Morgunblaðið - 20.11.1991, Blaðsíða 5
Sakadómur Reykjavíkur
MORGUNBLAÐID MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
5
„Namibíumaðurinn”
í hálfs árs fangelsi
Helmingnr fangavistarinnar skilorðsbundinn
SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 26 ára gamlan mann, Þor-
björn Vilhelm Gunnarsson, sem talinn er namibískur ríkisborgari,
búsettur í Windhoek í Namibíu, til 6 mánaða fangelsisvistar, þar af
þijá mánuði óskilorðsbundið, fyrir auðgunarbrot framin í Reykjavík
í september og október síðastliðnum. Brot mannsins bitnuðu á Hót-
el Holti, heildversluninni Kristu og Kreditkortum hf., auk þess sem
Hótel Island átti hjá honum fé. A hinu namibíska vegabréfi sínu
nefnist maðurinn Thorbjornen Gunnarsson en hér á landi kvaðst
hann heita Þorbjörn Vilhelm Anders Gunnarsson frá Húsavík. í
Kanada fundust fingraför mannsins á skrá undir nafninu Lars-Erik
Torbjorn Matti Pekka Gunnarsson. Maðurinn hefur haldið fast við
það að hann sé namibískur ríkisborgari og við meðferð málsins
hefur ekki sannast sá grunur að hann sé fæddur í Manitoba í Kanada
og sé kanadískur ríkisborgari.
Maður þessi kom hingað til lands
þann 19. september og átti bókað
far héðan til Amsterdam þann 18.
október. Hann fékk sér herbergi á
Hótel Holti. Þar bjó hann til 11.
október er hann var krafinn um
greiðslu á um 214 þúsund króna
skuld fyrir gistingu, veitingar og
þjónustu. Þegar maðurinn gat ekki
greitt var honum vísað af hótelinu
eftir að hann hafði afhent vegabréf
sitt og farseðla til tryggingar
greiðslu skuldarinnar. Við svo búið
flutti maðurinn sig yfir á Hótel Is-
land þar hann bjó til 15. október
er rannsóknarlögreglan handtók
hann á hótelinu en daginn áður
hafði hótelstjórinn á Holti lagt fram
kæru gegn honum. Þá var hótel-
reikningurinn á Hótel íslandi orðinn
um 41 þúsund krónur.
Um svipað leyti voru lagðar fram
kærur frá heildsölunni Kristu en í
lok september og byijun október
hafði maðurinn fengið það fyrirtæki
ti! að afhenda sér snyrtistól og
ýmsar snyrtivörur fyrir um 426
þúsund krónur undir því yfirskyni
að hann væri íslenskur ríkisborg-
ari, með íslenskt virðisaukaskatts-
númer og hefði mikla þekkingu á
snyrtivörum. Forsvarsmenn fyrir-
tækisins náðu þann 13. október til
baka meirihluta varningsins á hár-
greiðslustofu í bænum þar sem
maðurinn hafði starfsaðstöðu og
hluti háns fannst á Hótel Holti en
á vantaði vörur fyrir um 32 þúsund
krónur. í ljós hafði komið að virðis-
aukaskattsnúmer það sem maður-
inn hafði gefið upp tilheyrði fyrir-
tæki á Hellu á Rangárvöllum.
Auk þess sem maðurinn var
ákærður fyrir framangreind brot
gegn hótelunum og Kristu sf. var
hann ákærður fyrir að hafa notað
í viðskiptum hér á landi greiðslu-
kort sem útgefið var í S-Afríku og
komið var á vákortalista. Ut á það
hafði hann tekið hérlendis fyrir
tæpar 40 þúsund krónur, sem Kred-
itkort hf. er ábyrgt fyrir greiðslu á.
í niðurstöðum sakadóms Reykja-
víkur um málið er maðurinn sýkn-
aður af ákæru um svik gagnvart
Ilótel íslandi þar sem hann hafði
ekki verið krafinn um greiðslu þeg-
ar hann var handtekinn en þá fund-
ust í fórum hans jafnvirði rúmlega
60 þúsunda íslenskra króna. Hins
vegar var hann sakfelldur fyrir aðra
framangreinda ákæruliði og auk 6
mánaða fangelsis og greiðslu á 90%
sakarkostnaðar var hann dæmdur
til að greiða Hótel Holti, Kristu sf.
og Kreditkortum hf. skaðabætur
sem nema framangreindum fjár-
hæðum, alls rúmlega 280 þúsund
krónur.
Sagði peninga sína hafa horfið
Hjörtur O. Aðalsteinsson saka-
dómari hafnaði sem fyrirslætti þeim
framburði mannsins, sem fram kom
þegar hann hafði verið viku í haldi
lögreglu, að hann hefði átt peninga
sem dugað hefðu til greiðslu allra
skuldanna en þeir hefðu horfið úr
peningaskáp hótelsins. Hann sýkn-
aði manninn af kröfu ákæruvaldsins
um að honum yrði vísað úr landi
að lokinni afplánun. Ekki voru talin
lagaskilyrði til að kveða á um það
með dómi.
Útgáfa nýs dagblaðs:
Skipting hlutafjár-
ins liggur ekki fyrir
Undirbúningi á að ljúka um mánaðamót
GUNNAR Steinn Pálsson, einn forsvarsmanna Nýmælis hf., er
vinnur að undirbúningi stofnunar nýs dagblaðs, segir að enn liggi
ekki ljóst fyrir hver hlutafjáreign væntanlegra hluthafa verði I
útgáfunni, en það verði að öllum líkindum orðið ljóst um næstu
það verði í síðasta lagi um áramót-
in,” sagði hann.
Meðvitundar-
ferðarslys
65 ÁRA gamall inaður liggur með-
vitundarlaus á sjúkrahúsi eftir að
hann slasaðist í umferðarslysi í
Hafnarfirði síðdegis á laugardag.
Hann var þá farþegi í bíl hjá
manni, sem að sögn lögreglu er
grunaður um ölvun við akstur.
Okumaðurinn missti stjórn á bíln-
um á Vesturbraut. Skall hægri hlið
bílsins á húsvegg og kom höggið þar
sem farþeginn sat í framsæti. Hann
var fluttur á slysadeild með höfuðá-
verka.
laus eftir um-
mánaðamót.
Gunnar Steinn sagði að í upp-
hafi hefði verið gert ráð fyrir að
hlutafé nýja dagblaðsins yrði á bil-
inu 100-200 milljónir, og ef ekki
kæmu til aðrir hluthafar, þá yrði
stærsti hlutinn í eigu íslenska út-
varpsfélagsins, en útgáfufélög
Tímans og Þjóðviljans yrðu svo með
20% eignarhlut hvort, og auglýs-
ingastofan Hvíta húsið og Prent-
smiðjan Oddi með minnsta hlutinn.
„Nú þegar verið er að Ijúka vinnu
við að móta útlínur blaðsins er fyrst
hægt að fara að reikna út af ein-
hveiju viti hvað það kostar að gefa
þetta út og hve mikið hlutafé þarf,
og þá mun jafnframt reyna á það
hversu mikið hlútafé menn geta
lagt fram og þá hversu stórir í eign-
arhaldinu þeir verða. Við vinnum
eftir því tímaplani að við séum bún-
ir að þessu öllu saman fyrir næstu
mánaðamót, en menn hafa sagt að
.
I JOLAUMBUÐUM A JOLAVERÐI
I JOLAKOKURNAR, JOLAMATINN OG
JÓLAGOTTIÐ!
•/ðns!w*
i y ' Wz - \ v ’j ■
. ■mí r v.W- '
AUK / 6ÍA k9d22-616