Morgunblaðið - 24.01.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.01.1992, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992 Sakadómur Reykjavíkur: Árs fangelsi fyrir bana- slys vegna ölvunaraksturs SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 31 árs gamlan mann í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundna til 3 ára, fyrir að hafa ölvaður við akstur og sviptur ökuréttindum valdið umferðar- slysi, þar sem kona beið bana og tvennt slasaðist. Við geðrannsókn sem maðurinn gekkst undir kom í ljós að greindarvísitala hans mældist 66 stig og var það mat sérfræðinga að maðurinn væri van- gefinn en engu að síður sakhæfur. Atburðurinn varð við Litlu kaffi- stofuna á Suðurlandsvegi þann 16. september 1990. Maðurinn hafði setið við drykkju ásamt öðrum manni á heimili hins síðamefnda í húsi í Seláshverfi. Samkvæmt framburði hins dæmda höfðu þeir drukkið á skömmum tíma rúmlega tvær flöskur af Terquila þegar þeir ákváðu að fara akandi austur í Vík í Mýrdal á bifreið hús- ráðandans, sem er Moskvitch, sem hækkaður hafði verið upp og breytt í jeppa. íbúi í húsinu sá mennina fara ölvaða út í bílinn og hinn dæmda aka af stað og hringdi þegar í lög- regluna. 14 mínútum síðar var bifreiðin komin upp að Litlu kaffistofu og þar missti ökumaðurinn vald á henni þannig að hún fór yfir á öfugan vegarhelming og framan á fólksbif- reið sem kom úr gagnstæðri átt. í framsæti þeirrar bifreiðar sat 46 ára gömul kona sem lést samstundis. Kona í aftursæti hlaut mikla áverka en ökumaðurinn slapp á teljandi meiðsla. Hinn dæmdi slapp ómeiddur en farþegi hans, eigandi bílsins, brotnaði meðal annars á fótum. Við rannsókn á blóðsýni úr hinum dæmda kom í ljós að áfengismagn í blóði hans hafði verið 1,83 prómill af víndanda, en refsað er fyrir ölvun- arakstur finnist meira en 0,5 próm- ill af vínanda í blóði ökumanns. Við fyrstu yfirheyrslur játaði maðurinn að hafa ekið en síðar kvaðst hann ekki viss um hvor þeirra tveggja hefði ekið. Hinn maðurinn kvaðst muna það eitt eftir ferðinni fram að árekstrinum að þeir hefðu ákveðið að fara austur og hefði hinn dæmdi tekið að sér að aka. Með broti sínu hafði maðurinn rofið skilorð dóms frá því skömu fyrir atvikið þar sem hann hafði verið dæmdur til 3 mánaða fangels- is, skilorðsbundið. Er afplánun þeirr- ar refsingar því innifalin í þeim dómi sem felldur var í þessu máli og kveð- ur, einsog fyrr segir, á um 12 mán- aða fangelsi, þar af 9 mánuði skil- orðsbundna. Þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt. í áliti geð- læknis sem skoðaði manninn kom fram að þrátt fyrir andlega fötlun teldist hann sakhæfur en taka bæri mið af naumum andlegum þroska hans við ákvörðun refsingar og út- tekt dóms. Helgi I. Jónsson sakadómari kvað upp dóminn. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 24. JANÚAR: YFIRLIT: Skammt suðvestur af Reykjanesi er allvíðáttumikil 955 mb lægð sem hreyfist norðnorðaustur. Um 1300 km suður í hafí er önnur vaxandi iægð sem hreyfist allhratt í norðaustur og veröur skammt suöur af Hornafirði um hádegi á morgun. Veður mun kólna í nótt og fyrramálið í bili. SPÁ: Norðvestan strekkingur framm eftir degi á Norðausturlandi, en fremur hæg suðlæg átt. Súld á Suðausturlandi, en smáél um landið vestanvert og vestur með norðurströndinni. Bjart inn til landsins á Norður- og Austuriandi. Kólnar i bili. