Morgunblaðið - 31.03.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAIIZ 1992
Vinnur þú að spennadi
norrænu samstarfsverkefni?
Fjailar það um menntir
rannsóknir eða
fræðslumál?
Vera má að
Norræni menningarsjóðurinn
geti aðstoðað.
Nánari upplýsingar um
sjóðinn færðu hjá
Nordisk kulturfond
Nordisk Ministerrád
Sekretariatet
Store Strandstræde 18
DK-1255 Kobenhavn K.
Sími +45 33 11 47 11
eða hjá
Menntamálaráðuneytið
Sölvhólsgötu 4
150 Reykjavík
Sími 91-60 95 00
Adalfundur
Aðalfundur íslandsbanka hf.( árið 1992, verður hald-
inn í Súlnasal, Hótel Sögu, mánudaginn 6. apríl 1992
og hefst kl. 16.30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf í samræmi við 19. gr. samþykkta
bankans.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum bankans.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumibar að fundinum og atkvæöaseölar verba
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í úti-
búi íslandsbanka, Kringlunni 7, 1., 2. og 3. apríl næst- |
komandi kl. 9.15 - 16.00 svo og á fundardegi. ?
Ársreikningur félagsins fyrir árib 1991, ásamt tillögum <
þeim sem fyrir fundinum liggja, verbur hluthöfum til ?
sýnis á sama stab.
Reykjavík, 20. mars 1992.
Bankaráb íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
Skákmótinu í Hafnarborg lokið:
Hannes Hlífar efstur
með stórmeistaraáfanga
___________Skák
Bragi Kristjánsson
ALÞJÓÐLEGA skákmótinu í
Hafnarborg lauk á sunnudag með
glæsilegum sigri Hannesar Hlíf-
ars Stefánssonar. Hann hlaut SVt
vinniug og náði með því öðrum
áfanga, af þrem, að stórmeistara-
titli.
I öðru sæti kom Jón L. Arnason
með 8 vinninga og jafnir í 3. til
5. stæti voru Margeir Pétursson,
Þröstur Þórhallsson og Paul
Motwani frá Skotlandi, með 7
vinninga hver.
Sigur Hannesar
Hlífars er verð-
skuldaður, því
hann tefldi af
miklu öryggi.
Þetta þarf ef til
vil ekki að koma
á óvart, því Hann-
es tefldi mjög vel
á Apple-skákmót-
inu fyrri hluta þessa mánaðar. Hann
náði öðrum áfanga að stórmeistara-
titli í Hafnarborg, og vantar nú að-
eins 'þann þriðja. Tefli Hannes eins
vel í framtíðinni og hann gerði á
báðum skákmótunum í þessum mán-
uði, verður þess ekki langt að bíða,
að hann verði sjöundi stórmeistari
íslendinga. Hafnfirðingar ættu að
halda annað skákmót í Hafnarborg
fyrir Hannes, því þar náði hann
lokaáfanga að alþjóðlegum titli á
íslandsmóti 1988! Jón L. Árnason
varð annar, hálfum vinningi á eftir
Hannesi. Jón tefldi jafnt og vel allt
mótið.
Margeir Pétursson, Þröstur Þór-
hallsson og Motwani deildu með sér
3. til 5. sæti. Margeir var daufur
framan af, en sótti sig í lokin. Þrökt-
ur byijaði mjög vel, en missti flugið
við tap í sögulegri skák við Hannes.
Motwani náði ekki jafnvægi í tafl-
mennsku sína að þessu sinni. Hann
er sterkur og hugmyndaríkur skák-
maður, sem getur unnið hvern sem
er á góðum degi.
Stuart Conquest tefldi misjafn-
lega, en alltaf af miklum baráttu-
vilja. Jafnteflin þekkjast varla hjá
honum, aðeins eitt í þessari ferð til
íslands, í tapaðri skák við Levitt.
Jonathan Levitt tapaði snemma
móts fyrir báðum Hafnfirðingunum
og náði sér ekki á strik eftir það.
