Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
23
Forsetakosningar í Tadzhíkístan:
Rakhmons sigraði
með yfirburðum
Dúshunbc. Reuter. Daily Telegraph.
RAKHMON Nabíjev, fyrrum leiðtogi kommúnistaflokksins í Mið-Asíu-
lýðveldinu Tadzhíkístan fór með sigur af hólmr í forsetakosningum,
sem fram fóru í lýðveldinu í fyrradag. Samkvæmt bráðabirgðaúrslitum
hlaut hann 56,9% atkvæða en helsti keppinautur hans, Davlatnazar
Khúdonazarov, rösk 30%. Khúdonazarov hefur kært niðurstöðurnar
formlega og fullyrt að kosningasvindl hafi átt sér stað.
Nabíjev var flokksleiðtogi í Tadz-
híkístan 1982-85 en Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétforseti, þá nýtekin við
sem leiðtogi sovéska kommúnista-
flokksins, vék líonum frá. Er hann
fyrsti harðlínumaðurinn sem kemst
til valda eftir að sovéski kommún-
istaflokkurinn var lagður niður í
kjölfar misheppnaðs valdarán
harðlínuaflanna í Moskvu í ágúst sl.
Nabíjev þykir koma illa fyrir og
er sagður eiga við drykkjuvanda að
stríða. Nýtur hann öflugs fylgis í
norðurhuta lýðveldisins þar sem vel-
megun er meiri en á öðrum svæðum
og íhaldssemi mikil en umbætur sem
Moskvustjórnin hefur gripið til hafa
í óverulegum mæli komist í fram-
kvæmd í Tadzhíkístan.
Forsetakosningarnar eru hinar
fyrstu sem fram fara í Mið-Asíulýð-
veldum Sovétríkjanna. Andstæðing-
ar Nabíjevs héldu því fram í
kosningabaráttunni að hann skorti
umburðarlyndi og myndi stjórna með
harðri hendi. Myndi fljótt sjóða upp
úr milli hinna flölmörgu þjóðarbrota
sem byggju í lýðveldinu. Helsti mót-
frambjóðandi Nabíjevs var Davl-
atnazar Khúdonazarov, 47 ára kvik-
myndaleikstjóri og fyrrum fulltrúi í
miðstjórn sovéska kommúnista-
flokksins. Naut hann stuðnings leið-
toga múhameðstrúannanna og mo-
skanna sem verið hafa opnaðar eftir
áratuga ofsóknir gegn kirkjunni í
Sovétríkjunum. Andstæðingar Khú-
donazarovs, einkum þó Rússar, sem
eru í minnihluta í Tadzhíkístan, hafa
óttast að næði hann kjöri tæki við
klerkaveldi í lýðveldinu.
Noregur:
Sovétmenn ætla ekki
að lyfta kafbátnum
SOVÉSKUR ráðherra skýrði frá því á ráðstefnu í Tromsö í síðustu
viku að áætlanir um að reyna að lyfta flaki kjarnorkukafbátsins
Komsolets, er sökk milli Bjarnareyjar og Norður-Noregs, hefðu ver-
ið lagðar á hilluna. „Það eina sem gæti fengið okkur til að breyta
þeirri ákvörðun er að Norðmenn vilji fá hann fjarlægðan, t.d. af
ótta við mengun fiskimiða,” sagði ráðherrann, Viktor Míkhaílov, að
sögn blaðsins Aftenposten. Geislavirkt eldsneyti er tekið að leka úr
kafbátnum, sem sökk milli Svalbarða og Norður-Noregs árið 1989,
en það skapar ekki hættu á alvarlegri mengun, að sögn norskra
embættismanna.
„Það er gat á kjarnakljúfstankn-
um og úran-eldsneyti er tekið að
leka,” hafði Reuíers-fréttastofan
eftir Knut Gussgard, yfirmanni
Geislavarna Noregs. „Lekinn mun
aukast á næstu áratugum. Hann
er þó ekki hættulegur.” Gussgard
hefur varað við því að Sovétmenn
ætli ef til vill að láta Norðmenn um
að finna lausn á málinu.
42 skipveijar biðu bana þegar
kafbáturinn sökk eftir að eldur
hafði komið upp í honum. Aður
hafði áhöfnin stöðvað kjarnakljúf-
inn. Kafbáturinn er á 1.685 m dýpi.
Sigurður M. Magnússon, for-
stöðumaður Geislavarna ríkisins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
best að skipið yrði áfram á botnin-
um, þar sem lítil hætta væri á að
geislavirk efni bærust þaðan upp á
við og menguðu fiskimiðin. Ef reynt
yrði að hífa skipið upp kynni það
til dæmis að liðast í sundur með
þeim afleiðingum að geislamengun
bærist með yfirborðsstraumunum
um grunnsævið. Auk þess lægi ekki
fyrir hvernig hægt væri að flytja
kafbátinn í burtu.
