Morgunblaðið - 31.05.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ATVIiMIMA/RAÐ/SMÁ SUNl#B?&UJi 31- MAÍ 1992;
31
RAÐAUGi YSINGAR
Enskunám í Englandi
Námskeið fyrir alia aldurshópa.
í boði eru 7 skólar í Eastbourne, vinsælasta
sumardvalarstað Englands. Starfsmaður
ISAS í Eastbourne ávalt til aðstoðar.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Kristinsdótt-
ir, fulltrúi ISAS á íslandi, í síma 671651 fyrir
hádegi virka daga.
Verzlunarskóli íslands
Innritun 1992-1993
Innritun í nám skólaárið 1992-1993 fer fram
3. til 5. júní. Tekið er á móti umsóknum á
skrifstofu skólans frá kl. 9-18.
Grunnskólanemendur
Umsókn skal fylgja staðfest Ijósrit af prófskír-
teini. Innritaðirverða 250 nemendurí3. bekk.
Verzlunarprófsnemendur
skulu skila umsókn sinni eigi síðar en 5. júní.
Þeir, sem hafa verzlunarpróf úr öðrum skól-
um en VÍ, þurfa að skila staðfestu Ijósriti af
prófskírteini.
Öldungadeild
Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu skól-
ans 3.-5. júní gegn greiðslu innritunargjalds
kr. 5.750.
W' IÐNSKÚUNN f REYKJAVfK
Innritun
fyrir haustönn fer fram í Iðnskólanum í
Reykjavík, á Skólavörðuholti, dagana
3.-5. júní, kl. 10.00-18.00.
Innritað verður í eftirtalið nám:
I Dagnám
1. Samningsbundið iðnnám
(námssamningur fylgi umsókn)
2. Bókagerð (prentun, prentsmíð, bók-
band)
3. Grunndeild í fataiðnum
4. Grunndeild í háriðnum
5. Grunndeild í málmiðnum
6. Grunndeild í rafiðnum
7. Grunndeild í tréiðnum
8. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði
9. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun
10. Framhaldsdeild í hárgreiðslu
11. Framhaldsdeild í hárskurði
12. Framhaldsdeild í húsasmíði
13. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði
14. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun
15. Framhaldsdeild í rafvirkjun og
rafvélavirkjun
16. Framhaldsdeild.ívélsmíði og rennismíði
17. Almennt nám
18. Tölvubraut
19. Tækniteiknun
20. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi)
II Kvöldnám (öldungadeild)
1. Meistaranám
(auk annarra gagna fylgi sveinspróf)
2. Almennar greinar
3. Grunnnám í rafiðnum
4. Rafeindavirkjun
5. Tölvubraut
6. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi)
7. Tækniteiknun
Innritun er með fyrirvara um þátttöku í ein-
stakar deildir og áfanga.
Öllum umsóknum fylgi staðfest afrit prófskír-
teina með kennitölu.
Nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu
skólans, sem er opin virka daga kl. 9.30-
15.00, sími 26240.
Frá menntamálaráðuneytinu
Innritun nemenda í
framhaldsskóla íReykjavík
fer fram í Miðbæjarskólanum við Fríkirkjuveg
dagana 3. og 4. júní nk. frá kl. 9.00-18.00.
Umsóknum fylgi Ijósrit af prófskírteini.
Námsráðgjafar verða til viðtals í Miðbæjar-
skólanum innritunardagana.
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ÁRMULA 12 • 108 REYKJAVIK ■ SIMI 84022
Frá Fjölbrautaskólanum
við Ármúla
Innritun verður 3. og 4. júní á skrifstofu skól-
ans, s. 814022. Skrifstofan er opin kl. 8.00-
16.00. Sömu daga verður tekið á móti um-
sóknum í Miðbæjarskólanum.
Boðið er upp á eftirfarandi nám: Uppeldis-,
viðskipta- og íþróttafræðinám á tveggja ára
brautum, nám til stúdentsprófs á félags-
fræði-, íþrótta-, hagfræði-, listdans- (í sam-
vinnu við Listdansskóla Þjóðleikhússins),
náttúrufræði- og nýmálabraut.
Á heilsugæslusviði er eftirfarandi nám í
boði: Sjúkraliðabraut (3 ár með starfsnámi),
braut fyrir aðstoðarfólk tannlækna (2 ár pg
starfsþjálfun á tannlæknadeild Háskóla ís-
lands), læknaritarabraut (árs nám og níu
mánaða starfsþjálfun), lyfjatæknanám (3 ár
með starfsnámi).
Námsráðgjafi, skólameistari og aðstoðar-
skólameistari eru til viðtals á skrifstofutíma
1.- 4. júní. x .
