Morgunblaðið - 31.03.1992, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
RÝMINGARSALA
VEGNA FIUTNINGS!
BLÚSSUR 4.600, 990,-
BUXUR 5.900, 990,-
PEYSUR 6.800,2.500,-
KJÓLAR 12.900, 3.9 0 0,-
ULLARJAKKAR 12.908, 3.900,-
RYKFRAKKAR 21.900,5.900,-
TWEEDKÁPUR 21.000,6.990,-
HETTUKÁPUR 11.111,-
KÁPUSALAN
BORGARTÚNI 22, SÍMI 624362.
TOSHIBA
örbylgjuofnar
15gerðir
íslenskar leiðbeiningar.
Kvöldnámskeið i matreiðslu
án endurgjalds hjá Dröfn H.
Farestveit, hússtjórnarkenn-
ara, sérmenntaðri ímatreiðslu
í örbylgjuofnum.
Gott verð - greiðslukjör
\\
Ekuur Farestvett &Co.hf.
Borgartúni 28, si'mi 622901.
LalA4stoppar vWdymar
t:/:t:t:/:/:/:í
0 BOSCH
Vélaleigur
Verktakar
lönaðarmenn
Brotvél 1100 W 1370 slög á
mín. Þyngd 10,8 kg.
QK
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Umboðsmenn um land allt
Heimildarmaður á vakt
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Villi Knudsen’s Iceland. Heim-
ildarmynd eftir Vilhjálm Knud-
sen í enskri útgáfu. Sýnd í Nor-
ræna húsinu. Framleiðsla, stjórn
og kvikmyndataka: Vilhjálmur
Knudsen. Tónlist: Magnús Blönd-
al Jóhannsson. Klipping: Guð-
mundur Bjartmarsson. Hljóð-
vinnsla: Sigfús Guðmundsson.
Klukkustundar löng ensk útgáfa
nýrrar heimildarmyndar eftir kvik-
myndagerðarmanninn Vilhjálm
Knudsen var frumsýnd í Norræna
húsinu sl. þriðjudag. Hún ber heit-
ið „Villi Knudsen’s Iceland" og er
einskonar dagbókarbrot Vilhjálms
frá níunda áratugnum og fram til
1991, fest á filmu.
Þetta er einkar persónuleg mynd
af heimildarmanni á stöðugri vakt
við eldfjallasvæði landsins. Vil-
hjálmur er sjálfur sögumaður
myndarinnar og talar í 1. persónu
og lýsir ferðum sínum með flugvél-
um og bílum um öræfin hvar sem
jarðhræringar gera vart við sig.
Hann fylgist með hreyfingum jarð-
skorpunnar við Mývatn 1988,
jökulhlaupi úr Grímsvötnum og
Græna lóni árið 1986 og svo mætti
lengi telja þar til kemur að há-
punktinum, Heklugosinu í janúar
1991. Heimildarmyndin er fyrst og
fremst lýsing Vilhjálms á íslandi
sem virku eldfjallalandi þar sem
stöðugar hræringar eiga sér stað
undir jarðskorpunni, sem brotist
geta upp í eldgosum næstum hve-
nær sem er og hvar sem er.
Inn í frásögnina klippir hann
hálendisferðir sínar og myndir frá
Skaftafelli og víðar, t.d Grænlandi.
Tilgangurinn með myndinni er að
fræða útlendinga sem hingað koma
um landið og Vilhjálmur bætir í
myndina frásögnum af nokkrum
merkisviðburðum síðasta áratugar
eins og leiðtogafundinum, heim-
sókn páfans og 200 ára afmæli
Reykjavíkur. Stökkin í frásögninni
geta verið ansi stór: Eina stundina
Vilhjámur Knudsen
er Vilhjálmur við Grímsvötn, þá
næstu á Grænlandi og þaðan horf:
inn í kökuskurðinn mikla á Lækjat-
orgi.
