Morgunblaðið - 31.03.1992, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
Waldheim með Kolil
Gagnrýni
gyðinga
vísað á bug
OPINBERRI heimsókn Kurts
Waldheims, forseta Austurrík-
is, til Þýskalands hefur verið
tekið illa af gyðingum, jafnt á
Vesturlöndum sem í Israel.
Hefur Heinz Galinski, formaður
í samtökum þýskra gyðinga,
gagnrýnt Helmut Kohl kansl-
ara harðlega en Johannes
Gerster, formaður þýsk-ísrael-
skrar vináttunefndar þýska
þingsins, hefur vísað gagnrýn-
inni á bug. Sagði hann, að
Galinski hefði að þessu sinni
átt að bregða út af vananum
og þegja. Waldheim hefur ekki
gert víðreist í embætti vegná
ásakana um, að hann hafi reynt
að fela nasíska fortíð sína en
Kohl leggur áherslu á, að það
sé hans að ákveða hvort hann
vill finna að máli leiðtoga
grannlandanna. Þá hefur hann
einnig sakað heimsráð gyðinga
um að hafa verið andvígt sam-
einingu þýsku ríkjanna.
Styður EB-
aðild Pólverja
RICHARD von Weizácker, for-
seti Þýskalands, styður heils-
hugar umsókn Pólveija um að-
ild að Evrópubandalaginu, EB.
Kom þetta fram í viðræðum
hans við Lech Walesa, forseta
Póllands, sem kom um helgina
í opinbera heimsókn, fyrstu
heimsókn pólsks forseta til
Þýskalands frá 1918. Þjóðvetj-
ar leggja mikla áherslu á, að
vægi EB í Austur-Evrópu verði
aukið og vilja, að Pólveijar,
Tékkóslóvakar og Ungverjar
verði orðnir aðiiar fyrir lok ára-
tugarins. Með heimsókninni
vonast Walesa til að geta aukið
fjárfestingu þýskra fyrirtækja
í Póllandi en talsmenn þeirra
segja, að fyrst verði að koma
reiðu á efnahagsmálin í land-
inu.
Winnie fékk
fé frá Gaddafi
MUAMMAR Gaddafi Líbýu-
leiðtogi greiddi kostnaðinn við
vörnina í málinu gegn Winnie
Mandela, eiginkonu suður-
afríska blökkumannaleiðtogans
Nelsons Mandela, en hún var
sökuð um mannrán og líkamsá-
rás. Er þetta haft eftir söku-
naut hennar, Xoliswa Falati,
en hún segir, að Gaddafi hafi
látið af hendi í þessu skyni
rúmlega 19 miiljónir ISK. Líbý-
ustjórn hefur lengi stutt Af-
ríska þjóðarráðið, ein helstu
samtök blökkumanna í Suður-
Afríku, og þau Mandela-hjónin
hafa oft tekið svari Líbýustjórn-
ar í deilum hennar við Vestur-
lönd.
Rúmenía:
Roman í
forystu
Búkarest
PETRE Roman, fyrrum for-
sætisráðherra Rúmeníu, stóð af
sér atlögu frá vinstrimönnum
og hélt velli sem leiðtogi Endur-
reisnarráðsins á flokksþingi
þess sem lauk á sunnudag.
Flokksþingið samþykkti tillögur
Romans um stefnu í efnahagsmál-
um með miklum meirihluta. Verða
þær uppistaðan í stefnuskrá sam-
takanna fyrir þing- og forseta-
kosningar sem búist er við að boð-
aðar verði síðar á árinu.
Roman boðar róttækar og skjót-
ar efnahagsumbætur en vinstri-
menn, sem styðja Ion Iliescu for-
seta, vilja að hægt verði á breyting-
um sem miða að því að koma á
markaðsbúskap í landinu. Tillögur
Romans voru samþykktar með 64%
atkvæða og gengu andstæðingar
hans af fundi þegar úrslitin lágu
fyrir. Við það tækifæri hrópuðu
stuðningsmenn flokksleiðtogans
„burt með kommana“.
Jafnframt var lögum flokksins
breytt á þann veg að héðan í frá
verður forsetaefni hans að vera
yfirlýstur stuðningsmaður stefnu
flokksins. Það þykir boða illt fyrir
Iliescu sem viljað hefur fara aðrar
leiðir en Roman í efnahags- og
félagsmálum.
Reuter
Stuðningsmenn Petre Romans fagna á þingi Endurreisnarráðsins eftir að stefna forsætisráðherrans
fyrrverandi hafði orðið ofan á.
Israel:
Deila Shamirs og Levys eykur
vonir Yerkamannaflokksins
Jerúsalem. Reuter.
ISRAELSKI Verkamannaflokkurinn fer hugsanlega með sigur af
hólmi í þingkosningunum í júní vegna klofnings innan stjórnarflokks-
ins, Likudflokksins. Stendur hann á milli þeirra Yitzhaks Shamirs
forsætisráðherra og Davids Levys utanríkisráðherra en Levy lýsti
yfir á sunnudag, að hann ætlaði að segja af sér embætti.