Skolameistari.
fjOlbrautaskúunn
BREIÐHOUl
Frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti
Innritun í dagskóla Fjölbrautaskólans í Breið-
holti verður miðvikudaginn 3. júní og fimmtu-
daginn 4. júní kl. 9.00-18.00 í Miðbæjarskól-
anum og skólanum sjálfum.
Einnig í skólanum föstudaginn 5. júní kl.
9.00-15.00.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður fram
eftirtalið nám:
Bóknámssvið Matvælasvið
Eðlisfræðibraut Grunnámsbraut
Náttúrufræðibraut Heimilishagfræðabraut
Nýmálabraut Matartæknabraut
Matarfræðingabraut
Félagsgreinasvið Tæknisvið
Félagsfræðibraut Grunnnám tréiðna
Fjölmiðlabraut Húsasmiðabraut
íþróttabraut Grunnnám málmiðna
Uppeldisbraut Vélsmiðabraut
Grunnnám rafiðna
Rafvirkjabraut
Heilbrigðissvið Viðskiptasvið
Sjúkraliðabraut Verslunarpróf
Snyrtibraut Framhaldsbrautir
Listasvið
Myndlistarbraut
Handmenntabraut
Tónlistarbraut
Unnt er að Ijúka stúdentsprófi á öllum náms-
sviðum skólans. Nánari upplýsingar má fá á
skrifstofu Fjölbrautaskólans í Breiðholti,
Austurbergi 5, sími 91-75600 og innritunar-
dagana í Miðbæjarskólanum.
Innritað verður í kvöldskóla Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti 27., 29. og 31. ágúst nk.
Skólameistari.
iliiniim
IIIESUII
BEEIIIIII
Frá Háskóla Islands
Skrásetning nýrra stúdenta
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Há-
skóla íslands háskólaárið 1992-1993 fer
fram í nemendaskrá háskólans dagana
1.-12. júní 1992.
Umsóknareyðublöð fást í nemendaskrá sem
opin er kl. 10-16 hvern virkan dag á skráning-
artímabilinu.
Einnig verður tekið við beiðnum um skrásetn-
ingu nýrra stúdenta dagana 6. til 17. janúar
1993.
Við nýskráningu skrá stúdentar sig jafn-
framt í námskeið á komandi haust- og vor-
misseri.
Umsóknum um skrásetningu skal fylgja:
1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdents-
prófsskírteini.
2) Skrásetningargjald kr. 22.350,-
Ljósmyndun vegna nemendaskírteina fer
fram í skólanum í september 1992.
E51IIIIIE iieieieieI tll III 1 biiiiiiiini ÍIÍIIEEEIIII |E1EEE|IEIII
Viðskipa- og hagfræðideild Háskóla íslands
auglýsir nám til meistaraprófs í hagfræði
við deildina háskólaárið 1992-1993, sem
sækja ber sérstaklega um.
Um er að ræða 45 eininga nám sem unnt er
að Ijúka á 1-2 árum og lýkur með M.S. gráðu.
Miðað er við að umsækjendur hafi lokið B.S.
prófi í hagfræði, en einnig er tekið við um-
sóknum frá einstaklingum sem lokið hafa
háskólaprófi í öðrum greinum.
Námsskipulag gerir ráð fyrir að þeir nemend-
ur, sem lokið hafa háskólaprófi í öðrum grein-
um en hagfræði, geti sótt um skráningu í
sérstakt undirbúningsnám með einstaklings-
bundinni námsáætlun.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu viðskipta- og hagfræðideild-
ar. Umsóknir sendist fyrir 12. júní nk. til skrif-
stofu viðskipta- og hagfræðideildar, Odda
v/Sturlugötu, 101 Reykjavík.
Auglýsing þessi er birt með fyrirvara um
nægilegar fjárveitingar til kennslunnar.
MENNTASKÓLINN
í KÓPAVOGI
Innritun fyrir næsta skólaár 1992-1993 fer
fram í Menntaskólanum í Kópavogi 3. og 4.
júní nk. frá kl. 10.00-16.00 báða dagana.
Við skólann eru eftirtaldar námsbrautir:
Eðlisfræðibraut
Félagsfræðibraut
Ferðabraut
Hagfræðibraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Tölvubraut
Tónlistarbraut.
Skrifstofubraut - tveggja ára hagnýtt nám
með starfsþjálfun.
Fornám - Innritun í fornám fer fram að
undangengnu viðtali við námsráðgjafa.
Viðtal skal panta í síma 43861.
Námsráðgjafi verður til viðtals innritunardag-
ana og eru nemendur hvattir til að notfæra
sér þessa þjónustu.
Öllum umsóknum fylgi staðfest afrit prófskír-
teinis auk Ijósmyndar.
Skólameistari.