Morgunblaðið - 24.01.1992, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992
19
Reuter
Vetrarhörkur í Frakklandi
Vetrarhörkur eru nú í Suðvestur- Frakklandi og í gær kyngdi þar
niður snjónum. Vitað er að minnsta kosti um þrjá menn, sem hafa
orðið úti í kuldunum, og þúsundir manna hafa orðið strandaglópar
hér og þar. Þessi mynd er frá Biarritz en pálmakögraðar strendurnar
þar eru kunnari fyrir annað en fjúk og frost.
29 hermenn reyna
valdarán í Zaire
Kinshasa. Reuter.
Stjórnarherinn í Zaire náði útvarps- og sjónvarpsbyggingu í höfuð-
borginni, Kinshasa, á sitt vald í fyrrinótt eftir að 29 hermenn höfðu
haft hana á valdi sínu í tæpar þijár klukkustundir og hvatt til upp-
reisnar gegn valdhöfunum í landinu.
Á meðan hermennirnir höfðu
bygginguna á sínu valdi kröfðust
þeir þess að Mobutu Sese Seko,
forseti landsins, og Nguza Karl-i-
Bond forsætisráðherra segðu af
sér. Þeir hvöttu einnig til þess að
efnt yrði að nýju til þjóðfundar um
nýja stjórnarskrá og lýðræðislegt
stjórnarfar.
Mobutu Sese Seko hefur verið
einráður í landinu í 27 ár en valtur
í sessi frá því í september er óeirð ■
ir brutust út í Kinshasa og fleiri
borgum. 250 manns biðu bana í
óeirðunum, sem hófust þegar her-
menn létu greipar sópa um verslan-
ir og íbúðir.
Mobutu féllst skömmu síðar á
Irland:
að efna til þjóðfundar um lýðræðis-
legt stjórnarfar en forsætisráðherr-
ann ákvað á sunnudag að binda
enda á viðræðurnar. Hann sakaði
stjórnarandstæðinga um að hafa
notað þjóðfundinn til að kynda und-
ir óeirðum í landinu.
Ringulreið var í Kinshasa þegar
hermennirnir 29 náðu útvarps- og
sjónvarpsbyggingunni á sitt vald
og fólk flykktist út á götur í þeirri
trú að dagar Mobutu sem forseta
væru taldir. Á meðan héldu leiðtog-
ar stjórnarandstöðunnar að sér
höndum og lýstu valdaránstilraun-
inni sem „ósmekklegum skrípaleik"
eftir að hún fór út um þúfur.
Búist við afsögn
Haugheys fljótlega
Dyflinni. Reuter.
FRJÁLSLYNDIR demókratar,
sem standa að írsku ríkisstjórn-
inni ásamt Fianna Fail, flokki
Charles Haughey forsætisráð-
herra, ætla að segja sig úr sljórn-
inni segi Haughey ekki af sér
embætti í næstu viku þegar fjár-
lögin hafa verið afgreidd. Er
ástæðan nýjasta hneykslismálið í
írskum stjórninálum, símahler-
anir, sem stundaðar voru i forsæt-
isráðherratið Haugheys fyrir 10
árum.
Fulltrúar fijálslyndra demókrata
gengu í gær á fund Haugheys og í
yfirlýsingu, sem gefin var út eftir
fundinn með honum, segir, að flokk-
urinn muni hætta stuðningi við
stjórnina verði ekki gripið til ráðstaf-
ana til að bæta fyrir þann álits-
hnekki, sem stjórnin hefur orðið fyr-
ir, strax að lokinni fjárlagaumræð-
unni. Þykir heldur vandséð hvernig
það verður gert og hafði írska ríkis-
útvarpið eftir heimildum innan
Fianna Fail, að Haughey muni lík-
lega segja af sér embætti innan
tveggja vikna.
Haughey, sem stundum er kall-
aður „hinn írski Houdini" vegna
þess hve oft honum hefur tekist að
losa sig úr erfiðum hneykslismálum,
neitaði í fyrradag að segja af sér
og kvaðst þá viss um, að stjórnin
lifði óveðrið af. Þetta síðasta
hneyksli er í raun tíu ára gamalt
en kom upp á þriðjudag þegar Sean
Doherty, forseti öldungadeildarinn-
ar, sagði af sér. Skýrði hann jafn-
framt frá því, að þegar hann hefði
verið dómsmála-
ráðherra í stjórn
Haugheys 1982
hefði hann látið
hlera síma tveggja
blaðamanna til að
komast að því hver
læki fréttum í þá
af ríkisstjórnar-
fundum. Hefði
hann gert þetta með samþykki
Haugheys og látið hann fá útskrift
af samtölum blaðamannanna.
Haughey neitar þessu þverlega
og sakar Doherty um að hafa svar-
ist í bræðralag með óvinum sínum
innan Fianna Fail og í þeim tilgangi
að koma sér úr embætti.
Hvað sem satt er í þessu hefur
málið varpað miklum skugga á
stjórnina og stjórnarsamstarf flokk-
anna og hallast flestir að því, að
Haughey eigi engan annan kost
lengur en segja af sér.
-------*-♦-*--------
■ LISSABON - Aðildarríki
Evrópubandalagsins gáfu í gær út
sameiginlega yfirlýsingu þar sem
þau hörmuðu aftöku andófsmanns
á Kúbu á mánudag. Maðurinn hafði
verið í útlegð í Bandaríkjunum en
var handtekinn á báti við strönd
Kúbu 29. desember ásamt tveimur
öðrum Kúbveijum. Þeir voru með
skotvopn og sprengjur um borð og
voru dæmdir til dauða fyrir hermd-
arverk en dóminum yfir hinum
mönnunum tveimur var breytt í 30
ára fangelsi.
Airbus-flugsly sið:
Siglingatæki skoðuð
París. Reuter.
FRAMLEIÐENDUR Airbus A-320 þotunnar, sem fórst í Vosges-fjall-
garðinum í austurhluta Frakklands á þriðjudag, viðurkenndu í gær
að komið hefðu upp vandamál í sambandi við siglingatæki þessarar
fullkomnu þotutegundar en þau hefðu verið leyst fyrir slysið.
Franska sjónvarpið Antenne 2
skýrði frá því að flugmenn tveggja
A-320-þotna hefðu fyrir fjórum
mánuðum kvartað yfir bilunum í
tölvubúnaði, sem mælir hæð og
fjarlægð frá ákvörðunarstað.
„Þetta er gamalt mál sem hefur
verið leyst,“ sagði Robert Alizart,
talsmaður framleiðendanna, þegar
hann var inntur eftir því hvort frétt-
in væri rétt. Aðspurður um hvort
siglingatækin kynnu að hafa valdið
flugslysinu á þriðjudag sagði hann
að fyrirtækið myndi ekki tjá sig um
vangaveltur varðandi orsökina.
Frönsku flugmannasamtökin
hafa gagnrýnt hönnun þotunnar og
sagt að siglinga- og stjórnbúnaður
hennar sé of flókinn. Þotan hefur
oft verið nefnd „fyrsta fljúgandi
tölvan“.
Samband franskra flugvirkja
krafðist þess í gær að flugfélagið
Air Inter, sem átti þotuna sem brot-
lenti, legði öllum Á-320 þotum sín-
um þar til ljóst yrði hvað olli slysinu.
■ BELGRAD - Mannréttinda-
samtökin Helsinki Watch sökuðu í
gær serbneska skæruliða um að
hafa myrt a.m.k. 200 óbreytta
borgara og óvopnaða króatíska
þjóðvarðliða í hópum eftir að hafa
tekið þá höndum. Skæruliðarnir
hefðu framið fjöldamorð í að
minnsta kosti 14 skipti á uncjan-
förnum fimm mánuðum. Samtökin
sögðu að stjórnvöld í Serbíu og
júgóslavneski herinn bæru ábyrgð
á þessum morðum vegna stuðnings
þeirra við serbnesku skæruliðana.
■ MAPUTO - Stjórnvöld í Mos-
ambique telja að Renamo-skærulið-
ar hafi beitt efnavopnum í árás á
bæinn Macaene, skammt frá landa-
mærunum að Suður-Afríku, 16.
janúar. Sérfræðingar frá Suður-
Afríku hafa verið fengnir til að
rannsaka sýni úr líkum stjómarher-
manna, sem biðu bana í árásinni.
11ÍÍUUUH
Gerið bóndanum
^glaðan dag
með ljúffengum
Þorramat!
Ljúffengur
Þorramatur:
• Lundabaggar • Harðfiskur
• Hrútspungar í úrvali
• Bringur
• Magáll
• Vestfirskur
gæðahákarl
• Nýtt slátur
Blóðmör
Lifrarpylsa
• Marineruö sild
• Kryddsild
• Reykt síld
• Síldarsalat
• Graflax
• Reyktur lax
• Taðreyktur silungur
• Rófustappa
• Kartöflusalat
• Flatkökur
• Rúgbrauð
• Ný sviðasulta
• Súr sviðasulta
• Nýsvinasulta
• Súr svinasulta
• Soöið hangikjöt
• Pressað og
súrsað
heilagfiski.
BlRndflðfíf (Lundabaggi - Sviöasulta -
UlOimOW “* Hrútspungar - Bringur
surmattir - Lifrapylsa og blóömör)
í fötu m/mysu
Súpukjöt 007,0«
- 1/2 frampartar 1 pn Kg
Lambalæri 598 f- kg-
Lambahryggir 645 'JS kg.
Londonlamb 699 Fkg-
Holdahænur 198 Fkg-
Svið 279 Fkg.
R0'kt folaldakjöt 395**
S --------- TILBOÐ
SoðÍÍ»f^öt1.495^g.
pftlpp
Aspargus, Ol Q,°°
heill ‘/2 dós 425 g.
Aspargus, JJ9 00
skorinn '/2 dós
Mais Corn fiQ ,oo
1/2 dós
Hrísgrjón 75 ,00
907 g.
Tómatsósa 1 1 Q,
793g.
'oí?
'Pr.
00
Hangikjötslæri
úrbeinað
99500
Félagasamtök og
vinnuhópar:
Seljum Þorramat til
stórra og litilla hópa.
Kynnum
og gefum
“ smakka
MA TVÖRUVERSLUNIN
mSTVRxERÍ
Veríð vandlát - það erum við!
HÁALEITISBRAUT 68 0piö!ös,udJ'f k,9,1091c
laugard. fra kl. 10-16