Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Suðureyri: Freyja hf. fær af- urðalánaviðskipti hjá Islandsbanka Vona að nú sé hægt að ganga endanlega frá kaupunum, segir Jón Páll Halldórsson Á FUNDI sem forráðamenn Norðurtangans hf. og Frosta hf. áttu með bankastjórum íslandsbanka í gærmorgun var gengið frá því að Freyja hf. á Suðureyri yrði áfram í afurðalánaviöskiptum hjá íslandsbanka. Jón Páll Halldórsson, framkvæmdasljóri Norðui-tang- ans, segir að hann voni að nú verði hægt að ganga endanlega frá kaupum Norðurtangans og Frosta á Freyju. Morgunblaðið/Ingvar Lögreglan handtekur tvo menn sem stöðvaðir voru í akstri á Reykjanesbraut, grunaðir um fíkni- efnamisferli. 12 handteknir vegna hassmáls Fíkniefnalögreglan handtók um helgina 12 unga menn á þremur stöðum í borginni og lagði hald á rúmlega 16 grömm af hassi, 5 grömm af hassolíu og um hálft gramm af amfetamíni. í einni húsleit í Breiðholti voru 7 menn handteknir og lagt hald á 16 grömm af hassi, 5 grömm af hassolíu og á hálft gramm af amfetamíni. Þar voru 7 manns handteknir. í framhaldi af þessu var leitað í öðru húsi og þrír menn handteknir og síðar um kvöldið var bíll stöðvaður á Reykjanes- braut skammt frá Mjóddinni og þar voru tveir menn handteknir sem höfðu á sér lítilræði af hassi. Málið er talið upplýst að sögn lög- reglunnar. Forsætisráðherra og viðskiptaráðherra: Nafnvextimir verða að lækka hratt á næstunni „Ég vona að við séum komnir á béinu brautina í þessu máli,” segir Jón Páll Halldórsson. „Það sem allt strandaði á var að Freyja kæm- ist í bankaviðskipti og eftir þennan fund okkar með íslandsbanka er það mál komið í höfn.” Landsbankinn hafnaði því alfarið fyrir helgi að taka Freyju hf. í bankaviðskipti eftir að Norðurtang- inn og Frosti hefðu keypt fyrirtæk- ið. Hins vegar bauð Landsbankinn hvoru fyrirtækinu um sig 25 millj- óna króna lán til hlutabréfakaup- anna í Freyju hf. Að sögn Jóns Páls hefur enn ekki verið boðað til hluthafafundar í Freyju hf. til að ganga frá söl- unni af þeirra hálfu en hann á von á að það verði gert mjög fljótlega. Einn sækir um stöðu vega- málastjóra Umsóknarfrestur um emb- ætti vegamálastjóra er runnin út. Umsækjandi er einn, Heigi Hallgrímsson, aðstoðarvega- málastjóri. Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri lætur af störfum fyrir aldurs sakir um næstu ára- mót. Kona lést Um leið og hluthafafundur hefur samþykkt söluna verður gengið endanlega frá kaupum Norður- tangans og Frosta á Freyju. Ragnar Önundarson, fram- kvæmdastjóri íslandsbanka, segir að Freyja hf. hafi um árabil verið í afurðalánaviðskiptum hjá bank- anum og að þeim viðskiptum hafi ekki yerið sagt upp. Þeim sem ætli sér að kaupa Freyju sé velkom- ið af hálfu bankans að halda þess- um viðskiptum áfram. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, og Jón Sigurðsson, við- skiptaráðherra, segja að nafn- vextir verði að lækka hratt á næst- unni. Davíð segir að bankastjórar sem hann hefur rætt við segðu að jafnvægi ætti að vera komið á fyrir jól. Jón Sigurðsson sagðist sannfærður um að það yrði mjög ör lækkun á vöxtum Islandsbanka og Landsbanka á næstu vikum. Ákvæði í Seðlabankalögum til að grípa inn í vaxtaákvarðanir væru fyrir hendi og þeim yrði beitt ef tilefni væri til. Davíð Oddsson sagði að það væri Sigurveig Helga Jónsdóttir gift og átti 4 börn, hið yngsta þeirra er 17 ára. ekki vafi að það væri rétt hjá Bald- vini Tryggvasyni, sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, að sparisjóðirnir hafi viljað fylgja fastar eftir hjöðnun verðbólgunnar og laga það raunvaxtastig sem