Morgunblaðið - 31.12.1991, Síða 6

Morgunblaðið - 31.12.1991, Síða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1991 INNLEND INNLEN nnlend fréttagetraun NLEND INNLEND INNLEND 1. „Hreyfi mig ekki nema um það náist sátt í mínu kjördæmi" sagði í fyrirsögn á baksíðu Morgunblaðs- ins í janúar. Hver mælti og af hvaða tilefni? a) Matthías Bjarnason, vegna undirskriftalista höfuðborg- arbúa um að hann léti af störfum sem stjórnarformaður Byggða- stofnunar. b) EgiII Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vegna til- mæla Framsóknarflokksins um að hann tæki við sem landbúnað- arráðherra. c) Steingrímur Hermannsson, vegna hugmynda um að hann byði sig fram í Reykjavík í stað Reykjaneskjördæmis. d) Páll Pétursson, þegar prestur- inn spurði hann hvort hann vildi ganga að eiga Sigrúnu Magnús- dóttur og flytja lögheimili sitt til Reykjavíkur. 2. „Níu sjónvörp brunnu yfir“ sagði í fyrirsögn í janúar. Hver var ástæða þessa óhapps? a) Forseti Islands tilkynnti í ára- mótaávarpi að engin ferðalög á vegum embættisins væru fyrir- huguð á árinu. b) Rafmagnslínum sló saman í Reykhólasveit. c) Heimir Steinsson tók formlega við embætti sem útvarpsstjóri og hélt magnaða ræðu af því tilefni. d) Framlag Islendinga til söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva var kynnt í sjónvarps- þætti. 3. Viðskiptaráðherra heimilaði í árs- byijun innflutning á 40 tonnum af umdeildri vöru. Hvaða vara var það? a) Neftóbak, svo birgðir í landinu entust fram yfir aldamót, vegna hugsanlegs banns EB við neyslu þess. b) Ostlíki. c) Létt og laggott. d) Færeyskt Iambakjöt, sem greitt var með 100 tonnum af íslensku lambakjöti. 4. Fyrr á árinu var eftirfarandi haft eftir manni í fyrirsögn í blaðinu: „Af jafngóðum mönnum vel ég framsóknarmanninn". Hvec^ mælti þessi orð og af hvaða tilefni? a) Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálf- ari í knattspymu, þegar hann valdi sóknarmann úr Fram í landsliðið í stað KR-ings. b) Davíð Oddsson, þegar hann valdi mann til setu í Vest-Norden nefndinni. c) Steingrímur Hermannsson um stöðuveitingar í Byggðastofnun í apríl. 5. Hæstiréttur Islands kvað upp þann dóm í apríl, að ríkissjóður skyldi greiða eiganda myndbandaleigu bætur. Hvers vegna? a) Vegna eindreginna tilmæla fjármálaráðuneytisins hafði maðurinn keypt fjölda mynd- banda, sem tekin voru upp á rík- isstjórnarfundum. Hann hafði hins vegar aldrei getað leigt þessar myndir út. b) Bæturnar voru vegna eftirlits- átaks dómsmálaráðuneytisins I desember 1986, þegar lagt var hald á fjölda myndbanda. c) Fjármálaráðuneytið og við- skiptaráðuneytið höfðu bæði leigt eintök af myndinni „Hvern- ig á að skipuleggja fjárhaginn", en ekki hirt um að skila þeim 12. Hver er maðurinn á myndinni og á hverju heldur hann? a) Haukur Haraldsson heildsali með fyrstu sendinguna af ostlíki. b) Björn Halldórsson lögreglufulltrúi með 1 kíló af amfetamíni sem smyglað var til landsins. c) Jóhannes St. Grímsson sýslumaður með týnda átkvæðaseðla sem komu í leitirnar mánuði eftir kosningar. d) Hinn frægi franski listamaður, Michel Le Plusgrand, með nýtt listaverk sem hann sýndi á Kjar- valsstöðum og metið var á um 80 milljónir króna. aftur. d) Fjármálaráðuneytið hafði sektað manninn að ósekju fyrir að standa ekki skil á virðisauka- skatti. 6. „Prikið" hrífur erlenda fjárplógs- menn. Svo hljóðaði fyrirsögn í Morgunblaðinu fyrr á árinu. Hvað var_ átt við? a) Áhorfendapallar í alþingishús- inu eru oft kallaðir „Prikið“ og það sem hreif erlenda fjárplógs- menn þar voru umræður um fjár- veitingar Byggðastofnunar til ýmissa verkefna. b) „Prikið“ er nafn á uppsprettu í Kapelluhrauni. Erlendir fjár- plógsmenn reyndu að fá Islend- ing til að setja þar upp óarðbæra vatnsátöppunarverksmiðju, en ætluðu sjálfir að hirða framlag Iðnþróunar sjóðs. c) „Prikið“ er nafn á kaffistofu í Bankastræti, sem erlendir fjár- plógsmenn útnefndu stórfeng- legasta veitingahús á íslandi árið 1991, I þeirri von að eigendur kaffistofunnar greiddu umtals- verðar upphæðir til að nálgast verðlaunagrip. 