flytja út
kindakjöt í heilum skrokkum á EB-markað. Ekkert íslenzkt slátur-
hús hefur mátt flytja út kjöt til EB í nærri fjögur ár vegna þess
að aðbúnaður hefur ekki staðizt heilbrigðiskröfur. Búast má við að
KASK flytji út um 200 tonn á árinu, en Islendingum er heimilt að
flytja út 600 tonn til EB samkvæmt samningi við bandalagið.
Sj 6 vá-Almennar:
Eignast
49% hlut
í Abyrgð
SJÓVÁ-ALMENNAR eignast
49% hlutafjár Ábyrgðar hf.,
tryggingafélags bindindis-
manna, þegar hlutafé Ábyrgðar
hf. verður aukið á næstunni.
Einnig hafa félögin gert samning
um að auka samstarf á sviði
tölvuvinnslu, bókhalds, inn-
heimtu og tjónaafgreiðslu og er
markmiðið að draga úr rekstrar-
kostnaði beggja félaganna.
Að sögn Einars Sveinssonar,
framkvæmdastjóra Sjóvár-
Almennra, er hlutafé Ábyrgðar hf.
í dag 56 milljónir króna. Hlutafé
verður aukið um 56 milljónir, þann-
ig að það verður 112 milljónir króna
alls. Sjóvá-Almennar munu kaupa
nýja hlutaféð og verða eigendur að
49% af hlutafé Abyrgðar. „Hin 51%
verða í eign Ansvar, sem er trygg-
ingafélag sænskra bindindismanna,
en það á í dag 95%. Þrátt fyrir
þessa hlutafjáraukningu verður
Ábyrgð hf. áfram dótturfélag An-
svar,” segir Einar.
Einar segir að meginbreytingin,
sem snúi að viðskiptavinum
Ábyrgðar, verði væntanlega fólgin
í því að nú fari öll tjónavinnsla fram
í Tjónaskoðunarstöðinni á Drag-
hálsi, en fram til þessa hafi einung-
is bifreiðatjón verið skoðuð og met-
in þar.
„Samningarnir eru í raun tví-
þættir. Annars vegar leggjum við
fram aukið hlutafé og hins vegar
gerum við þjónustusamning við
Ábyrgð, þar sem við tökum að okk-
ur ákveðna þætti í rekstri félags-
ins. Ábyrgð er sjálfstætt trygginga-
félag og verður það áfram, þrátt
fyrir þetta aukna samstarf milli
félaganna. Við teljum að Ábyrgð
hafi góðan og traustan viðskipta-
mannahóp, sem muni skipta áfram
við það félag,” segir Einar Sveins-
son.
Borgarráð:
Utsvar verði
óbreytt á
næsta ári
Á FUNDI borgarráðs í gær var
samþykkt að leggja til við borg-
arstjórn að útsvar í Reykjavík
verði óbreytt á næsta ári.
í tillögunni segir að borgarráð
samþykki að leggja til við borgar-
stjóm að útsvarsgreiðsla í stað-
greiðslu fyrir árið 1992 verði
óbreytt, eða 6,7%.
Að sögn Einars Karlssonar, slát-
urhússtjóra hjá KASK, kotn hol-
lenzkur eftirlitsmaður frá EB í
haust og kynnti sér aðstæður í slát-
urhúsinu. Athugun hans leiddi í ljós
að húsið uppfyllti kröfur Evrópu-
bandalagsins og mega Hornfirðing-
ar því flytja út 1. flokks kjöt á
Evrópumarkaðinn.
Að sögn Jóhanns Steinssonar hjá
Goða hf., sem annast útflutning á
kindakjöti fyrir siáturhúsin, hefur
öðrum húsum, sem áður fluttu út
á EB-markað, ekki tekizt að upp-
fylla þær ströngu reglur um hrein-
læti, sem bandalagið setur. Einnig
hefur það staðið í vegi fyrir útflutn-
ingi að embættismönnum EB hefur
ekki þótt nógu gott eftirlit haft með
því að lömb leidd til slátrunar hafi
ekki verið fóðruð á hormónum. Nú
viðurkennir EB hins vegar það eftir-
lit, sem hér er framkvæmt, að sögn
Jóhanns.
Jóhann sagði að Goði (áður bú-
vörudeild Sambandsins) hefði átt
góða viðskiptavini í Danmörku og
Þýzkalandi, sem þekktu íslenzka
kindakjötið og væru líklegir til að
vilja kaupa kjötið, sem KASK má
nú flytja út. Hann sagði að útflutn-
ingur á EB-markað myndi hjálpa
eitthvað til að grynnka á umfram-
birgðum af kindakjöti. Gért er ráð
fyrir að í ár verði flutt út um 1.500
tonn alls og er þá reiknað með 200
tonnum á Evrópubandalagsmarkað,
að sögn Jóhanns.
