Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992
ERLENT
INNLENT
vikuna 23/5-30/5
Nýjar úthlut-
unarreg'lur
LIN umdeildar
SKERÐING námslána, sem hlytist
af tillögum um nýjar úthlutun-
arreglur LIN, hefur vakið reiði
meðal námsmanna að sðgn Páls
Magnússonar, formanns hags-
munanefndar Stúdentaráðs Há-
skðla íslands. Síðastliðið vor hafi
námslán verið skert um 17%, en
nú sé gengið á eftir með fimm
hundruð milljóna króna skerðingu,
sem komi harðast niður á barna-
fólki. Auk þess hafi verið settir
vextir á námslán. í drögunum er
miðað við að aðeins verði lánað
fyrir skólagjöldum í framhalds-
námi erlendis. Sveinbjöm Björns-
son, rektor Háskóla Islands, lýsti
áhyggjum sínum yfir því að rætt
sé um að gera að kröfu 100%
námsframvindu til að fá fullt lán.
Umfangsmikil sala á
ríkisfyrirtækjum framundan
Einkavæðingamefnd ríkis-
stjómarinnar hefur ákveðið að
selja hlut ríkisins í Þróunarfélagi
íslands, Steinullarvérksmiðjunni,
íslenskri endurtryggingu og Lyfja-
verslun ríkisins. Alls gæti söluverð-
mæti þessara fjögurra fyrirtækja
numið um 570 milljónum króna.
Til greina kemur að taka út hluta
af eign ríkisins í íslenskum aðal-
verktökum og að Fiskveiðasjóður
selji hlut sinn í íslandsbanka, sem
er að nafnvirði um 370 milljónir
króna, að sögn Hreins Loftssonar,
formanns nefndarinnar.
Sérleyfi SÍF verði
endurnýjað eða útflutningur
gefinn frjáls
Aðalfundur SÍF, sem haldinn
var á miðvikudag, telur þann hátt
sem nú er á útflutningsmálum salt-
fisks óviðunandi. Fundurinn skor-
aði á ríkisstjómina að endumýja
sérleyfí SÍF, en gefa útflutninginn
ERLENT
Refsiað-
gerðir gegn
Serbíustjórn
Bandaríkjastjóm krafðist þess á
fímmtudag, að öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna samþykkti strax á
föstudag ályktun um refsiaðgerðir
gegn Serbíu og Svartfjallalandi. Á
miðvikudag samþykktu ríkis-
stjómir Evrópubandalagsríkjanna
að setja viðskiptabann á ríkin tvö
en ákveðið var að bíða með olíu-
bann. Bandaríkjastjóm vill hins
vegár beita hvorutveggja banninu
strax en óvíst var hver yrði af-
staða Rússa og Kínveija til þess
síðamefnda. Blóðbaðið í Sarajevo,
höfuðborg Bosníu-Herzegovínu, á
miðvikudag þegar Serbar sendu
sprengjur inn í hóp fólks, sem beið
eftir brauði, hefur þrýst mjög á
um aðgerðir gegn stjórninni í
Belgrad og það varð einnig til þess,
að biskuparáð serbnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar krafðist þess, að
Tékkóslóvakía:
Kosið um framtíð sam-
bandslýðveldisins
Aðdáendur Vaclavs Havels, forseta Tékkóslóvaklu, lýsa yfir stuðn-
ingi við viðleitni hans til að koma í veg fyrir klofning sambands-
lýðveldisins. Framtíð þess er helsta mál þingkosninganna, sem
fram fara á föstudag og laugardag.
fijálsan éllá. Þá var samþykkt
ályktun þar sem nýgerður samn-
ingur um Evrópska efnahagssvæð-
ið er sagður til mikilla hagsbóta
fyrir íslenskan saltfískiðnað.
Framboð fíkniefna eykst
Hassneysla er orðin meiri og
almennari en áður var, og er orðin
vel þekkt í efri bekkjum ýmissa
grunnskóla, að sögn Björns Hall-
dórssonar lögreglufulltrúa. Nýtt
fíkniefni, alsæla (ecstasy), hefur
skotið upp kollinum. Efnið er va-
rasöm blanda af örvandi lyfi og
ofskynjunarlyfi.