Það gerir líka myndina sundur-
lausa að farið er látlaust fram og
aftur í tíma svo áhorfandinn á fullt
í fangi með að setja sig inn í tíma-
röðina. Vilhjálmur klippir saman
við merka filmubúta úr heimildar-
myndum föður síns, Osvaldar, af
Heklugosum, fæðingu Surtseyjar
og gosinu í Heimaey. Hvar sem
hann fer er myndavélin með í
farangrinum, túristar eru teknir
tali, Bláa lónið skoðað, jeppaferð
endar í þoku svo snúa verður við,
hann verður strandaglópur á öræf-
um og fær far með rútubílum.
Þannig minnir myndin á persónu-
legt dagbókarbrot þar sem farið
er úr einu í annað án mikilla teng-
inga.
Vilhjálmur er glettinn sögumað-
ur sem tekur sig mátulega alvar-
lega en er kíminn vel. Myndin er
öðrum þræði um hann sjálfan, starf
hans . sem höfundar heimildar-
mynda og ferðalangs með mynda-
vél um Island. Hún er lýsing á
manni sem hefur ómælda ánægju
af ferðum sínum um landið og ást
á hlutverki sínu og ekki síst við-
fangsefni.
Myndinni verður dreift erlendis
til safna, einstaklinga og sjónvarps-
stöðva en hérlendis verður hún
sýnd á kvikmyndasýningum fyrir
erlenda ferðamenn á vinnustofu
Vilhjálms.
Hlíðarnar mínar fríðu
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Kastali móður minnar - „Le
Chateau de ma mére“
Leikstjóri Yves Robert. Handrit
Robert og Jéróme Tonnerre,
byggt á minningum Marcel
Pagnol. Aðalleikendur Philippe
Caubére, Nathalie Roussel, Didi-
er Pain, Therese Liotard, Julien
Ciamaca, Victorian Delamare,
Jean Rochford. Frakkland.
Gaumont 1990.
í upphafi síðari myndarinnar sem
byggð er á endurminningum
franska skáldsins Marcels Pagnol,
nýtur Marcel (Ciamaca) mikillar
velgengi í skóla, en hugurinn vill
reika til hlíðanna hans fögru í Pro-
vence og sumrinu sem var að líða.
En það birtir yfir tilverunni þegar
fjölskyldan ákveður að bregða sér
í sveitina yfir jólin. Og þegar Aug-
ustine (Roussel) sér hvað drengirnir
hennar braggast og una sér vel úti
í náttúrinni, fær hún með klókind-
um sínum því komið svo fyrir að
Joseph (Cauberé) maður hennar
lætur til leiðast að dvelja þar helgar
og sumur.
Renna nú upp fimm, ljúf ár þar
sem fjölskyldan dvelur öllum sínum
frístundum í fögrum hlíðum fjall-
anna. Drengirnir dafna og þrosk-
ast, Marcel kynnist ástinni í fyrsta
sinn en að lokum er fríinu skyndi-
lega lokið er mamma fellur frá.
Hér er talað sama, alþjóðlega
tungumálið og í Heiðri föður míns,
væntumþykjan og virðingin fyrir
landinu sínu og fjölskyldunni, árs-
tíðunum, vináttunni allsráðandi. í
baksýn jafnan hin fínlega og brot-
hætta Augustine, mamman, sem
þó er gædd meiri ráðkænsku og
útsjónarsemi en aðrir fjölskyldu-
meðlimir. Þá er hliðarsaga af sam-
skiptum borgarbúanna við gamlan
nemanda Josephs og litríka ná-
granna þeirra bráðfyndin og rauna-
leg í senn.
Það hvíla einstakir töfrar yfir
báðum þessum hlýju og manneskju-
legu myndum sem láta engan
,
Wmm mÍÆL'Wi I 1
|B
|i “1
Mamma, Iitla systir, pabbi, sögumaðurinn Marcel ásamt ábúðarmikl-
um nágranna þeirra í hinni undurfögru Kastali móður minnar.
