Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 14

Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 FAMILY HOME COMPUTER nl&Síft BRINGSIMAGES AND THE AMAZING REALITY! ; aiaw—bw ttwft »»*« rw«" KUm i.ut,twv j («$*í«£tZm»«u* CCVmn S1VÍU irzæz-.: ■; ' more'f'u"i to rou BRYAN ADAMS TónleikaríLaugardalshöll jjEt 17.desember1991 HXJGLEIDIRj Reykjavík^fánar, Laugavegi 24, Glæsibæ, Strandgata 37, Mjódd, Borgarkringlunni °g Auj^orstræti; Skífan, Kringlunni, Laugavegi 33, Laugavegí 96 og Laugavegi 26. Vestmannaeyjar; Adam og Eva. Húsavík: Sími 9g-4i 362. Akureyri: KEA-Hljómdeild. Neskaupstadur: Tónspil. Selfoss: Verslunin ösp. Akranes: Bókaskemman. Skagafirdi: Kaupfélag Skagfirdin§a. Hornaftrdi: KASK. ísafjördur: Hljómborg. Keflavfk:K-Sport. Einnig et hægt ad panta mida ísíma 91 -677750. Gírósedill verdur sendiir bid hæl og et hann hefur £, verid greiddur verda midarnir sendiruni hæl. Muniðad gieida strax. * ^ Skrifstofa Borgarfoss hf„ GerðubárgM, sími 677750. HÖfundur er fyrrverandi bóndi á Kirkjubóli. Listin að af- þakka áfengi eftirArna Sigfússon Flestir sem vilja forðast offitu vita að árangursrík leið felst í að minnka sykurríka drykki. Nú fást sykurlaus- ir drykkir sem sjálfsagt val í öllum verslunum og á öllum mannamótum. Flestir sem vilja forðast áfengis- vímu vita að árangursrík leið felst í að afþakka áfengi en þiggja þess í stað áfengislausa drykki, sem bjóð- ast nú í mikilli fjölbreytni í fjölmörg- um verslunum og á öllum fyrsta flokks veitingastöðum. Hvort tveggja reynist erfitt í fyrstu, en fljótlega verður það sjálf- sögð venja. Okkur mun verða ljóst að staðfesta á báðum þessum sviðum skapar okkur betri stöðu í starfi og leik. Ég vel að tengja sykurdrykki og áfengi í þennan hátt í tilefni bindind- isdags fjölskyldunnar, því í mínum augum er áhersla á minni áfengi- snotkun fjölskyldufólks sjálfsagður liður í auknu heilbrigði og ánægju- legri starfsdögum, líkt og kjörþyngd eða holl fæða. Valið er jafn sjálfsagt. Menn hafa ólíkar ástæður til að hafna áfengi. Sumir af biturri eigin reynslu, aðrir af reynslu annarra, og enn aðrir einfaldlega vegna þess að þeir kunna betur við sig allsgáða, svo undarlegt sem það er! Þegar tímar líða án áfengis hallast þó flest- ir á þá skoðun að þeir hafi fulla þörf fyrir að vera allsgáðir — alltaf. Fæstir hefla áfengisnotkun sína staðráðnir í að verða áfengisfíklar. Margir rata meðalveginn alla ævi, en því miður vitum við enn afar lítið O: um hvað veldur því að fjöldi fólks heltist úr lestinni og fellur á meðal- veginum. Afengisfíklar skilja sjaldnast að misnotkun þeirra skaði heimilisfólkið fyrr en þeim er orðið ljóst að þeir hafa sjálfír skaðast. Oft tekur mörg ár að bíða eftir slíkri hugljómun. A meðan er hætta á að fjölskyldan lifi öll við afleiðingár misnotkunar: sinnuleysi foreldris, ósannsögli, • skapbresti, og önnur stórhættuleg gildi í uppeldi hvers barns. Á bindindisdegi fjölskyldunnar er tilvalið tækifæri fyrir hvern og einn að hugleiða hvort misnotkun áfengis hafi einhvern tíma, einhveija kvöld- stund, einhvern morgun, varpað