Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 44

Morgunblaðið - 26.11.1991, Side 44
>44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1991 vinnuálagið. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate HÖGNI HREKKVÍSI „ A1UND0 A€> HEILSA ÞEGAR Þú GEWGUf? rf?AM HJ'A VITNASTOKUNNI. " Þessir hringdu . . Elskulegir lögregluþjónar Fullorðin kona hringdi og vildi segja frá hjálpsemi tveggja lög- regluþjóna. Hún og maðurinn hennar voru að keyra á Kringlu- mýrarbrautinni laugardaginn 16. nóv. þegar þau urðu fyrir því að það sprakk dekk hjá þeim. Hún sagði kalt hafa verið úti og .frost en þá hafi tveir elskulegir lögreglu- þjónar komið og hjálpað þeim og hún vildi koma þakklæti á fram- færi til þeirra. Ungt afgreiðslufólk Kona hringdi og hældi Mikla- garði við Sund og sagði hún búð- ina vera orðna mjög flotta en þeir hefði enn sömu börnin við af- greiðslu, óörugg og hikandi. Hún sagði að þeir Miklagarðsmenn ættu að hafa eldra og vanara fólk við afgreiðslu þrátt fyrir að þeir þyrftu að borga því hærra kaup, það myndi samt borga sig. Gjöfin týndist Auður hringdi og sagðist hafa keypt silfurhring með þrílifri plötu miðvikudaginn 20. nóv. hjá Jens gullsmið í Kringlunni. Eftir að hafa keypt hringinn fór hún í tvær búðir í Kringlunni og varð þá vör við að hún hafði týnt gjöfinni sem hún var nýbúin að kaupa. Hún sagðist hafa snúið aftur til gull- smiðsins og þar hafi hún fengið frábæra þjónustu. En engu að síð- ur væri það mjög bagalegt að hafa týnt hringnum og því biður hún alla þá sem orðið hafa varir við hringinn að hafa samband við Jens gullsmið í Kringlunni. Fjallahjólið tekið Rautt Mongoose-fjallahjól tap- aðist fyrir utan Seljaskóla fimmtu- dagskvöldið 21. nóv. Þetta er dýr- mætt hjól því eigandinn lagði allt sparifé sitt í það. Þeir sem vita hvar hjólið er vinsamlega hafi sam- band í síma 76891. Auglýsingabrellan ekki til sóma Garðbæingur hringdi og vildi byrja á því að þakka Jónínu Mich- aelsdóttir fyrir grein hennar í Les- bókinni undir heitinu „Þjóðarsál- in”. Hann sagði Jónínu vera bæði hugrakka og skarpskyggna í skrif- um sínum. Hann var hins vegar ekki ánægður með framlag nýja fulltrúans í London og sagði aug- lýsingabrelluna ekki íslandi til sóma. Margt annað sem gæti verið meira aðlaðandi. Úr og úlpa Svart Casio-herraúr tapaðist í okt. á leiðinni Kaplakriki-Slétta- hraun-Lækjarskóli. Um miðjan ágúst tapaðist svo græn úlpa, rauð á öxlum (Skiss), á einhverjum eft- irtaldra staða: Egilsstaðir, Hall- ormsstaður eða Kverkfjöll. Þeir sem vita eitthvað um úrið eða úlp- una vinsamlegast hafi samband í síma 53970. Gleraugn tapast Fimmtudagsmorguninn 21. nóv. tapaðist svart gleraugnahulstur með karlmannsgleraugum, senni- lega á leiðinni úr Mávahlíð yfir á Miklubraut (við Tónabæ). Gleraug- un eru með gráleitri umgjörð og hálfu gleri. Þeir sem vita um gler- augun vinsamlegast hafi samband við Hauk í síma 12747. Atvik í strætó Kona hringdi og vildi geta þess sem gott er. Hún vildi koma á framfæri þakklæti fyrir góða þjón- ustu í Bikamum á Skólavörðustíg. Eins vildi hún segja frá atviki sem hún varð vitni að í strætó fyrr í vikunni. Hún sagðist hafa tekið leið 11 upp í Breiðholt og það hefði verið mjög kalt úti. Þegar hún var komin í vagninn sá hún drengi sem höfðu beðið í skýlinu, iila klæddir, vera á tali við bílstjórann og höfðu greinilega ekki nóg fyrir farinu. Bílstjórinn rak þá út og þegar þeir voru á leiðinni út kallaði kona sem var fyrir í vagninum að ekki væri hægt að reka þá út í kuldann og borgaði fyrir þá farið. Sagði konan sem hringdi að það væri ekki oft sem fólk yrði vitni að slíkum at- burði að fólk tæki upp hanskann fyrir unglinga. Stj örnusambandsstöð Jón Trausti sagði að nú þegar álmálið og handboltahöllin væru komin í strand þá vissi hann um félag sem væri tilbúið til fram- kvæmda sem veittu vinnu og at- hygli á alþjóðavettvangi. Á hann þar við félag nýalsinna sem er til- búið tii þess að reisa stjörnusam- bandsstöð þar sem stuðst væri við rannsóknir dr. Helga Pjeturs. Jón sagði þetta geta orðið miðstöð al- þjóðlegarar samvinnu og mikill áhugi væri á þessu út um allan heim. Þetta yrði þjóðinni til happs og væri mjög góð auglýsing. Hann vildi hvetja fólk til að kynna sér þetta hjá félaginu, Álfhólsvegi 121, Kópavogi. Páfagaukurinn floginn Páfagaukur