Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA/VEÐUR SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992 9 6. sd. e. páska Ahugavert starf! eftir JÓNAS GÍSLASON vígslubiskup Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurn- um, mun hann vitna um mig. Þér skuluð einnig vitni bera, þvj þér hafið verið með mér frá upphafi. (Jóh. 15:26-27) Amen Ég var að fletta Mogganum og rakst á auglýsingar um lausar stöður. Þá flaug mér í hug, hvort nútímafjölmiðlar hefðu haft áhrif á starfsaðferðir Jesú, ef hann hefði komið á vorum dögum. Kannski hefði hann auglýst í Mogganum: Lærisveinar 'óskast. Stöður lærisveina eru lausar til umsóknar. Kaupið er lágt og vinnutími langur. Áhætta og óþægindi fylgja starfinu og ferðalög eru mikil. Búast má við erfiðleikum og jafnvel ofsóknum. Lærisveinarnir eiga að læra af mér, svo menntunar er ekki krafizt, en spurt er um hlýðni og traust. Lysthafendur sendi umsókn sína til blaðsins, merkta: Áhugavert starfl Jesús Kristur. Heldurðu, að Jesús hefði auglýst þannig? Og heldurðu, að slík auglýsing hefði borið mikinn árangur? Jesús er raunsær í mati sínu á oss og reynir aldrei að villa á sér heimildir. Eitt sinn yfirgáfu margir hann og sögðu: Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana? Þá spurði hann postula sína: Ætlið þér að fara líka? Hann neyðir engan til fylgdar sig. Og margir hafa orðið píslarvottar og goldið trúna með lífi sínu. Það er rangt að reyna að draga úr alvöru fagnaðarerindisins. Guð sendi Jesúm í heiminn, því það var eina leiðin að frelsa oss, synduga menn. Vér erum samverkamenn Jesú í boðun fagnaðarerindisins. Hann þarfnast vor hér á jörð, því vér erum hendur hans og fætur. Vinur minn! Þótt stöðu lærisveina hans kunni að fýlgja erfiðleikar, flytur hún jafnframt ómælda blessun og eilíft líf að lokum á himnum hjá Guði. Mikill sannleikur er fólginn þessu sálmaversi: Kóng minn, Jesú, ég kalla þig, kalla þú þræl þinn aftur mig, herratign enga að heimsins sið held ég þar mega jafnast við! Þessi var reynsla Hallgríms Péturssonar og reynsla vor allra verður hin sama, ef vér erum lærisveinar hans. Búum oss undir komu hátíðar Heilags anda. Biðjum: Drottinn Guð! Þökk, að þú kallar oss til starfa fyrir þig. Hjálpa oss að bera þér vitni, bæði í orði og lífi. Bú oss undir komu helgrar hátíðar Heilags anda. Fyll oss anda þínum í nafni Jesú Krists. Amen VEÐURHORFUR í DAG, 17. APRÍL YFIRLIT í GÆR: Við Hvarf á Grænlandi er heidur vaxandi 1.002 mb lægð, sem hreyfist hægt norðaustur. Yfir Norðurlöndum er háþrýstisvæði. HORFUR í DAG: Hæg breytileg átt og víðast skýjað, en þurrt í dag. Sunnan og suðaust- an gola eða kaldi og dálítil rigning í nótt, fyrst um vestanvert landið, en síðar í nótt einnig um austanvert landið. Hiti 4 til 14 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Fremur hæg sunnan- og suðaustanátt og hlýtt. Dálítil rigning með köflum um sunnanvert landið, en annars þurrt og sums staðar léttskýjað norðanlands. Vaxandi austan- og suðaustanátt. Rigning víða um land, einkum um landið sunnanvert. HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Hæg breytileg eða vestlæg átt, skýjað með köflum og sums staðar skúrir, einkum um vestanvert landið. Hiti víð- ast á hilinn 7 til 14 stin. ____________________________ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6.00 í gær að ísl. tíma Staður hiti veður Staður hiti veður Akureyri 5 súld Glasgow 13 mistur Reykjavík 6 Þokumóða Hamborg 15 léttskýjað Bergen 16 heiðskírt London 13 rigning Helsinki 18 heiðskirt LosAngeles 17 léttskýjað Kaupmannahöfn 15 heiðskírt Lúxemborg 13 skýjað Narssarssuaq 5 alskýjað Madrid 14 rigning Nuuk +1 léttskýjað Malaga 20 skýjað Osló 17 léttskýjað Mallorca 17 þokumóða Stokkhólmur 18 heiðskírt Montreal 12 heiðskirt Þórshöfn 11 skýjað New York 14 heiðskírt Algarve 18 súld Orlando 22 heiðskírt Amsterdam 17 þokumóða París 16 skýjað Barcelona 18 súld Madeira 18 skýjað Berlín 16 heiðskírt Róm 19 þokumóða Chicago 11 alskýjað Vín 12 léttskýjað Feneyjar 18 þokumóða Washington 15 alskýjað Frankfurt 17 skýjað Winnipeg 15 léttskýjað / / / V ý Norðan, 4 o Heiðskírt / / / / / / / Rigning Skúrir Vindörin sV stefnu og 4 Léttskýjað * / * Stydda # Stydduól j vindstyrk, ... er tvö vindstig. / * / # V Hétftkýjað . / * / 10 Hlttttig: Ský).» * # * # # # * * # * Snjókoma V Él 10 gróður á Celsius = Þoka m Alskýjað 5 9 5 Súid oo Mistur = Þokumóða 10-50% afsláttur Opið kl. 13-18 i PELSINN Kirkjuhvoli sími 20160

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.