Morgunblaðið - 31.03.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
9
Þakka innilega heillaskeyti, gjafir og heim-
sóknir á 90 ára afmœli mínu 24. niars st.
Lifiö heil.
Anna Jóhannesdóttir,
Syðra-Langholti.
Ódýr gardínuefni
Nýkomin ódýr falleg gardínuefni
og kappar.
Verð frá kr. 390.
Einnig dúkar á góðu verði.
Álnabúðin,
heimilismarkaður,
SuðurverLsími 679440.
J
Blombera
%
ÞYSKAR
WERÐLAUNA
VÉLAR !
Blomberg þvottavélarnar hlutu
hin eftlrsóttu, alþjóðlegu IF
hönnunarverðlaun fyrir framúr-
skarandi glæsilega og hugvit-
samlega hönnun.
Við bjóðum nú gerð WA-230 með
kostum, sem skapa henni sér-
stöðu:
* Tölvustýrður mótor * yfirúðun *
alsjálfvirk magnstilling á vatni *
umhverfisvænt sparnaðarkerfi.
Verð aðeins kr. 69.255 stgr.
Aðrar gerðir frá kr. 58.615 stgr.
J:ís
Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni28 S622901 og 622900
i
* A
V
m u
Spor í
RÉTTA
T j.'vA ••
O . '
f i
>1«
ATT
NYTT
JALLATTE
ÖRYGGISSKÓRNIR
FRÁ DYNJANDA
Skeifan 3h-Slmi 812670
UTANRÍKISMÁL
SKÝRSLA
JÓNS BALDVINS HANNIBALSSONAR
UTANRÍKISItÁDHI-RRA
1U ALÞINGIS 1992
RKYKJAVÍK
MARS 1V92
Sjávarútvegsstefna
Evrópubandalagsins
Eitt stærsta vandamál, sem steðjar að
sjávarútvegi í Evrópubandalaginu, er
hrun fiskistofna með tilheyrandi sam-
drætti í veiðum og tekjum atvinnugrein-
arinnar. Staksteinar tíunda í dag fáein
brot úr þeim kafla í skýrslu Jóns Baldvins
Hannibalsson um utanríkismál sem fjallar
um sjávarútvegsstefnu EB.
Hömlur á
veiðisókn
I skýrslu utanríkisráð-
herra segir m.a.:
„Eins og fram keniur
i eftii'farandi yfirliti hef-
ur bandalagið (EB) enn á
ný verið knúið til að að
draga úr veiðiheimildum
fyrir þorsk, ufsa og lýsu
en kvóti fyrir ýsu, síld
og makríl var aukinn.
Ráðherrarnir settu einn-
ig reglm- um að skipum,
sem veiða þorsk og ýsu
í Norðursjó, Kattegat og
Skagerak, sé skylt aö
vera í höfn 8 daga í mán-
uði samtals 135 daga á
árinu 1992. Fram-
kvæmdastjórn EB gerir
ráð fyrir að með þessum
reglum verði hægt að
draga úr ásókn flotans
um allt að 30%.
A fundinum í desem-
ber var einnig gengið frá
úthlutun veiðikvóta fyrh'
árið 1992 samkvæmt
samningum við Norð-
menn, Svía, Færeyinga
og Grænlendinga. Eins
og á undanförnum árum
var veiðikvóta aðeins
skipt milli „gömlu aðild-
arríkjanna", þ.e. kvóta
var hvorki úthlutað til
Spánar né Pórtúgals."
Styrktur út-
vegur
„Fjárlög EB fyrir árið
1991 gerðu ráð fyrir að
útgjöld vegna sjávarút-
vegsstefnunnar væru um
346 millj. ECU, eða um
25.800 millj. kr„ en það
er innan við 1% af heild-
arútgjöldum bandalags-
ins. Stærsti útgjaldalið-
urinn var greiðslur fyrir
fiskveiðiheimildir.
Til að skapa aukin
verkefni fyrir flota
bandalagsins hefur EB
nú þegai' samið við 23
ríki um veiðiheimildir, en
auk þess er bandalagið
nú í samningaviðræðum
við nokkur riki í Afríku
og S-Ameríku.
Útgjöld EB vegna fisk-
veiðisanminga voru á ár-
inu 1991 tæplega 172
millj. ECU (tæpir 13
milljarðai' króna). Samn-
ingur EB við Marokkó,
sem gildir til febrúar
1992, kostaði um 70 millj.
ECU. Rúmar 34 millj.
ECU voru greiddar fyrir
veiðiheimildir við Græn-
land og 15 millj. ECU
voi'u greiddai' fyrir veiði-
heimildir við Senegal ...
