Morgunblaðið - 20.11.1991, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
3
Island-Rússland:
Undirritun
viðskipta-
samnings á
næsta leiti
VONIR standa til að viðskipta-
samningur við rússneska lýðveld-
ið verði undirritaður mjög fljót-
lega og þá verði hægt að taka
upp formlegar viðræður um sölu
á einstökum vörutegundum til
lýðveldisins.
Að sögn Einars Benediktssonar,
framkvæmdastjóra Síldarútvegs-
nefndar, hefur Síldarútvegsnefnd
leitað nýrra leiða með sölu á salt-
aðri síld til Sovétríkjanna, eftir að
ljóst varð að stjórnvöld myndu
hætta miðstýrðum kaupum á mat-
vælum, og hefur einkum verið lögð
áhersla á viðskipti við rússneska
lýðveldið. Þá hefur jafnframt verið
unnið að því á vegum utanríkisráðu-
neytisins að ná samkomulagi um
viðskiptasamning milli ríkisstjórna
Islands og rússneska lýðveldisins,
sem ætlað er að vera grunnur við-
skipta. Einar sagði Síldarútvegs-
nefnd undanfarið hafa undirbúið
svo sem kostur væri hugsanleg
framtíðarviðskipti, þannig að þau
mætti hefja með skjótum hætti ef
úr rættist með gjaldeyri Rússa til
kaupanna.
Borgarráð:
Okeypis í
bílastæði
fyrir jól
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu umferðardeildar
að skipulagi jólaumferðar í
borginni í desembermánuði.
Er gert ráð fyrir takmarkaðri
umferð um Laugaveg og Aust-
urstræti auk þess sem ókeypis
verður í bilastæði á vegum
borgarinnar laugardagana
fyrir jól.
Bent er á fjölda bílastæða í
bílastæðahúsum borgarinnar og
undir berum himni, til dæmis á
Bakkastæði.
Starfsmenn fyrirtækja í mið-
bænum eru hvattir til að leggja
bílum sínum fjær en venjulega
fram að jólum. Jafnframt er fólk
eindregið hvatt til að nota stræt-
isvagna.
Lánskjara-
vísitala lækk-
ar um 0,22%
Verðbólgan 1,6%
síðustu 3 mánuði
Lánskjaravísitalan lækkar
milli mánaðanna nóvember og
desember og verður 0,22% lægri
í næsta mánuði en hún var í nóv-
ember. Vísitalan 3.198 gildir fyr-
ir desember en 3.205 gilti fyrir
nóvember. Þessi lækkun jafn-
gildir 2,65 Iækkun á ársgrund-
velli og síðustu þrjá mánuði hef-
ur vísitalan hækkað um 1,6%
miðað við heilt ár. Síðustu 12
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 8,3%.
Astæður lækkunarinnar er lækk-
un launavísitölu um 1,2% vegna
þess að eingreiðsla launa vegna við-
skiptakjara í sumar fór út úr vísi-
tölunni.
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkaði um 0,1% frá október til
nóvember og var 187,4 stig. Síð-
ustu 12 mánuði hefur hún hækkað
um 7,6% en síðustu þrjá mánuði
um 2,2% umreiknað til árshækkun-
ar.i 'iu|omin
!
Frá slysstað.
Morgu nbl aðið/I ngvar
Fimm slösuðust í
hörðum árekstri
FIMM manns voru fluttir á slysadeild
eftir harðan árekstur á mótum Sæ-
brautar, Skeiðarvogs og Kleppsmýr-
arvegar laust fyrir hádegi í gær.
Skemmdir urðu á fimm bílum og er
einn þeirra ónýtur.
Toyota-pallbíl, sem ekið var suður
Sæbraut, var beygt til austurs inn á
Kleppsmýrarveg, en í veg fyrir Mazda-
fólksbíl á leið norður Sæbraut. Árekstur-
inn varð mjög harður og kastaðist pall-
bíljinn til og skemmdi þijá bíla, sem
voru kyrrstæðir við umferðarljósin á
Kleppsmýrarvegi.
Ókumaður og þrír farþegar úr
Mazda-bílnum, svo og ökumaður pallbíls-
ins, voru fluttir á slysadeild en að sögn
lögreglu voru meiðsli þeirra ekki talin
hættuleg.
-
#<>
Í&.
£*iS*S*SZ‘rr7. ____
Nú er tíminn til ú ákveba
Greiðslukjör vií> allra hæfi:
E 1 ■sr1 jfW
E U nOCARD Samkort
r. I,,. íTT ! ' T; I Hl l iri
i) vo i;T si.'tirn eo
SKIPHOLTI 19
11 mán. 18mán. 11 mán. 30 mán. SÍMI 29800
. Ht>löi. ) í .liMtii'.ty í .11 .IJ Ke'l 11 1UI
i u áfelui n i 4 *!
ílfif