Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR'26. NÓVEMBER 1991 19 Yelda og Murat Kodalli halda tónleika STYRKTARFÉLAG íslensku óperunnar mun með stuðningi Kaupþings hf. standa fyrir tón- leikum með hjónunum Yeldu og Murat Kodalli miðvikudag- inn 27. nóvember. Efnisskrá tónleikanna sem verða haldnir í íslensku óperunni er samansett af píanóverkum eft- ir Chopin, Nevit og Murat Kod- alli, tveimur sönglögum eftir Murat með texta eftir tyrkneska ljóðskáldið Abbas Sayar og vin- sælum og velþekktum óperuar- íum. Yelda syngur þijár aríur úr þremur óperum eftir Mozart og í einni þeirra, L’amero, mun Zbigniew Dubik leika með þeim á fiðlu. Einnig syngur hún Caro Murat og Yelda Kodalli. nome úr Rigoletto eftir Verdi, aríu Olympiu úr Ævintýrum Hoff- mans og Klukkuaríuna úi'Lakamé eftir Delibes. Tónleikarnir heijast kl. 20.30 og miðasala er hafin í íslensku óperunni. Sameining Skjaldar og Þormóðs ramma úr sögunni: Skjöldur hf. hefur sýnt áhuga á að kaupa Dögun SAMEINING Skjaldar hf. á Sauðárkrók og Þormóðs ramma hf. á Siglu- firði er úr sögunni en Skjöldur mun hafa áhuga á að kaupa rækju- vinnsluna Dögun á Sauðárkróki. Á stjórnarfundi Skjaldar um helgina kom fram að þeir hluthafar sem eru heimamenn á Sauðárkrók hafa ekki áhuga á að fara í sameiningarviðræður við Þormóð ramma og því var það málið tekið út af borðinu. Vilhjálmur Egilsson stjórnarform- Dögunar,” segirVilhjálmurEgilsson. aður Skjaldar hf. segir að kaupin á Dögun hafi komið til umræðu á fund- inum og telji forráðamenn Skjaldar það vera höfuðkostinn í myndinni núna. Hinsvegar liggur fyrir að Skjöldur mun ekki hafa frumkvæði að því að bjóða í hlutabréf Dögunar en mun gera það verði þau til sölu. „Við erutn tilbúnir til viðræðna um þetta mál komu fram áhugi af hálfu Dögun er rækjuverksmiðja. Fyrir- tækið á bátinn Röst en honum fyigir rúmlega 500 tonna botnfiskkvóti og 250 tonna rækjukvóti. í máli Vilhjálms kemur fram að útlit er fyrir að rekstur Skjaldar í ár skili hagnaði og skuldsetning fyr- irtækisins er hagstæð. „Við erum ekki í vandræðum á neinn hátt og okkar rekstur er þokkalegt dæmi,” segir Vilhjálmur. „En við verðum líka að hugsa nokkur ár fram í tímann og því eru þessi mál til umræðu hjá okkur.” Óttar Ingvason framkvæmdastjóri Íslensku útflutningsmiðstöðvarinnar er stærsti hluthafinn í Dögun með um 30% hlutaQár. Hann segir að ekki hafi komið til tals hjá eigendum Dögunar að selja fyrirtækið og hann á von á að neikvætt yrði tekið í slík- ar hugmyndir. Hinsvegar væri ekk- ert því til fyrirstöðu að Dögun seldi Skildi kvóta. „Við höfum áður boðið þeim kvóta á leigu,” segir Óttar. „En ef þeir vilja kaupa verða þeir að borga markaðsverð fyrir kvótannn.” Fyrsta uppboð Sothe- by’s á Norðurlöndum: Uppboð hér hugsanleg - segir Sigríður Ingvarsdóttir FYRSTA listaverkauppboð Sothe- by's á Norðurlöndunum verður haldið á Grand Hotel í Stokkhólmi 9. desember nk. Boðin verða upp listaverk eftir sænska listmálara frá 1870 til dagsins í dag. Sigríður Ingvarsdóttir, fulltrúi Sotheby’s hérlendis, segir að ef til vill sé þetta uppboð upphafið að því að Sotheby’s haldi uppboð á íslandi. Starfsemi Sotheby’s hér á landi hafi verið afar vel tekið í alla staði. Ein verðmætasta myndin sem boð- in verður upp í Stokkhólmi er eftir Carl Fredrik Hill og heitir „Tradet och Flodkroken og Motiv Fran Bois Le Roi" metin á 1,5-2 milljónir skr., eða 15-20 milljónir íslenskra króna. Af öðrum/myndum má nefna „Anke- drottningens Begravning” eftir Nils Dardel metin á 8-10 milljónir króna,„Min Arbetsbank” eftir Helene Schjerfbeck metin á 5-7 milljónir króna, „Five O' Clock Te”eftir Isaac Grunewald metin á 5-6 milljónir króna og tvær myndir eftir Bror Hjorth, „Kafferp Vid Langsjön” met- in á 4-6 milljónir króna og„Bond- begravning 1925” metin á 2-2,5 milljónir króna. * Orginal kölnischwasser * i Stærðir: 50,100,150,300,800 mi. En lítið að gerast í sjónvarpinu þínu? Bættu úr því með Stöð 2 Langar þig til að sjá eitthvað nýtt? Langar þig til að horfa á fjölbreytt sjónvarpsefni? Viltu lengja sjónvarpsdagskrána? Þetta allt færðu með Stöð 2. Fáðu þér myndlykil strax í dag og það lifnar heldur betur yfir sjónvarpinu þínu. Bankastræti 3, sími 91-13635.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.