Morgunblaðið - 24.01.1992, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) **
Hæfíleiki þinn til að ráða fram
úr vandamálum hjálpa þér við
að sigrast á öllum erfiðleikum
í dag. Það er ákjósanlegra að
ganga hreint til verks en fara
að öllu laumulega.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér tekst að greiða úr vand-
ræðum milli þín og vinar þíns.
Það sem gerist á bak við tjöld-
in kemur þér vel fjárhagslega.
Kynntu þér rækilega hvemig í
því liggur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Eitthvað sem varðar hjónaband
þitt veldur þér áhyggjum, en
vinur þinn gefur þér gagnleg
ráð. Þér vegnar vel í félags-
starfi núna, en þú kannt að
verða fyrir töfum í vinnunni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Hlíí
Sambland af heppni og sjálfs-
aga skipar þér í fremstu röð í
dag. Þú átt í erfiðleikum með
einn af samstarfsmönnum þín-
um.
LjÓtl
(23. júlí — 22. ágúst)
Þunglyndi þitt og auðsæran-
leiki verða ekki til að létta þér
sporin í ástarsambandi þínu.
Reyndu að finna rökrétta út-
gönguleið.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Þú ert ósammála nánum ást-
vini um eitthvað sem tengist
heimilinu. Þið kynnuð að hafa
gagn af því að leita til sérfræð-
ings. Þú getur búist við stöðu-
hækkun.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú ert afar óhress út af ein-
hveiju í vinnunni í dag, en líður
vel með ástvini þínum. Þú nýt-
ur hjálpar hans við að skoða
og skilgreina hvað að er.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®Kj0
Láttu fjárhagsáhyggjurnar
ekki sliga þig, heldur einbeittu
þér að því að fínna aðferð til
að auka tekjur þínar. Ef þú
leggur þig fram getur þér mið-
að vel áfram í dag.
Bogmaður
(22. nóv. — 21. desember)
Þú þarft að komast að heiman
um stundarsakir til að fá betri
yfírsýn og þar með dýpri skiln-
ing á því sem að er. Hresstu
þig á útiveru og íþróttum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Láttu sjálfsefa og taugaóstyrk-
leika ekki grafa undan getu
þinni til að hugsa skýrt. Þú átt
auðveldast með að einbeita þér
síðdegis.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þaða kemur upp kali milli þín
og einhvers vina þinna. Þið
gætuð komið öllu í lag á milli
ykkar með því að tala saman
í einlægni. Farðu varlega í fjár-
málunum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’SP
Þó að þér fínnist yfirmenn þín-
ir ekki meta þig að verðleikum
geturðu skilað góðu dagsverki.
Verkin þín tala skýrustu máli
um hvað í þér býr.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dcegradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLEISIS
/2-20
-*sr-
f /HER £/?
/HEtN/LLA \/tQ
þ/tÐ þEG/IR-
ÞÆfí. H/tG/t
i SéR St/O/Wt
-----------y
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
0,NEI, SE6BU ekM-l AÐ
skYtÞtrteNNt SA/ns seu /te>
ta>/*A t tiEtAtsóKN/
Co~flLVE6 E1H$\ ... þfl£> ER. þESSI /nc/NN-ST
{OGÉG HÉU-..CJ - l//í>/ FRÆHÞ! HANS!
LJOSKA
' SVOSEM OStcOSUSFA
'A Ht/EKFAHDA H/et-t 06
(SVBFADtRJNN <SFKBO
FERDINAND
■ T •;.Fr“T zz— r?
SMAFOLK
All hís life he tried
to be a qooá person.
Many times, however,
hefailed,forafter all,
he was only human.
He wasn’t a dog.
Hann reyndi að vera góður alla ævi.
Honum mistókst samt sem áður
mörgum sinnum, því að hann var
aðeins mannlegur.
Hann var ekki hundur.
BRIDS
Á síðustu árum hefur engin
nýjung í sögnum náð jafn víð-
tækri útbreiðslu og Roman lykil-
spilaspurningin. Margir spilarar
hafa lagt hefðbundna ásaspurn-
ingu á hilluna og nota 4 grönd
þéss í stað sem spurningu um
lykilspil: ása, trompkóng og
trompdrottningu. Nýlega kom
út í Bandaríkjunum bæklingur
eftir Edwin Kantar sem fjallar
eingöng um um þessa sagn-
venju. Þótt sjálf sagnvenjan sé
fljótlærð geta komið upp stöður
þar sem ýmislegt orkar tvímæl-
is. Til dæmis er ekki alltaf ljóst,
hvaða litur hefur verið sam-
þykktur sem tromp, eða hvenær
4 grönd ættu að vera eðlileg
sögn. Kantar fjallar um slík
álitamál, auk þess að benda á
fleiri notkunarmöguleika:
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ ÁKD
Vestur VÁK42
♦ G10972
¥G98
♦ AD65
♦ 6
Vestur
Austur
♦ 865
¥10
♦ K1087
♦ G5432
♦ -
♦ KD10987
Suður
♦ 43
¥ D7653
♦ G9432
♦ Á
Norður Austur Suður
2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 5 tfglar Pass 5 spaðar
Pass 5 grönd Pass 7 hjörtu
Pass Pass Pass
Stökk norðurs í 5 tígla er það
sem enskumælandi menn nefna
„Exclusion Roman Key Card
Blackwood," hvorki meira né
minna. Það er að segja, spurning
um lykilspil fyrir utan tígul.
Þannig vill Kantar nota slík
stökk í fimm í nýjum lit, og er
það svo sem ágæt hugmynd.
Með einn virkan ás svarar
suður á öðru þrepi, en síðan
spyr opnari um hjartadrottning-
una með 5 gröndum. Suður á
hana og getur því sagt sjö.
Við 4 gröndum er venjan að
svara lykilspilum þannig:
5 lauf = ekkert eða þijú lykil-
spil (ásar eða trompkóngar)
5 tíglar = eitt eða fjögur lykilspil
5 hjörtu = tvö lykilspil án tromp-
drottningar
5 spaðar = tvö lykilspil með
trompdrottningu
Við svari á fyrstu tveimur
þrepum er síðan hægt að spyija
um trompdrottninguna með því
að melda ódýrasta nýjan lit.
SKAK
Á Hastings-mótinu um áramót-
in kom þessi staða upp í viðureign
stórmeistaranna Simens Agde-
steins (2.590), Noregi, sem hafði
hvítt og átti leik, og Julians
Hodgsons (2.570), Englandi.
Með peði meira og biskupaparið
lofar hvíta staðan góðu og enda-
lokin urðu snögg: 31. fxgö! —
Hxg4, 32. Bf6! og Hodgson gafst
upp. Evgení Bareev lék sama.leik-
inn og árið áður í Hastings og
sigraði með yfirburðum. Hann
hlaut 10 Vz v. af 14 mögulegum.
Úrslitin hljóta að hafa orðið ensk-
um skákáhugamönnum mikil von-
brigði: 2. Agdestein 9 v. 3. Shirov,
Lettlandi, 8V2 v. 4.-5. Speelman
og Adams 7 v. 6. Chandler 6V2
v. 7. Hodgson 4 v. 8. Súetin,
Rússlandi, 3 '/2 v. Stigahæstur
keppenda á mótinu var hinn 19
ára gamli Alexei Shirov sem er [
7.-10. sæti á alheimsstigalistan-
um. Hann er einmitt væntanlegur
á Reykjavíkurskákmótið sem
hefst 1. mars. Gert er ráð fyrir
því að þátttakendur verð 12, þar
af 8 stórmeistarar.