Tilboða í ríkisbréf óskað
Fjármálaráðherra hefur ákveðið
að efna til fyrsta útboðs ríkisbréfa
10. júní, og verða þá boðin bréf
fyrir 300-500 milljónir króna. Er
gert ráð fyrir að þaðan í frá verði
gefín út mánaðarlega markaðshæf
ríkisbréf í stöðluðu formi.
Áhugasamir um Stálfélagið
William McNair, forstjóri banda-
ríska stálfyrirtækisins St. Louis
Colddrawn, segist enn vera mjög
áhugasamur um kaup á verk-
smiðju þrotabús Islenska stál-
félagsins. Jón Sigurðsson iðnaðar-
ráðherra sagði að sér litist vel á
þá starfsemi sem St. Louis hefði
áform um á íslandi.
Úrslit í 1. deild
Úrslit vikunnar í 1. deild karla
í knattspyrnu voru sem hér segir:
KR-ÍA 2:2, Þór-Fram 1:0, ÍBV-
Valur 1:2, FH-UBK 2:1, Vík-
ingur-KA 0:2, Valur-ÍA 1:1,
ÍBV-Víkingur 1:2, Fram-KR 3:1,
KA-FH 3:3, Breiðablik-Þór 0:1.
ríkisstjórn Slobodans Milosevics
forseta segði af sér.
Nýr forseti á ítaliu
ÍTÖLSKUM þingmönnum tókst
loks í 16. tilraun að kjósa þjóðinni
nýjan forseta en hann er Oscar
Scalfaro, 73 ára gamall úr flokki
kristilegra demókrata. Hefur hann
setið á þingi frá 1946 og gegnt
ráðherraembætti um fjögurra ára
skeið, 1983-87. Fyrsta verkefni
hans verður að skipa nýja stjóm
en stjómarkreppa hefur verið á
Ítalíu síðan í kosningunum 24.
apríl sl. Þar við bætist, að morðið
á Giovanni Falconi, dómara á
Sikiley, kallar á harðar aðgerðir
gegn mafíunni en litið er á ódæðið
sem beina ögrun og tilræði við
ítalska ríkið.
Jeltsín ekki fram aftur
FORSETI “ Rússlands, Borís
Jeltsín, er staðráðinn í að sitja út
kjörtímabilið á hveiju sem gengur
en ætlar ekki að gefa kost á sér
aftur þegar því íýkur 1996. Þrátt
fyrir erfítt ástand í landinu kemst
enginn stjórnmálamaður með
tærnar þar sem hann hefur hælana
í vinsældum meðal almennings. í
vikunni var einnig skýrt frá því,
að Svartahafsflotinn, sem hefur
verið bitbein Úkraínu og
Rússlands, yrði færður undan
samveldinu og skipt milli ríkjanna.
Þá hefur verið ákveðið, að
rússneski stjórnlagadómstóllinn
taki til umfjöllunar gjörðir sovéska
kommúnistaflokksins fyrrverandi í
70 ár en hann er sakaður um
kúgun og harðstjórn og að hafa
margbrotið þá stjómarskrá, sem
hann sjálfur setti þegnunum. Sagði
lögfræðilegur ráðunautur Jeltsíns
forseta, að fyrrum valdamenn í
Sovétríkjunum stæðu nú í sömu
sporum og stríðsglæpamenn
nasista eftir stríð.
FRAMTÍÐ sambandslýðveldis-
ins Tékkóslóvakíu er í húfi í
þingkosningunum sem fram
fara á föstudag og laugardag.
Vladimir Meciar, vinsælasti
stjórnmálamaður Slóvakíu, tel-
ur að Slóvakía eigi að lýsa yfir
sjálfstæði eftir kosningarnar,
semja sína eigin stjórnarskrá
og síðan spyrja Slóvaka í þjóð-
aratkvæðagreiðslu hvernig
stjórnarsamband þéir vilji hafa
við nágranna sína í Bæheimi
og Mæri. Flokki hans, Hreyf-
ingu fyrir lýðræðislegri Slóvak-
íu (HZDS), er spáð yfir 30%
atkvæða í þingkosningunum.