nafn- vaxtaskráning bankanna héldi svo háu. „Ég hef lagt á það mikla áherslu sjálfur og þeir bankastjórar sem ég hef talað við segja að það verði kom- ið á jafnvægi fyrir jól eða á næstu þremur vaxtabreytingardögum. Ég verð að treysta því.” Davíð sagði að bankarnir héldu því fram að þeir þyrftu að bæta sér tap sem þeir hefðu orðið fyrir á fyira árshelmingi þegar þeir voru píndir til þess að halda vöxtunum lágum, þrátt fyrir vaxandi verðbólgu. Að- spurður hvort það væri rétt að við- skiptamenn bankans í dag greiddu hærri vexti vegna þess að bankamir hefðu lánað út með of lágum vöxtum fyrrihluta ársins, sagði Davíð að það væri óeðlilegt. „Hins vegar vitna bankamenn til þess að langflestir viðskiptamenn séu í heilsársviðskipt- um og því jafnist þetta út, en engu að síður finnst mér það ekki fullnægj- andi rök og hef gagnrýnt bankana fyrir að hafa látið undan þrýstingi í vor og hafa haft vaxtastigið lægi-a en verðbólgan sagði til um. Frelsi í þessum yiðskiptum eins og öðrum fylgir mikil ábyrgð og það er áríð- andi að bankamir sanni það að þeir hafi ekki brugðist.” Jón Sigurðsson sagði að sú stað- reynd að bankarnir lækkuðu vexti með mismunandi hætti sýndi að það væri ekki haft samráð milli banka- stofnana um vaxtaákvarðanir en það hefði áður verið gagnrýnt. Nú væri greinilegt að hver innlánsstofnun hefði sitt lag á vaxtabreytingunum. „Ég er alveg sannfærður um það að nú verður mjög ör lækkun á vöxtum bæði hjá íslandsbanka og Lands- banka eftir því sem verðbólgan hjaðnar, sem hún er greinilega að gera. En auðvitað er þetta ákvörðun hverrar stofnunar. Þær em í sam- keppni,” sagði Jón. Aðspurður um þau orð Baldvins Tryggvasonar sparisjóðsstjóra að tregða íslandsbanka og Landsbanka til að lækka nafnvexti kæmi í veg fyrir að þeir 'gætu lækkað vexti eins og þeir vildu og teldu ástæðu til, sagðist Jón ekki búast við sparisjóð- irnir myndu lengi hafa það sem ástæðu til að breyta ekki sínum vöxt- um. Aðspurður hvort þetta væri ásættanlegt vaxtastig þar sem verð- bólga hefði nú farið hjaðnandi frá því í september/október sagði Jón engum blöðum um það að fletta að vextirnir væru alltof háir nú. Ástæð- urnar væru ekki síst þessar sveiflur í verðbólgunni og þeir erfiðleikar sem óneitanlega hefðu verið hér á því að byggja upp traust á stöðugleika í verðlagi. Hann vonaði að það væri að myndast og skildist á starfsmönn- um Islandsbanka að þar væri búið að setja upp áætlun um lækkun vaxta og því ástæða til að ætla að Lands- bankinn væri að undirbúa slíka tíma- setta áætlun um lækkun nafnvaxt- anna. Aðspurður hvort það væri ástæða til að beita ákvæðum Seðlabanka- laga, sagðist hann ætla að sjá til hver framvindan yrði. Það væri mik- iH munur nú á raunvaxtakjörum verðtryggðra og óverðtryggðra láns- forma, meiri en fengist staðist til lengdar, auk þess sem vextir á ís- landi væru hærri nú en vextir í ná- gi’annalöndunum yfirleitt. Vextirnir yrðu að lækka hratt. „Þessi laga- ákvæði eru til og ef tilefni gefst þá verða þau notuð,” sagði Jón Sigurðs- son. Kona lést í hörðum árekstn í Hafnarfírði FIMMTUG kona, Sigurveig Helga Jónsdóttir, Heiðnabergi 11, Reykja- vík, lést í Borgarspítalanum í Reykjavík á sunnudagsmorgun af völdum áverka sem hún hlaut í árekstri fólksbils og rútu á mótum Flata- hrauns og Hafnarfjarðarvegar laust eftir klukkan tvö aðfaranótt sunnu- dagsins. Að auki hlutu 7 manns áverka í árekstrinum og liggur kona úr hópi þeirra mikið brotin á sjúkrahúsi. Subaru-fólksbíl var ekið af Flata- sat í framsæti bifreiðarinnar. Annar hrauni í vinstri beygju inn á Hafnar- fjarðarveg og í veg