Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992
13
Mótun og rými
_________Myndlist______________
BragiÁsgeirsson
Leirlistakonan Guðný Magnús-
dóttir heldur áfram að þróa list sína
frá hlutum notagildis til sjálfstæðr-
ar sköpunar í rúmtaki sem rými.
Þetta er eins og ég benti á í sam-
bandi við síðustu sýningu hennar í
febrúar 1990 í góðu samræmi við
ferlið víðast hvar, en nú er varla
hægt að sjá brúkshlut á útskriftar-
sýningum listaskóla, a.m.k. ekki hér
heima. Á þennan hátt ræktum við
af ágætri ihaldssemi línu að utan,
í stað þess að byggja upp eitthvað
séríslenzkt og vinna út frá þvi.
Auðvitað verða til athyglisverðir
hlutir út frá þessari þróun og sum-
ir mjög athyglisverðir, en séu þeir
'ekki á einhvern hátt rótfastir ís-
lenzkum veruleika, þykir mér eitt-
hvað skorta á. Á ég alls ekki við
að fólk eigi að hlaupa út í hraun-
keramik eða eitthvað viðlíka, til að
verk þeirra fái yfir sig islenzk ein-
kenni, heldur einfaldlega þarf að
sjást eitthvað sem maður finnur og
kannast við úr umhverfinu, og hér
hafa einmitt ýmsir snillingar leir-
listar og listiðnaðar unnið merkileg
og úrskerandi afrek. Sá ég t.d. sýn-
ingu á verkum japansks klæða-
hönnuðar á Victória og Albert
Museum í London á dögunum, þar
sem hann samræmir japanskan
glæsi- og léttleika evrópskum hefð-
um á hreint snilldarlegan hátt.
Guðný Magnúsdóttir telst tví-
mælalaust með okkar eftirtektar-
verðustu leirlistakonum um þessar
mundir og verk hennar sýna mikla
tæknikunnáttu og agaða formræna
kennd, en sú kennd finnst mér ein-
hvern veginn vera meira í ætt við
tilraunir margra leirlistarmanna á
Norðurlöndum en sjálfstæð barátta
við efniviðinn upp á líf og dauða.
Þetta greip mig við skoðun eftir-
tektarverðrar sýningar Guðnýjar í
listhúsinu Úmbru í Bernhöftstorfu,
sem opnaði sl. miðvikudag, 27.
maí, og stendur til 16. júní.
Listhúsið hefur starfað á þessum
stað í nokkra mánuði, en áður voru
Sonur Ottós
— Ný Úrvalsbók
komin út
Ný Úrvalsbók er komin út, Sonur
Ottós eftir Walter Wager. Það er
önnur bókin, sem Úrvalsbækur gefa
út eftir þennan bandaríska spennu-
sagnahöfund. Sú fyrri var 58 mín-
útur, sem út kom síðastliðið haust.
Úrvalsbækur hafa nú komið út
í hálft annað ár. Markmið útgáf-
unnar er að gefa út vel valdar
bækur, þýddar á frambærilega ís-
lensku, og hafa þær svo ódýrar að
allir geti leyft sér að kaupa og lesa.
Hver bók kostar 790 krónur.
Sonur Ottós gerist í New York
nokkrum áratugum eftir síðari
heimsstyrjöldina. Hún hefst á
versta neðanjarðarbrautarslysi sög-
unnar — eitthundrað og sautján
látnir — enginn komst af. Þetta
slys er augljóslega af mannavöld-
um, en vísbendingar engar, nema
bréf sem borgarstjóranum var sent.
Það var yfirlýsing um að ódæði
yrði framið á tilteknum stað og
stund. Undirritun engin. Aðeins
stafirnir S.O.
Ódýrir
tre
X ustar
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
þar ýmis listhús, t.d. héldu Lang-
brækur þar hús og svo var þar list-
húsið Gangskör, og hefur fyrst og
fremst þann tilgang að kynna list-
iðnað og grafíkverk eiganda þess,
sem eru nokkrar vel þekktar lista-
konur. Þó held ég að einhvetjar
sýningar hafi verið settar þar upp,
en hljótt hefur verið um þær.
En hvað sýningu Guðnýjar snert-
ir er óþarfi að læðast með veggjum,
því að til þess er hún of markverð
og vel menntuð listakona. Má geta
þess að nýlokið er sýningu á verkum
hennar og stöllu hennar, Eddu Jóns-
dóttur, í íslandslisthúsinu í den
Haag í Hollandi og mun sýningin
hafa gengið vel.
Á sýningu Guðnýjar eru bæði
gólf- og veggverk og eru þau mjög
í anda þess, sem hún var að fást
við á síðustu sýningu. En tilhneig-
ingin til þess að vera stöðugt að
breytast og vera með í þróuninni
tel ég full ríka, því að mikilvægt
er að fram komi staðfesta í vinnu-
brögðum samfara kjarki og áræði,
þannig að djúp lifun og lífræn orka
eins og geisli úr hlutunum. Formin
I verkunum eru margvísleg, en það
er ekki einu sinni aðalatriðið, heldur
innri kjarni og frumorka.
Auðvitað munu ekki allir sam-
mála mér og sumir gersamlega
ósammála, en við því er ekkert að
gera og sýningin er I sjálfu sér í
þeim gæðaflokki að hún verðskuld-
ar góða athygli.