Meciar mun ekki eiga í vand-
ræðum með að finna samstarfs-
flokka fyrir meirihlutastjóm
eftir þær. Flestir flokkanna í
Slóvakíu vilja breytt ríkjasam-
band. Þeir sem leggja meiri
áherslu á efnahagsmál en sjálf-
stæði þjóðarinnar geta ekki
verið ömggir um þingsæti.
Fulltrúar sex samtaka, flokka
og hreyfinga voru kosnir á
þing í Tékkóslóvakíu fyrir tveimur
árum. Þingkosningamar snerust
þá um að koma kommúnistum frá
völdum og fólk úr ólíkum áttum
tók höndum saman til að stjórna
landinu eftir yfír fjörutíu ára of-
ríki þeirra. Borgaravettvangurinn
og systrabandalag hans, Almenn-
ingur gegn ofbeldi, hlutu langflest
þingsæti. En það leið ekki á löngu
þangað til ólíkar stjómmála-
skoðanir gerðu vart við sig og
samtökin, flokkamir og hreyfing-
arnar tóku að klofna, og jafnvel
molna, í smærri einingar. Nú eiga
15 hreyfingar fulltrúa á þingi og
13 af 300 þingmönnum eru
óflokksbundnir. Alls 40 flokkar,
hreyfingar og
bandalög bjóða
fram að þessu
sinni til að
minnsta kosti
eins af þingun-
um þremur:
sambandsþingsins, tékkneska
þingsins og slóvaska þingsins.
Þeir verða að fá minnst 5% at-
kvæða til að fá fulltrúa kjörinn á
þing.
Tékkar til hægri
Lýðræðisflokki (ODS) Vaclavs
Klaus, fjármálaráðherra, er spáð
mestu fýlgi, um 20%, í Bæheimi
og Mæri. Klaus var einn af stofn-
endum Borgaravettvangs en
stjómarfyrirkomulagið innan
hans átti ekki við hann svo að
hann stofnaði sinn eigin flokk
fyrir rúmu ári. Stór hluti sam-
starfsmanna hans í vettvangnum
var einnig mun vinstrisinnaðri en
hann. Margir þeirra eru nú í Borg-
arahreyfingu Jiris Dienstbiers,
utanríkisráðherra. Það er eini
sannkallaði miðjuflokkurinn í
landinu og honum er spáð um 5%
fyigi-
Lýðræðisflokkurinn er hrein-
ræktaður hægri flokkur og berst
fyrir hröðum efnahagsumbótum
og náinni samvinnu við Vestur-
lönd. Hann er fylgjandi því að
fyrrverandi kommúnistar og þeir
sem vom á starfsmannaskrá ör-
yggislögreglunnar fái ekki að
gegna ríkisstörfum í fímm ár.
Vinstri flokkunum og Borgara-
hreyfíngunni þykir það helst til
langt gengið og segja það bijóta
í bága við almenn mannréttindi.
Einkavæðing og spilling
Klaus átti hugmyndina að ný-
stárlegri einkavæðingu tékk-
neskra ríkisfyrirtækja. Hún felst
meðal annars í því að almenning-
ur getur notað miða, sem hann
gat fengið gegn lágu verði, til að
fjárfesta í ríkisfyrirtækjum þegar
þau koma á markað. Yfir helming-
ur þjóðarinnar hefur keypt fjár-
festingarmiða og aðferðin þykir
spennandi en hún hefur óvissu í
för með sér og hefur leitt til spill-
ingar. Varamaður ráðherrans sem
sér um einkavæðingu í tékkneska
hlutanum varð til dæmis að segja
af sér í vetur eftir að hann var
ásakaður um að vilja þiggja mút-
ur fyrir að haga einkavæðingu
mjólkursamsöl-
unnar í suður
Bæheimi sam-
kvæmt óskum
fjárfestingar-
sjóðs Budweis-
ers. Fjölmargir
íjárfestingarsjóðir eru starfandi
og þeir keppa um bestu bitana.
Sumir þeirra hika ekki við að
beita óheiðarlegum aðferðum ef
þær eru taldar líklegar til árang-
urs.