fyrir rútuna sem var á leið vestur Hafnarfjarðarveg. Á gatnamótunum blikkuðu umferð- arljós á gulu en umferð um Flata- hraun hefur biðskyldu þegar þannig stendur á. Við áreksturinn skail rútan með miklu afli á hægri hlið fólksbílsins. í aftursæti hægra megin sat konan sem lést og sú sem er mikið slösuð farþegi í aftursæti og ökumaður slös- uðust einnig. í rútunni voru 15 far- þegar á leið frá Keflavíkurflugvelli og voru 4 þeirra fluttir á slysadeild með minniháttar áverka, að sögn lögreglu. Rútan nam staðar um 80 metra frá þeim stað þar sem árekst- urinn varð. Sigurveig Helga Jónsdóttir var fædd 28. maí 1941 og til heimilis í Heiðnabergi 11 í Reykjavík. Hún var Stefnt að fækkun sveitarfélaga í 25 FULLTRÚARÁÐ Sambands íslenskra sveitarfélaga lýsti á fundi sínum sl. laugardag yfir stuðningi við hugmyndir um stækkun sveitarfélaga og eflingu með sameiningu þeirra. Sveitarfélögum myndi skv. þessu fækka úr 200 í 25 til 28 með minnst 1.000 íbúa hvert. Gert yrði ráð fyrir sameiningu sveitarfélaganna innan heilla héraða. Fulltrúaráðið, sem 45 aðilar frá um landshlutum skipa, lýsti á ndinum yfir stuðningi við hug- mdir um stækkun og eflingu sveit- ’élaga með sameiningu þeirra sem ki eins og kostur væri mið af leið í áfangaskýrslu sem nefnd um iptingu landsins í sveitarfélög skil- i frá sér í haust. Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms- nar, formanns Sambands íslenskra útarfélaga, voru þrjár leiðir kynnt- í skýrslunni. „Leið 2 gerir ráð •ir sameiningu sveitarféiaga innan lla héraða þannig að öll sveitarfé- lög innan sama þjónustusvæðis myndu sameinast. Sveitarfélögin yrðu þá u.þ.b. 25-28 í stað 200 nú. Almenna reglan yrði sú að sveitarfé- lög hefðu a.m.k. 1.000 íbúa, en veitt- ar yrðu ein eða tvær undantekningar frá því þar sem fjarlægðir væru mikl- ar innan hins nýja sveitarfélags,” sagði Vilhjálmur í samtali við Morg- unblaðið. Hinar leiðirnar tvær sem talað var um í skýrslunni gerðu ráð fyrir, ann- ars vegar að sveitarfélögin yrðu 60-70 með lágmarksíbúatölu 400, hins vegar að engum aðgerðum yrði beitt til að hvetja fámenn sveitarfélög til sameiningar öðrum en núverandi ákvæðum laga um lágmarksíbúatölu og reglum um tekjujöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs. Þrátt fyrir það er tal- ið að gera megi ráð fyrir að sveitarfé- lögum fækki um 30-40 á nokkrum árum vegna sameiningar. Lág- marksíbúatala sveitarfélags í dag skv. sveitarstjórnarlögum er 50 íbú- ar. Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar taldi fulltrúaráðið ákjósanleg- ast að taka sem mest mið af leið 2 þar sem hún myndi stuðla að því að sveitarfélög næðu yfir heildstæð þjónustusvæði og yrðu þar með betur í stakk búin til að standa undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar og jafnframt hæfari til að taka við fleiri verkefnum af ríkinu. Fulltrúaráðið Iagði til að komið yrði á sérstakri samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga sem Ijúka myndi störfum um áramótin 1992 til 1993 en fulltrúaráðið yrði þá kallað saman til að taka afstöðu til fyrirliggjandi tillagna. Þá yrði nefndinni einnig falið að koma með tillögur um aðlög- unartíma sveitarfélaga og ríkisins að hinni nýju skipan og skila einnig tillögum um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Vilhjálmur lagði áherslu á þetta starf yrði unnið í góðri samvinnu við sveitarstjórnir og landshlutasamtök- in og kvað Ijóst að öflug sameining sveitarfélaga næðist ekki nema fyrir hendi væri almennur skilningur og stuðningur sveitarstjórnarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.