Morgunblaðið - 31.12.1991, Page 20

Morgunblaðið - 31.12.1991, Page 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1991 * * .-,i r , »-x. ;.,r ■ i t i • i ; r .: ; i, ■' i i. ú í, ;. r ■, i ' i :— lækkunar hitastigs í sjónum. Þess má geta að nokkur hafís fylgdi grútnum og reki var óvenju mikill. Tíðarfar var risjótt, snjóalög lítil miðað við tvö undangengin ár og færð því með betra móti á árinu. Að lokum fá svo allir landsmenn nýárskveðjur úr Árneshreppi. EINAR JÓHANNS- SON, HOFSÓSI: Mallorca- ferðin há- punktur sjómenns- kunnar ÞAÐ ER nú svo að þegar maður á að fara að nefna eitthvað sér- stakt sem staðið hefir upp úr, þá er eins og allt renni saman í eitt. Óveðrin sem geisuðu í byrj- un ársins eru minnisstæð. Ising- arveðrið í janúar felldi raflínurn- ar og hús fuku í sunnanrokinu í febrúar. Þá kemur mér í huga er forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti Skaga- fjörð sl. sumar og kom þá meðal annars á Hofsós. á er ofarlega í huga mér stjórn- armyndun Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, hvað hún gekk fljótt og með sérstæðum hætti. Eins er mjög ofarlega er íslenskir brids- menn gerðu garðinn frægan og náðu í heimsmeistaratitilinn. Nú einnig minnumst við stórvið- burðar eins og EES-samkomulags- ins, þó svo að nú séu blikur á lofti um hvort það standi. Af.erlendum fréttum finnst mér bera hæst valda- ránstilraunina í Sovétríkjunum og allar þær breytingar sem átt hafa sér stað í austantjaldslöndunum, sjálfstæði landa, svo sem Eystra- saltslandanna. Þó ber langhæst í mínum huga, ferð sem ég ásamt konu rríinni og góðum félögum fór síðastliðið sum- ar. Við flugum til Mallorca og sigld- um síðan á seglskútu um Miðjarðar- hafið. Fyrst meðfram strönd Mall- orca, síðan yfir til Benidorm með viðkomu á norðurströnd Ibisa. Stoppuðum 2 daga á Benidorm og sigldum síðan aftur til Mallorca, - einnig þá með viðkomu á Ibisa, en nú á suðurströndinni. Síðan héldum við siglingum áfram meðfram - strönd Mallorca. Ég hefi sullað tals- vert á sjó um dagana, en þetta er hápunktur sjómennskunnar, er skútan rennur áfram, enginn vél í gangi og hraðinn komst allt upp í 10 mílur á klst. Við vorum 4 vikur í þessari ferð og er hún alveg ógleymanleg, og ekki er hægt að skilja við þetta án þess að minnast saltfiskmáltíðar okkar 17. júní, en þá borðuðum við íslenskan saitfísk er við höfðum með frá íslandi, og það var samdóma álit allra um borð að sjaldan eða aldrei hefðum við borðað betri mat. ÚLFAR ÁGÚSTS- SON, ISAFIRÐI: Með frelsið að vopni er brautin björt PÓLITÍSKU byltingarnar í Austur-Evrópu og Sovétríkjun- um hljóta að verða eftirminnileg- ustu þættir heimsmálanna á þessu ári og um flest athyglis- verðari og afdrifaríkari en Flóa- bardaginn. Af innlendum vettvangi er mér „ minnisstæðust hallarbyltmg sjálfstæðismanna, þegar Davíð Oddsson var fyrirvaralaust kosinn formaður flokksins á landsfundi, sem síðan leiddi til stjórnarforystu ríkisins aðeins nokkrum vikum síð- ar. ^ Úr einkalífinu eru mér helst minnisstæðar tvær ferðir með vin- um mínum norður á Homstrandir, annars vegar þar sem ég gekk á Hornbjarg í fyrsta sinn og naut stórfengleika bjargsins af brún Harðviðrisgjáar ásamt æskuvini mínum og konu hans, og hins veg- ar ferð með kollegum úr kaupmann- astétt þar sem við dvöldum helgi í verslunarhúsi Guðmundar B. Al- bertssonar á Hesteyri og upplifðum veðurfar Hornstrandanna í öllum sínum fjölbreytileika. Af þessum harðbýlu slóðum flutti fólkið fyrir um hálfri öld, en nú flykkjast af- komendurnir þangað til að njóta friðarins og fegurðar náttlausra daga sumarsins. Heima ræktaði konan mín garð- inn sinn á heitu og björtu sumri af .slíkri alúð og natni að við karl- peningurinn fundum til örlítils sam- viskubits flatmagandi í blómahaf- inu. En alvara efnahagsmálanna mun fylgja okkur yfir áramótin og inn í næstu framtíð. Hvernig ungum, frískum og nýjum forsætisráðherra gengur að koma böndum á efna- hagsmál þjóðarinnar hlýtur að ráð- ast að mestu af því hvort við hin höfum skilning á mikilvægi aðgerð- anna. Mér verður oft hugsað til tveggja