Geigvænleg spilling er sögð
tröllríða fjármálaheiminum í
Tékkóslóvakíu og stjórnmála-
menn, bæði gamlir kommúnistar
og fulltrúar Borgaravettvangs,
taka þátt í henni. Fyrrverandi lög-
regluþjónn sem var falið að rann-
saka starfsemi samvinnufélagsins
Slusovice flúði til dæmis Iand eft-
ir að fyrrverandi starfsmenn ör-
yggislögreglunnar hótuðu að
drepa hann og fjölskyldu hans af
því að hann vann starf sitt of
samviskusamlega. Slusovice var í
upphafí landbúnaðarsamvinnufé-
lag en færði smátt og smátt út
kvíarnar í stjómartíð kommúnista
og stundaði ótrúlegustu viðskipti
undir lokin, þar á meðal ólögleg
vopnaviðskipti og eiturlyfjasmygl,
að sögn lögreglumannsins. Fyrir-
tækið býr yfir miklum ljármunum
og það er mikið í húfi fyrir stjórn-
endur þess að halda völdum. Lög-
reglumaðurinn hefur fengið póli-
tískt hæli í Sviss en vonar að
óvinir hans í röðum stjórnmála-
manna nái ekki kjöri og hann
geti innan skamms snúið aftur
heim. Hann bindur miklar vonir
við þingkosningarnar og sérstak-
lega Lýðræðisflokk Vaclavs
Klaus.
Slóvakar til vinstri
Efnahagsumbæturnar í Tékkó-
slóvakíu hafa komið illa niður á
mörgum en þær hafa bitnað verst
á Slóvökum. Slóvakía hefur ávallt
verið fátækari hluti sambandslýð-
veldisins og þungaiðnaðurinn þar
á í verulegum erfiðjleikum. At-
vinnuleysi er nú um 15% í Slóvak-
íu en um 5% í tékkneská hluta
landsins. Þetta hefur sín áhrif á
efnahagsstefnu flokkanna. Hreyf-
ingin fyrir lýðræðislegri Slóvakíu
og Hreyfing kristilegra demö-
krata, sem kalla sig miðju- og
hægrihreyfíngar, eru báðar
hlynntar ríkisafskiptum í andá
sósíaldemókrata. Flokki sósíal-
demókrata var spáð sama og engu
fylgi þangað til Alexander Ðubc-
ek, forseti sambandsþingsins,
gekk til liðs við flokkinn fyrir
nokkrum vikum og tók við forystu
hans. Nú er talið líklegt að flokk-
urinn komi manni á þing. Gamla
kommúnistaflokknum í Slóvakíu,
Flokki vinstri lýðræðissinna, er
spáð næst mestu fylgi í Slóvakíu,
eða um 16%.
Meirihluti íbúa Bæheims og
Mæris vill að Tékkóslóvakía verði
áfram sambandslýðveldi. En þeim
sem eru búnir að fá rióg af ,,'sjálf-
stæðiskvabbi“ Slóvaka fjölgar óð-
um. Þeir eru tilbúnir að breyta
ríkjasambandiriu í bandalagsríki
eða láta Slóvaka sigla sinn sjó,
ef þeir endilega vilja. Sambands-
lýðveldið var stofnað 1918 þegar
Habsborgara-keisaradæmið leyst-
ist upp. Nágrannaríkjum þess er
umhugað um að það tolli saman,
ekki síst Ungveijalandi sem hefur
friðarsamkomulag við Tékkósló-
vakíu en ekki Slóvakíu. Um
600.000 Ungveijar búa í Slóvakíu
og þeir eru andvígir sjálfstæði
lýðveldisins. En það óttast enginn
átök á milli Tékka og Slóvaka
eins og eiga sér stað á milli fyrr-
verandi íbúa gömlu Júgóslavíu.
Slóvakíu hefur verið líkt við upp-
kominn son sem er tilbúinn að
flytja að heiman og standa á eig-
in fótum. Meciar vill að Slóvakía
geri það og semji sem sjálfstætt
ríki um inngöngu í Evrópubanda-
lagið. „Ég hef sagt Vaclav Havel
[forseta Tékkóslóvakíu] að Evr-
ópubandalagið verði að bæta
tveimur stjörnum í fánann þegar
við göngum í það. Einu fyrir
Tékka og einu fyrir Slóvaka,“
segir hann á kosningafundum við
góðar undirtektir áheyrenda.
Baksviö
eftir Önnu Bjamadóltur