James Howell missti móðinn við
mótlætið í byijun, og vann sína einu
skák í síðustu umferð, gegn Con-
quest, hinum óútreiknanlega. Helgi
Áss Grétarsson sannaði enn einu
sinni skákhæfileika sína og geysi-
lega keppnishörku. Þessi 14 ára pilt-
ur lét ekki tap í fyrstu tveim umferð-
unum setja sig út af laginu, heldur
fékk 5 vinninga í þeim 9 skákum,
sem eftir voru! Björgvin Jónsson
byijaði illa og sýndi aldrei sína raun-
verulegu skákgetu eftir það. Hafn-
firðingarnir, Björn Freyr og Ágúst
Sindri, börðust vel, en reynsluleysi
þeirra í sterkum mótum sem þessu
komu í veg fyrir betri árangur að
þessu sinni. Hafnarborgarmótið var
mjög vel heppnað í alla staði. Val
keppenda leiddi til skemmtilegrar
taflmennsku. Svo hart var barist,
að einn erlendu keppendanna hafði
á orði, að það væri ekki hægt að
tefla af öryggi í þessu móti, baráttu-
viljinn væri svo mikill og smitandi!
Við skulum að lokum sjá góðan
sigur Hannesar Hlífars á Margeiri
frá 4. umferð mótsins.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Drottningarindversk-vörn
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. a3 - (Petrosjan-afbrigðið,
sem heimsmeistarinn, Garrí Ka-
sparov, vann marga glæsiskákina
með fyrir nokkrum árum. Trú manna
á ágæti þessa byijunarkerfís hefur
minnkað á undanförnuro árum, og
gamla „rólega" afbrigðið, 4. g3, er
orðið algengt aftur.)
4. - Bb7, 5. Rc3 - d5, 6. cxd5 -
Rxd5 (Svartur getur einnig leikið
6. - exd5, en leikurinn í skákinni
býður upp á meiri spennu.)
7. Dc2 - Be7, 8. Bd2 - (Skákfræð-
in gefur jafna stöðu eftir 8. e4 -
Rxc3, 9. bxc3 - 0-0, 10. Bd3 - c5,
11. Bb2 - Dc8, 12. De2 — Ba6, 13.
0-0 - Bxd3, 14. Dxd3 - Da6, 15.
Dxa6 - Rxa6 o.s.frv.)
8. - 0-0, 9. e4 - Rxc3, 10. Bxc3
- Rd7, 11. Hdl - Dc8, 12. Bd3 -
Hd8, 13. 0-0 - c5, 14. d5 - c4
(Önnur leið er hér 14. - Rf8, 15.
Bc4 - exd5, 16. Bxd5 - Rg6, 17.
Re5 - Bxd5, 18. exd5 - Bd6, 19.
f4 - Re7, 20. De2 - Rf5 með jöfnu
tafli (Razúvajev-Helgi Ólafsson,
1989).
15. Be2 - exd5
16. Rd4!? - (Líklega er þessi peð-
fórn Margeirs nýjung í stöðunni. I
skákinni Miles-Pólúgajevskíj, 1990,
kom upp nokkuð jöfn staða eftir 16.
exd5 - Bf6, 17. Rd4 - Bxd5, 18.
Rf5 - Be6, 19. Bxf6 - Bxf5, 20.
Dxf5 - Rxf6, 21. Hxd8-I— Dxd8+,
22. Bxc4 - Dd4, 23. b3 - Hd8, 24.
Df3 - g6 o.s.frv.)
16. - dxe4, 17. Rf5 - Dc5!, 18.
Bg4 - (Eftir 18. Rxg7 - Rf6, 19.
Bxf6 - Bxf6, 20. Rh5 - Bd4 stend-
ur svartur vel. Eða 18. Bb4 - De5,
19. Bxe7 - Dxe7, 20. Rf5 - De5,
21. Re3 - b5 með góðri stöðu fyrir
svartan.)
18. - Bf6 Hvítur hótaði m.a. 19.
Bb4)
19. Hxd7 - Hxd7, 20. Bxf6 - gxf6,
21. Dc3 - De5, 22. RI16+ - Kg7,
23. Bxd7 - Kxh6, 24. Dxc4 - Kg7,
25. b4 - Hd8 (Erfítt er að benda á
betra framhald fyrir hvít en það, sem
Margeir valdi. Svartur á peði meira
og góðar vinningshorfur.)
26. Bc6 - Hd4, 27. Dc3 - Bxc6,
28. Dxc6 - Hd3, 29. Da4 - Dc7,
30. h3 - f5, 31. Db5 - Dd7, 32.
