Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 7
4
GPS-staðarákvörð-
unarkerfið óvirkt:
Yfir 500 skip
í flotanum
eruútbúin
GSP - kerfinu
GPS-staðarákvörðunarkerfið
verður óvirkt um næstu helgi eða
frá föstudegi til sunnudags en
verður aftur komið í gang á
mánudag. Verið er að fram-
kvæma prófanir á því en yfir 500
skip í íslenska flotanum eru útbú-
in þessu kerfi sem er eitt hið
nákvæmasta sinnar tegundar.
Auk þess mun nokkur fjöldi af
jeppabifreiðum vera með GPS-
kerfið.
GPS-kerfið er í eigu Bandaríkja-
manna og það er byggt upp af 16
gervitunglum á sveimi um jörðina.
Til að ná staðarákvörðun með því
þarf samband við a.m.k. þijú af
þessum 16 tunglum en með þeim
prófunum sem gera á verður slökkt
á 11 af þeim. Reynir Guðjónssonm
framkvæmdastjóri ísmar hf., sem
er umboðsaðili fyrir kerfið hérlend-
is, segir að þótt hugsanlega megi
ná sambandi við þijú af þeim fimm
tunglum sem áfram verða virk sé
engan veginn hægt að treysta á
það.
I máli Reynis kemur fram að þau
rúmlega 500 skip sem útbúin séu
GPS-kerfinu styðjist ekki eingöngu
við það í staðarákvörðunum sínum
þannig að ekki ættu að verða nein
meiriháttar óþægindi af þessu
stoppi. Kerfið verður stöðvað dag-
ana 29. nóvember til 1. desember
og Reynir bendir á að truflanir
gætu orðið á kerfinu dagana 13.-15.
desember.
Reykhólasveit:
Þrír staurar
fuku í óveðri
Miðhúsum.
í ÓVEÐRINU sem gekk yfir á
sunnudagsnótt fóru 3 staurar í
sveitalínunni hjá Kambi í Reyk-
hólasveit og staur í sveitalínunni
hjá Garpsdal í Gilsfirði. Þetta er
í annað skipti á skömmum tíma
sem staurar brotna þarna. Raf-
magn er nú komið á sveitalínuna.
Þessi afmörkuðu svæði virðast
vera verstu ísingasvæðin hér. Hins
vegar brotnuðu einnig þijár staura-
samstæður í byggðalínunni hjá
Kambi og er rafmagnslaust hér
fyrir vestan. Viðgerðarflokkur er
nú að koma á staðinn en hvenær
viðgerð lýkur er ekki vitað.
Um tíuleytið á sunnudagsvköld
var ekki hægt að ná sambandi við
ísafjörð.
- Sveinn
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
7
Jón Grímur Jónsson gerði tímamótasamning við sjálfan sig. Hann ákvað að
kaupa sér Launabréf og getur nú greitt sjálfum sér laun með nýjum hætti.
Launin eru vextirnir af bréfunum, sem eru greiddir fjórum sinnum á ári, og
verðbætur leggjast við höfuðstólinn þannig að hann heldur verðgildi sínu.
Þar að auki eru Launabréfin skattfrjáls. Eigandi þeirra greiðir hvorki eignarskatt
af höfuðstólnum né tekjuskatt af vöxtunum.
Það eru fleiri en Jón Grímur sem geta notið árangurs erfiðis síns og skapað sér
og sínum meiri tíma og ánægju. Farðu að dæmi hans: Festu fé þitt í
Launabréfum, bréfum sem eru skattfrjáls tekjulind og einvörðungu byggð á
ríkistryggðum eignum.
Kynntu þér kosti Launabréfa hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum
Landsbréfa í útibúum Landsbanka íslands um allt land.
m
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, sími 679200
Löggilt verðbréfafyrirtæki Aðili að Vérðbréfaþingi íslands
SEMDU
VIÐ SBÍ
SJÁLFAN
ÞIG UM
SKATT-
FRELSI