Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJOIMVARP SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992 39 Stðð 2; Nágrannar I■■■ Það eru margir sem hafa gaman af því að fylgjast með -* /» 45 daglegu lífi fólksins í áströlsku þáttaröðinni Nágrönnum, ““ Sem eru sýndir alla virka daga á Stöð 2. Þeir fjalla um hversdagslegt líf fjölskyldna við Ramsey stræti og þar er einhvern veginn alltaf eitthvað um að vera. Einn daginn deila grannamir hart, en hinn daginn er allt fallið í ljúfa löð. Það er komið inn á alla fleti mannlegra samskipta og þau skoðuð frá sjónarhóli allra aðila. Fimmhundraðasti þátturinn var sýndur síðastliðinn föstudag, en þeir hafa notið vinsælda þar sem þeir hafa verið teknir til sýninga, enda eru persónur þannig gerðar að allir geta fundið sjálfan sig í ein- hverri þeirra. RÁS2 FM 90,1 7.03 Morgunútvarpifi. Leifur Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson hefja daginn með hlustendum. Fjár- málapistill Péturs Blöndals. 8.00 Morgunfréttir. Morgunútvarpið. 9.03 9 - fjögur. Umsjón: Þorgeir Astvaldsson, Magnús R. Einarsson, Margrét Blöndal og Snorri Sturlusón. Sagan á bak við lagið. 12.00 Fréttayfirlit og veður. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 9 - fjögur heldur áfram. 12.45 Fréttahaukur dagsins spurður út úr. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagskrá: Dægurmálaútvarp og fréttir. Starfs- menn daegurmálaútvarpsins, Anna Kristine Magnúsdóttir, Kristfn Ólafsdóttir, Sigurður G. Tómasson, Stefán Jón Hafstein og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og smá mál. Krist- inn R. Ólafsson talar frá Spáni. 17.00 Fréttir. Dagskrá heldur áfram. 18.00 Fréttir. 18.03 Þjóðarsálin. Sigurður G. Tómasson og Stefán Jón Hafstein sitja við simann. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Ekki fréttir. Haukur Hauksson endurtekur fréttirnar sínar frá þvi fyrr um daginn. 19.32 Út um allt! Kvölddagskrá Rásar 2 fyrir ferða- menn og útiverufólk sem vill fylgjast með. Fjörug tónlist, íþróttlýsingar og spjall. Umsjón: Andrea Jónsdóttir, Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Darri Ólason. 21.00 Smiðjan - Blondie. Umsjón: Gunnar Axels- son. 22.10 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson leikur islenska tónlist, flutta af islendingum. (Úr- vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.) 0.10 I háttinn. Gyða Dröfn Tryggvadóttir leikur Ijúfa kvöldtónlist. 1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7.00,7.30,8.00,8.30,9.00,10.00.11.00, 12.00. 12.20. 14.00, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests. (Endurtekinn þáttur.) 2.00 Fréttir. Þáttur Svavars heldur áfram. 3.00 Næturtónar. 3.30 Glefsur. Úrdægurmálaútvarpi mánudagsins. 4.00 Næturlög. 4.30 Veðurfregnir. Næturlögin halda áfram. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum. 5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson. LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland. AÐALSTÖÐIN FM 90,9 / 103,2 . 7.05 Morgunútvarpið. Umsjón Guðmundur Bene- diktsson og Elsa Valsdðttir. 12.30 Aðalportið. Flóamarkaður. 13.00 Hjólin snúast. Umsjón Jón Atli Jónasson og Sigmar Guðmundsson. 18.00 fslandsdeildin. Islensk dægurtög frá ýmsum timum. 19.00 Kvöldverðartónar. 20.00 I sæluvímu á sumarkvöldi. Óskalög, afmælis- kveðjur o.fl. kveðjur. 22.00 Blár mánudagur. Umsjón PéturTyrfingsson. Fréttlr kl. 8,9,10,11,12,13,14,15,16og 17. STJARNAN FM 102,2 7.00 Morgunútvarp. Umsjón Ásgeir Páll. Morgun- korn kl. 7.45-8.45 í umsjón Gunnars Þorsteins- sonar. 9.00 Kristbjörg Jónsdóttir. 11.00 „Á góðum degi". Kristbjörg, Óli og Gummi bregða á leik. 13.00 Ásgeir Páll. 17.00 Morgunkorn i umsjón Gunnars Þorsteinsson- ar (endurtekið). 17.05 Ólafur Haukur. 19.00 Kvölddagskrá i umsjón Rikka E. 19.05 Ævintýraferð i Odyssey. 20.00 Richard Perinchief prédikar. 