Afsögn Levys tekur ekki gildi
fyrr en eftir sjö daga en stjórnmála-
skýrendur segja, að jafnvel þótt
þeir Shamir komist að einhveiju
samkomulagi sé ágreiningurinn
milli þeirra svo mikill, að hann geti
ekki annað en skaðað Likudflokk-
inn. Levy bauð sig fram gegn
Shamir í formannskosningum í
flokknum nýlega og tapaði með
Albanía:
Kommiuustar
gjörsigraðir
Tirana. Reuter.
miklum mun og honum tókst ekki
að koma sínum stuðningsmönnum
á framboðslista flokksins í síðasta
mánuði. Hann krefst þess einnig
að fá að ráða eða skipa sínum
mönnum í þriðjung ráðherraemb-
ætta myndi Likudflokkurinn aftur
stjórn en á það vill Shamir ekki
hlusta. Samt telja flestir, að án
stuðnings hans geti Shamir ekki
unnið kosningaslaginn við Yitzhak
Rabin, nýkjörinn formann Verka-
mannaflokksins.
David Levy hefur mestan stuðn-
ing með gyðinga, sem eiga rætur
að rekja til Norður-Afríku og ann-
arra arabaríkja, en þeim hefur lengi
fundist sem þeir væru annars flokks
borgarar miðað við evrópsku gyð-
David Levy, utanríkisráðherra-
Israels.
ingana. Hafa sumir þeirra hvatt
Levy, sem er fæddur í Marokkó, til
að segja skilið við Likudflokkinn
og stofna nýjan, sem sérstaklega
gætti hagsmuna þessa hóps. Hefur
hann lengi verið í meirihluta meðal
landsmanna en aðstreymi gyðinga
frá Sovétríkjunum fyrrverandi kann
að breyta einhveiju um það.
I skoðanakönnunum að undan-
förnu hefur Likudflokkurinn haft
örlítið meira fylgi en Verkamanna-
flokkurinn en þessi deila getur
hæglega snúið hlutföllunum við.
Levy er nokkru sveigjanlegri en
Shamir í afstöðunni til hernumdu
svæðanna en stjórnmálaskýrendur
segja, að átökin milli þeirra snúist
um völd en ekki pólitík. Segja þeir,
að Levy vilji verða forsætisráðherra
en hafi hins vegar ekki trú á, að
Likudflokkurinn sigri í kosningun-
um í sumar. Því telji hann það sterk-
ast fyrir sig að vera utan ríkisstjórn-
ar en innan flokksins.
SÍÐARI umferð albönsku þing-
kosninganna fór fram á sunnu- -w- • * 0 "■ p •
ssiKsríis; Leita nvrra upplysinefa um
Lýðræðisflokknum. •/ JL 1. (/ ^ t
Alls hefur því Lýðræðisflokkur-
inn nú 92 þingsæti af 140 og skort-
ir því aðeins eitt sæti til að vera
með tvo þingmenn af hveijum
þremur. Fylgi flokksins í kosning-
unum um síðustu helgi var 62%
samkvæmt lokatölum en kommún-
istar, sem farið hafa með vöid í
48 ár, fengu einungis 25%. í síð-
ari umferð kosninganna var kosið
í ýmsum héruðum eða kjördæmum
þar sem fylgi kommúnista var
mikið í síðustu kosningum en að
þessu sinni töpuðu þeir alls staðar
stórt.
Fyrsti fundur albansks þings,
þar sem sósíalistar verða ekki í
meirihluta, verður haldinn á laug-
ardaginn.
John Demjanjuk í
Jerusalem. Reuter.
ÍSRAELSKIR embættismenn eru á förum til Úkraínu þar sem
þeir munu freista þess að hafa tal af fólki sem hefur borið, að
John Demjanjuk sé ekki sá „ívan grimmi“, sem stjórnaði aftökum
í Treblinka, útrýmingarbúðum nasista í PóIIandi.
Demjanjuk var framseldur frá
Bandaríkjunum árið 1986 og
dæmduý tveimur. árum síðar til
dauða í ísrael fyrir að hafa stjórn-
að aftökum á 900.000 Gyðingum
í Treblinka-búðunum. Málinu var
skotið til hæstaréttar og var búist
við að því lyki eftir um mánuð.
Verjandi Demjanjuks hefur frá
upphafi haldið því fram að verið
væri að fara mannavillt. John
Demjanjuk, sem fæddist í Ukraínu
og var skírður Ivan, sé saklaus.
Nýlega kom svo í Ijós vitnis-
burður 23 Úkraínumanna sem
störfuðu í Treblinka og staðfestu
að í hlutverki „Ivans grimpa“
hefði verið maður að nafni ívan
Martsjenkó, fjögurra barna faðir
sem var níu árum eldri en Demj-
anjuk, sem var einhleypur. Þessi
vitnéskja hefur valdið uppnámi í
Ukraínu
ísraelska dómsmálaráðuneytinu.
Veijandi Demjanjuks ítrekaði
um helgina kröfuna um að hann
yrði látinn laus þegar í stað og
sakaði saksóknara um að reyna
draga málið á langinn með því að
senda fulltrúa sína til Rússlands.
„Þeir ákærðu manninn fyrir að
hafa myrt 900.000 Gyðinga á stað
sem hann hefur aldrei stigið fæti
á. Og þrátt fyrir að hafa verið
gripnir með allt niðr um sig þver-
skallast þeir við og reyna að þæfa
málið,“ sagði verjandinn.