Morgunblaðið - 20.11.1991, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1991
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Upp birtir um siðir
Eftir nokkuð óvænt hausthret, norðanáhlaup og mikla ofankomu hefur nú birt upp norðanlands og var hið fegursta veður í Eyjafirði í gær,
þegar sólin braust fram úr skýjaþykkninu. Mikill snjór er yfír öllu, en vegir hafa verið ruddir þannig að vegfarendur ættu að komast leiðar sinnar.
Dagvistarheimilið Holtakot:
Kostnaður við bygginguna
nær tvöfalt fram úr áætlun
KOSTNAÐUR við byggingu dagvistarinnar Holtakots við Þver-
holt nam á verðlagi í júlí síðastliðnum um 31 milljón króna og
hafði þá farið nær tvöfalt fram úr áætluðum byggingarkostnaði.
Kostnaður á hvern fermetra dagvistarinnar er um 123 þúsund
krónur og er þá ekki tekið tillit til stofnbúnaðar, en það er mun
hærri kostnaður á hvern fermetra en þegar miðað er við fullbúna
raðhúsbyggingu.
Sigfríður Þorsteinsdóttir, Fram-
sóknarflokki, lagði þessar upplýs-
ingar fram á bæjarstjórnarfundi í
gær. í yfirliti yfír byggingakostn-
að dagvistarinnar kemur fram að
kostnaður nam 3,4 milljónum
króna árið 1989, árið 1990 nam
kostnaður 21,5 milljón króna og á
þessu ári 3,2 milljónum króna, eða
samtals tæplega 28,3 milljónir, en
samkvæmt verðlagi í júlí síðast-
liðnum er kostnaður vegna bygg-
ingarinnar kominn í um 31 milljón
króna.
Sigfríður sagðí að dagvistin
væri 225 fermetrar að stærð og
verð á hvern fermetra væri um
141 þúsund krónur, en þegar ekki
væri tekið tillit til stofnbúnaðar
væri kostnaðurinn um 123 milljón-
ir króna. Til samanburðar nefndi
hún að fermetri í góðri raðhúsa-
íbúð í bænum með fullfrágenginni
lóð væri á bilinu 84 til 90 þúsund
krónur og 72-75 þúsund í blokkar-
íbúðum. Þá nefndi hún að kostnað-
ur við hvem fermetra í 5. áfanga
Verkmenntaskólans á Akureyri
væri 90-100 þúsund krónur. „Eg
tel ekki óeðlilegt að bæjarstjórn
fari í saumana á þessum mikia
kostnaði, þessi bygging átti í upp-
hafí að vera fremur ódýr,” sagði
Sigfríður.
Björn Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði kostnað við
dagvistina vera með slíkum end-
emum að hann ætti ekki orð, helst
væri hægt að líkja honum við við-
haldskostnað við Þjóðleikhúsið.
Kostnaður væri nærri tvöfalt það
verð sem fullbúnar og vandaðar
raðhúsaíbúðir kostuðu. Kvaðst
Björn Jósef taka undir tiilögu um
að þetta mál yrði skoðað.
Heimir Ingimarsson, Alþýðu-
bandalagi, sagði þennan kostnað
ekki ná nokkurri átt og með ólík-
indum væri að þetta gæti gerst.
Húsið væri úr forsteyptum eining-
um og þrátt fyrir fast verð hefði
kostnaður farið úr böndunum.
Hann styddi tillögu um að skoða
í bæjarráði hvort eðlilega hefði
verið að málinu staðið.
KA fær bæjarábyrgð
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur heimilað bæjarstjóra að veita
Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA 14 milijóna króna ábyrgð gegn
fullnægjandi tryggingum vegna skammtímaláns.
Knattspyrnufélag Akureyrar
sendi erindi til bæjarráðs í síðustu
viku þar sem leitað var eftir
ábyrgð Akureyrarbæjar til trygg-
ingar skammtímaláni að upphæð
14 milljónir króna vegna bygging-
ar íþróttahúss félagsins við Dals-
braut.
Lántaka félagsins er til komin
vegna þess að lán sem KA fær
úr Ferðamálasjóði að upphæð 20
milljónir króna kemur ekki til út-
borgunar fyrr en á árinu 1992.
