Morgunblaðið - 31.03.1992, Qupperneq 48
.48
M0RGUNJ3LAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARZ 1992
t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR ÁRMANN, lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 30. mars. Arndís Ármann, Björn Gunnarsson, Ágúst Ármann, Anna María Kristjánsdóttir og barnabörn.
t Faðir minn, tengdafaðir og afi, SIGMUNDUR GUÐMUNDSSON, Hlíf, ísafirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu (safirði, laugardaginn 28. mars. Guðlaugur Sigmundsson, Guðný Emilsdóttir og barnabörn
t Elskuleg móðir okkar, LAUFEY BJARNADÓTTIR SNÆVARR, lést sunnudaginn 29. mars sl. Lillý Svava Snævarr, Stefama Snævarr, Sesselja Snævarr, Sigrún Snævarr.
t Eiginkona mín, ELSA KRISTJÁNSDÓTTIR hjúkrunarkona, Alfheimum 70, andaðist laugardaginn 28. þ.m. Stefán Guðnason.
t Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, ÞORVALDUR ÁRMANNSSON, Nóatúni 24, Reykjavík, andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 28. mars. Dagrún Þorvaldsdóttir, Björgvin Guðmundsson, Viktoría Þorvaldsdóttir, Magnús Sigurjónsson, Guðný Þorvaldsdóttir, Þórdór Pálsson.
t Móðursystir mín, ANNA STEFÁNSDÓTTIR fyrrverandi kennari frá Eyjardalsá, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. apríl kl. 13.30. Heiður Vigfúsdóttir.
t Frændi okkar, GUÐMUNDUR FRIÐBERT ÞORBERGSSON fyrrverandi póstur, andaðist 19. þessa mánaðar. Útförin ferframfrá Patreksfjarðarkirkju ídag, þriðjudag, kl. 14.00. Jarðsett sama dag á Bíldudal. Systkinin frá Króki.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR. Systkinin frá Borg og aðrir vandamenn.
Lokað Lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR ARNGRÍMSDÓTTUR. Lýsi hf.
Minning:
Guðrún Amgrímsdótt
ir frá Árgilsstöðum
Fædd 10. júní 1930
Dáin 19. mars 1992
Mikil sorgartíðindi bárust okkur,
starfsfólki Lýsis hf. föstudagsmorg-
uninn 20. mars síðastliðinn, er við
fréttum að vinnufélagi okkar, Guð-
rún Arngrímsdóttir, hefði látist
kvöldið áður. Slíkar fréttir eru öllum
þungbærar og þá sérstaklega ef
tekið er tillit til þess að fjölskylda
hennar er mjög tengd fyrirtækinu.
Eiginmaður hennar er einn af okkar
elstu starfsmönnum og dóttir henn-
ar er einn af verkstjórum okkar.
Guðrún hóf störf hjá Lýsi hf.
sumarið 1988 í pökkunardeild fyrir-
tækisins. Áður hafði hún verið hjá
Granda hf. þar sem hún starfaði
við fiskvinnslu í mörg ár. Það var
mikill akkur í því fyrir okkur að fá
Guðrúnu því hún hafði tamið sér
þann aga og þá samviskusemi sem
krafist er af starfsfólki sem fram-
leiðir matvæli. Mikil ábyrgð hvílir
á herðum þeirra sem við slíka fram-
leiðslu starfa og tók Guðrún fullan
þátt í því starfi og bar fyllilega þá
ábyrgð sem því fylgir að framleiða
vörur fyrir kröfuharðan markað.
Þegar Guðrúnar er minnst eru
orðin samheldni og samvinna ofar-
lega í huga. Samheldni og samvinna
fjölskyldunnar við störf og leik var
einstök. Hún hjálpaðist að við bygg-
ingarframkvæmdir þegar börnin
fluttu að heiman og fór saman í
sumarleyfum austur að Árgilsstöð-
um til hvíldar og vinnu við bústörf
hjá bróður Guðrúnar. Samheldnin
náði einnig tl vinnustaðarins.
Mæðgurnar unnu saman og mynd-
uðu með starfsfélögum sínum sam-
hentan og sterkan hóp sem vann
skipulega að daglegum verkefnum.
Vinnuandinn er góður, verkefnin
næg, í slíku umhvei’fi leið Guðrúnu
vel.
Við kveðjum góða og indæla
konu og þökkum henni samstarfið
á liðnum árum. FJölskyldu hennar
og ástvinum votturn við innilega
samúð okkar og biðjum Guð að
styrkja þau á þessari stundu.
Starfsfólk Lýsis hf.
Okkur langar að minnast tengda-
móður okkar, Guðrúnar Arngríms-
dóttur, sem varð bráðkvödd á heim-
ili sínu að kvöldi 19. mars.
Dúa, eins og hún var kölluð, var
frá Árgilsstöðum í Hvolshreppi.
Foreldrar hennar voru Arngrímur
Jónsson frá Ægissíðu og Stefanía
Marteinsdóttir frá Hafnarfirði.