Bretland:
Freddie Mercury
látinn úr alnæmi
London. Reuter.
ROKKSTJARNAN Freddie Mercury, aðalsöngvari bresku hljómsveit-
arinnar Queen, lést á sunnudag úr alnæmi, daginn eftir, að hann skýrði
frá því fyrsta sinni, að hann væri haldinn sjúkdómnum. Hann var 45
ára að aldri.
Reuter
Freddie Mercury á sviðinu en
myndin var tekin í júlí 1985.
Mercury var meðal þeirra fremstu
í bresku rokki um 20 ára skeið og
átti meginþátt í að koma Queen á
toppinn með söngvum eins og „Bo-
hemian Rhapsody” og „We are the
Champions”. Var banameinið
lungnabólga eins og oft er méð alnæ-
missjúklinga en áður en hann lést
skoraði hann á aðdáendur sína að
taka höndum. saman í baráttunni
gegn alnæminu.
Mercury fór ekki í felur með
nautnafullt líferni sitt né að hann
væri tvíkynhneigður en um nokkurt
skeið hafði hann ekki komið fram
opinberlega eða síðast fyrir hálfu
öðru ári þegar hann tók við tónlist-
arverðlaunum. Queen hefur ekki far-
ið í hljómleikaferð síðan 1986.
Freddie Mercury, fæddur Fred-
erick Bulsara, er ein kunnasta stjarn-
an í bresku skemmtanalífi, sem lotið
hefur í lægra haldi fyrir alnæminu,
en af öðrum má nefna leikstjórann
Tony Richardson og leikarann Ian
Charleson.
SOTHEBY’S
STOFNAÐ 1744
þekktasta uppboðshús í heimi
býður nú fram þjónustu
sína á íslandi
Sotheby’s hefur þá ánægju að tilkynna að fulltrúi þess hefur
nú tekið til starfa í Reykjavík.
Sotheby’s býr yfir 200 ára reynslu af kaupum og sölu á listmunum
og öðrum verðmætum.
Eftirspurn er eftir frímerkjum, mynt, peningaseðlum, silfri og íslenskri myndlist, einkum
eftir eldri meistarana, s.s. Þórarin B. Þorláksson, Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson og
Svavar Guðnason.
Einnig er eftirspum eftir landakortum, t.d. seldist nýlega á uppboði hjá Sotheby’s í
London, gott eintak af landakorti af íslandi frá 17. öld. Theatrum Orbis Terrarum eftir
Abraham Ortelius á 1800 pund eða um íslenskar kr. 183.000.
Velgengni Sotheby’s hefur m.a. byggst á því að tryggja hæsta verð
fyrir þá muni, sem boðnir em upp, og að mat á munum er
eigendum að kostnaðarlausu.
Farið verður með allar fyrirspumir sem trúnaðarmál.
Frekari upplýsingar um uppboð á listmunum og ððrum
verðmœtum hjá Sotheby’s veitir
Sigríður Ingvarsdóttir í síma (91 >20437
BONUSVERD A HREINLÆTtSTŒKJUM!!
Vegna hagstæðra samninga getum við nú boðið 1. flokks hreinlætistæki beint frá framleiðendum á betra verði en áður hefur þekkst H Dæmi:
TH
stálvaskar
kr.
20 gerðir
Verðdæmi:
Vfr hólf og borð
10.930,-
baðker
10 gerðir
Verðdæmi:
Stærð: 170 x 70 cm.
kr.
9.500,-
WC með harðri setu
-
5 gerðir
Verð frá
kr.
12.500,-
handlaugar
5 gerðir
Verðdæmi:
Gerð Europa 43 x 55 cm.
kr.
2.700,-
sturtubotnar
kr.
5 gerðir
Verðdæmi:
80 x 80 cm.
3.900,-
B O
blöndunartæki
10 gerðir. Verðdæmi:
f. handlaugar
kr 4.950,“
f. eldhús
kr 4.850,-
Ennfremur hitastillitæki frá
kr.
8.950,-
Oll verð eru staðgreiðsluverð.
Verð eins og þessi eru sönn kjarabót fyrir alla húsbyggjendur!
Opið laugardaga kl. 10 -14. ‘’^*1 |i?¥ ‘in
V7SA
E
iUHOOWO -f*
....... sp=5ap
J1lc)adstofaÍN|
Armúta 36 — Slmlt5181Ð