Dc5+ - f6, 33. Df4 - Kg6, 34.
Hcl - (Loksins kemst þessi hrókur
í spilið og hótunin er 35. Hc7.)
34. - Dd6, 35. Dxd6 - Hxd6, 36.
Hc7 - Hdl+, 37. Kh2 - f4, 38.
Hxa7 - Hfl, 39. He7 - f5, 40. f3
- (Eftir 40. b5 - Hxf2, 41. Kgl -
Hb2, 42. He6+ - Kg5, 43. Hxb6 -
e3, 44. He6 - Hbl+, 45. Kh2 - f3,
46. gxf3 - Kf4 og svartur vinnur.)
40. - e3, 41. b5 - Kf6, 42. He8 -
Hal, 43. g3 - (Hvíti hrókurinn er
bundinn við að koma í veg fyrir, að
svarta e-peðið renni upp í borð og
verði að nýrri svartri drottningu.)
43. - Ha2+, 44. Kgl - fxg3, 45.
Hxe3 - Kg5, 46. Hd3 - Kh4, 47.
Hd6 - h5, 48. Hli6 - f4. og Mar-
geir gafst upp, því hann tapar eftir
49. a4 - Hxa4, 50. Hh8 - Ha5, 51.
Hh7 - HxB5, 52 Hh8 - Kxh3 ásamt
53. - Hbl+ o.s.frv.
Hannes Illífar
Alþjóðlega skákmótið í Hafnarborg
Elo- stig vinn. SB stig
1. HannesHiífar 2455 X '/2 1 1 'h 1 'h 'h 'h 1 1 1 8'/2
2. JónL. 2515 '/2 X Vi 0 1 1 'h 'h 1 1 1 1 8
3. Margeir 2550 0 '/2 X 1 1 0 'h 1 '/2 'h 1 1 7 34,75
4. Þröstur 2425 0 1 0 X 'h 1 'h 'h 'h 1 1 1 7 33,00
5. Motwani 2455 '/2 0 0 '/2 X 1 0 1 1 1 1 1 7 31,25
6. Conquest 2505 0 0 1 0 . 0 X 'h 1 0 1 1 1 5'/!
7. Levitt 2465 '/2 Vi '/2 'h 1 'h X 'h 'h 'h 0 0 5 31,25
8. Helgi Áss 2350 '/2 Vi 0 'h 0 0 'h X 1 'h 1 'h 5 24,75
9. Howell 2465 '/2 0 '/2 'h 0 1 'h 0 X 0 'h 'h 4
10. Björgvin 2420 0 0 '/2 0 0 0 'h 'h 1 X 'h 'h 3'/2
11. BjörnFreyr 2200 0 0 0 0 0 0 1 0 'h 'h X 1 3
12. ÁgústSindri 2275 0 0 0 0 0 0 1 'h 'h 'h 0 X 2'h
fc-*
Q
Þægilegt að vinna með
Við höfðum hug ú að kaupa launafórrií sem væri öruggt, einfalt í notkun, laust við
flóknar sumantektir og sérútprentanir og ódýrt að sama skapi. Mérfinnst mjög
þœgilegt að vinna með EMSTUS. Það tekur innan við 10 minútur að gangafrá
prentun launaseðla, lífeyrissjóðsgreiðslum, stéttarfélagsgreiðslum og skalti.
Launamiðaúlprentun í árslokgerist með einniskipun. Einfaldara verðurþað ekki.
Kolbeinn Pétursson Hábergi hf. Skeifunni 5a
Launaforritið ERASTUS 'EinfaldUjja þ&jjiUgra
M.Flóvent Sími: 91-6X8933 og 985-30347________________
Deilt um lit á ljósum
LÖGREGLAN í Reykjavík ósk-
ar eftir að hafa tal af þeim, sem
sáu árekstur tveggja bifreiða á
mótum Hverfisgötu og Baróns-
stígs að morgni föstudagsins 13.
mars sl.
Klukkan 8.18 um morguninn
skullu saman á gatnamótum þess-
um Lada fólksbíll og Ford sendi-
bíll. Ökumenn bílanna greinir á
um stöðu umferðarljósanna þegar
óhappið varð. Þeir, sem gætu veitt
upplýsingar þar að lútandi, eru
beðnir um að hafa samband við
slysarannsóknardeild lögreglunn-
ar í Reykjavík.