Undanfarin ár hafa verið flutt
út um 2.000 tonn af kjöti á ári,
einkum til Færeyja og Svíþjóðar,
þar sem fengizt hefur sæmilegt
verð. „Verðið á EB-markaðnum er
betra en á jaðarmörkuðum eins og
Japan og Mexíkó, en það er mikil
samkeppni þar við nýsjálenzkt kjöt,
sem nú er á mjög lágu verði. Þetta
er ekkert Iúxusverð, en betra en
heimsmarkaðsverðið,” sagði Jó-
hann.
Það er því ljóst að kjötið verður
flutt út með umtalsverðum útflutn-
ingsbótum. „Þetta hjálpar til við að
losa sig við það, sem til er, fram
að næstu sláturtíð. Eftir það er
útflutningur með útflutningsbótum
meira og minna úr sögunni og þá
er spurning hvort bændur geta
sætt sig víð það verð, sem heims-
markaðurinn býður,” sagði Jóhann.
EES-samningur:
Undirritnn
ráðherra
tefst vart
GUNNAR Snorri Gunnarsson,
forstöðumaður viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins, telur að sú töf sem orð-
ið hefur á því að embættis-
menn áriti EES-samninginn
eigi ekki að fresta undirritun
samningsins af hálfu ráð-
herra ríkja EB og EFTA.
Evrópudómstóllinn hefur
varpað fram ýmsum grundvall-
arspurningum um hlutverk dóm-
stóls Evrópska efnahagssvæðis-
ins og má af þeim merkja að
æðstu dómarar Evrópubanda-
lagsins óttist að EES-samning-
urinn vegi að sjálfstæði þeirra.
Gunnar segir að verði endanlegt
álit Evrópudómstólsins ótvírætt
á þann veg að samningurinn
stangist á við Rómarsáttmálann,
grundvallarlög EB, þá hljóti að
koma til álita fyrir ráðherraráð
EB og aðildarríkin að breyta
Rómarsáttmálanum í samræmi
við það, en þessar vikurnar e'r
einmitt unnið að endurskoðun
sáttmálans fyrir leiðtogal'undinn
í Maástricht í desember.
Sjá nánar á miðopnu.
Hraðbankar skráðu úttekt
en skiluðu engum peningum
VEGNA mistaka hafa sumir notendur hraðbanka orðið fyrir því
að fá enga peninga í hendur er þeir reyndu að taka út af reikn-
ingum sínum með bankakorti. Engu að síður skráði tölvubúnaður
bankanna úttekt af reikningnum. Þetta ósamræmi varð þegar
hraðbankarnir voru beintengdir bókhaldi aðaltölvu hjá Reikni-
stofu bankanna.
Að sögn Þórðar B. Sigurðsson-
ar, forstjóra Reiknistofu bank-
anna, var verið að beintengja
hraðbankana við bókhaldið i aðal-
vél, svo að allar færslur yfir dag-
inn bókist jafnóðum. „Fyrir
klaufaskap var hraðbankanum
gefin heimild fyrir 10 þúsund
króna úttekt á dag í stað 15 þús-
und króna, þannig að viðmiðunar-
markið var rangt. Þetta varð til
þess að ef beðið var um meira en
10 þúsund krónur neitaði hrað-
bankinn úttektinni, en færsla átti
sér samt sem áður stað,” segir
Þórður.
Þórður sagði að þetta hefði
staðið yfir helgi en hefði svo ver-
ið leiðrétt strax á mánudeginum
11. nóvember. „Eftir að þessu
hafði verið komið í lag uppgötvað-
ist að ef farið var yfir heimild eða
hætt við úttekt, sendi hraðbank-
inn leiðréttingafærslu, sem ekki
var bókuð fyrr en að kvöldi, en
það þarf aðgerast ura leið,” sagði
Þórður.
„Það var búið að fara yfir þetta
allt saman og prófa áður en bein-
tengingin átti sér stað, en samt
gerðist þetta. Ég vona að nú séu
hraðbankarnir komnir í lag. Allt
svona er leiðrétt, en ef fólk er í
einhveijum vafa á það að snúa
sér til útibús síns. Við viljum biðj-
ast afsökunar á öllum óþægind-
um, sem fólk hefur orðið fyrir af
þessum sökum,” sagði Þórður.
í október voru um 40 þúsund
úttektir í hraðbönkum, eða um
50 færslur að meðaltali á dag í
hvetjum hraðbanka. „Þessi notk-
un er nú ekki mikil. Duglegur
gjaldkeri getur afgreitt á milli 900
og 1.000 færslur á dag á þeim
itíma.sem opið er,” sagði Þórður
B. Sigurðsson að lokum.