ósnortinn og sá sem þetta skrifar
saknar þess að fá ekki að fylgjast
meira með hinu athyglisverða lífs-
hlaupi skáldsins, náttúruunnendans
og mannvinsins Marcels Pagnol, í
listilegri umfjöllun Roberts. Sú að-
ferð að láta sögumanninn Marcel á
eldri árum, fylgjast með Marcel
æskuáranna, gengur dæmalaust vel
upp. Og allur leikhópurinn glæðir
óaðfinnanlega hinar vönduðu og
kímnu persónur lífi. Hér blandast
saman gleði og sorg, óður til lands
og lýðs í minnisstæðri kvikmynd.
Hrösun á háum hælum
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Háir hælar - „Tacones Lejanos“
Leikstjóri og handritshöfundur
Pedro Almodóvar. Aðalleikend-
ur Victoria Abril, Marisa Pare-
des, Miguel Bose. Spánn 1991.
Það er mikið um að vera í ásta-
lífi persónanna í myndinni Háir
hælar og telst það engin nýlunda
í myndum spánveijans Almodó-
vars. Hér segir af þeim mæðgum
Abril og Paredes. Sú síðamefnda,
fyrrum kunn poppsöngkona, er
komin til baka til Madrid eftir
fimmtán ára fjarvis.tir. I millitíð-
inni hefur samband þeirra Abril
dóttur hennar rofnað og er stúlkan
nú í sambúð með fyrrum ástmanni
móður sinnar. Sá er ekki við eina
fjölina felldur í ástamálum og tek-
ur nú að beita þær mæðgur báðar
amorsbrögðum, auk viðhaldsins,
sem vinnur við hlið Abril í sjón-
varpsþularstarfi.
Þegar karl finnst myrtur em
konurnar þrjár grunaðar um
verknaðinn en Abril játar að lok-
um, á afar dramatískan hátt - í
beinni útsendingu. Til sögunnar
kemur Bose, dómari með meiru,
og ekki allur þar sem hann er
séður.
Myndir Almodóvars hafa ein-
Góðar fréttir fyrir fólk sem þarf kalk
BIOMEGA KALSÍUM + D
24Töflumar innihalda mikið kalsíum :
250 mg af kalsíumjóninni í töflu*.
Auk þess innihalda þær D-vítamín
sem er nauðsynlegt fyrir upptöku
kalks (kalsíums) í líkamann.
* Ráðlagður dagskammtur Manneldisráðs er 800-1000 mg
Bragðgóðar kalktöflur. Hagkvæm kaup
OMEGA FARMA HF
BIOMEGA vítamín fást í apótekinu.
kennst af kaldhæðni, ástríðum og
kvennaraunum öðru fremur. Hér
fer reyndar lítið fyrir erótíkinni
en hinsvegar yfrið nóg af blóðhit-
anum. Annars er stefnan ekki
skýr, heldur latínsk blanda af
gamni og alvöru. Reyndar er
morðdramað hvorki nógu alvarlegt
né fyndið til það hafi umtalsverð
áhrif á áhorfandann. Myndin líður
framhjá í afskaplegum orðaflaumi
og skilur heldur lítið eftir sig. Hún
á bráðskemmtilega spretti, einsog
útsendingaratriðið er Abril játar
morðið á elskhuganum, með keppi-
naut sinn við hliðina að útskýra
játninguna á táknmáli!
Kvenfólkið er tekið mun fastari
tökum hér en karlpeningurinn og
Paredes fer aldeilis á kostum í
hlutverki hinnar sjálfselsku móður
sem tekur hugarfarsbreytingu
undir lokin. Abril stendur sig einn-
ig með prýði. Þau hlutverk sem
Bose fer með eru vægast sagt
ótrúverðug og einkar fráhrind-
andi. Myndin svífur einhvers
staðar í lausu lofti, gjörsamlega
jarðsambandslaus og nær því
sjaldan til áhorfandans.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!