Morgunblaðið - 20.11.1991, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR
20. NOVEMBER 1991
43
KNATTSPYRNA
Frakkamir voru
betri í Rúðuborg
Rúnar Kristinsson gerði mark íslands í 2:1 tapleik
Valdimar og IngóBf-
ur í herbúðir Fram?
Stjömumennirnir efnilegu Valdimar Kristófersson, sóknarleikmaður
og Ingólfur Ingólfsson, miðvallarspilari, sem íeika með 21 árs
landsliðinu, eru að hugsa sér til hreyfings og hafa þeir báðir verið
orðaðir við Fram.
„Ef ég fer frá Stjörnunni - þá fer ég til Fram,” sagði Valdimar í
gærkvöldi, en Ingólfur sagði að það væri öruggt að hann færi frá
Stjömunni. „Ég mun ganga til liðs við Fram eða Víking.”
ÍSLENDINGAR verða í neðsta sæti fyrsta riðils Evrópukeppni
landsliða, leikmanna 21 árs og yngri. Það er Ijóst eftir tap, 2:1,
gegn Frökkum í Rúðuborg í gærkvöldi. Sigur Frakka var fyllilega
sanngjarn í gær, íslenska liðið var ekki nægilega samstillt og
strákarnir virkuðu einfaldlega ekki í nægilega góðri æfingu. Enda
ekki furða. íslandsmótinu lauk fyrir um tveimur mánuðum.
beita síðan skyndisóknum. Það
Skapti
Hallgrimsson
skrifar
frá Frakklandi
Það var Rúnar Kristinsson sem
gerði mark íslands á 75. mín-
útu. Haraldur Ingólfsson tók hom-
spymu frá vinstri,
boltinn fór í varnar-
mann á markteigs-
horninu nær, hrökk
þaðan til Rúnars út
í miðjum teig og hann var fljótur
að átta sig. Sendi hann rakleiðis
efst í markhornið. Vel gert, en því
miður eitt af því fáa sem gladdi
íslensk augu í síðari hálfleiknum.
„Ég missti boltann aðeins frá mér.
Varnarmaður var að koma í mig
þannig að ég „negldi” eins fast og
ég gat með tánni,” sagði Rúnar við
Morgunblaðið eftir leikinn.
Leikurinn fór rólega af stað,
Frakkar vom meira með boltann
en lítið var um hættuleg færi. ís-
lendingar biðu aftarlega, freistuðu
þess að láta Frakkana koma og
ÚRSLIT
EM 21 ÁRS LIÐA:
Stade Robert-Diochon, Rúðuborg:
Frakkland - ísland..............2:1
Gerald Baticle (22.), Bilute Lizarazu (56.)
- Rúnar Kristinsson (75.)
Dómari: M. Montero frá Portúgal.
Lið fslands: Kristján Finnbogason, Brandur
Sigurjónsson, Arnaldur Loftsson, Arnar
Grétarsson, Kristján Halldórsson, Rúnar
Kristinsson, Valdimar Kristófersson, Stein-
ar Adolfsson, Anton Björn Markússon (Indr-
iði Einarsson 75.), Ingólfur Ingólfsson
(Grétar Steindórsson 50.), Haraldur Ingólfs-
son.
Staðan er þessi í 1. riðli:
Tékkóslóvakía....8 7 1 0 23: 4 15
Spánn.............7 3 2 2 6: 5 8
Frakkland.........8 3 2 3 7: 5 8
Albanía...........7 1 2 4 3:13 4
Ísland............8 1 ) 6 3:15 3
MEISTARAKEPPNI EVRÓPU:
Old Trafford, Englandi:
Man. Utd. - Rauða Stjarnan.......1:0
Brian McClair (67.). 22.110
Handknattleikur
BIKARKEPPPNI HSÍ:
FH-KA.........................27:21
íþróttahúsið Kaplakrika:
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 6, Kristján
Arason 5, Gunnar Beinteinsson 5, Hans
Guðmundsson 4, Sigurður Sveinsson 3,
Þorgils Óttar Mathiesen 2, Óskar Helgason
1, Pétur Petersen 1.