7. Á Iandsfundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í marsmánuði féll formaður flokksins í tvísýnni kosn- ingu fyrir þáverandi varaformanni flokksins. Þetta var í fyrsta sinn sem Sjálfstæðisflokkurinn skipti um formann með þessum hætti. Þeir sem þarna áttust við voru: a) Davíð Oddsson og Þorsteinn Pálsson, Davíð vann. b) Davíð Oddsson og Þorsteinn Pálsson, Þorsteinn vann. c) Ólafur Ragnar Grímsson og Þorsteinn Pálsson, jafntefli varð. d) Davíð Oddsson og Kristján Ragnarsson, Sigtryggur vann. 22. Gurtnar Haraldsson kylfingur í Golfklúbbi Ness á skemmtilegar minn- ingar frá golfvellinum síðastliðið sumar. a) Hann fór holu í höggi á 18. holu og fékk Bentley-bifreið í verðlaun. b) Hann varð fyrsti maðurinn til að veiða Iax með golfkúlu. c) Hann sigraði Severino Ballestero I bráðabana á Arctic Open- mótinu á Akureyri. d) Hann gekk í það heilaga á golfvellinum. 8. í mars var undirritaður nýr búvöru- samningur, sem gildir til 31. ágúst 1998. Þær tölur, sem Steingrímur J. Sigfússon þáverandi landbúnað- arráðherra nefndi að væru kostnað- ur skattgreiðenda vegna samnings- ins, janfgilda því að á degi hverjum sé greitt úr ríkissjóði vegna land- búnaðarins: a) Þrjú kýrverð b) kr. 158.997,60 - c) Fjórir milljarðar króna d) Tæplega 11 milljónir króna. 9. Bandalag háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna tapaði í borgardómi Reykjavíkur máli sem það höfðaði gegn Ólafi Ragnari Grímssyni þá- verandi fjármálaráðherra og Sva- vari Gestssyni þáverandi mennta- málaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Niðurstöðunni hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Ágreiningsefnið er: a) Eiga félagsgjöld BHMR-félaga að renna til Birtingar eða ABR? b) Var heimilt að afnema með bráðabirgðalögum launahækk- anir til BHMR-félaga? c) Máttu ráðherrar taka allt það fé sem ríkissjóður ætlaði að nota til launahækkana og gefa út lit- prentaða bæklinga um eigin af- rek? d) Verður bókvitið í askana látið? 10. Skömmu fyrir kosningar þustu Lan- deyingar í hópum niður í fjöru. Ástæðan var sú, að: a) Hundruð grindhvala voru þar í nauðum. b) Árni Johnsen hélt söng- skemmtun I félagsheimilinu. c) Bón, bjór og þvottaefni hafði rekið á fjörur. d) Von var á klámbylgju til lands- ins frá Kaupmannahöfn. 11. Á árinu var kona_ í fyrsta skipti skipuð sendiherra íslands erlendis. Hún heitir: a) Sigríður Snævarr. b) Ragnhildur Gisladóttir. c) Bryndís Schram. d) Sigfríður Sævar. Í8. Forseti Ítalíu kom í opinbera heim- sókn til landsins í byrjun maí. Hann heitir: a) Bettino Craxi. b) Giulio Andreotti. c) Francesco Cossiga. d) Salvatore Schilaci. Í4. í stjórnarmyndunarviðræðum síð- asta vor gerðu Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson með sér „heiðursmannasamkomulag". Jón Baldvin sagði að samkomulagið hefði gengið út á að: a) Þeir drægju sig í hlé frá fjölm- iðlum að sljórnarmyndun lok- inni. b) Stefnt yrði að inngöngu í EB 1993. c) Jón Baldvin gengi ekki með hatt við opinber tækifæri. d) Skógrækt ríkisins og Land- græðslan færðist frá landbúnað- arráðuneyti til umhverfisráðu- neytis. 15. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis- ráðherrra skipaði Láru Höllu Maack yfirlækni fyrirhugaðrar réttargeð- deildar. Lára sagði upp störfum skömmu síðar vegna þess að:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.