Morgunblaðið - 31.12.1991, Page 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1991
INNLEND INNLEN
nnlend fréttagetraun
NLEND INNLEND INNLEND
1.
„Hreyfi mig ekki nema um það
náist sátt í mínu kjördæmi" sagði
í fyrirsögn á baksíðu Morgunblaðs-
ins í janúar. Hver mælti og af hvaða
tilefni?
a) Matthías Bjarnason, vegna
undirskriftalista höfuðborg-
arbúa um að hann léti af störfum
sem stjórnarformaður Byggða-
stofnunar.
b) EgiII Jónsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, vegna til-
mæla Framsóknarflokksins um
að hann tæki við sem landbúnað-
arráðherra.
c) Steingrímur Hermannsson,
vegna hugmynda um að hann
byði sig fram í Reykjavík í stað
Reykjaneskjördæmis.
d) Páll Pétursson, þegar prestur-
inn spurði hann hvort hann vildi
ganga að eiga Sigrúnu Magnús-
dóttur og flytja lögheimili sitt til
Reykjavíkur.
2.
„Níu sjónvörp brunnu yfir“ sagði í
fyrirsögn í janúar. Hver var ástæða
þessa óhapps?
a) Forseti Islands tilkynnti í ára-
mótaávarpi að engin ferðalög á
vegum embættisins væru fyrir-
huguð á árinu.
b) Rafmagnslínum sló saman í
Reykhólasveit.
c) Heimir Steinsson tók formlega
við embætti sem útvarpsstjóri og
hélt magnaða ræðu af því tilefni.
d) Framlag Islendinga til söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva var kynnt í sjónvarps-
þætti.
3.
Viðskiptaráðherra heimilaði í árs-
byijun innflutning á 40 tonnum af
umdeildri vöru. Hvaða vara var það?
a) Neftóbak, svo birgðir í landinu
entust fram yfir aldamót, vegna
hugsanlegs banns EB við neyslu
þess.
b) Ostlíki.
c) Létt og laggott.
d) Færeyskt Iambakjöt, sem
greitt var með 100 tonnum af
íslensku lambakjöti.
4.
Fyrr á árinu var eftirfarandi haft
eftir manni í fyrirsögn í blaðinu:
„Af jafngóðum mönnum vel ég
framsóknarmanninn". Hvec^ mælti
þessi orð og af hvaða tilefni?
a) Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálf-
ari í knattspymu, þegar hann
valdi sóknarmann úr Fram í
landsliðið í stað KR-ings.
b) Davíð Oddsson, þegar hann
valdi mann til setu í Vest-Norden
nefndinni.
c) Steingrímur Hermannsson um
stöðuveitingar í Byggðastofnun
í apríl.
5.
Hæstiréttur Islands kvað upp þann
dóm í apríl, að ríkissjóður skyldi
greiða eiganda myndbandaleigu
bætur. Hvers vegna?
a) Vegna eindreginna tilmæla
fjármálaráðuneytisins hafði
maðurinn keypt fjölda mynd-
banda, sem tekin voru upp á rík-
isstjórnarfundum. Hann hafði
hins vegar aldrei getað leigt
þessar myndir út.
b) Bæturnar voru vegna eftirlits-
átaks dómsmálaráðuneytisins I
desember 1986, þegar lagt var
hald á fjölda myndbanda.
c) Fjármálaráðuneytið og við-
skiptaráðuneytið höfðu bæði
leigt eintök af myndinni „Hvern-
ig á að skipuleggja fjárhaginn",
en ekki hirt um að skila þeim
12.
Hver er maðurinn á myndinni og á hverju heldur hann?
a) Haukur Haraldsson heildsali með fyrstu sendinguna af ostlíki.
b) Björn Halldórsson lögreglufulltrúi með 1 kíló af amfetamíni sem smyglað var til landsins.
c) Jóhannes St. Grímsson sýslumaður með týnda átkvæðaseðla sem komu í leitirnar mánuði eftir
kosningar.
d) Hinn frægi franski listamaður, Michel Le Plusgrand, með nýtt listaverk sem hann sýndi á Kjar-
valsstöðum og metið var á um 80 milljónir króna.
aftur.
d) Fjármálaráðuneytið hafði
sektað manninn að ósekju fyrir
að standa ekki skil á virðisauka-
skatti.
6.
„Prikið" hrífur erlenda fjárplógs-
menn. Svo hljóðaði fyrirsögn í
Morgunblaðinu fyrr á árinu. Hvað
var_ átt við?
a) Áhorfendapallar í alþingishús-
inu eru oft kallaðir „Prikið“ og
það sem hreif erlenda fjárplógs-
menn þar voru umræður um fjár-
veitingar Byggðastofnunar til
ýmissa verkefna.
b) „Prikið“ er nafn á uppsprettu
í Kapelluhrauni. Erlendir fjár-
plógsmenn reyndu að fá Islend-
ing til að setja þar upp óarðbæra
vatnsátöppunarverksmiðju, en
ætluðu sjálfir að hirða framlag
Iðnþróunar sjóðs.
c) „Prikið“ er nafn á kaffistofu
í Bankastræti, sem erlendir fjár-
plógsmenn útnefndu stórfeng-
legasta veitingahús á íslandi árið
1991, I þeirri von að eigendur
kaffistofunnar greiddu umtals-
verðar upphæðir til að nálgast
verðlaunagrip.
