Morgunblaðið - 31.03.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
45
voru nálægt henni. Þrjú af börnum
ömmu og afa bjuggu á Selfossi.
Þannig að fólkið hennar, eins og
liún sagði stundum, leit oft inn til
hennar. Það fannst henni gott.
Ömmu þótti mikið vænt um alla
afkomendur sína og lét það vel í
ljós. Hún bar hag þeirra allra fyrir
brjósti og bað Guð að vernda þau.
Amma hafði mikla ánægju af
hannyrðum, oft sátum við saman,
spjölluðum eða hún sagði mér sögur
yfir handavinnu. Ég var hjá þeim í
tvo vetur þegar ég var í framhalds-
deild Gagnfræðaskólans á Selfossi.
Þá efldust böndin á'milli okkar. Við
vorum góðar vinkonur, eins og
amma sagði stundum við mig.
Eftir að ég fór að búa kom hún
oft til mín í heimsókn og stoppaði
nokkra daga, þá gerðum við ýmis-
legt skemmtilegt og amma sá um
að allir á heimilinu ættu góða sokka
og vettlinga.
Eftir að afi dó átti hún erfitt með
að vera ein og kom því oftar og
stoppaði lengur.
Amma fór á dvalarheimlið Lund
á Hellu sumarið 1988, þá hafði hún
verið í heimili hjá mér í rúmt ár.
Heilsan var farin að gefa sig. Starfs-
fólki á Lundi þökkum við fyrir þá
þolinmæði og gæsku sem það sýndi
ömmu í veikindum hennar.
Nú er amma farin frá okkur og
samverustundirnar í þessu jarð-
neska lífi verða ekki fleiri.
Elsku ömmu vil ég þakka fyrir
þær ánægjustundir og þann kærleik
sem hún gaf'okkur öllum.
Öll, ég þakka okkar kynni
ætíð, sem mér reyndust góð.
Nú er sorg í sálu minni
þú sem ert geymd í minja sjóð.
Því ég veit að lífið lifir,
lífs á brautum kærleikans,
þig fel ég Guði um eilífð alla
örmum sértu vafin hans.
(Ókunnur höf.)
Fríður Norðkvist Gunnarsdóttir.
miklum vináttuböndum og var mjög
kært með þessu fólki alla tíð. Mar-
grét naut þess síðar að eiga góða
að þar sem var heimili Sveins og
Guðveigar í Neskaupstað og vináttu
þeirra, svo og þessara systkina allra
en tveir bræðranna eru nú látnir,
þeir Sveinn og Óskar.
Svo fer á langri leið að margs er
að minnast og samferðarfólkið
margt horfið á braut. Síðustu árin
átti Magga við vanheilsu að stríða,
líkamlega og andlega. Hún fann til
einsemdar og kvíða fyrir því
ókomna. Við sem lengst höfðum
þekkt hana Möggu fundum sárast
l'yrir þessari breytingu, en eins og
hún sjálf sagði svo oft, að þegar
heilsan er farin þá er nú ekki mikið
eftir.
Við hjónin sendum okkar innileg-
asta þakklæti fyrir samfylgdina,
einnig Halla og Bubbi í Hafnarfirði,
sem voru henni svo kær. Þóra.mág-
kona hennar og bróðurbörnin biðja
fyrir kveðjur og þakklæti en það
fólk allt var henni mikils virði.
Aðstandendur vilja svo að lokum
færa starfsfólki sjúkrahússins í Nes-
kaupstað alúðarþakkir fyrir alla hjál-
pina við Möggu og það ómetanlega
starf sem þetta fólk jafnan vinnur.
Blessuð sé minning Margrétar og
hafi hún þökk fyrir allt.
Sveinbjörn Guðmundsson,
Egilsstöðum.
NOTAÐIR BlLAR - BÍLAÞING - NOTAÐIR BÍLAR - BÍLAÞING - NOTAÐIR BÍLAR
VERÍJVJÚRIli'll
ROFINN
NOTAÐIR BÍLAR
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI
VIÐ BJÓÐUM TRAUST OG ÖRUGG VIÐSKIPTI
GREIÐSLUSKILMÁLAR AÐ ÓSKUM KAUPENDA
HEKLUHÚSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
Opið virka daga kl. 9-18 Laugardaga kl 10-14
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BÍLAR
VW GOLF CL 1600 - árg. 1988, sjálfskiptur, 5 dyra., MMC LANCER LANGB. 4X4 1800 - árg. 1987, 5 gíra,
grár, ekinn 84 þ.km., verð kr. 500.000. stgr. 5 dyra, hvítur, ekinn 63 þ.km., verð kr. 650.000.stgr.
MMC PAJER0 STUTTUR TURB0 DIESEL - árg. 1986,
5 gíra, 3 dyra, hvítur, ekinn 105 þ.km.,
verð kr. 750.000 stgr.
RANGE R0VER V0UGE V8-3500Í - árgerð 1987,
sjálfskiptur, 4 dyra, grár, ekinn 74 þ.km.,
verð kr. 1.600.000. stgr.
T0Y0TA C0R0LLA XL SEDAN 1300 - árg. 1989, 5 gíra,
4 dyra, steingrár, ekinn 70 þ.km., verð kr. 650.000 stgr.
MAZDA 323 LX SEDAN 1300 - árg. 1987, 4 gíra,
4 dyra, rauður, ekinn 66 þ. km„ verð kr. 350.000 stgr.