21.05 Vinsældalistinn ... framhald. 20.45 Richard Perinchief prédikar. 22.00 Fræðsluþáttur um fjölskylduna. Umsjón: dr. James Dobson. 24.00 Dagskrárlok. Bænastund kl. 9.30, 13.30,17.30, 22.45 og 23.50. Bænalinan er opin kl. 7 - 24. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morgunútvarp Bylgjunnar. Eiríkur Jónsson, Guðrún Þóra. Fréttir kl. 7, 8 og 9. 9.05 Tveir með öllu. Jón Axel Ólafsson og Gunn- laugur Helgason. Fréttir kl. 10, 11 og 12. 12.15 Rokk og rólegheit. Anna Björk Birgisdóttir. Iþróttafréttir kl. 13, tónlíst, Bibba o.fl. Fréttir kl. 14 og 15. 15.05 Reykjavík síðdegis.Hallgrimur Thorsteinsson og Steingrimur Ólafsson. Fréttir kl. 16,17 og 18. 18.05 Landssiminn. Bjami DagurJónsson ræðirvið hluslendur o.fl. 19.00 Flóamarkaður Bylgjunnar. 19.19 Fréttir. 20.00 Kristófer Helgason. Óskalög. 24.00 Næturvaktin. EFFEMM FM 95,7 7.00 I morgunsárið. Sverrir Hreiðarsson. 9.0p Morgunþáttur. Ágúst Héðinsson. 12.00 Hádegisfréttir. 12.10 Valdís Gunnarsdóttir. Tónlist og getraunir. 15.00 Ivar Guðmundsson. Stafaruglið. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Gullsafnið. Ragnar Bjarnason. 19.00 Halldór Backman. Kvöldmatartónlistin. 22.00 Ragnar Már Vilhjálmsson. 1.05 Haraldur Jóhannsson. 5.00 Náttfari. HUÓÐBYLGJAN Akureyri FM 101,8 17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson fylgir ykkur með góðri tónlist. Tekið á móti óskalögum og afmæl- iskveðjum. Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 18.00. HITTNiUSEX FM 96,6 7.00 Morgunþáttur. Umsjón Arnar Albertsson. 10.00 Klemens Arnarson. Tónlist. 13.00 Arnar Bjarnason. Tónlist. 16.00 Páll Sævar Guðjónsson. Tónlist. 19.00 Karl Lúðvíksson. 22.00 Rokkhjartað. Umsjón Sigurjón Skæringsson. 1.00 Næturvaktin. SÓLIN FM 100,6 7.00 Morgunþáttur. Umsjón Haraldur Kristjáns- son. 10.00 Jóna de Groot. Fyrirtækjaleikur o.fl. 13.00 Björn Markús. 17.00 Steinn Kári. Óskalög. 19.00 Hvað er að gerast? 21.00 Hulda Tómasina Skjaldardóttir. 1.00 Næturdagskrá. ÚTRÁS FM 97,7 16.00 Iðnskólinn í Reykjavik. 18.00 FB. 20.00 Kvennaskólinn. 22.00 í öftustu röð. Umsjón Ottó Geir Borg og ísak Jónsson. 1.00 Dagskrárlok. Rás 1: Játningar Nonna litfla í þættinum Játningar Nonna litla á Rás 1 í dag fjallar Jón -j (r 03 Stefánsson um Liverpoolskáldin svokölluðu. Liverpoolskáld- ■J- ~ in brutust til frægðar á sjöunda áratugnum í Bretlandi. Þetta voru ljóðskáld og textahöfundar, sem notuðu popptónlist og vísanir í bamamenningu í ljóðum sínum. Jón rekur sögu skáldanna með sérstakri áherslu á Brian Pattern og jafnframt les Pattem eig- ið ljóð S þættinum. DAGAR „ 29. maí-6. júní L.A. SKOR OG BOLUR MEÐ Blöðrur, glens og gaman Skóverslun Kópavogs Skór og sportvörur Póstsendum Hamraborg 3 sími 41754 eftir Elínu Pálmadóttur En aldrei hefi eg þjófur verið Mórall í borginni aflaga fer, var upphafið að einu dægi- legu ljóði eftir Sigurð Þórarinsson. Allir eru víst alls staðar ogé. öllum tímum sammála um að mórallinn sé afleitur. En hvers konar mór- all? Vandaðist málið þegar ég í síðastliðinni viku átti tal við rann- sóknarlögreglukonu er fæst við innbrotsþjófnaði, sem vaxa og blómstra á voru landi, nýkomin úr ferð um Njáluslóð- ir með honum Jóni Böðvars- syni, sem vakti á því athygli að á Njálu tíma var þjófnaður glæpa svívirðilegastur. Þjófnaður miklu verri en morð. Sá menning- ararfur hefur semsagt hripað rækilega af okk- ur íslendingum. Viðhorfíð til þjófnaðar kemur vel fram í Njálu V þegar Gunnar er riðinn til \ þings og Hallgerður situr \ uppi með illræmda þrælinn í matarlitlu búi sínu á Hlíðar- enda. Þar segir: Nú er þar til að taka að Hallgerður kemur að máli við Melkólf þræl: „Sendiför hefí eg hugað þér,“ segir hún, „þú skalt fara í Kirkjubæ." „Hvað skal eg þangað?" segir hann. „Þú skalt stela þaðan mat á tvo hesta og hafa smjör og ost, en þú skalt leggja eld í útibúrið, og munu allir ætla, að af van- geymslu hafí orðið, en engi mun ætla, að stolið hafi verið.