Dúa var elst fjögurra systkina.
Þau eru: Jón, fæddur 1931, bóndi
á Árgilsstöðum; Ágústa, fædd
1932, dáin 1981; og Marta, fædd
1937 búsett á Hvolsvelli.
Dúa bjó í foreldrahúsum til fjór-
tán ára aldurs, er hún flutti til
móður, ömmu og afa í Hafnarfirði,
til að geta lokið gagnfræðaprófi frá
Flensborg. Á sumrin fór hún alltaf
heim að Árgilsstöðum.
Árið 1951 eignaðist hún dóttur,
Þóru. Faðir hennar er Haraldur
Einarsson verslunarmaður. Stuttu
síðar kynnist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum Benjamín Jóhannes-
syni, og hófu þau búskap á Mela-
braut á Seltjarnarnesi árið 1954.
Börn þeirra eru: Arngrímur
fæddur 1954; Sverrir, fæddur 1955,
í sambúð með Málfríði Sigurhans-
dóttur og eiga þau tvær dætur'
Jóhannes Geir, fæddur 1962, giftur
Bryndísi Báru Garðarsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Snjólaug, fædd
1966, í sambúð með Jóni Þorberg
Ólafssyni og eiga þau eina dóttur.
Þóra er gift Óskari Ármannssyni
og eiga þau tvö börn.
Dúa var dugnaðarforkur til
vinnu, fyrir utan heimilisstörfin
stundaði hún almenna vinnu. Til
margra ára vann hún hjá Mjólkur-
samsölunni, eða þar til mjólkurbúð-
ir voru lagðar niður. Þá hóf hún
störf hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur,
og vann þar í nokkur ár. Nú síð-
ustu árin starfaði hún hjá Lýsi hf.
Dúu og Benna þótti gaman að
ferðast innanlands sem utan. Oft
fóru þau vítt og breitt um landið
með fellihýsið sitt (Dúukot) en svo
var það kallað. Nú síðustu sumur
bættust svo börnin og ijölskyldur
þeirra í hópinn með sín kot, og var
þá oft glatt á hjalla.
Eigum við margar skemmtilegar
minningar úr þessum ferðum. Ekki
sat hún auðum höndum í þessum
ferðalögum, hún prjónaði margar
góðar flíkur á börnin og barnabörn-
in.
Alltaf hefur okkur þótt gott að
koma til Dúu og Benna. Varla líður
sá dagur að ekki komi einhver úr
fjölskyldunni í heimsókn, enda
finnst okkur heimili þeirra vera
okkar annað heimili. Um helgar
fjölmenntu þangað börnin og fjöl-
skyldur þeirra, þáðu kaffi og heima-
bakað góðgæti, að því loknu var
oft tekið í spil, enda þótti Dúu mjög
gaman að spila og tók oft þátt í
félagsvist.
Nú þegar Dúa er dáin er okkur
efst í huga þakklæti til hennar,
fyrir hlýju í garð okkar og barn-
anna. Við söknum hennar öll, en
þá sérstaklega barnabörnin sem sjá
á eftir ömmu Dúu allt of fljótt. En
það er þeim huggun í sorginni, að
afi Benni verður áfram á Mela-
brautinni.
Elsku Benni, við vottum þér okk-
ar innilegustu samúð, svo og börn-
um, barnabörnum, systkinum og
öðrum ættingjum.
Guð gefi ykkur styrk á erfiðri
stund.
Teiigdabörn.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
blómaverkstæði
DINNAs*
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
lwn • j* li
Friúfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavfk. Sími 31099
Opið öll kvöld
tilki. 22,-einnig umhelgar.
t
Bróðir minn,
SIGURJÓN GUÐMUNDSSON,
Stóra-Saurbæ,
Ölfusi,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 2. apríl
kl. 14.00.
Jóh Guðmundsson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ARNGRÍMSDÓTTIR
frá Árgilsstöðum,
Melabraut 18,
Seltjarnarnesi,
sem lést 19. mars sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag,
þriðjudaginn 31. mars, kl. 15.00.
Benjamín Jóhannesson,
Þóra Haraldsdóttir, Óskar Ármannsson,
Arngrímur Benjamínsson,
Sverrir Benjamínsson, Málfríður Sigurhansdóttir,
Jóhannes Geir Benjamínsson, Bryndís B. Garðarsdóttir,
Snjólaug Benjamínsdóttir, Jón Þ. Ólafsson
og barnabörn.
t
Elsku sonur minn, faðir okkar og bróðir
minn,
LEIFUR VILHJÁLMSSON,
Bergþórugötu 15a,
Reykjavfk,
er lést mánudaginn 23. mars sl., verður
jarðsunginn fró Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. apríl kl. 13.30.
Sólveig María Jónsdóttir,
Bjarki Þröstur Leifsson,
Linda Mjöll Leifsdóttír,
Águst Fannar Leifsson,
Hreinn Vilhjálmsson
og aðrir aðstandendur.