7.
Á Iandsfundi Sjálfstæðisflokksins
sem haldinn var í marsmánuði féll
formaður flokksins í tvísýnni kosn-
ingu fyrir þáverandi varaformanni
flokksins. Þetta var í fyrsta sinn
sem Sjálfstæðisflokkurinn skipti um
formann með þessum hætti. Þeir
sem þarna áttust við voru:
a) Davíð Oddsson og Þorsteinn
Pálsson, Davíð vann.
b) Davíð Oddsson og Þorsteinn
Pálsson, Þorsteinn vann.
c) Ólafur Ragnar Grímsson og
Þorsteinn Pálsson, jafntefli varð.
d) Davíð Oddsson og Kristján
Ragnarsson, Sigtryggur vann.
22.
Gurtnar Haraldsson kylfingur í Golfklúbbi Ness á skemmtilegar minn-
ingar frá golfvellinum síðastliðið sumar.
a) Hann fór holu í höggi á 18. holu og fékk Bentley-bifreið í
verðlaun.
b) Hann varð fyrsti maðurinn til að veiða Iax með golfkúlu.
c) Hann sigraði Severino Ballestero I bráðabana á Arctic Open-
mótinu á Akureyri.
d) Hann gekk í það heilaga á golfvellinum.
8.
í mars var undirritaður nýr búvöru-
samningur, sem gildir til 31. ágúst
1998. Þær tölur, sem Steingrímur
J. Sigfússon þáverandi landbúnað-
arráðherra nefndi að væru kostnað-
ur skattgreiðenda vegna samnings-
ins, janfgilda því að á degi hverjum
sé greitt úr ríkissjóði vegna land-
búnaðarins:
a) Þrjú kýrverð
b) kr. 158.997,60 -
c) Fjórir milljarðar króna
d) Tæplega 11 milljónir króna.
9.
Bandalag háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna tapaði í borgardómi
Reykjavíkur máli sem það höfðaði
gegn Ólafi Ragnari Grímssyni þá-
verandi fjármálaráðherra og Sva-
vari Gestssyni þáverandi mennta-
málaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Niðurstöðunni hefur verið áfrýjað
til Hæstaréttar. Ágreiningsefnið er:
a) Eiga félagsgjöld BHMR-félaga
að renna til Birtingar eða ABR?
b) Var heimilt að afnema með
bráðabirgðalögum launahækk-
anir til BHMR-félaga?
c) Máttu ráðherrar taka allt það
fé sem ríkissjóður ætlaði að nota
til launahækkana og gefa út lit-
prentaða bæklinga um eigin af-
rek?
d) Verður bókvitið í askana látið?
10.
Skömmu fyrir kosningar þustu Lan-
deyingar í hópum niður í fjöru.
Ástæðan var sú, að:
a) Hundruð grindhvala voru þar
í nauðum.
b) Árni Johnsen hélt söng-
skemmtun I félagsheimilinu.
c) Bón, bjór og þvottaefni hafði
rekið á fjörur.
d) Von var á klámbylgju til lands-
ins frá Kaupmannahöfn.
11.
Á árinu var kona_ í fyrsta skipti
skipuð sendiherra íslands erlendis.
Hún heitir:
a) Sigríður Snævarr.
b) Ragnhildur Gisladóttir.
c) Bryndís Schram.
d) Sigfríður Sævar.
Í8.
Forseti Ítalíu kom í opinbera heim-
sókn til landsins í byrjun maí. Hann
heitir:
a) Bettino Craxi.
b) Giulio Andreotti.
c) Francesco Cossiga.
d) Salvatore Schilaci.
Í4.
í stjórnarmyndunarviðræðum síð-
asta vor gerðu Davíð Oddsson og
Jón Baldvin Hannibalsson með sér
„heiðursmannasamkomulag". Jón
Baldvin sagði að samkomulagið
hefði gengið út á að:
a) Þeir drægju sig í hlé frá fjölm-
iðlum að sljórnarmyndun lok-
inni.
b) Stefnt yrði að inngöngu í EB
1993.
c) Jón Baldvin gengi ekki með
hatt við opinber tækifæri.
d) Skógrækt ríkisins og Land-
græðslan færðist frá landbúnað-
arráðuneyti til umhverfisráðu-
neytis.
15.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis-
ráðherrra skipaði Láru Höllu Maack
yfirlækni fyrirhugaðrar réttargeð-
deildar. Lára sagði upp störfum
skömmu síðar vegna þess að: