Morgunblaðið - 24.01.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992
25
Morgunblaðið/Rúnar Þór
26 tonn af fatnaði
Akureyringar gáfu um 26 tonn af fatnaði í skyndisöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar og Slysavamafélags
íslands. Tekið var á móti fatnaði í Glerárkirkju og í húsnæði slysavarnarkvenna í Laxárgötu, en þar var fullt
út í öll horn svo ekki komst þar meira fyrir. Svala Halldórsdóttir hjá Slysavarnarfélaginu sagði að marg-
ir hefðu iagt hönd á plóginn, gefið til söfnunarinnar rausnarlegar gjafir og tekið þátt í vinnu vegna henn-
ar. „Við erum mjög þakklát öllu því fólki sem lagði okkur lið, við fengum mikið af fötum og ég get nefnt
sem dæmi að hingað komu konur með nýprjónaða sokka og vettlinga sem þær gáfu og á miðvikudags-
kvöldið kom hingað hópur af skátum eftir fund hjá sér og hjálpuðu okkur. Þetta voru 10 til 14 ára krakkar
og þau unnu hratt og vel, rétt eins og fullorðið fólk. Það sýnir hversu mikill dugur er í börnunum ef þau fá
að gera eitthvað," sagði Svala.
Kristnesspítali:
Norðlendingar sam-
þykkja ekki að starf-
seminni verði hætt
- segir Bjarni Arthúrsson framkvæmdastjóri
„ÞAÐ er ástæða til að ítreka það að Kristnesspítali er ekki á leið út
af landakortinu, hann er kominn til að vera. Norðlendingar hafa
stillt sig inn á að hér sé til staðar endurhæfingardeild og þeir not-
færa sér hana og munu ekki samþykkja að starfseminni verði hætt.“
Þetta sagði Bjarni Arthúrsson,
framkvæmdastjóri Kristnesspítala,
en í Morgunblaðinu í gær var
greint frá því að hugmyndir væru
uppi um að hætta rekstri spítalans
í kjölfar sparnaðaraðgerða á Ríkis-
spítölum.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar
hefur farið fram á viðræður við
heilbrigðisráðherra um að hún taki
við rekstri spítalans og hafa þau
svör borist sveitarstjórn að ráð-
herra vilji bíða eftir áliti nýrrar
stjórnarnefndar ríksispítala sem
tók við um síðustu áramót um
þetta mál.
Bjami sagði að þessi umræða
yrði ef til vill til að flýta fyrir til-
flutningi Kristnesspítala frá ríkinu
og til heimaaðila. Fari svo að sveit-
arstjórn Eyjafjarðarsveitar taki við
rekstrinum, mun ríkið eftir sem
áður greiða rekstrargjöld, en sveit-
arstjórnin tæki að sér að greiða
15% stofnkostnaðar og meiriháttar
viðhalds.
3-5% af skatttekjum bæjarins til ríkisins:
Nær 60 milljónir í „löggu-
skatt“ og félagslegar íbúðir
FORSENDUR fjárhagsáætlunar
Akureyrarbæjar, sem lögð var
fram til fyrri umræðu, munu
breytast umtalsvert í kjölfar
samþykktar frumvarps um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum á árinu
1992, svonefnds „bandorms".
Sveitarfélögum er þar gert skylt
að taka þátt í hluta af kostnaði
vegna löggæslu og þá skulu
sveitarfélög einnig leggja fram
óafturkræft 3,5% framlag af
kostnaðar- eða kaupverði hverr-
ar félagslegrar íbúðar í sveitar-
félaginu. Kostnaður Akureyrar-
bæjar vegna svokallaðs „löggu-
skatts“ er á bilinu 35-37 milljónir
króna, en samkvæmt honum er
Dýrara
í sund
GJALDSKRA sundlauganna á
Akureyri hefur verið hækkuð,
en breytingarnar tóku gildi
15. janúar síðastliðinn.
