Morgunblaðið - 31.03.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
27
Veiðibann
um páska
ekki lengra
en 10 dagar
Sjávarútegsráðuneytið tekur í
þessari viku afstöðu til tillagna
samráðshóps uni bætta um-
gengni um auðlindir hafsins um
víðtækt þorskveiðibann um
páska. 10 daga veiðibann króka-
leyfisbáta tímabilið 11. til 20.
apríl hefur þegar verið ákveðið
ineð reglugerð, en það fellur á
sama tímabil og tillögur sam-
ráðshópsins gera ráð fyrir veiði-
banninu.
Árni Kolbeinsson, ráðuneytis-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
segir það misskilning, sem fram
kom í frétt Morgunblaðsins síðast-
liðinn sunnudag af fundi með sjáv-
arútvegsráðherra á Isafirði í síðustu
viku, að hugsanlegt þorskveiðibann
leggist við krókaleyfisbannið. Sam-
kvæmt reglugerð standi bann við
krókaveiðum smábáta yfir 11. til
20. apríl og leggji samráðshópurinn
til að þorskbannið um páskana komi
á sömu dag. Því verði krókaleyfis-
bátar ekki fyrir frekari sóknartak-
mörkunum, en þegar hafi komið
fram í regiugerð um veiðar þeirra.
frá því um áramót.
» ♦ ♦
Tveir bátar
við ólögleg-
ar laxveiðar
Morgunblaðið/lngvar
Slasaðist á vélsleða
Maður slasaðist nokkuð þegar vélsleði, sem hann ók, valt í Bláfjöllum
um kl. 17.30 á sunnudag. Maðurinn rifbeinsbrotnaði, auk fleiri meiðsla,
og var fluttur á slysadeild Borgarspítalans. Á myndinni sést er maður-
inn var fluttur í snjóbíl, sem ók honum til móts við sjúkrabíl.
Staðhæft að foreldrar
skrái sig sem einstæða
TVEIR bátar eru taldir vera við
ólöglegar laxveiðar á alþjóðlegu
hafsvæði milli íslands og Noregs,
að sögn Orra Vigfússonar, for-
manns Samtaka um kaup á út-
hafslaxveiðikvóta. Bátarnir, sem
heita Brodal og Bermuda, eru
skráðir í Panama.
„Við erum 99% öruggir um að
þetta séu þessir tveir bátar, en
Brodal kom inn til Bodö 3. mars
síðastliðinn að taka eldsneyti.
Norski flugherinn ætlar að fljúga
þarna yfir, en það eru Natoæfingar
á þessu svæði og þess vegna hefur
ekki fengist leyfi til að lækka flug-
ið þarna. Ég er einnig með pressu
á dönsku stjórnina að þeir sendi
eftirlitsskip frá Færeyjum enda er
þeim málið skyldast," sagði Orri.
í niðurlagi bréfs til ráðherranna
segir: „Þar sem ríkið sér sér hag í
því að stofna nefndir og gera út
fólk til þess að hafa upp á einstakl-
ingum sem ekki greiða afnotagjöld
af sjónvarpstækjum sínum, en það
gefur ríkinu 1.700 kr. af hveiju
tæki á mánuði, hlýtur að borga sig
að taka þetta mál til athugunar þar
sem í þessum tilfellum er um millj-
ónir að ræða.
Þessu misrétti verður vart lengur
unað og því mótmælum við þessu
kröftuglega."
STAÐHÆFT er í bréfi frá fjórða tug manns til þriggja ráðherra,
að stór hópur sambýlisfólks skrái sig til heimilis á sitt hvorum staðn-
um til að fá með óheiðarlegum hætti barnabætur og barnabóta-
auka. Ennfremur er tekið fram að þessir aðilar komi börnum sínum
inn á dagvistarheimili á fölskum forsendum og taki upp pláss frá
þeim sem rétt hafi á slíkri þjónustu, þ.e. einstæðum foreldrum.
og holl hreyfing hamlar gegn
beinþynningu.
Byggðu upp - borðaðu ost.
Margrét Arnþórsdóttir, fulltrúi
sendenda bréfsins, sagði að flestir
vissu einhver dæmi um misnotkun
af þessu tagi. Þannig hefði hún sem
meðferðarfulltrúi á barnaheimili
kynnst fjölmörgum dæmum um
konur, sem ættu eiginmenn á kvöld-
in, en væru einstæðar á morgnana.
Þær kæmu börnum sínum á barna-
heimili og tækju pláss frá einstæð-
um mæðrum. Nefndi hún sem dæmi
að nú væri hún í stökustu vandræð-
um með að koma barni einstæðs
foreldris á barnaheimili, þar sem
foreldrar fimm barna hefðu fengið
barnaheimilispláss á fölskum for-
sendum. Einir 'foreldrar ættu tvö
barnanna og annað þeirra væri
heima allan daginn.
Fulltrúar sendendanna hafa hitt
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, Jóhönnu Sigurðardóttur, fé-
lagsmálaráðherra, og Þorkel Helga-
son, aðstoðarmann heilbrigðisráð-
herra, að máli og Margrét segir að
þau hafi viðurkennt að um vanda-
mál væri að ræða, en stæðu ráð-
þrota gagnvart því. „En hér er auð-
vitað um þjófnað að ræða,“ segir
Margrét, „og einhver verður að
borga. Þess vegna verðum við líka
að finna einhveija lausn á málinu,"
segir hún.