Mörk KA: Stefán Kristjánsson 7, Alfreð
Gíslason 6, Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson
4, Jóhann Jóhannsson 2, Erlingur Kristjáns-
son 1, Guðmundur Guðmundsson 1.
FH b - Grótta b...............28:30
■Eftir framlengingu (24:24).
RISAMÓT
Stórmót í Þýskalandi (Super Cup), þar sem
fyrrum ÓL- og HM-meistarar keppa, ásamt
Spánveijum:
Þýskaland - Rúmenía...........19:18
Sovétríkin - Júgóslavía.......32:16
Spánn - Svíþjóð...............24:22
ðkvöld
BIKARKEPPNI HSÍ
16 liða úrslit karla:
Akureyri, Þór - Fram ■kl. 20.30
Seljaskóli, KR b - ÍR 19.15
Vaísh., Valur - Haukar 20.30
Vestm., ÍBV - Stjaman
Víkin, Víkingur- UBK
16 liða úi-slit kvenna:
Kaplakriki, FH - Stjaman 18
Strandg., Haukar - Grótta.... 20
Valsheimili, Valur - ÍBV 19
BLAK
Digranes, HK - UMF. Skcið (ka.) ...20
Digranes, IIK - UBK (kon.). 21.15
Herrakvöld Víkings
Herrakvöld Víkings verður í Víkinni
n.k. föstudagskvöld 22. nóvember kl.
19,30. Ymsar uppákomur verða. Forsala
aðgöngumiða er í Víkinni eftir hádegi alla
daga fram að herrakvöldi. Miðafjöldi er
takmarkaður og er því vissafá að káupa
miða tímanlega.
tókst þokkalega, vcrnin var að vísu
ekki nægilega sannfærandi en þeg-
ar liðið náði knettinum og komst
fram yfir miðju sáust fallegir hlut-
ir. Þá hélt liðið boltanum betur en
aftar, spilaði fallega og ógnaði
nokkrum sinnum. Þó kom stundum
fyrir að síðasta sending misheppn-
aðist.
Haraldur Ingólfsson þrumaði yfir
markið utan teigs eftir stundar-
fjórðungs leik og Ingólfur Ingólfs-
son átti skot úr teig stuttu síðar
eftir mjög fallega sókn eftir send-
ingu frá Rúnari en skot hans var
varið. Valdimar Kristófersson fékk
besta færið í fyrri hálfleiknum eftir
glæsilega sendingu Rúnars á 19.
mín. Komst þá inn á teig en mark-
vörðurinn varði fast skot hans mjög
vel.
En svo komust Frakkar yfir á
22. mínútu. Vinstri úthetjinn komst
upp að endamörkum, sendi fyrir og
miðheijinn Baticle skallaði auðveld-
lega í netið. Hálfklaufalegt og leið--
inlegt, þar sem íslendingar höfðu
átt betri færi.
Rothöggið kom svo aðeins ellefu
mínútum eftir hlé. Viristri útheijinn
þrumaði þá í netið úr teignum eftir
frábæran undirbúning. Frakkarnir
gerðust ágengari eftir þetta, en
Kristján Finnbogason — sem ekki
verður sakaður um mörkin — varði
nokkrum sinnum mjög vel. En vörn
Islands var ekki nægilega vel vak-
andi og fékk heldur ekki nógu góða
aðstoð frá miðjumönnunum. Frakk-
arnir fengu að valsa í gegn alltof
oft.
Frakkar voru nánast einráðir
lengi vel í seinni hálfleik og það
þarf því ekki að hafa mörg orð um
leik Islendinganna eftir hlé. Þeir
voru yfirleitt skrefinu á eftir. Eng-
inn náði að leika af eðlilegri getu,
nema hvað Kristján markvörður
stóð sig vel. Aðrir gerðu laglega
hluti annað slagið og voru að reyna,
en greinilega af vilja en mætti. En
úrslitin eru auðvitað ekki svo slæm;
eins marks tap gegn Frökkum á
útivelli lítur ekki illa út á pappírn-
um. Liðið getur miklu meira, en
ýmislegt spilar þar inní. Og þar
hlýtur að vega þyngst tímasetning-
in á leiknum.