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAQ: Fremur hæg vestlæg átt og dálítil él við noröurströndina en liklegast úrkomulftið í öðrum landshlutum. Vægt frost en hlýnandi er iíður á daginn. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestanátt og rigning eða súld á Suð- vestur- og Vesturlandi, en þurrt í öðrum landshlutum. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / r r r r Rigning r r r * / * / * / * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * ■J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir V Él = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður / DAG kl. 12.00 Heimild: Veöurstofa íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.151 gær) > 1 VEÐUR VÍBA UM HEIM Af» l/i/ 1 yast hiti BO tSL ultla veóur Akureyri 0 skýjað Reykjavik 6 rigning Bergen 3 léttskýjað Helsinki 1 atekýjeð Kaupmannahöfn 2 helðskirt Narssarssuaq 16 heiðskírt Nuuk 12 snjókoma Ostó t7 þokaígrennd Stokkhólmur 0 hálfskýjað Þórshöfn 8 rigning Algarve 11 léttskýjað Amsterdam ■s-2 þokumóða Barcelona 6 skýjað Berlln «4 mistur Chicago 2 atskýjað Feneyjar 5 þokumóða Frankfurt 0 mistur Qlasgow 3 mlstur Hamborg mistur tondon 2 mistur LosAngeies 9 heiðskírt Lúxemborg ♦4 místur Madrid 3 léttskýjað Malega 12 iéttskýjað Mallorca 8 rigning Montreal 3 alskýjað NewYork vantar Orlando 18 alakýjað París *2 þokumóða Madelra 17 tóttskýjað Róm 14 skýjað Vin tI skýjað Washington vantar Wlnnípeg t17 skafrennlngur Morgunblaðið/Sverrir Þrír forsvarsmenn Nýherja, f.v. Gunnar Hansson, Árni Vilhjálmsson og Óli Kr. Sigurðsson. IBM á íslandi og Skrifstofuvélar: Tssgsp— Nýherji hf. tekur við rekstri fyrirtælqaiina NÝTT markaðs- og þjónustufyrirtæki á sviði boðmiðlunar, skrifstofu og tölvutæknimála, Nýherji hf., var stofnað í gær. Fyrirtækið er byg&t er á grunni IBM á Islandi og Skrifstofuvéla hf. og mun taka til starfa 2. apríl nk. Stærstu eigendur eru Eignarsamlag Draupnis- sjóðsins og Vogunar sf. með 35% eignaraðild, IBM í Danmörku með 30%, eigendur Skrifstofuvéla með 22,5% og nokkrir starfsmenn IBM á íslandi með 12,5%. Hlutafé er 200 milljónir króna, en stefnt er að því að gera Nýherja að almenningshlutafélagi innan fárra ára. Verksvið Nýheija hf. verður sala og markaðssetning á tölvum, tölvu- búnaði, skrifstofuvélum og rekstr- arvörum ástam viðhalds-, viðgerð- ar-, kerfis- og hugbúnaðarþjónustu. Fyrirtækið verður umboðs- og þjón- ustuaðili fyrir IBM, Rank Xerox, Facit, Omron, Star o.fl. auk þess að annast þá starfsemi sem IBM á íslandi og Skrifstofuvélar hafa séð um. Að sögn Gunnaxs M. Hanssonar, forstjóra IBM á íslandi, sem mun veita Nýheija forstöðu, er stofnun fyrirtækisins í beinu framhaldi af endurskoðun á uppbyggingu IBM- fyrirtækjanna á Norðurlöndum á síðasta ári sem lauk með stofnun IBM Nordic. Hann sagði að sér- staða IBM á íslandi væri nokkur vegna smæðar markaðarins og hug- myndin að stofnun