Utbob
ríkisbréfa
( RBR. 1. fl. 1992 )
1. Fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs, hefur ákveðið að bjóða út
ríkisbréf í samræmi við heimildarákvæði lánsfjárlaga fyrir
árið 1992 og með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 79/1983
svo og laga nr. 43/1990,1. gr., um Lánasýslu ríkisins.
2.
3.
4.
6.
í boði verða ríkisbréf 1. fl. 1992 með útgáfudegi 12. júní
1992 og gjalddaga 11. desember 1992. Lágmarksfjárhæð
útboðsins er 300 milljónir króna. Heildarfjárhæð útboðsins
er áætluð um 500 milljónir króna samkvæmt nánari
ákvörðun fjármálaráðherra um töku tilboða.
Rikisbréfin verða gefin út í þremur verðgildum; 2.000.000,
10.000.000 og 50.000.000 krónur aö nafnvirði og verða
þau innleyst hjá Lánasýslu rikisins eða Seðlabanka
íslands á gjalddaga. Ríkisbréf eru án nafnvaxta og
verðtryggingar.
Öllum er heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf
samkvæmt eftirfarandi reglum:
a) Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, löggiltum
verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum er einum
heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf samkvæmt
tilteknu tilboðsverði.
b) Öllum öðrum er heimilt að gera bindandi tilboð i vegið
meöalverð samþykktra tilboða meðalávöxtun vegin með
fjárhæð). Tilboð samkvæmt þessum iið eru háð því að
samþykkt tilboð samkvæmt a-lið þessarar greinar verði að
minnsta kosti samtals 200 milljónir króna.
Gera skal bindandi tilboð í nafnverð ríkisbréfa, sbr. lið 3,
eða heilt margfeldi verðgilda. Allir tilboðsgjafar skulu láta
fylgja hverju tilboði sínu gjaldkeratékka, þ.e. tékka sem
gefinn er út af innlánsstofnun, sem tilboðstryggingu.
Tékkinn skal vera að fjárhæð 20.000 kr. og stílaður á
Lánasýslu ríkisins v/tilboðs í ríkisbréf. Gangi tilboðsgjafi
frá tilboði sínu, sbr. þó 8. lið, glatar hann fjárhæðinni, ella
gengur hún upp í ríkisbréfaviðskipti viðkomandi aðila eða
verður eridursend sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð,
sem ekki fylgir greind innborgun, skal meta ógilt.
Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru:
Löggilt verðbréfafyrirtæki, löggiltir verðbréfamiðlarar,
bankar og sparisjóðir, fjárfestingalánasjóðir, lífeyrissjóðir,
sem viðurkenndir eru af fjármálaráðuneytinu og
tryggingafélög, sem viðurkennd eru af Tryggingaeftirliti
ríkisins.
Tilboð má senda á sérstökum eyðublööum sem fást hjá
Lánasýslu rikisins. Ttlboðin ásamt tilboðstryggingu, ef um
hana er að ræða, berist til Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu
6,150 Reykjavfk fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 10. júní
1992 og séu í lokuðum ómerktum umslögum, aö öðru leyti
en því að þau séu sérstaklega merkt orðinu „Tilboð í
ríkisbréf".
7. Heimilt er að símsenda tilboð í staðfestu símskeyti,
og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 6.
lið hór að framan. Sömuleiðis má símsenda
tilboðstryggingu, sbr. 5. lið.
8. Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða hafna
tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða
afturköllun tilboðs skal hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14.00 hinn 10. júní 1992.
9. Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er, verður
tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00 hinn 11. júní
1992. Staðfestingarbréf verða auk þess send til
þeirra.
Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er eða
eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sérstaklega að
öðru leyti en með endursendingu tilboðstryggingar í
ábyrgðarpósti.
10. Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega eins
fljótt og hægt er, án vísunar til nafna tilboðsgjafa,
með fréttatilkynningu til fjölmiðla.
11. Greiðsla fyrir rikisbréf, skv. tilboðum sem tekin verða,
þarf áð berast Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14.00 á
útgáfudegi, þann 12. júní 1992, og verða bréfin
afhent eða póstsend fyrir kl. 17.00 sama dag nema
þess sé óskað sérstaklega að Lánasýsla ríkisins
geymi ríkisbréfin. Berist greiðsla ekki á réttum tíma
áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefja tilboðsgjafa um
hæstu lögleyföu dráttarvexti fyrir þann tíma sem
greiðsla dregst, auk þess sem tilboðsgjafi glatar
tilboðstryggingu sinni.
12. Ríkisbréf þessi eru stimpilfrjáls. Um skattskyldu eða
skattfrelsi ríkisbréfa, svo og forvexti af þeim, fer eftir
ákvæðum laga um tekju- og eignaskatt eins og þau
eru á hverjum tíma, sbr. nú 8. gr., 1. tl. B-liðar 30. gr„
74. og 78. gr. laga nr. 75/1981, með síðari
breytingum, sbr. og lög nr. 7/1974 og lög nr. 79/1983.
Ríkisbréf eru framtalsskyld.
13. Flokkur þessi verður skráður á Verðbréfaþingi
íslands og verður Seölabanki íslands viöskiptavaki
flokksins.
14. Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja frammi hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík.
Reykjavík 27. maí 1992
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2 hæö, 101 Reykjavík, sími 91-626040