Morgunblaðið - 26.11.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.11.1991, Qupperneq 1
56 SIÐUR B 270. tbl. 79. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins KGB: Annar hver sendiráðs- maður var njósnari Moskvu, Ósló. Iteulor. BORIS Pankín, fyrrverandi utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, hefur sagt að allt að helmingur allra starfsmanna í sovéskum sendiráðum hafi þar til nýlega njósnað fyrir leyniþjónustuna KGB. Norska dagblaðið Aften- posten hafði í gær eftir fyrrver- andi njósnara KGB, Mikhaíl Bútkov, að nokkrir Norðmenn væru enn á mála lyá leyniþjón- ustunni þrátt fyrir endalok kalda stríðsins. Borís Pankín var skipaður utan- ríkisráðherra eftir valdaránstilraun sovéskra harðlínukommúnista í ág- úst en var gerður að sendiherra í Lundúnum þegar Edúard Shev- ardnadze tók við embættinu fyrr í mánuðinum. Hann sagði í viðtaíi við sovéska dagblaðið Komsomolskaja Pravda, sem birt var um helgina, að KGB hefði stjórnað mörgum sendiráðum og sagt sendiherrum þeirra fyrir verkum. Míkhaíl Bútkov sagði að nokkrir Norðmenn störfuðu enn fyrir KGB og þægju fyrir það gjafír eða reiðufé. „KGB hefur haft áhuga á Noregi einkum vegna aðildarinnar að Atl- antshafsbandalaginu,” sagði hann. Bútkov sagði að 38 Sovétmenn hefðu starfað sem njósnarar í land- inu í fyrra. Norðmaðurinn Ame Tre- holt, sem situr fangelsi fyrir njósnir, hefði verið sérlega mikilvægur njósnari og „ein af goðsagnapersón- um KGB”. Bútkov stundaði sjálfur njósnir fyrir KGB í Noregi og þótt- ist þá fréttaritari Rabotsjaja Trí- búna, dagblaðs sovéska kommún- istaflokksins. Hann sneri baki við KGB í maí og fluttist til Lundúna. Reuter íbúar í króatísku borginni Vukovar með föggur sínar á leið frá gereyðilögðu heimili sínu í gær. Óttast er að allt að 5.000 manns, aðallega óbreyttir borgarar, hafi fallið í umsátri sambandshersins um borgina sem féll fyrir helgina. Júgóslavía: Hörð hríð að Osijek þrátt fyrir vopnahlé Belgrad, Pans, Zagreb, Budapest. Reuter. Sambandsherinn í Júgóslavíu hélt uppi stórskotaliðsárásum á króa- tísku borgina Osijek í gær, þrátt fyrir enn eitt vopnahléið sem fulltrú- ar deiluaðila náðu samkomulagi um en það tók gildi síðdegis á sunnu- dag. Samkvæmt vopnahlésskilmálun- um er gert ráð fyrir að friðargæslu- lið á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) haldi til landsins ef vopnahléið verður virt og segir Cyrus Vance, fulltrúi SÞ, að ekki þyrfti að taka meira en viku að undirbúa þá að- gerð. Frakkar vilja að öryggisráð SÞ komi þegar saman og ákveði að senda gæslulið sem fyrst. Borist hafa fréttir af því að Serb- ar séu þegar byijaðir að setjast að í þorpum og bæjum sem áður voru byggð Króötum en Serbar hafa nú lagt undir sig þriðjung Króa- tíu. Að sögn ungverskra fjölmiðla hafa um 5.000 manns flúið frá Osijek-héraði til Ungveijalands síðustu daga. Þing Evrópuráðsins afnam í gær rétt Júgóslavíu, sem ekki á aðild að ráðinu, til að hafa þar sérstaka gestasendinefnd. „Ég get ekki séð að nokkur von sé til þess að Júgó- slavía verði sameinað ríki á ný,” sagði Anders Björk þingforseti. Sjá „Talið að 5.000 hafi týnt lífi..." á bls. 22. Mikil óvissa um framtíð Sovétríkjanna: Undirritun sambandssátt- mála sjö lýðvelda frestað Moskvu. Reuter. LEIÐTOGAR sjö Sovétlýðvelda náðu ekki samkomulagi um nýjan sam- bandssáttmála í gær og frestuðu undirritun hans þar til þing lýðveld- anna hafa fjallað um drög að honum. Engin skýring var gefin á þess- ari frestun og þykir hún verulegt áfall fyrir Míkhail Gorbatsjov Sovét- forseta, sem hefur að undanförnu lagt kapp á að halda ríkjasamband- inu saman. Gorbatsjov var mæðulegur þegar hann svaraði spurningum blaða- manna eftir fund með leiðtogum lýð- veldanna sjö. Hann játaði að stefnt hefði verið að því að leiðtogarnir undirrituðu sáttmála um framtíð Sovétríkjanna, þar sem m.a. er gert ráð fyrir þjóðkjörnum forseta og miðstjórnarvaldi með takmarkað valdsvið. Leiðtogarnir hefðu orðið sammála um nauðsyn þess að Ijúka samningum og einsett sér að koma málinu í höfn í desember. Fundinn í Moskvu sátu ekki leið- togar Úkraínu, Armeníu, Azerbajdz- hans, Georgíu og Moldovu og þykir það draga úr mikilvægi sambands- sáttmálans. Fjarvera úkraínska leið- togans þykir verst fyrir Gorbatsjov, en í næstu viku fara fram forseta- kosningar og þjóðaratkvæðagreiðsla í Úkraínu um hvort lýsa skuli yfir sjálfstæði og segja skilið við Sovét- ríkin. Sjö menn eru í framboði til forseta og allir fylgjandi stofnun sjálfstæðs ríkis og aðskilnaði frá Moskvuvaldinu. Gorbatsjov sagði í gær mikla hættu á að styrjöld brytist út milli Armeníu og Azerbajdzhans. Hann lagði til að sovéski herinn yrði send- ur til að hafa eftirlit með tíu km breiðu belti við landamæri lýðveld- anna og koma í veg fyrir átök milli þeirra. ÞELR FORUSTMEÐ ELDHAMRL GK13 FIMM menn fórust þegar vél- báturinn Eidhamar GK 13 strandaði við Grindavík síðastlið- ið föstudagskvöld. Þeir hétu: Árni Bernharð Kristinsson, 32 ára, skipstjóri, til heimilis á Glæsivöllum 5, Grindavík, og lætur hann eftir sig eiginkonu og tvö börn, eins árs og sjö ára. Bjarni Guðbrandsson, 31 árs, vélstjóri, til heimilis á Hólavöll- um 11, Grindavík, og lætur hann eftir sig eiginkonu og þrjú börn á aldrinum 5 ára, 10 ára og 13 ára. Sigurður Kári Pálmason, 27 ára, matsveinn, til heimilis á Selsvöllum 6, Grindavík, og læt- ur hann eftir sig eiginkonu og tvö börn, eins árs og fjögurra ára. Hiimar Þór Davíðsson, 24 ára, vélavörður, til heimilis á Fagra- hjalla 50, Kópavogi, og lætur hann eftir sig eiginkonu og sjö mánaða gamla dóttur. Kristján Már Jósefsson, 25 ára, háseti, til heimilis á Krabba- stíg 2, Akureyri. Hann var ókvæntur og barnlaus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.