Morgunblaðið - 31.12.1991, Síða 23

Morgunblaðið - 31.12.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBÉR 1991 Um áramótin Hugleiðingar undir ýmsum lögum eftirÁrna Helgason Lag: í fögrum dal... Nú er þetta ár á enda runnið og yfirleitt var mikið í það spunnið. Ríkisstjórnin andaðist ogönnurtók þarvið, út í Viðey fæddist hún og þétt var handtakið. Eins og skot - Einsdæmi í söpm Eins og skot - á aðeins tíu dögum eins og- skot. En Ólafi fannst ekkert gott við þetta alveg viss að Ríkið myndi detta. Votum augum bh'nir enn á valdastólinn „sinn“ yeslings þjóð mín hér sérðu dauðadóminn þinn Astand rammt - nú er ekki að treysta á Stahn raulum samt - Intemationalinn raulum samt. Ólafur er fúll og foj að vonum: Friðrik hefir tekið allt af honum, horfir oní rikissjóð með hryllingi á ská: Hörmulegt er oní þessa forarvilpu að sjá. Hvað skal nú? Hér er enginn friður Hvað skal nú? Skera og skera niður. Ég og þú. Velferð ris á varanlegum grunni ef vitið fær að ráða siglingunni. I sjónmáli er það tæpast, það sýnir farin braut Sérhagsmunaþrýstihópar blása eins og naut. Það er og - þetta er meiri vandinn það er og - þeir eru eins og fjandinn það er og. Lag: Það er líf í tuskunum ... Með virðisaukaskatt á þessum vetri að virða hann er stundum lítið gaman. Innskattur er útskattinum betri, með undanþágum fellur þetta saman. Lag: Nú liggur vel á mér. Nú liggur vel á mér, nú liggur vel á mér. Sjáðu, allt dótið. Ég sýna þér verð svakaleg var þessi innkaupaferð. Er pratísk og held mér við hagkerfið rétta húsbréfin akkúrat pössuðu í þetta. í Glasgow ég komst þarna í fádæma feitt. fargjald og vörumar kosta ekki neitt. Sjáðu, sko héma, og sjáðu nú þetta og svona var yfirleitt. Lag: Buldi við brestur ... Buldi við brestur og básúnur gjalla óhljóð og grátur um allar trissur. Ekkert fær staðist, útgerðin logandi upp í háskóla, blásandi, sogandi. Nú er allt jarmandi í námskerfisjötunum, Námslánabílamir stopp út á götunum. Hörmulegt hér með hlutabréf er og heilbrigðiskerfið. Mótmælir allt af öllum kröftum enginn veit hvernig allt þetta fer. Skerið bara allt en ekki hjá mér. Lag: í sveitinni er sæit að vera ... Allt þarf nú að spara og allt að skera niður inni í flestum ráðuneytum várla stundarfriður. Niðurskurðarbrautin hjá okkur er svo hál og utanferðir ráðherranna sifellt vandamál. Lag: Nú er frost á Fróni... Höfnum verður lokað, hafmenn sigla inn að bæta hlutinn sinn, brást nú þorskurinn. Svakalegt er þetta með sjómannafrádráttinn. Volar votur á kinn vélstjórinn. Lag: A alþingi er utan dagskrár Til atvinnu er ýmsu velt. sem eykur gildi sjóða. Tap er bókfært, tap er selt tap er upphaf gróða. Lag: Hlíðin mín fríða ... Mjólkin er góð er gosið langtum vænna, Verkfall á mjólk er vissulega kænna. Þjóðlegt um jól að þamba blessaða gosið breikka svo brosið. Lífsgæfan vex í lottó og happadrætti. ólmur í vinning engin von ég hætti. Við spilakassa núna á næturvakt menn standa án þess að anda. Skelfing sem margir skemmta sér úti á kvöldin, fullt er hvert hús og freisting bak við tjöldin. Félagsmálastofnun er fyrir mörgum „dúsan“ og borgar svo brúsann. Lag: Anna mín með ljósa lokka Bara að selja, bara að græða bátar inn í landið flæða. Núna telst það nýtni mesta í Noregi að byggja flesta. Kvótalausir koma þaðan. I kolluál er síldarvaðan í hamagangi fleytum fleytt þótt fiskist ekki neitt. EES er allt í klessu hver árinn sem að stjómar þessu Vandræða og vökufundir. yeistu hvað þú skrifar undir? Óvissan - og allt svo þmngið á hveiju hefir málið sprangið? Var það karfi vinur minn eða var það langhalinn? En - álið það er ekki sopið í ausuna þótt hafi dropið, ár og daga að semja og semja saman allt að berja og lemja. Ætli þeir bara nokkru nái neyðist eins og Stjáni blái að stýra fari fram til hlés og fyrir Keilisnes... Páfinn varð af biskupsblessun blankheitin sem ollu þessu. Kirkjuna vantar alltaf aura ekki fleiri vökustaura. I rukkuram er rosa kraftur ríkið skilar jörðum aftur. Stór er hítin, öllu eytt og ekki gengur neitt. Ábendingar frá LÖGREGLUNNI: Ökuhraði sérstakra gerða ökutækja Þeir eru fjölmargir sem ekki hafa hugmynd um hvaða reglur gilda um ökuhraða hér á landi, utan þess almenna. Hér á eftir eru þeir sömu upplýstir um það að samkvæmt 38. grein umferðarlaga má ökuhraði FÓLKSBIFREIÐAR, sem er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd, aldrei vera meiri en 90 km/klst. Ökuhraði ANN- ARRA BIFREIÐA, sem eru meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd, má aldrei vera meiri en 80 km/klst. Ökuhraði BIFREIÐAR MEÐ EFTIRVAGN eða SKRÁÐ TENGITÆKI má aldrei vera meiri en 70 km/klst. Ökuhraði BIFREIÐAR MEÐ ANNAÐ TENGITÆKI má aldrei vera meiri en 30 km/klst. Akið varlega. framköllunarþjónusta er hjá þessum adilum: Vmbhhhhíwaasm Framköllunarþjónustan Borgamesi, Ljósmyndaþjónusta Stefán Pedersen Sauðárkróki, Nýja Bíó Siglufírði, Myndsmiðjan Egiisstöðum, Framköllunarþjónustan Prentverks Homafjarðar, Fótó Vestmannaeyjum, Ljósmyndastofa Suðurlands Selfossi, Filman Hamraborg 1, Kópavogi, Reykjavík: Vesturbær. Útfarsfefí Hagamel, Miðborgin: Ljósmyndabúðin Ingólfsstræti, Austurbær: Ljósmyndavörur Skipholti 31. Crafarvogur. Kyrrmynd Höfðabakka 1, við Gullinbrú. myndapappv

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.