Agreiningur varð í bæjarráði
um hvort innheimta bæri ábyrgð-
argjald af ábyrgðarveitingunni og
sagði Björn Jósef Arnviðarson,
Sjálfstæðisflokki á fundi bæjar-
stjórnar í gær að upplýst hefði
verið á bæjarráðsfundinum að það
væri óskráð regla að taka ekki
ábyrgðargjald af félagasamtökum
og kirkjum. Það væri sín skoðun
að ekki væri eðlilegt að skoða
þessi mál. Ábyrgðargjald væri tek-
ið til að mæta hugsanlegum áföll-
um sem ábyrgðarveitingar gætu
haft í för með sér og minnti full-
trúa á að bærinn hefði orðið fyrír
stórum áföllum vegna ábyrgða
sem hann hefði gengið í og nú
síðasta hefði komið í ljós að um
15 milljónir féllu á bæinn vegna
ábyrgðarveitingar til ístess hf.
sem varð gjaldþrota síðasta sum-
j ar.
I 1——-—-—-—----------
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stássið er heiti á nýjum veitingasal sem nýlega var opnaður,
en hann kemur sem viðbót við veitingastaðinn Greifann við
Glerárgötu. Salinn hannaði Magnús Már Þorvaldsson arkitekt,
sem er lengst til hægri á myndinni, en við hlið hans er Lilja
Jónasdóttir, þá veitingamennirnir Hlynur Jónsson og Andri Már
Gylfason.
Strætisvagnar
Akureyrar:
Fargjöld-
in hækka
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
samþykkti á fundi í gær nýja
gjaldskrá Strætisvagna Akur-
eyrar sem tekur gildi 1. desemb-
er næstkomandi.
Einstök fargjöld fullorðinna
hækka úr 65 krónum í 70 krónur
og einstök fargjöld barna úr 24
krónum í 27. Eftir 1. desember
kostar kort með 20 miðum fyrir
fullorðna 1.150 krónur, en kostaði
1.000 krónur. Aldraðir greiða 500
krónur fyrir 20 miða kort eftir
hækkun, en greiddu 450 krónur
og 20 miðar fyrir börn kosta 370
krónur í stað 330 króna. Þá hækka
25 miða kort fyrir framhaldsskóla-
nema úr 930 krónum í 1.000 krón-
ur eftir að nýja gjaldskráin tekur
gildi.
—----*-*-*---
Vísnatónleik-
ar á sal M A
Vísnaparið Jens og Dorthe
halda vísnatónleika í sal Mennt-
askólans á Akureyri í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20.30.
Einnig munu þau spila fyrir
nemendur Gagnfræðaskólans á
miðvikudagsmorgun.
Jens og Dorthe koma frá Dan-
mörku og hafa þau sungið og spila
saman í nokkur ár, bæði í heima-
Iandi sínum og víðar á Norðurlönd-
um.
Á efnisskránni eru norrænar
vísur af ýmsu tagi og þau leggja
áherslu á að ná góðu sambandi
við áheyrendur með léttum og
skemmtilegum flutningi.
Dorthe hefur að baki tónlistar-
menntun og leikur hún jöfnum
höndum á gítar, pianó, harmon-
ikku og strengjahljóðfæri auk þess
að útsetja tónlistina. Jens leikur á
gítar og flautu. Hingað til lands
koma þau á vegum Norræna húss-
ins og Norræna félagsins og mun
þau ferðast um landið og halda
tónleika á ísafirði, Dalvík, Akur-
eyri og Egilsstöðum.
(Fréttatilkynning)
----*-*-*---
Tónleikar í
Grundarkirkju
Tónlistarskóli Eyjafjarðar efnir
til tónleika í Grundarkirkju
annað kvöld, fimmtudagskvöld-
ið 21. nóvember og hefjast þeir
kl. 20.30.
Tilefni tónleikanna er að nýtt
píanó er komið í kirkjuna, sem
eykur mjög möguleika til fjöl-
breytts tónlistarflutnings í kirkj-
unni.
Á dagskrá tónleikanna verða
verk frá ýmsum tímum, m.a. fyrir
söngrödd, gítar og blokkflautu,
túbudúett, blokkflautukvartett
auk margs annars.
Flytjendur verða úr hópi kenn-
ara tónlistarskólans, Þuríður Bald-
ursdóttir, Gunnar H. Jónsson,
Ingvi Vaclav Alfreðsson, Guðjón
Pálsson, Michael Jacques auk skól-
astjóra, Atla Guðlaugssonar.
Áðgangur er ókeypis, en þeim
sem vilja láta eitthvað af hendi
rakna er bent á hljóðfærakaupa-
sjóð Grundarkirkju.
(Frcttatilkyniiing)