Morgunblaðið - 31.05.1992, Side 25

Morgunblaðið - 31.05.1992, Side 25
ATVINNURAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR AUGL YSINGAR T ónlistakennarar athugið Tónlistakennara (skólastjóra) vantar að Tónskóla Tálknafjarðar fyrir næsta skólaár. Æskilegt er að viðkomandi geti sinnt starfi organista í Stóra-Laugardalskirkju. Umsóknir skal senda til sveitarstjóra Tálkna- fjarðarhrepps, Strandgötu 44, Tálknafirði, sem veitir nánari upplýsingar í síma 94-2539. Umsóknarfrestur er til 15. júní. SveitarstjóriTálknafjarðarhrepps. Hjúkrunarfræðingar - deildarstjórar Laus er til umsóknar 100% staða deildar- stjóra við hjúkrunarheimilið Víðihlíð í Grinda- vík. Víðihlíð er hjúkrunarheimili fyrir sjúka- og aldraða, og er ný deild frá sjúkrahúsi Keflavík- urlæknishéraðs með 29 rúmum, en þar af verða 14 rúm tekin í notkun í ágúst nk. Allar upplýsingar um starfið veitir hjúkrunar- forstjóri S.K. í síma 92-14000. Umsóknarfrestur er til 14. júní nk. og skulu umsóknir berast fyrir þann tíma. Keflavík31. maí 1992. Deildarstjóri fjármáladeildar Laust er til umsóknar starf deildarstjóra fjár- máladeildar dóms- og kirkjumálaráðuneyt- isins. Á starfssviði deildarinnar eru m.a. fjár- lagagerð fyrir dóms- og kirkjumálasvið, um- sjón með framkvæmdum, starfsmannahald, tölvumál o.fl. Æskilegt er að deildarstjóri fjármáladeildar hafi viðskiptafræði- eða hagfræðimenntun og reynslu af talnavinnslu í töflureiknum. Umsóknum skal skilað til ráðuneytisins fyrir 15. júní nk. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 27. maí 1992. Organistar og tónlistarkennarar Okkur bráðvantar tónlistarkennara við tón- listarskólann á Seyðisfirði næstkomandi skólaár á píanó, strengi og málmblásturs- hljóðfæri. Um er að ræða tvær heilar stöður. Jafnframt vantar organista við Seyðisfjarðar- kirkju sem fyrst. Góð vinnuaðstaða er fyrir hendi, þar á meðal nýtt 15 radda pípuorgel. Utvegum húsnæði ef óskað er. Nánari upplýsingar veita Kristrún H. Björns- dóttir, skólastjóri, í símum 97-21566 og 21366 og Jóhann Grétar Einarsson, sóknarnefndar- formaður, í símum 97-21101 og 21110. Fóstra Gríma, foreldarekinn leikskóli í Hjónagörð- um, óskar eftir fóstru í fullt starf strax á yngri deild. Framtíðarstarf. Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild Mbl. merktar: „Gríma -14379“ fyrir 3. júní. Sérkennarar Ákveðið hefur verið að setja á stofn sérdeild við Húnavallaskóla í A-Húnavatnssýslu. Okkur vantar sérkennara að deildinni sem myndi vinna að skipulagi og framkvæmdum við hana í nánu samstarfi við skólastjóra og skólanefnd. Fyrir hendi er mjög ódýrt leigu- húsnæði, fæði á kostnaðarverði á skólatím- um og flutningsstyrkur. Upplýsingar gefa formaður skólanefndar, Jóhannes Torfason, sími 95-24287, skóla- stjóri, Arnar Einarsson, sími 95-24313 og fræðslustjóri, Guðmundur Ingi Leifsson, sími 95-24369. Umsóknarfrestur er til 12. júní. Staða framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík- isins. Umsækjendur skulu hafa háskólapróf og reynslu af stjórnunarstörfum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyt- inu fyrir 1. júlí 1992. Menntamálaráðuneytið, l.júní 1992. Meðeigandi óskast Vel staðsett verslun í Reykjavík óskar eftir dugmiklum og framtakssömum samstarfsað- ila. Um er að ræða allt að helmings eignarað- ild í vaxandi fyrirtæki sem er í innflutningi, dreifingu og smásölu á sérhæfðum og áhugaverðum vörutegundum. Arðsöm fjár- festing fyrir einstakling eða hjón, þar sem konan fengi vellaunað stjórnunarstarf til frambúðar. Áhugasamir sendi nafn, kennit., heimilisfang og símanúmer, ásamt einhverjum frekari upplýsingum, til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „Framtíð - 7972“ fyrir 7. júní nk. Stöður vitavarða Stöður aðalvitavarðar og aðstoðarvitavarðar á Galtarvita eru lausar til umsóknar. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist Vita- og hafnamálaskrifstofunni, Vesturvör 2, Kópa- vogi, fyrir 19. júní nk. Upplýsingar um störfin eru veittar á sama stað í síma 600000. Kópavogi 29. maí 1992. Vitamálstjóri. Snyrtivöruverslun Laust er hlutastarf fyrir starfskraft á aldrinum 25-40 ára, vanan verslunarstörfum. Usmóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist auglýsinagdeild Mbl. fyrir 6. júní, merktar: „RK - 3489". Ritari Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara skrifstofustjóra Skrifstofu Norðurlandamála. Krafist er góðrar kunnáttu í einu Norður- landamáli og færni í vélritun, ritvinnslu og skjalavörslu. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist Skrifstofu Norðurlandamála, Skúlagötu 63,150 Reykja- vík, fyrir 15. júní nk. Utanríkisráðuneytið. Endurskoðun Endurskoðunarskrifstofa óskar eftir að ráða viðskiptafræðing eða löggiltan endurskoð- anda til starfa. Starfssviðið er endurskoðun, uppgjör fyrirtækja, umsjón bókhalds og ráð- gjöf á sviði reiknishalds og endurskoðunar. Eignaraðild kemur til greina. Með allar umsóknir verður farið með sem trúnaðarmál. Umsókni'r óskast sendar á auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. júní, merktar: „E - 3490“. Grunnskólinn á ísafirði Kennarar Kennara vantar í eftirtaldar stöður: Raungreinar í 8.-10. bekk. Tónmennt. Almenn kennsla í 1.-7. bekk. Upplýsingar gefur Björg Baldursdóttir skóla- stjóri í símum 94-3044 (skólinn) og 94-4649 (heima) og Yngvi Hagalínsson í símum 91-73800 eða 91-45866 (heima). Umsóknarfrestur er til 15. júní. Skólastjóri. Fóstrur Fóstrur eða starfsmenn með aðra uppeldis- menntun óskast á leikskólann Álfaberg. Á leikskólanum dveljast þrjátíu börn samtímis. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 53021. Fóstrur eða starfsmenn með aðra uppeldis- menntun óskast á leikskólann Hvamm. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 650499. Ennfremur veitir leikskólafulltrúi upplýsingar um störfin í síma 53444. Félagsmálastjórinn íHafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.