Nýheija kæmi alfarið frá höfuðstöðvum IBM þar sem menn fóru að vinna í þessum málum sl. haust. Til að styrkja undirstöður hins nýja fyrirtækis og geta boðið upp á aukið vöruúrval og víðtækari þjónustu hefði verið ákveðið að bjóða Skrifstofuvélum hf. að ganga inn í fyrirtækið. í stjóm Nýheija hf. sitja Ámi Vilhjálmsson, stjórnarformaður, fyrir hönd Eignasamlags Draupnis- sjóðsins og Vogunar sf., Óli Kr. Sigurðsson fyrir hönd Skrifstofu- véla hf. og Max Rosen frá IBM í Danmörku. Max Rosen sagði í sam- tali við Morgunblaðið að IBM hefði frá upphafi lagt ríka áherslu á að fá trausta íslenska hluthafa til sam- starfs um stofnun fyrirtækisins. Eignasamlag Draupnissjóðsins og Vogunar sf. er fjárfestingarfyrir- tæki í eigu þessara aðila. Eigendur Draupnissjóðsins era m.a. Iðnlána- sjóður, Iðnþróunarsjóður og nokkrir lífeyrissjóðir, en Vogun er í eigu sömu aðila og Hvalur hf. Nokkur fækkun starfsmanna mun eiga sér stað með sameiningu IBM á Islandi og Skrifstofuvéla, en áætlað er að starfsmenn Nýheija verði um 80. í dag er samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja um eitt hundrað. Ríkisstjórnin: Aðstoð til fyrmm lýð- velda Sovétríkjanna RÍKISSTJÓRN íslands hefur ákveðið að veita framlag til efnahags- og félagslegrar aðstoðar við lýðveldin, sem áður töldust til Sovétríþj- anna. Ekki hefur verið ákveðið hvert framlag íslendinga verður. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, situr nú ráðstefnu 60 ríkja og alþjóðastofnana í Wash- ington, þar sem fjallað er sérstak- lega um matvæla-, lyfja-, hús- næðis- og tækniaðstoð við fyrram lýðveldi Sovétríkjanna. í ræðu, sem Jón flutti á ráðstefnunni, greindi hann m.a. frá þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að veita framlag til þessarar aðstoðar og að ríkisstjóm- in vonist einnig eftir framlögum frá íslenskum fyritækjum og einstakl- ingum. Einnig skýrði hann frá tækniaðstoð íslendinga við Sovét- ríkin á sviði jarðhita, fiskeldis og sjávarútvegs og þeirri hugmynd sinni að bjóða ungu athafnafólki frá lýðveldunum til náms og þjálfunar- starfa á íslandi í rekstri fyrirtækja og markaðsmálum. Loks minntist hann á aðstoð Norðurlanda við Eystrasaltsríkin, sem nú er hafin. Þorsteinn Ingólfsson, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekki lægi endanlega fyrir hvert framlag íslendinga til lýðveldanna yrði. „Það er verið að vinna úr hug- myndum með ýmsum aðilum, sem sýnt hafa áhuga á að taka þátt í þessu,“ sagði hann. „Það eru fyrst og fremst fyrirtæki, sem áttu við- skipti við Sovétríkin áður.“ ----»-■».♦--- Askhenazy- húsið til sölu Brunabótamat 53 millj. EINBÝLISHÚS, sem hjónin Vladímír og Þórunn Ashkenazí byggðu þegar þau voru búsett hér á landi, hefur verið auglýst til sölu. Húsið er eitt stærsta ein- býlishúsið í Reykjavík, og er brunabótamat þess 53 milþ'. kr. Samkvæmt upplýsingum frá Málflutningsskrifstofu Guðmundar Péturssonar, Péturs Guðmundsson- ar, Hákonar Árnasonar og Jakobs R. Möller, sem auglýsir húsið til sölu, er það 678 fermetrar að stærð. Fasteignamat þess er 50 milljónir. » í » ( í I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.