Einstakur miði fullorðinna
hækkar um 10 krónur, úr 110
í 120, tíu miða kort kostar nú
1.000 krónur en kostaði fyrir
hækkun 880 krónur, en fyrir
þijátíu miða kort þarf eftir
hækkun að greiða 2.700 krónur
í stað 2.500 króna. Börnin
þurfa einnig að greiða 10 krón-
um meira fyrir einstakan miða
í sund eftir hækkun gjaldskrár-
innar, eða 60 krónur í stað 50
og tíu miða barnakort í sund-
laugarnar kosta eftir hækkun
330 krónur í stað 285 króna
áður.
Fimm krónum dýrara verður
að fara í gufubað eftir hækkun
gjaldskrárinnar, en nú kostar
250 krónur í gufubað í stað 245
króna áður.
sveitarfélögum með fleiri en 300
íbúa gert að greiða 2.370 krónur
fyrir hvern íbúa vegna kostnaðar
við löggæslu. Þá má gera ráð
fyrir að um 21 milljón króna
þurfi að greiða vegna félagslegu
íbúðanna, en að jafnaði eru
byggðar slíkar íbúðir fyrir um
600 milljónir króna á ári á Akur-
eyri. Samtals verður upphæðin á
milli 55-60 milljónir króna.
Halldór Jónsson, bæjarstjóri,
sagði í gær að ekki væri búið að
taka afstöðu til þess hvernig þess-
um kostnaði yrði mætt, en búast
mætti við stífum fundahöldum bæj-
arráðs í næstu viku um málið. Hann
sagði þessa skattlagningu þýða að
3-5% af skatttekjum Akureyrarbæj-
ar flyttust yfir til ríkisins og hefðu
veruleg áhrif að getu bæjarins til
rekstrar og framkvæmda.
Sem dæmi má nefna að sú upp-
hæð sem bærinn þarf að greiða
vegna þessa, tæplega 60 milljónir
króna, svarar til áætlaðs kostnaðar
við byggingu tveggja dagvista, þá
er áætlað að veija rúmum 50 millj-
ónum króna í byggingu kennslu-
álmu við Síðuskóla og tæplega 60
milljónum til framkvæmda við
yerkmenntaskólann á Akureyri.
Áætlað er samkvæmt fjárhagsáætl-
un að veija 44 milljónum króna til
framkvæmda vegna menningar-
mála eða nokkru lægri upphæð og
bænum er nú gert að greiða vegna
þátttöku í kostnaði við löggæslu og
vegna félagslegs húsnæðis og þá
má nefna að áætlað er að 53 millj-
ónir króna fari til framkvæmda við
götur og holræsi.
„Menn geta velt því fyrir sér
hvar skera eigi þessar milljónir af,
það getur orðið nokkuð erfítt. Við
gætum hreinlega lent í því að þurfa
að klippa af heilan málaflokk því
ef verið er að taka þetta víða verð-
ur þetta meira og minna ónýtt,“
sagði Halldór. „Við erum auðvitað
óhress með þetta, en mest megnis
er það fyrir það hvernig að þessu
máli var staðið. Við viðurkennum
og vitum að allir þurfa að taka þátt
í þessum aðgerðum og best að sem
flestir séu með í því. Það sem erfíð-
ast er að sætta sig við er að þetta
kemur allt að ofan, þetta er ákveð-
ið án samráðs við sveitarfélögin.“
Skauta-
svellið opn-
að í kvöld
SKAUTASVELLIÐ á Akur-
eyri verður opnað fyrir al-
menningi í kvöld, en undanf-
arna daga hefur það verið
lokað vegna blíðviðris. Það
verður einnig opið um helg-
ina frá kl. 13 til 16 og 20 til
22.
Á laugardag kl. 16 fer fram
leikur í Islandsmótinu í íshokkí
og eigast þar við Skautafélag
Akureyrar og ísknattleiksfé-
lagið Bjöminn, en þessum leik
hefur tvívegis orðið að fresta
og nú síðast vegna veðurs, þ.e.
veðrið var of gott.
KOTASÆLA
fitulítil og freistandi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA - fitulítil og freistandi
AUK k9d2l-