Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.11.1991, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 Leiksmiðja Reykjavíkur: Kir suberj aþj ófurinn sýndur á Galdraloftinu LEIKSMIÐJA Reykjavíkur frumsýnir, þriðjudaginn 26. nóvember kl. 20.30, Kirsuberjaþjófinn í leikstjón Árna Péturs Guðjónssonar og Sylv- iu Von Kospoth. Gustavsberg Veljið aðeins það besta — veljið heildarlausn frá Gustavsberg í baðherbergið Gustavsberg Fæstíhelstu byggingarvöruverslunum umlandallt. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsmgamióill! Guðný Guðmundsdóttir Guðný leikur á fiðlu úr íslensku birki sem Kristinn Sigurgeirsson frá Sauðárkróki hefur nýlega smíðað. Hagleiksmaðurinn Jóhann Krist- inn Sigurgeirsson fæddist á Arnar- stapa í Ljósavatnshreppi, S-Þing., árið 1919. Hann vann við smíðar o.fl. í Reykjavík og á Sauðárkróki en er nú ellilífeyrisþegi og fæst m.a. við fiðlusmíði. Þrátt fyrir að Kristinn Örn Kristinsson áhugi hafi lengi verið fyrir hendi hóf hann fiðlusmíðar ekki fyrr en 1989. Efnið í fiðlurnar er að miklu leyti íslenskt birki frá Lundaskógi í Fnjóskadal en einnig úr Vagla- skógi og víðar. Birkið segir Kristin þurfa að vera vel þurrt og er bak, hliðar og háls fiðlunnar smíðað úr því. Hljómþil eða forstykki er úr fíngerðri og léttri furu eða greni. Verkið er saga brostinna vona, drauma sem aldrei rætast. Textarn- ir eru fengnir að láni úr Kirsubeija- garðinum eftir Tsjekhov og Vinnu- konunum eftir Jean Genet. Leiksmiðja Reykjavíkur hefur starfað í 2 ár og á að baki 2 sýning- ar, Sumargesti eftir Maxim Gorki og Þjófinn eftir Jean Genet. Þá síð- arnefndu sýndi leikhópurinn á leik- listarhátíð í Danmörku sl. sumar. Sýningar verða á Galdraloftinu, Hafnarstræti 9. Eitt atriði úr leikritinu Kirsuberjaþjófinum. Flytur fyrirlestur um endumar á Mývatni Leikið á fiðlur úr íslensku birki á Háskólatónleikum FIMMTU Háskólatónieikar vetrarins verða í Norræna húsinu miðviku- daginn 27. nóvember kl. 12.30. Þá leika Guðný Guðmundsdóttir kon- sertmeistari Sinfóníuhijómsveitar íslands og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari verk ýmissa höfunda, íslenskra og erlendra. HlutaQárútboð Eignabankinn hf. er almenningshlutafélag sem hefur fengið staðfestingu Ríkisskattstjóra um að kaupendur hlutabréfa njóti skattaafsláttar, sbr. III. kafla laga nr. 9/1984. Markmið Eignabankans er að verja hlutafé sínu til fjárfestinga í eignum og verðbréfum, sem stjórnendur félagsins telja arðbært. Hlutaljárútboð: Útboðsfjárhæð kr. 10.000.000,00 Nafnverðseiningar: kr. 10.000,- kr. 50.000,- og kr. 100.000,-. Hlutabréfin eru seld á nafnverði. Þegar eru seld hlutabréf fyrir kr. 18.500.000,- og fjöldi hluthafa er 28 (30/10 ’91). Til að upplýsa um skattaafslátt, skal tekið fram, að einstaklingur, sem fjárfestir í hlutabréfum Eignabankans fyrir kr. 100.000,- lækkar skatta sína um ca. kr. 39.000,-, sbr. l.nr. 9/1984. Leitið upplýsinga strax í síma (91) 61 83 70 EígnaBankínn h/f AÐALSTRÆTI9 — 101 REYKJAVÍK SÍMI (91) 61 83 70 — FAX (91) 62 83 70 Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKI gengst fyrir námskeiði í skyndihjálp fyr- ir almenning sem hefst fimmtu- daginn 28. nóvember kl. 20 og stendur yfir í 3 daga. Kennsludagar verða 28. og 29. nóv., kennt frá kl. 20-23, og 29. nóv., kennt frá kl. 14.30-18.30. Námskeiðið verður haldið í Fáka- feni 11, 2. hæð. Öilum 15 ára og eldri er heimil þátttaka. Þeir sem hafa áhuga að komast á þetta nám- skeið geta skráð sig í síma 688188. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er blástursaðferðin, hjartahnoð, fyrsta hjálp við bruna, blæðingum, beinbrotum og mörgu öðru. Einnig verður fjallað um það hvernig má fyrirbyggja slys. Sýnd verða myndbönd um helstu slys. Að loknu námskeiði fá nemendur skírteini sem m.a. er hægt að fá metið í ýmsum skólum. Tekið skal fram að Reykjavíkur- deild RKÍ útvegar leiðbeinendur til að halda námskeið fyrir þá aðila sem þess óska í Reykjavík. (Fréttatilkynning) NÆSTI fræðslufundur Fugla- verndunarfélagsins verður haldinn þriðjudajginn 26. nóv- ember. Þá mun Arni Einarsson dýrafræðingur flytja erindi sem hann nefnir: Endurnar á Mý- vatni. Ámi ætlar að fjalla um vistfræði Mývatnsanda, stofn- breytingar og tengsl anda og botndýra. Fundurinn verður í stofu 101 í Odda, húsi hugvísindadeildar Há- í kynningu Iðunnar segir að höfundur hafi fengið til liðs við sig sextán vísindamenn á sviði umhverfismála, auk fjölda manna og kvenna sem leggja fram efni bókarinnar, hvatningarorð, ljóð og listaverk. „Bjargið jörðinni er falleg bók, lifandi vitnisburður um fegurð lífs- ins og þeirra náttúrugæða sem stöðugt eykst, en jafnframt viðvör- un til mannkynsins, hvatning um að grípa til aðgerða áður en það er um seinan, ákall til íbúa allra skólans, og hefst kl. 20.30. Hann er öllum opinn. (Fréttatilkynning) landa um að snúa við blaðinu. Hér er í myndum og máli dregin upp raunsæ mynd af þeim hættum sem eru umhverfinu hvað skæðastar, svo sem mengun, vantsskortur og gróðureyðing.” Bókin hefur komið samtímis út í fjölmörgum löndum sem hvatn- ing um samstillt átak til að bregð- ast við yfirvofandi vanda jarð- arbúa. Álfheiður Karlsdóttir og Óskar Ingimarsson þýddu bókina. Bók til bjargar jörðinni IÐUNN hefur gefið út bókina Bjargið jörðinni eftir Jonathon Poritt. Karl prins af Wales skrifar formála bókarinnar og Vigdís Finnbogadóttir forseti ritar inngang íslensku útgáfunnar. ÞAÐ ER OÞARFI AÐ SKJALFA ÞÓTT HANN BLÁSI KÖLDU Hita- og kæliblásararnir frá Blikksmiðjunni eru löngu landsþekktir fyrir gæði og afköst. Þeir eru sérstaklega hannaðir fyrir íslenskt vatn sem tryggir þeim hámarks endingu. Ef þú þarft að hita eða kæla bílskúrinn, tölvuherbergið, verkstæðið, vínnusalinn, húsbygginguna eða kæliklefann þá höfum við lausnina. Hafðu samband og við veitum fúslega allar nánari upplýsingar um verð og tæknileg atriði. BLIKKSMIÐJAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.