“ Þræliinn mælti: „Vondur hefi eg verið, en aldrei hefí eg þjófur verið." „Heyr á endemi," segir hún, „þú gerir þig góðan, þar sem þú hefir verið bæði þjófur og morð- ingi, og skalt þú eigi þora annað en fara, ella skal eg láta drepa þig-“ Hann þóttist vita, að hún myndi svo gera, ef hann færi eigi. Tók hann tvo hesta og lagði á lénur og fór í Kirkjubæ. Hundurinn gó eigi og kenndi hann og hljóp í móti honum. Síðan fór hann til útibúrs, og klyfjaði þaðan tvo hesta af mat, en brenndi búrið og drap hundinn. Hann fór upp með Rangá, og slitnaði skóþveng- ur hans, og tekur hann knífínn og gerir að. Honum liggur eftir knífurinn og beltið. Hann ferr, þar til er hann kemur til Hlíðarenda. Þá saknar hann knífsins og þorir eigi aftur að fara, færir nú Hall- gerði matinn. Hún lét vel yfír. Þetta er upphafið að mikilli rannsóknarlögreglusögu í Njálu, sem ekkert gefur eftir þeim sem halda okkur við sjónvarpsskjáinn nú til dags. Ekki var höfðinginn Gunnar blíður á manninn þegar hann kom ríðandi af þingi með íjölda manns í mat, og Hallgerður bar á borð ost og smjör, sem hann vissi ekki að til væri á heimilinu. „Gunnar reiddist og mælti: „Illa er þá, ef eg em þjófsnautur," — og lýstur hana kinnhesti." Það varð dýr kinnhestur! Lét Gunnar bera allt af borðinu og inn bera slátur í staðinn. Fór síðan að reyna að bæta fyrir þjófnaðinn með fébót- um og gekk miklu verr en að bæta alla þá vegnu menn sem hann var alltaf að lenda í að fella. Njála er vissulega skemmtileg bók, full af spennandi atburðum, merkilegum persónum og mynd- rænum lýsingum, öllu því sem ætla mætti að freistaði kvik- myndagerðarfólks nútímans. Samtölin öll til reiðu. Raunar er þó ekki skrýtið að enginn skuli hafa lagt í að kvikmynda Njálu. Hvert orð og hver lýsing er svo hnitmiðuð og á erindi í söguþráð- inn, jafnvel fegurðardísin hún Guðrún náttsól sem ekki segir orð en veldur samt svo miklu. Ekki má sleppa orði ef gera á úr Njálu kvikmynd, eins og hann Jón Böð- varsson sýndi okkur svo rækilega fram á. Það eru orð að sönnu. Von að menn veigri sér við svo miklu verki. Helst að það yrðu framhaldsþættir. Hver frásögn er býsna afmörkuð. Hér að ofan var drepið á njósn- asöguna í Njálu. Ekki hafa Íslend- ingar síðan lagt sig mikið eftir að skrifa eða kvikmynda leynilög- reglusögur, eins og fram kom í úttekt á afþreyingarbókmenntum hér í blaðinu nýlega. Kannski ekki að furða þar sem þjófnaðir eru hér afbrota tíðastir og þykir ekki varða við heiður nokkurs manns þótt hann steli svolítið, osti og smjöri, seldum vinnustund- um, skattpeningum, eignum o.s.frv. Líklega hefur orðið veru- legt gengisfall á orðinu þjófnaður í tímans rás. Kannski leynast eftir á að hyggja einhvers staðar síðari tíma leynilögreglusögur. Þar með ein sem Gáruhöfundur varð meðhöf- undur að. Var þá blaðafulltrúi með meiru á Expo 67 í Montreal. Var m.a. að reyna í gífurlegri samkeppni þjóðanna að kynna ís- lenska glímumenn, sem vænt- anlegir voru á Norðurlandadag heimssýningarinnar. Þar kom að ágætur sjónvarpsmaður gerði til- boð. Ég tek íslensku glímumenn- ina í sjónvarpið og þú hjálpar mér við bankaránssögu sem ég er að skrifa og gerist á íslandi. Hafði komið til Reykjavíkur og senni- lega haft veður af gamalli sögu þar sem bankaræningjar grafa sér göng úr Pósthúsinu yfír í Lands- bankann. Við handsöluðum þetta og íslenskir glímumenn voru til mikils sóma á skjánum í Kanada. Báru líka íslenska fánann af reisn á hátíðinni. Að henni aflokinni var loforðið innheimt. Við settumst niður, ameríski höfundurinn og aðstoðarkona hans, og lukum við að skrifa plottið. Hvar sú bók er niðurkomin, ef hún var þá útgef- in, hefí' ég ekki hugmynd um. En æði langt stóðum við að baki Njáluhöfundi um innbrotsþráðinn og njósnasöguna, hvað þá text- ann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.