skugga á heilbrigt fjölskyldulíf. Leiðir meðalvegurinn, sem þú telur þig e.t.v. feta, í aðra átt en þú vilt að hann geri? Hvaða áhrif hafa brostnar vonir barna á hugmyndir þeirra um „eðlilegt” fjölskyldulíf? Of mörg þeirra telja hina misheppn- uðu leið vera einu leiðina og staldra Árni Sigfússon „Áfengisfíklar skilja sjaldnast að misnotkun þeirra skaði heimilis- fólkið fyrr en þeim er orðið ljóst að þeir hafa sjálfir skaðast.” hvergi við til þess að endurskoða hana, þegar að því kemur að þau stofna sína eigin ijölskyldu. Nýtum þennan dag til þess að staldra við stundarkorn. Lítum yfir farinn veg og sjáum hvort ekki sé kominn tími til þess að feta leiðina til heilbrigðara fjöl- skyldulífs. Þar þarf meira til en að hamla gegn misnotkun áfeng- is. En bindindi er mikilvægt tæki sem ég hvet menn til að íhuga. Það þarf ekki hástemmd loforð. Ágætt væri að byija á einum degi í einu. Er þessi dagur ekki tilvalinn? Höfundur er einn af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. HVERSVEGNA BINDINDISMENN? eftir Halldór Kristjánsson Hvað veist þú um áfengi? Við skulum sleppa öllum flækjum en halda okkur við þau áhrif sem við höfum séð. Við höfum séð að ölvuðum mönn- um fatast. Þeir verða reikulir í spori og missa marka á ýmsan hátt. Við höfum orðið vitni að heimilis- böli þegar ekkert taumhald var orð- ið á drykkjufýsninni. Við höfum verið vitni að þjáningu fjölskyldunn- ar, maka, barna og heimilisvina. Við höfum orðið vitni þess að menn misstu atvinnu, eignir og heimili vegna drykkjunnar. Við vitum líka um slys og óhæfu- verk sem eru bein afleiðing áfengis- neyslu. En svo vitum við líka um fjölda manna sem neytir áfengis án þess að því fylgi tjón eða ósköp eins og hér er búið að minna á. í þann meiri hluta vilja margir skipa sér. Því ekki það? Við göngum út frá því að þeir sem urðu ofdrykkjumenn hafi ætlað sér að vera hófsmenn. Þeir völdu sér lífsstíl sem átti að vera farsæll en varð þeim ógæfa. Og þá er kom- ið að kjama málsins. Þessi lífsstíll var valinn vegna þeirra sem sleppa við vandræðin, — ekki hinna. En lífsstíll hófseminnar varð mörgum að falli. Þess vegna Halldór Kristjánsson „Við göngum út frá því að þeir sem urðu of- drykkjumenn hafi ætl- að sér að vera hófs- menn. Þeir völdu sér lífsstíl sem átti að vera farsæll en varð þeim ógæfa.” urðu til bindindismenn. Það eru menn sem ekki vilja með dæmi sínu og dagfari efla og útbreiða þann lífsstíl sem einhveijum verður að ógæfu. Það eru menn sem ekki vilja leggja sig í óþarfa áhættu og jafn- framt taka þátt í að troða þær slóð- ir sem merktar verða blóði og böli. m og 2 Tu á abeins Verbdæmi. Nasa leikjatölva meö Turbo stýripinnum og 4 leikjum_______11.900,- Nasa leikjatölva með Turbo stýripinnum og 35 leikjum______14.900,- Super Mario Bros. III__3.900,- The Simpsons___________3.900,- Yo-Nid_________________3.900,- Back To The Future_____3.900,- Battle Toads___________3.900,- lOOIeikjapakki. SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 Höfóar til .fólks í öllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.