Morgunblaðið - 26.11.1991, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991
Hlutabréfasjóður Norðurlands:
Fyrsta hlutafjárút-
boðið að upphæð um
24 milljónir hefst í dag
FYRSTA hlutafjárútboð hins nýstofnaða Hlutabréfasjóðs Norður-
lands hefst í dag, þriðjudag, en um er að ræða útboð að upphæð
'tæplega 23,8 milljónir króna að nafnvirði. Hægt verður að kaupa
hlutabréf fyrir hvaða upphæð sem er, þó minnst 10 þúsund krónur.
Sölutímabilið er frá 26 nóvember til 25. febrúar á næsta ári.
Hlutabréfasjóður Norðurlands
hf. er sjálfstætt hlutafélags sem
ávaxtar fé hluthafanna með kaup-
um á hlutabréfum og skuldabréf-
um atvinnufyrirtækja. Stefnan er
að 40-75% af eignum sjóðsins sé
að jafnaði bundið í hlutabréfum,
en 25-60% í skuldabréfum, banka-
innistæðum og sjóði. Félagið mun
fjárfesta sem mest af eigum sínum
í hlutabréfum fyrirtækja sem
starfa á Norðurlandi og eru þegar
skráð á hiutabréfamarkaði, eða lík-
'legt er að muni fást þar skráð á
næstu árum.
Gengi bréfanna verður reiknað
út daglega, en það ræðst af mark-
aðsverðmæti þeirra hvetju sinni
sem og markaðsaðstæðum, þ.e.
framboð og eftirspurn á hluta-
bréfamarkaði munu einnig hafa
áhrif á hlutabréf í eigu Hlutabréfa-
sjóðs Norðurlands.
Félagið hefur fengið staðfest-
ingu ríkisskattstjóra á því að það
fullnægi skilyrðum um frádrátt
kaupverðs hlutabréfa, en á þessu
ári mega einstaklingar draga frá
kaupverð hlutabréfa fyrir um 95
þúsund krónur frá tekjuskatts-
stofni og lækka þar með tekju-
skatt um 38 þúsund krónur, en
skattalækkunin er allt að 76 þús-
und krónur fyrir hjón.
Aðalsöluaðilar hlutabréfanna
eru Kaupþing Norðurlands og
Kaupþing, en einnig munu spari-
sjóðir um land allt og Búnaðar-
bankinn og útibú hans annast söl-
una, auk þess sem reiknað er með
að öll verðbréfafyrirtæki muni
bjóða bréfin til sölu.
Leikgleði á Leikbæ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Krakkarnir á Leikbæ á Dalvík létu hálkuna ekki á sig fá, heldur tóku fram snjóþotur og þustu út i góða
veðrið. Þar undu þau sér hið besta við að renna sér niður hólinn á lóð leikskólans.
Samningar tókust í mjólkursamlagsdeilunni:
Súlnafell-
ið áfram
gertút
frá Hrísey
SÚLNAFELLIÐ EA sem
Kaupfélag Eyfirðinga gerir
út frá Hrísey verður áfram
gert út frá eynni með óbreytt-
um hætti. Þetta var ákveðið á
fundi stjórnar KEA, þar sem
jafnframt var samþykkt að
taka sjávarútvegsþátt félasg-
ins, bæði útgerð og fisk-
vinnslu, til athugunar.
Fyrirhugað var að hætta út-
gerð Súlnafells um næstu ára-
mót og flytja fisk til vinnslu í
eynni frá skipum sem kaupfé-
lagið gerir út frá Dalvík, Björg-
vin og Björgólfi. Hríseyingar
mótmæltu þessum hugmyndum
harðlega og í kjölfarið voru upp-
sagnir yfirmanna Súlnafellsins
dregnar til baka og hefur nú
verið ákveðið að útgerð þess
verði með óbreyttum hætti.
Smári Thorarensen oddviti í
Hrísey sagði að íbúar eyjarinnar
hefðu fagnað þessari ákvörðun
mjög, en þeir vonuðu að um
endanlega ákvörðun í þessu
máli væri að ræða, þannig að
þéir þyrftu ekki stöðugt að ótt-
ast að útgerðinni yrði hætt.
Samið var um 27 þúsund króna
eingreiðslu og kaupaukakérfi
IÐNVERKAFÓLK í mjólkursamlögum KEA á Akureyri og KÞ á
Húsavík samþykkti í gær samninga sem tókust síðla sunnudags
milli Iðju, félags verksmiðjufólks, Verkalýðsfélags Húsavíkur og
Vinnumálasambands samvinnufélaganna. Verkfalli sem búið að
boða I samlögunum var því aflýst. I samningunum felst 27 þúsund
króna eingreiðsla með orlofi til handa því starfsfólki sem sótt
hefur starfsnámskeið auk þess sem samið var um að taka upp
kaupaukakerfi í mjólkurbúunum, sem reiknað er með að skili 5%
hækkun innan árs frá því að aðalkjarasamningur er undirritaður.
