Morgunblaðið - 24.01.1992, Síða 40
LVKILUIWI \i> GÓIXJ KVÖl.iH
✓ ••
LETTOH
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1992
VRRÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
1.355
millj.
Flugleiðir;
Sótt um lækkun til
samræmis við S AS
FLUGLEIÐIR hafa sótt um lækkun á fargjöldum milli íslands og
hinna Norðurlandanna til samræmis við þá fargjaldalækkun sem
SAS-flugfélagið hefur boðað. Samkvæmt upplýsingum frá Flugleið-
um verður lægsta verð á flugleiðinni frá Islandi til Norðurlandanna
samkvæmt þessu 29 þúsund krónur, en í dag er það 32 þúsund krónur.
Bandormur á Austurvelli
Morgunblaðið/Sverrir
Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð pijónuðu bandorm sem þau skemmtu sér með á Austurvelli
í gær á meðan alþingismenn afgreiddu sinn „bandorm" í Alþingishúsinu. Alþingi samþykkti „bandorminn“
sem frumvarp stjómarinnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992 er gjarnan nefnt manna á meðal.
Sjá fréttir á þingsíðu, bls. 24, og Akureyrarsíðu, bls. 25.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur SAS kynnt
nýtt fargjald sem felur í sér lækkun
fargjalda á nokkrum flugleiðum
félagsins milli Norðurlanda og Evr-
ópu, en nýja fargjaldið er háð því
að einnig sé keypt hótelgisting.
Sala á fargjöldunum hefst 3. febrú-
ar og er Reykjavík meðal þeirra
Galtalækjarskógur:
Tvö salernis-
hús brunnu til
kaldra kola
TVÖ ný salernishús í eigu templ-
ara í Galtalækjarskógi brunnu
til kaldra kola einhverntíma á
tímabilinu frá sl. laugardegi til
fimmtudags. Ekki er vitað hve-
nær eldur kviknaði í húsunum,
sem metin eru á tvær milljónir
króna en komið var að köldum
brunarústum um hádegi á
fimmtudag.
borga sem SAS býður þessi far-
gjöld til frá Evrópu, en upplýsingar
um þau lágu ekki fyrir í gær hjá
skrifstofu SAS hér á landi. Ekki
verður ljóst fyrr en í næstu viku
hvort nýju fargjöldin verða boðin
hér á landi, en til þess þarf leyfi
samgönguráðuneytisins.
Flugleiðir hafa sótt um lækkun
fargjaldanna bæði til stjórnvalda á
hinum Norðurlöndunum hvað varð-
ar ferðir til landsins, og til ís-
lenskra stjómvalda varðandi ferðir
héðan. Um samskonar fargjöld
verður að ræða og hjá SAS, nema
hvað þau verða ekki háð því að einn-
ig sé keypt gisting á hóteli. Ef leyfi
fæst fyrir þeim er reiknað með að
þau taki gildi frá 3. febrúar í ótiltek-
inn tíma, en miðað er við að bókað
sé í þau 7-14 dögum fyrir brottför.
Hluthafar Sameinaðra verktaka hf:
Hafa fengið
skattfriálsar á 5 árum
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu á Hvolsvelli er ekki talið úti-
lokað að kviknað hafi í vegna eld-
inga á þessu svæði aðfaranótt
fimmtudags. Ekkert hefur komið
fram sem bendir til að um íkveikju
hafí verið að ræða. Húsin eru byggð
úr timbri, en ekkert rafmagn var á
húsunum. Rannsókn brunans
stendur yfír og er líklegt að Rann-
sóknarlögregla ríkisins verði einnig
fengin til aðstoðar.
SAMEINAÐIR verktakar hf. hafa
undanfarin fimm ár haft þann
háttinn á að hækka hlutafé sitt á
hluthafafundum og lækka um leið
aftur, með því að greiða hluthöf-
um sínum út ákveðinn hluta hækk-
unarinnar. Samtals hafa hluthafar
félagsins á þennan hátt fengið á
undanförnum fimm árum 1.355
milljónir króna skattfijálsar,
framreiknað til núvirðis.
Árið 1988 var ákveðið að hækka
hlutafé félagsins um 180 milljónir
króna og færa það niður aftur um
90 milljónir króna, með greiðslum til
hluthafa. Á núvirði eru þær 90 millj-
ónir sem þá voru greiddar 146 millj-
ónir króna. Árið 1989 var hlutafé
hækkað um 119 milljónir króna, og
lækkað um 119 milljónir króna sem
voru greiddar út. Á núvirði eru 119
milljónimar 162 milljónir króna. Árið
1990 var hlutafé hækkað um 105
milljónir og lækkað aftur um 95
milljónir sem voru greiddar út. Á
núvirði væru það 108 milljónir króna.