stórmála sem verið hafa í brenni- depli þetta árið og varða mikið hagsmuni okkar hér vestra, en það eru gerð jarðganga undir Breiða- dals- og Botnsheiði og kaup á björg- unarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Stjómmálamenn hafa sameinast um að leggja um 3 milljarða króna til jarðgangagerðanna á næstu 4 árum og fínnst fáum mikið, en þeg- ar formaður héraðsnefndar ísa- fjarðarsýslu óskar eftir því að hef- ill sé sendur yfír þessar sömu heið- ar til snjómoksturs svo hægt sé að halda mikilvægan fund um samein- ingu sveitarfélaga, er það ekki hægt vegna fjárskorts. Á sama hátt sameinast þjóðin á bak við alþingismenn um kaup á björgunarþyrlu sem kostar um einn milljarð, þótt vitað sé að hún geti aldrei staðið undir þeim væntingum sem til hennar eru gerðar. Síðan ætla þessir sömu þingmenn að lækka framlag til Landhelgisgæsl- unnar um 50 milljónir og leggja einu varðskipanna allt árið. Það sem mér finnst athyglisverðast er, að engar umræður hafa orðið um þennan hættulega samdrátt í sigl- ingum björgunarskipa, að ekki sé talað um þá nöpru staðreynd, að svo ilia eru þessi björgunarskip búin, að þau hafa ekki spotta um borð til að geta dregið meðalstóran togara í var ef eitthvað er að veðri. Og maður spyr sjálfan sig: Á þjóðin nóg til af milljörðum, en of lítið af þúsundum eða milljónum? Sú frétt sem mér er minnisstæð- ust af þeim sem ég sendi Morgun- blaðinu á árinu er um rússneskan togara, sem dró þjóðfána sinn að húni í höfninni á ísafírði. Sú upplif- un að ræða við skipshöfnina, sem hafði heyrt af því ávæning í sov- éska útvarpinu að Jeltsín teldi að þeir ættu að flagga með rússneska fánanum á úthafinu og í erlendum höfnum og saumað í höndum fán- ann á leiðinni til íslands, minnti mig á hughrif þess að lesa um vakn- ingu íslensku þjóðarinnar undan erlendum yfirráðum á fýrri hluta aldarinnar. Birtan og vonin sem skinu úr hverju andliti minnti mig á að með frelsið að vopni er braut- in framundan björt þegar úr dýpsta dalnum er litið. BJÖRGVIN ÞÓR- ODDSSON, GARÐI, ÞISTILFIRÐI: Sumar allt árið ÁRIÐ 1991 er minnisstætt ár að mörgu leyti. Hér á norðaustur- horninu var árið mjög gott til búskapar. Vorið kom snemma, sumarið var því bæði langt og gjöfult. Segja má að árið allt hafi verið sumar, bara svolítið mishlýtt. Þó skiftast á skin og skúrir eins og gengur í lífinu. Grásleppuveiði var mjög lítil í vor hér við norðausturlandið, við vonum að hún verði betri næst. Alþingiskosningar í vor eru í fersku minni, stórsigur Sjálf- stæðisflokksins sem nú er helmingi stærri en sá flokkur sem næstur kemur að þingmannatölu, og stjórn- armyndun Davíðs Oddssonar sem tók við galtómum ríkissjóði, gjald- þrota fyrirtækjum svo sem Álafossi og tugum fyrirtækja á landsbyggð- inni. Evrópska efnahagssvæðið er mikið umtalað mál á árinu. Það mun skipta miklu til hagsbóta fyrir landsbyggðina, verði það að veru- leika, og þá með þeim hætti að framleiðsluvörur okkar verði ótoll- aðar í EB. En allir samningar eru þannig að báðir aðilar fá eitthvað fyrir sig. Því skildi engum koma á óvart þó eitthvað í samningunum verði ekki bara til hagsbóta fyrir okkur. Af erlendum vettvangi ber lang- hæst frelsisþróun í Austur-Evrópu. Þar eru að gerast hlutir sem hafa heimssögulegt gildi og eru miklir gleðitímar fyrir það fólk sem nú er að losna úr þeim fangabúðum. Ég get þó ímyndað mér að það geti verið hættulegt að vera ftjáls, geta talað, gengið óhræddur og hugsað sem sjálfstæð persóna. Hver kann það sem aldrei hefur vanist því að bera ábyrgð á sjálfum sér og öðr- um? Það er svo auðvelt að gera mistök. Það sýnir ástandið í Júgó- slavíu, sem er þyngra en tárum taki en verður vonandi öðrum þjóð- um til varnaðar. Það tekur tíma að læra að lifa sem fijáls maður. Skilja að frelsi eru takmörk sett og efnaleg gæði koma ekki á einni nóttu. Vonandi kemst boðskapur jólanna til þess fólks sem nú er að fá frelsi til að biðja til Guðs, og nú getur sótt kirkju á ný. HÓLMFRÍÐUR HAR- ALDSDÓTTIR, GRÍMSEY: Þrír dreng- ir fæddust ÁRIÐ sem er að líða er mér minn- isstætt fyrir margt. Veðrið lék