Nýlega samþykkti ráð
EB áætlun um styrkveit-
mgar að upphæð 86,3
millj. ECU á árunum
1991-1993 vegna endur-
bóta á vinnslu og mark-
aðssetningu sjávaraf-
urða. Hér er um að ræða
360 verkefni, þar af 144
í Þýzkalandi, 46 í Bret-
landi, 40 á Spáni og 37 í
Frakklandi. Heildar-
kostnaður þessara fram-
kvæmda er áætlaður
359,6 millj. ECU. Auk
þess samþykkti EB að
veita um 40 millj. ECU
til endurbóta á 16 höfn-
um í Frakklandi, Italiu,
I á Spáni, i Portúgal og
I Bretlandi.“
Fiskveiðiveldi
og sjávarvöru-
markaður
„EB er fjórða stærsta
fiskveiðiveldi í heimi á
eftir Sovétríkjunum,
Kina og Japan. A árinu
1989 veiddu EB-þjóðir
um 7 milljónir tonna.
Danir veiddu mest eða
um 1,9 millj. toiina, Spán-
veijai- um 1,4 millj.
tonna, Frakkar um 875
þús. tonn, Bretar 823
þús. tonn og ítalir um 550
þús. tonn.
EB er mikilvægur
markaður fyrir sjávaraf-
urðir. A sama tíma og
veiði hefur minnkað hef-
ur eftirspurn aukizt og
verðlag hækkað. Á árinu
1990 voru fluttár inn
sjávarafurðir fyrir um
6.433 millj. ECU (um
475.000 millj. kr.). Á
sama ári voru fluttar út
sjávai-afurðir fyrir um
1.204 millj. ECU. Við-
skiptahalli bandalagsins
er því um 5.229 millj.
ECU. Til samanburðai'
iná geta þess að við-
skiptahalli EB fyrir sjáv-
ai'afurðir var á árin 1984
2.282 miilj. ECU.“
Stefnumörkun
og „Kvóta-
hoppsdómur“
„I lok júlímánaðar
1991 kvað Evrópudóm-
stóllinn upp forúrskurð í
svokölluðu „kvótahopps-
máli“, en það er mál sem
höfðað var vegna laga-
setningar Breta 1988
þegar þeir vildu koma í
veg fyrir skráningu
spænskra skipa í Bret-
landi og veiðar þessara
skipa úr fiskveiðkvótum
Breta.
Dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að
Bretai' megi ekki krefj-
ast þess í löggjöf sinni
að eigendur eða útgerð-
armenn skuli vera brezk-
ir ríkisborgarar og að
minnst 75% hluthafa við-
komandi útgerðarfélags
skuli vera brezkir. Þess-
ai' reglur bijóta gegn
reglum EB, sem kveða á
um afnám á hömlum á
réttindum þegnanna til
að stunda atviimu í
hveiju því aðildaiTÍki
sem þeim þóknast og að
ekki megi mismuna eftir
þjóðerni ...
Engai' beinar tillögur
um breytmgar á núgild-
andi sjávarútvegsstefnu
eru lagðar fram (í
skýrslu framkvæmda-
stjómar) heldur verður á
gmndvelli þessai-ar
skýrslu og umræðu sem
fer fram meðal embættis-
manna framkvæmda-
stjómar, sérfræðinga og
embættismanna aðildar-
ríkjanna, auk umræðu
innan samtaka hags-
munaaðila í sjávarútvegi
um endurskoðun sjávar-
útvegsstefnu bandalags-
ins, lagðai’ fram af hálfu
framkvæmdastj órnar-
imiar tillögur um sjávar-
útvegsstefnu sem gilda á
frá 1. janúar 1993. Ráð-
herraráð EB mun síðan
taka ákvarðanir fyrir
árslok 1992.“
Ný gerð barnabílstóla
* Fyrir börn frá fæðingu
til 5 ára aldurs.
* Þægilegar 5 punkta fest-
ingar með axlapúðum.
* Stillanlegur.
* Stólnum má snúa með
bakið fram (->9kg.) eða
aftur (9-18kg.).
* Má hafa fristandandi.
* Vasi á hlið, fyrir leikföng
eða annað.
* Auðvelt að taka áklæðið
af og þvo það.
* Viðurkenndur.
* Verð kr. 9.997 -
Borgartúni 26
Sími: (91) 62 22 62
Mynds.:(91) 62 22 03
ÞEGAR ÞESSI KRUKKA ER TÓM
MUN EINHVER LÍTA BETUR ÚT
Stendhal kynnir með stolti árangur vísindamanna, sem við eigum
að þakka að þessi nýja kremlína varð til.
Þetta er bylting í kremlínu sem styrkir húðina og dregur úr
ótímabœrri öldrun. Og við getum sannað það.
Stendhal B fiiP sími 686334 t