tapaðist frá Hlíðar- gerði 18 fimmtudaginn 21. nóv. Páfagaukurinn er gulur að lit og þeir sem vita um ferðir hans eru beðnir að hringja í síma 34643 eða Svart karlmannsúr fannst nýlega rétt hjá Hótel Sögu. Upplýsingar eru gefnar í síma 11278 (Ingi- mundur). Notalegur veitingastaður Við hjónin brugðum okkur í bæ- inn eitt föstudagskvöldið til að fá okkur að borða, en það gerum við stöku sinnum og reynum þá gjarnan nýja staði. Nú mundum við ekki eftir neinum nýjum en höfðum frétt af breytingum á Trubadornum á Laugaveg 73, kjallara, frá því við höfðum verið þar síðast. Þessi kjall- ari var grafinn út fyrir nokkrum árum, af þeim sem rekur staðinn, og það er svo snilldarlega gert að ekki er hægt að sjá annað en hann sé jafn gamall húsinu sem byggt er stuttu eftir aldamót. Við höfðum komið þangað nokkrum sinnum áður og fundist staðurinn notaleg- ur, maturinn góður og þjónustan frábær. Þegar við komum á staðinn kom í ljós að þetta voru stórbreytingar, en gerðu hann samt hlýlegri en áður. Staðnum ætlum við ekki að lýsa, sjón er sögu ríkari. Við þökk- um starfsfólki Trúbadorsins nota- legar stundir í (gamla) kjallaranum við Laugaveginn. Hörður H. Guðmundsson og frú Víkveiji skrifar Er jólaæðið ekki heldur snemma á ferðinni? Það er ekki einu sinni kominn desember en samt eru jólaskreytingar komnar á verzlun- argötur og í sýningarglugga verzl- ana. Er ekki nóg, að jólaæðið standi yfír síðustu tvær til þijár vikurnar fyrir jól? Fólk leggur alltof mikið á sig við jólaundirbúning og eyðir alltof mikl- um peningum í jólahald, peningum, sem í mörgum tilvikum eru ekki til. Tæplega var það tilgangurinn með jólahaldinu að búa til alls kyns vandamál í hversdagslífi fólks. Hamagangurinn, sem stendur yfir til þess að undirbúa 2-3 daga há- tíðahöld um jólin er með ólíkindum. Er ekki kominn tími til að staldra við og hugleiða, hvort hægt er að halda jól með meiri hófsemd en hér hefur tíðkazt um langan aldur. í eina tíð var drykkkjuskapur í fermingarveizlum orðinn verulegt vandamál. Prestar og aðrir hófu mikinn áróður til þess að útrýma áfengisneyzlu úr fermingarveizlum og það tókst. Er ekki kominn tími til, að prestarnir leggi sig fram um að breyta hugsunarhætti fólks varð- andi jólahaldið? Hinar nýju Verzlanir, sem hafa opið á kvöldin og um helgar og selja vörur á lágmarksverði mælast vel fyrir. Þær hljóta hins vegar að hafa afgerandi áhrif á rekstur ýmis konar kvöldsöluverzl- ana, sem hér hafa verið reknar. Þá er átt við svonefndar sjoppur, sölut- uma og aðrar verzlanir, sem hafa haft opið á kvöldin og um helgar en hafa hins vegar selt vörur á mun hærra verði af þessum sökum. Nýju búðirnar hljóta að taka við- skiptin frá þessum aðilum, eínfald- lega vegna þess, að verðmunur er mikill og vöruúrval fjölbreyttara og raunar svo mjög, að ekki er um nokkurn samanburð að ræða. Það verður fróðlegt að sjá, hvort hinir gömlu kvöldsölustaðir breyta verð- lagningu sinni, eftir að ný sam- keppni er komin til sögunnar. xxx Víkveiji hefur oft furðað sig á verðlagningu þeirra, sem selja gosdrykki. Fyrir skömmu mátti sjá í einni af stórverzlunum borgarinnar kóladrykk í tveggja lítra flösku, sem kostaði minna en sami drykkur í eins og hálfs lítra flösku þ.e. í sömu verzlun! í einni hinna nýju kvöldsöluverzlana stóðu Kóka-kóla og Pepsí-kóla flöskur hlið við hlið í hillu. Fyrrnefndi drykkurinn kostaði 179 krónureinn og hálfur lítri en hinn síðarnefndi 109 krónur. Stundum er verð á vin- sælustu gosdrykkjunum lækkað um nokkra tugi króna eins og hálfs lítrá flaska en viku seinna hefur yerðið verið hækkað aftur í sömu krónu- tölu og áður. Hvað veldur þessu mismunandi verðlagi? Eru það kaupmennirnir sjálfir, sem lækka eigin álagningu eða eru. það verksmiðjurnar, sem sveifla verðinu fram og aftur með þesum hætti? Ef það eru kaupmenn- irnir, sem lækka álagninguna þá er hægt að skilja þessar verðbreyt- ingar vegna þess, að þá snýst þetta um samkeppni. Ef það eru framleið- endur sjálfur verða þær illskiljan- legri. Auðvitað eiga framleiðendur í samkeppni sín í milli en hún tekur þá á sig býsna furðulegar myndir. Eitt verð í dag en annað á morgun. Eitt verð í þessari verzlun og annað í hinni, vekur óneitanlega upp spurningar um, hvort neytendur séu liafðir að fíflum.;

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.