Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 26
MÓRGUNBlÍAÍDltí ^sfíyMÍ' '^92 ^-26 f Staða dómritara við Héraðsdóm Vesturlands er laus til um- sóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júlí 1992. Umsóknarfrestur er til 16. júní nk. Umsóknir sendist undirritaðri Borgardóm- araembættinu, Túngötu 14, Reykjavík. Reykjavík, 29. maí 1992. Hervör Þorvaldsdóttir, settur héraðsdómari á Vesturiandi. Tjónamaður Tryggingafélag í borginni óskar að ráða starfsmann til starfa í tjónadeild, sem fyrst. Starfið felst í tjónaskoðun og afgreiðslu tjóna. Leitað er að iðnaðar- eða tækni- menntuðum einstaklingi, sem vinnur sjálf- stætt og skipulega og er lipur í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að leggja til eigin bifreið. Farið verður með allar umsóknir í trúnaði. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 6. júnf nk. (rt tðnt Tónsson RÁÐCJQF & RÁÐNl NCARÞJÓN LlSTA TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 NordREFO auglýsir stöðu framkvæmdastjóra NordREFO mun flytja til Stokkhólms eða Umeá í Svíþjóð sumarið 1993. Við erum í því sambandi að leita að framkvæmdastjóra, sem ráðinn er til fjögurra ára. Meðal verkefna hans eru: ★ að undirbúa rannsóknaáætlun og hafa frumkvæði að rannsóknaverkefnum. ★ að velja þátttakendur í norræna rann- sóknahópa og veita þeim faglega leið- sögn. ★ að sjá um útgáfu rannsóknaskýrslna. ★ að vera ábyrgur fyrir stjórnun og fjármál- um starfseminnar og undirbúa stjórnar- fundi. Umsækjendur verða að uppfylla menntun- arkröfur til að stunda rannsóknir og hafa þekkingu og gjarna eigin reynslu á sviði byggðamála. Reynsla af stjórnun og áhugi á henni eru mjög mikilvæg. Hið sama gildir varðandi hæfileika til að miðla niðurstöðum rannsókna. Það starf að efla samstarf milli rannsóknamanna í byggðamálum og þátt- taka í rannsóknahópunum krefst verulegra ferðalaga, fyrst og fremst innan Norðurland- anna. Laun verða ákvörðuð á grundvelli hæfni um- sækjandans á bilinu 25.000-30.000 SKR á mánuði. Viðbót við starfsmann, sem ekki er Svfi, er milli 2.000-4.000 SKR á mánuði. Þá verður kostnaður við búferlaflutning greiddur. Ráðið verður í starfið frá og með 1. júlí 1993. Umsóknir skulu hafa að geyma curriculum vitae, afrit prófskírteina og yfirlit yfir ritstörf. Umsóknarfrestur er til 17. ágúst 1992. Upplýsingar um stöðuna gefa: Noralv Veggelund, framkvæmdastjóri NordREFO, Kaupmannahöfn, sími + 45-33- 146454 og Sigurður Guðmundsson, Byggðastofnun, Reykjavík, sími 605400. Umsóknir skal senda til: NordREFO, 0ster Voldgade 10, DK-1350, Kaupmannahöfn. NordREFO (Norrœna rannsóknastofnunin í byggöamálum) er rannsókna- stofnun meö sórstaka stjórn, sem heyrir undir Norræna ráöherraráöiö. Stofnunin hefur frumkvæöi að, samræmir og framkvæmir rannsóknir á byggðamálum og byggðastefnu. Stofnunin gefur út tímaritiö Nord Revy. Kjötvinnsla Kjötvinnsla HAGKAUPS óskar eftir að ráða starfsmann nú þegar. Viðkomandi þarf að hafa reynslu í kjötvinnslu og að geta unnið sjálfstætt og skipulega. Lágmarksaldur 25 ár. Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds HAGKAUPS, Skeifunni 15, fyrir kl. 15.00 miðvikudaginn 3. júní. HAGKAUP Ræstingar Starfsfólk óskast við ræstingar á einum af starfsstöðum íþrótta- og tómstundaráðs. Um 100% starf er að ræða. Nánari upplýsingar í síma 624320. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna- haldi Reykjavíkurborgar og á skrifstofu ÍTR, Fríkirkjuvegi 11, þar sem umsóknum skal einnig skilað inn. Skipaþjónustustjóri Fyrirtækið er öflugt framleiðslu-, innflutn- ings- og þjónustufyrirtæki á Stór-Reykjavík- ursvæðinu. Starf skipaþjónustustjóra felst í umsjón með öllum þjónustuþáttum deildarinnar, markaðsmálum, kostnaðarstýringu, starfs- mannastjórnun auk annarra ábyrgðarstarfa. Áhersla er lögð á að umsækjendur séu með tækni- og/eða verkfræðimenntun á sviði „véla eða skipa", auk haldbærrar reynslu af stjórnunarstörfum. Umsóknarfrestur er til og með 5. júní nk. Ráðning verður sem fyrst. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsinar á skrifstofunni í Skipholti 50c frá kl. 9-15. RÁÐNINGARÞJ Ó'NUSTA t <r\ r' kTV r' Guðný Harðardóttir Skipholti 50c, 2. hœð, 105 Reykjavík ISAL Rafeindavirkjar Óskum eftir að ráða rafeindavirkja (konu eða karl) á Mæla- og rafeindaverkstæði okkar, þar sem að jafnaði starfa 6 sveinar auk meistara. Við leitum að áhugasömum starfsmanni, sem hefur full réttindi í faginu og er tilbúinn til að takast á við margbreytileg tæknistörf. Hæfileiki til þess að vinna sjálfstætt, snyrti- mennska og skipulagshæfileikar eru kostir, sem falla vel að okkar umhverfi. Einnig er það jákvæður kostur að umsækjandi hafi faglega starfsreynslu. Helstu verkefni eru kvörðun, varnarviðhald og viðgerðir á mælitækjum og fjarskipta- og tölvubúnaði. Nánari upplýsingar veitir ráðningarstjóri í síma 607000. Umsóknum óskast skilað til íslenska álfé- lagsins hf., pósthólf 244, Hafnarfirði, eigi síðar en 19. júní 1992. Umsóknareyðublöð fást hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavík og Bókabúð Olivers Steins, Hafnar- firði. íslenska áiféiagið hf. Ritari Fasteigna- og lögfræðistofa óskar eftir að ráða námsfúsan, lipran og skapgóðan ritara. Starfsreynsla ekki æskileg en hæfni og áhugi á skrifstofustörfum æskilegur. Nafn og símanúmer leggist inn á auglýsinga- deild Mbl. merkt: „Hæfur-11272“ fyrir4. júní. Gleraugnaverslun Óskum eftir að ráða starfsmann til af- greiðslustarfa. Um er að ræða heilsdags- starf. Æskilegt er að viðkomandi hafi starfað í gleraugnaverslun eða við sambærileg störf. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merktar: „Gleraugnaverslun - 7971“ fyrir 10. júní. Verslunarstjóri Óskum eftir að ráða verslunarstjóra. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf ásamt kaupkröfu ósk- ast fyrir 10. júní nk. Upplýsingar um starfið gefur kaupfélags- stjóri. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, 530 Hvammstanga, sími 95-12370. Grunnskóli Skútu- staðahrepps auglýsir Staða skólastjóra við Grunnskóla Skútu- staðahrepps er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júní. Upplýsingar veitir formaður skólanefndar, Stefán Þórhallsson, í símum 96-44285 (heima) og 96-44181 (vinna). mmmm ST JÓSEFSSPÍTALI BfflH HAFNARFIRÐI Staða leikskóla- stjóra á Brekkukoti Ákveðið hefur verið að sameina leikskólann Holtsgötu 7 og skóladagheimili í sama húsi. Vegna þessarar breytingar hefur verið ákveð- ið að auglýsa stöðu leikskólastjóra lausa til umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. septembér nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Dagrúnu Ár- sælsdóttur, leikskólafulltrúa, fyrir 15. júní nk. Reykjavík, 29. maí 1992. St. Jósefsspítali, Landakoti. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA VESTURLANDI Iðjuþjálfar þroskaþjálfar og annað uppeldismenntað fólk Svæðisstjórn fatlaðra á Vesturlandi auglýsir eftir starfsmönnum. Fagmenn vantar við starfsþjálfun á vernduð- um vinnustað á, Dalbraut 10, Akranesi. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 93-12994. Forstöðumann vantar við skammtímavistun fatlaðra í Holti við Borgarnes. Um getur verið að ræða hlutastörf. Upplýsingarveittará skrifstofu svæðisstjórn- ar Vesturlands í síma, 93-71780. Leikfangasafnið í Ólafsvík óskar eftir þroskaþjálfa til starfa. Upplýsingar í síma 93-61600 (Laufey) eða 93-71780.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.