Kristján Finnbogason stóð sig vel í markinu.
Slæmt að spila
á þessum tíma
- sagði Hólmbert Friðjónsson sem stjórnaöi
landsliðinu í síðasta skiptið
,,ÞETTA var sanngjarn sigur
Utkoman er þó ekki slæm og
ég er nokkuð sáttur við hana
En við áttum ekki meira skilið,”
sagði Hólmbert Friðjónsson,
þjálfari landsliðsleikmanna 21
árs og yngri, eftir tapið í Rúðu-
borg í gærkvöldi. Hann stjórn-
aði liðinu þarna í síðasta skipti
því hann lætur nú af störfum
hjá KSÍ.
Hólmbert sagði mjög slæmt að
spila landsleik á þessum árs-
tíma. „Það var alveg á mörkunum
að við gætum haldið úti æfíngum
heima. Við spiluðum gegn Albaníu
í maí í vor þegar menn voru ekki
komnir í leikæfingu og síðan annan
leik nú, í nóvember, þegar menn
eru dottnir úr æfíngu. Þetta er ekki
nógu gott.”
Hólmbert sagði strákana hafa,
að sínu mati, eyðilagt eigið sjálfs-
traust með því að leika eins mikið
til baka og þeir gerðu í upphafi.
Sagðist hafa viljað að þeir hefðu
reynt að leika meira fram á við.
Ef Frakkarnir hefðu einfaldlega
verið í miklu betri æfingu — það
væri eðlilegt — þar sem keppnis-
tímabilið hjá þeim væri í gangi nú
— og það hefði skipt mestu máli.
Rúnar Kristinsson:
„Við héldum alveg í við þá í fyrri
háífleiknum, þó svo þeir hefðu skor-
að. Og fyrstu tíu mínúturnar í seinni
hálfleik voru í lagi. En eftir að þeir
komust í 2:0 voru menn alveg bún-
ir. Þá duttum við niður og spiluðum
bara á miklum vilja fannst mér, því
við vildum ná hagstæðum úrslitum.
En þetta hefði getað farið öðruvísi
því við klúðruðum tveimur dauða-
færum áður en þeir skoruðu. Það
tókst ekki og okkur er refsað fyrir
slík mistök,” sagði Rúnar.
■ ALBERT Guðmundsson,
sendiherra í París, var heiðursgest-
ur Frakka á leik 21 árs liða Frakk-
lands og íslands í Rúðuborg í
gærkvöldi. Frakkar dreifðu fróð-
leiksmolum um Albert fyrir leikinn.
■ INGI Björn Albertsson, al-
þingismaður, þjálfari Vals og fyrr-
um landsliðsmaður í knattspyrni^,
var einnig á meðal áhorfenda - í
fylgd með föður sínum.
■ FJÖLDI áhorfenda voru á
leiknum í gærkvöldi - 9.000. Mun-
aði þar mestu um að skólabörnum
og unglingum var boðið sérstaklega
á leikinn. eða alls um sjö þúsund.
■ „NÚ er skipting hjá Finnum,”
glumdi í hátalarakerfi vallarins,
þegar Indriði Einarsson kom inná
sem varamaður. Menn brostu, en
þulurinn sá ekki ástæðu til að leið-
rétta mistökin. ^
■ EF Guðni Bergsson verður
ekki orðinn góður fyrir landsleikinn
í kvöld, en hann tognaði á nára á
æfingu, mun Sævar Jónsson taka
stöðu hans í vörninni. Sævar lék
gegn Frökkum í Reykjavík. Birk-
ir Kristinsson og Kristján Jóns-
son, sem voru varamenn þá, eru nú
í byijunarliði íslands.
■ SIGURÐUR Jónsson, sem er
meiddur, missti einnig af leiknum
gegn Frökkum í Reykjavík vegna
meiðsla.
■ ÁSGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari og Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, komu frá París til
Rúðuborgar, til að sjá 21 árs liðið
leika. —
■ FRAKKAR eru -ákveðnir að
vinna og verða fyrstir til að fá fullt
hús í 25 ára sögu Evrópukeppn-
innar. V-Þjóðveijar unnu aftur á
móti alla leiki sína í undankeppni
HM 1982 á Spáni.
■ PLATINI tilkynnti lið sitt í
gær, en það er þannig skipað
(3-4-3): Bruno Martin - Jocelyn
Angloma, Laurent Blanc, Bernard
Casoni, Manuel Amoros - Didier
Deschamps, Luis Fernandez,
Christian Perez - Amara Simba,
Eric Cantona, Pascal Vahirua.
HANDKNATTLEIKUR
Hvorki lán né styrkur
- frá ríkisvaldinu verði HM-keppnin hér á landi 1995
Handknattleikssamband íslands
stendur nú frammi fyrir þeirri
staðreynd að verði heimsmeistara-
keppnin í handknattieik haldin hér
á landi árið 1995 fær HSÍ hvorki
ríkistryggt lán né styrk frá ríkis-
valdinu til að bjarga fjárhagsstöðu
sambandsins, sem er mjög slæm.
Verði hins vegar hætt við að halda
keppnina er ríkisstjórnin tilbúin að
leggja sitt af mörkum upp í útlagð-
an kostnað.
Þetta var niðurstaða fundar, sem
formaður HSÍ, forseti ÍSÍ og form-
aður ólympíunefndar áttu með for-
sætisráðherra og fjármálaráðherra
í fyrrakvöld. Báðir aðilar skýrðu
sjónarmið sín og málin skýrðust,
en engin ákvörðun var tekin. Að
sögn Jóns Hjaltalíns Magnússonar,
formanns HSÍ, voru skilaboð ríkis-
valdsins skýr.
„Við fengum staöfest að staðið
yrði við samninginn við Kópavogs-
bæ varðandi byggingu íþróttahúss
og yrði keppnin hér þyrfti HSÍ að
bjarga sér sjálft úr fjárhagsörðug:
leikum sínum. Sem formaður HSÍ
harma ég mjög þessa afstöðu og
mun leggja áherslu á ad ÍSÍ, ólymp-
íunefnd og séi-sambönd beiti sér af
hörku fyrir okkar málstað um leið
og barist vei-ður fyrir formlegum
stuðningi við afreksmannastefnu
íþróttahreynngarinnar. Verði hins
vegar ekki af keppniririi einhvérra
hluta vegna er núverandi ríkisstjóni
reiðubúin að greiða HSÍ ákveðnar
skaðabætur.”
Aðspurður sagði Jón að HSÍ hefði
ekki farið fram á ákveðna upphæð
ef hætt yrði við keppnina, „en það
er ljóst að ef svo færi yrði tap okk-
ar nokkuð vel yfir 100 milljónum.
En markmið okkar er að halda
keppnina og því höfum við ekki
sett fram neinar kröfur.”
Jón sagði að tækninefnd Alþjóða
handknattleikssambandsins hefði
tekið vel í að endurskoða kröfur
um stærð halla vegna úrslitaleikja
í HM, sem gæti geit það kleift að
stækkun Laugardalshallar kæmi til
greina 'ef ekki yi'ði úr byggirigu
nýrrar hallar, en unnið væri áfram
í því að fá fleiri stuðningsaðila
vegna keppninnar. Sala auglýsinga
væri í höndum sérfræðinga á vegum
IHF, en framkvæmd HM yrði í
höndum sérstakrar nefndar, sem
væri óháð hefðbundinni starfsemi
sambandsins. Hún myndi semja við
ferðaskrifstofur um samstarf rið
skipulagninguna.
Málið verður tekið fyrir á sam-
bandstjómarfundi HSÍ um helgina
og verður þá væntanlega ákveðið
hvaða stefnu HSÍ á að taka í stöð-