marga grátt og víða um land varð fólk fyrir stórtjóni. Þó var það svo að Grímsey slapp nánast við krumlur Kára og þær litlu skemmdir sem hér urðu af völd- um veðurs hefðu ekki þótt mark- verðar í fjölmiðlunum. Yeturinn var snjóléttur og tíðar- far harla gott á vetrarvertíð. Fiskirí var tregt framan af en glæddist þó nokkuð á vordögum. Færafískirí var í meðallagi í sumar og eftir verslunarmannahelgi og fram á haust veiddist mjög vel af ufsa. Kvótinn hefur verið skertur svo mjög að margir útgerðarmenn horf- ast í augu við þá staðreynd að hann dugir þeim ekki til framfærslu. Nokkrir hafa brugðist við þeirri þróun með því að festa kaup á bát- um undir sex tonnum og fá á þá krókaleyfí. Smábátum hefur því fjölgað hér á þessu ári. Fiskveiði- stefnan og sú þróun sem hún veld- ur veldur því að illgerlegt er að spá nokkru um framtíðina. Fólk heldur því að sér höndum. Hér hefur verið húsnæðisskortur en vegna óvissu um framtíðina leggur ungt fólk ekki í kostnaðar- samar húsbyggingar. Þó var brotið blað í sögu húsbygginga í eyjunni á þessu ári, er ungt par lét byggja fyrir sig hús á Akureyri og flytja það „fram“ með skipi. Húsið hyggj- ast þau taka með_ sér ef þau flytja héðan. Eitt af bestu málum ársins fyrir byggðarlagið er án efa sú ákvörðun stjórnvalda að ríkissjóður greiði halla vegna rekstrar feijunnar Sæ- fara, því eins og margoft hefur komið fram er feijan okkur það sem þjóðvegurinn er þeim sem búa á fastalandinu. Með tilkomu feijunn- ar jókst ferðamannastraumur hing- að og ung kona hóf rekstur gisti- heimilis yfír sumarmánuðina. Við fengum til okkar tónlistar- kennara, sundkennara og íþrótta- kennara og voru í fyrsta skipti hald- in íþróttanámskeið fyrir grímseysk börn. Á þessu má sjá að reynt er eftir megni að sinna þörfum barnanna. Og við Grímseyingar höldum okkur undantekningarlítið yið sama hey- garðshomið hvað varðar barneignir því á árinu hafa fæðst þijú börn, allt drengir. Að undanskildu árinu í fyrra, þegar tvö stúlkubörn fædd- ust, hafa eingöngu fæðst sveinbörn í Grímsey undanfarin níu árr INGVELDUR HJARTARDÓTTIR, PATREKSFIRÐI: Patreks- fjörður áfram á kortinu ÞEGAR rifja skal upp minnis- stæða atburði ársins 1991 verður mér hugsað til Austur-Evr- ópubúa sem hafa smátt og smátt verið að losna úr ánauð og ára- langri kúgun. í samanburði við lífskjör þessa fólks verður okkar daglega þras svo léttvægt. Þó er þetta ár hinnar miklu kvóta- skerðingar og óneitanlega hefur verið viss kvíði hjá þeint sem búa á landsbyggðinni vegna lakari afkomu. að er nú samt alltaf hægt að finna ljósan blett í tilverunni ef viljinn er fyrir hendi. Veðurguð- irnir voru góðir við okkur Patreks- firðinga á síðastliðnu sumri og þá var það, sem undirrituð gerðist fréttaritari Morgunblaðsins á staðn- um. Og þeir sögðu við mig á Mogg- anum að þeir vildu halda Patreks- firði á kortinu. Hana nú! Á ég, skyn- laus kvenskepnan, að bera ábyrgð á því? Hvernig sem framhaldið verður er ekki laust við að þetta hafi opn- að augu mín fyrir því hvað er frétta- efni í amstri daganna og vonandi verður Patreksfjörður áfram á sín- um stað á kortinu um ókomna tíð. Að lokum óska ég sjómönnum góðra gæfta og afla og landsmönn- um öllum árs og friðar. STÓRVERSLUN SKRIFSTOFUNNAR r Byijið árið með betrí innkaupum Með því að hugsa stórt og gera hagkvæm innkaup má spara ótrúlega mikið. Um þessi áramót og í upphafi bók- haldsárs geta þeir sem eru stórtækir hagnast vél og sparað mörg spor með því að gera magninnkaup á sérstökum tilboðsmarkaði Pennans í Hallarmúla 2. Með beinum innflutningi og hagstæðum innkaupum getur Penninn boðið ýmsar vörur á lægra verði. Þar að auki verður Penninn nú með sérstakt janúartilboð sem miðast við magninnkaup. Hagræðingin fyrir þá sem notfæra sér þetta tilboð felst ekki eingöngu í lægra verði heldur líka í færri sendiferðtun. Auk þess eru hlutimir við hendina þegar á þarf að halda. ALLTíEINNIFERÐ HALLARMÚLA 2, SÍMI91-813211 Renndu við og gerðu innkaupin á lægra verði í Pennanum í Hallarmúla. Þar eru hundruð bílastæða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.