Iðnverkafólk í mjólkurbúunum
tveimur hafði boðað ótímabundið
verkfall frá og með mánudeginum
25. nóvember, en samningafundir
með sáttasemjara stóðu yfir allt
frá því á miðvikudag í liðinni viku.
Samningar tókust loks á siðustu
stundu, síðla á sunnudag.
í samningnum er kveðið á um
27 þúsund króna eingreiðslu með
orlofi til þeirrá starfsmanna í búun-
um sem sótt hafa starfsfræðslun-
ámskeið, en langflestir starfsmenn
í samlögunum hafa sótt þessi nám-
skeið. Þau stóðu yfir í 40 tíma
samtals.
Þá var einnig samið um að taka
upp kaupaukakerfi í mjólkurbúun-
um og er stefnt að því að setja
upp slík kerfi á sex mánuðum frá
undirskrift aðalkjarasamninga, en
reiknað er með að kerfið skili 5%
kauphækkun innan árs. Hafi ekki
tekist að koma þessu kerfi á innan
tilskilins tíma eru ákvæði í samn-
ingunum um biðgreiðslur sem
nema 800 krónum á viku til þeirra
starfsmanna sem sótt hafa nám-
skeiðin.
„Ég vona að allir séu sæmilega
sáttir við þennan samning. Þetta
er nokkru hærri eingreiðsla en við
buðum í upphafi, en hún er samt
innan þess ramma sem við getum
sætt okkur við,” sagði Hjörtur, en
hann bjóst við að sami háttur yrði
hafður á hvað önnur mjólkursam-
lög varðar. „Við erum sátt við þessi
málalok og einkum erum við fegin
þvi að ekki kom til verkfalla.”
Ármann Helgason varaformað-
ur Iðju sagði að með þessum samn-
ingi hafi verkalýðsfélögin fengið
viðurkenningu á starfsfræðslunni,
þ.e. viðurkennt er að semja skuli
um fyrirkomulag slíkrar fræðslu
og einnig hafi verið samið um að
mönnum sé heimilt eftir sex mán-
aða störf í búunum eða lengur, að
sækja starfsfræðslunámskeið, sem
svipi til þeirra sem áður voru í boði.
„Menn eru kannski aldrei 100%
ánægðir með samninga, en ég held
að ekki hafi verið hægt að teygja
sig lengra án þess að til verulegra
verkfalla kæmi,” sagði Ármann.
Kári Arnór Kárason formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur sagði
að miðað við aðstæður væri hann
þokkalega ánægður með samning-
inn. „Menn fara svo fljótlega að
setja sig í stellingar varðandi kaup-
aukakerfið,” sagði Kári Arnór.
„Menn eru þokkalega ánægðir
hér og það er ágætt að ekki kom
til verkfalls, því allt eins hefði
mátt búast við að það gæti orðið
langt.”
Iðnverkafólk í samlögunum
greiddi atkvæði um samninginn í
gær, hann vár samþykktur sam-
hljóða hjá starfsmönnum mjólkur-
samlagsins áj Húsavík, en at-
kvæðagreiðsla fór þannig í mjólk-
ursamlagi KEA á Ákureyri, að 26
samþykktu samninginn, einn var á
móti, þrír seðlar voru auðir og einn
ógildur.
Skiptalok hjá Fiskmar í Ólafsfirði:
100 þús. fengust upp
í 35 milljóna kröfur
SKIPTUM er lokið í þrotabúi Fiskmars hf. í Ólafsfirði. Ein forgang-
skrafa fékkst greidd að upphæð tæplega 100 þúsund krónur, en
engar greiðslur komu upp í almennar kröfur.
Fiskmar hf. var lýst gjaldþrota
í nóvember á síðasta ári og va.r
lýst um 35 milljóna króna kröfum
í búið. Engar greiðslur fengust upp
í almennar kröfur, en ein forgangs-
krafa fékkst greidd, en þar var um
að ræða lífeyrissjóðsgreiðslu að
upphæð tæplega 100 þúsund krón-
ur auk þess sem búið átti fyrir
skiptakostnaði.
Sparisjóður Ólafsfjarðar lýsti
kröfu að upphæð 16,9 milljónir
króna. Allt lausafé búsins var veð-
sett sparisjóðnum og bæjarsjóði,
en sparisjóðurinn leysti til sín veð-
in á matsverði. Ekkert kom upp í
kröfu bæjarsjóðs, að upphæð 8,6
milljónir króna.
HÚSMEBI Tll LEISII
Verslunarhúsnæði er til leigu við Hafnar-
stræti 88.
Tilboðum skal skila til Byggðastofnunar,
Akureyri, eigi síðar en 28. nóvember 1991.
Nánari upplýsingar í síma (96) 21210.
Fékk bíl
í happdrætti
Sigmundur Þórisson formaður Knatt-
spyrnufélags Akureyrar afhenti fyrir
skömmu Sveini Rafnssyni bifreið sem hann
vann í byggingahappdrætti KA, en til
þessa happdrættis var efnt til styrktar
byggingu hins nýja íþróttahúss KA sem
tekið var í notkun fyrir nokkru.
Morgunblaðið/Rúnar Þór