Árið 1991 var heimildin til útgáfu
jöfnunarhlutabréfa hins vegar á þrot-
um, samkvæmt áliti ríkisskattstjóra
og var hlutaféð því einungis hækkað
um 38 milljónir króna, sem þó var
örlítið umfram það sem ríkisskatt-
stjóri taldi heimilt. Á núvirði eru 38
milljónirnar rúmar 40 milljónir
króna. Nú síðast var hlutaféð svo
hækkað um 900 milljónir króna og
fært niður um sömu upphæð aftur,
með greiðslum til hluthafa.
Samtals hafa Sameinaðir verktak-
ar hf á þessum árum því greitt aftur
til hluthafa sinna með þessum hætti
1.242 milljónir króna, sem fram-
reiknaðar til núvirðis eru 1.355 millj-
ónir króna.
Sjá lista yfir greiðslur til hlut-
hafa og frétt á miðopnu og frétt
á bls 2.
Fljótandi hót-
el í Reykjavík
STÓR lystisnekkja, 120 feta, mun
liggja í Reykjavíkurhöfn næsta
sumar á vegum Hótels Leifs Ei-
rikssonar.
Snekkjan verður fyrst og fremst
notuð sem hótel, en ennfremur er
ráðgert að nota hana í skoðunarferð-
ir og til samkvæmishalds. Hótelið
tók skipið á leigu gegnum breskan
samstarfsaðila.
Nú þegar hafa fjölmargir gestir
bókað sig á fljótandi hótelið.
Sjá „Fþ'ótandi hótel ...“ bls. B2.
Mann tók út af þýsku skipi við Þorlákshöfn:
Skipið rafmagnslaust
og siglingartæki óvirk
Gerd Schepers, þýskt skip í leigu Eimskipafélagsins.
BRASILÍSKAN sjómann tók út
þegar brot reið yfir 3.000 tonna
þýskt skip, Gerd Schepers, úti
fyrir Hafnarnesi í Þorlákshöfn
í foráttuveðri, um kl. 18.30 í
gær. Annar skipveiji slasaðist
lítilsháttar. Fékk skipið brotið á
sig um 1,5 sjómílur austan við
Hafnarnes. Björgunarsveitar-
menn frá Þorlákshöfn, Eyrar-
bakka og Stokkseyri gengu fjör-
ur í gærkvöldi. Beiðni um aðstoð
barst Landhelgisgæslunni, en að
sögn vaktmanns var ekki flug-
veður til að senda björgunar-
þyrlu. Maðurinn var ekki í flot-
galla.
Skipið slitnaði frá bryggju í Þor-
lákshöfn, um kl. 18.30, í veður-
hamnum sem gekk yfír landið í gær
og síðustu nótt. Skipinu var þá siglt
fyrir eigin vélarafli út úr höfninni.
Um 1,5 sjómflur austur af Hafnar-
nesi reið brot yfir skipið með þeim
afleiðingum að maðurinn fór út-
byrðis og annar slasaðist. Við brot-
ið komst sjór í ljósavélar skipsins
og sló rafmagnið út.
Ms. Stuðlafoss var í grennd við
slysstað og kom skipinu til aðstoð-
ar. Sigldi það á undan á eins til
tveggja sjómílna hraða, áleiðis til
Hafnarfjarðar. Jón Vigfússon,
skipstjóri á Stuðlafossi, sagði að
öll siglingartæki um borð í þýska
skipinu væru óvirk nema segul-
kompásinn. „Málið er að hitta á
rétta leið. Það er talsvert mikill
sjór og um 10 vindstig. Við eigum
eftir um 70 mflur til Hafnafjarðar.
Við komumst varla mikið hraðar,"
sagði Jón. Talið er að skipin verði
komin þangað einhvem tíma í dag.
Ekki reyndist unnt að leita af
hafi vegna veðurlags, en félagar
úr Slysavarnadeildinni Mannbjörg
í Þorlákshöfn, ásamt, félögum í
björgunarsveitum á Stokkseyri og
Eyrarbakka, alls um 40 manns,
i i -—i----1 i i
0 5km
Þýska leiguskipið Gerd Schepers
fékk á sig brotsjó 1,5 sjómílur
austur af Hafnarnesi um kl. 18.30
í gær. Einn maður féll útbyrðis og
annar slasaðist lítillega.
gengu fjörur.
Um borð í Gerd Schepers var
íslenskur farmstjóri, fulltrúi Eim-
skipafélagsins, sem kom um borð
í Þorlákshöfn, Þorgeir Axel Örlygs-
son. Þorgeir var ásamt skipstjóran-
um í brúnni þegar Morgunblaðið
náði tali af honum í gærkvöldi, en
þá var skipinu stýrt með handafli
í humátt á eftir Stuðlafossi. „Það
er hérna vestan foráttuveður og
alveg haugasjór. Við erum á að
giska 1-2 mílna hraða. Annars vil
ég helst ekki tjá mig um þetta,
skipstjórinn verður að gera það.
Hann er vant við látinn við stýrið,"
sagði Þorgeir.
Skipið hafði losað salt í Þorláks-
höfn fyrr um daginn og er ráðgert
að það losi salt í Hafnarfírði og á
Rifi.