Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
13
RAMMA
GERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19, SÍMI 17910, KRINGLUNNI SÍMI, 689960
Meira en þú geturímyndad þér!
Reglubtmdið eftirlit tryggir öruggan og
áfallalausan rekstur lyftunnar.
Héðinn-Schindler lyftur hafa
eðlilega haft stærstu
markaðshlutdeild hérlendis á sviði
lyftubíinaðar um árabil. Það gerir
vandaður tæknibúnaður og góð
þjónusta. Fólk treystir Héðinn-
Schindler lyftum.
Neyðarvakt VARA allan sólarhringinn
tryggirskjót viðbrögð verði bilun.
• •
Oryggisþjónustan VARI hefúr
lengur en nokkur annar aðili
hérlendis, sérhæft sig í búnaði sem
stuðlar að öryggi einstaklinga og
fyrirtækja á markvissan og
nútímalegan hátt. Fólk treystir VARA.
Við stöndum saman
og stuðlum að öryggi þinu
Nú leggjast þessi fyrirtæki á eitt.
Þau sameina hátæknibúnað í fremstu röö og þjónustu allan sólarhringinn
og stuðla þannig að auknu öryggi lyftufarþega.
HEÐINN
Schindler
lyftur hf.
Lyngási 8 - Garðabær
Telefax 91-653182
Sími 91-653181
VARI
Sérhæfð alhliða öryggisþjónusta
Sími 91-29399
ÖRUGGAR LYFTUR ALLAN SÓLARHRINGINN
Vátiyggmgabætur og virðisaukaskattur
eftir Sigmar
Armannsson
í þjóðarsálum ljósvakamiðla og
dagblaða hefur að undanförnu mik-
ið verið fjallað um greiðslur vá-
tryggingabóta og meðferð virðis-
aukaskatts í því sambandi. í því
efni hefur orðið vart mikils mis-
skilnings almennings. Er það í
sjálfu sér skiljanlegt, þar sem mála-
flokkarnir skattar og vátryggingar
hafa jafnan þótt í hópi hinna flókn-
ari, og vart verður það til einföldun-
ar þegar þessi mál koma saman.
Verði tjón á bifreið, sem vátrygg-
ingafélagi ber að bæta, snýr tjón-
þoli sér til hlutaðeigandi vátrygg-
ingafélags, sem metur tjónið til fjár,
þ.e. viðgerðarkostnaðinn. Annars
vegar er metinn kostnaður við efni
og varahluti, en hins vegar kostnað
við viðgerðarvinnuna. Fari tjónþoli
með bifreið sína til viðgerðar á bif-
reiðaverkstæði, og verkstæðið
sendir vátryggingafélagi reikning
fyrir viðgerðinni, greiðir vátrygg-
ingafélagið verkstæðinu þann
reikning ásamt virðisaukaskatti af
bæði vinnu og varahlutum. Til að
kanna að viðgerðin og kostnaðurinn
við hana hafí verið á viðhlítandi
hátt, geta félögin stuðst við tjóns-
matið. Á þessa kostnaðarliði er
auðvitað í tjónsmatinu gert ráð fyr-
ir virðisaukaskatti sem nemur
24,5%.
Alkunna er að iðulega gerist
það, að tjónþoli kveðst ætla að ann-
ast viðgerðina á bifreið sinni sjálf-
ur, og fer þess á leit, að vátrygg-
ingafélagið greiði honum bætur
samkvæmt tjónsmatinu. Hlutverk
vátryggingafélaga er fyrst og
fremst að bæta raunverulegt fjár-
tjón tjónþola. Því er það, að séu
bætur greiddar tjónþola beint, er
miðað við áætlaða tjónsfjárhæð, en
án virðisaukaskatts af vinnuliðnum.
Byggist þessi uppgjörsaðferð á því,
að tjónþoli, sem sjálfur vill annast
viðgerð á ökutæki sínu, greiðir ekki
virðisaukaskatt af þeirri vinnu, þ.e.
að eigin vinna almennings af þessu
skaðabótaréttar og virðisauka-
skattslöggjöf.
Afar mikilsvert er, að fólk geri
sér grein fyrir því, að félögum ber
skylda til þess að leitast við að
halda kostnaði vegna bótaskyldra
tjóna í lágmarki án þess þó að
ganga á þann rétt tjónþola að hann
fái fjártjón sitt bætt. Auknum tjóna-
kostnaði verður nefnilega ekki
mætt af hálfu vátryggingafélag-
anna á annan veg en þann, að
hækka vátryggingariðgjöldin. Þessi
meðferð virðisaukaskatts við tjóns-
uppgjör, sem er í alla staði lögleg
og rökrétt, er til þess fallin að sínu
leyti að draga úr slíkri hækkunar-
þörf.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra
tryggingafélaga.
Sigmar Ármannsson
„ Afar mikilsvert er, að
fólk geri sér grein fyrir
því, að félögum ber
skylda til þess að leitast
við að halda kostnaði
vegna bótaskyldra
tjóna í lágmarki án þess
þó að ganga á þann
rétt Ijónþola að hann
fái fjártjón sitt bætt.”
tagi er ekki virðisaukaskattsskyld
starfsemi. Ef vátryggingafélagið
hefði greitt bæturnar í þessu tilviki
að viðbættum virðisaukaskattinum,
hefði tjónþoli hagnast á umferðar-
óhappinu, og fengið meira fé í hend-
ur heldur en hið raunverulega fjár-
tjón hans var. Þessi uppgjörsaðferð
er viðhöfð í þeim nágrannalöndum
okkar, þar sem virðisaukaskatts-
kerfi er við lýði, og kemur að fullu
heim og saman við meginreglur
Þú og þínir geta áhyggjulaust ferðast með Héðinn-Schindler lyftum því nú tekur
Öryggisþjónustan VARI á móti bilanatilkynningum utan skrifstofutíma og beinum
neyðarboðum frá lyftum allan sólarhringinn og kallar tafarlaust út viðgerðarmenn
efþörf krefur.
Öryggi og þjónusta
Héðinn Schindler lyftur hf. og Öryggisþjónustan VARI eiga
sameiginlegt áhugamál: öryggi þitt og þinna
M- r
JÓLAUÓS
Eigum fyrirliggjandi hin eftirspurðu sænsku
aðventuljós og Ijósastjaka fró KONST SMIDE.
Verð fró 2.450.- Sendum í póstkröfu.
n
•» P f *'J V I'.Í'Imí‘i v.
augljós/Ljósm. SSJ