Morgunblaðið - 31.05.1992, Page 34
34
ÍÞRÓmR
FOLK
■ TERRY Venables keypti í gær
tvo nýja leikmenn, framhetjann Pet-
er Beadle og varnarmaniiinn
Dean Austin frá liðum í neðri deild-
unum í Englandi í stað landsliðs-
mannanna, Paul Gascoigne og
Gary Linker sem hafa verið seldir.
Líklegt er talið að Tottenham kaupi
einnig Dannen Anderton frá
Portsmouth fyrir 1,5 milljónir
punda (155 milljónir ÍSK) á mánu-
dag, Aðstoðarþjálfarinn Doug Li-
vermore tekur við stöðu Peter
Shreeves sem aðalþjálfari liðsins.
■ LAURENT Blanc, landsliðs-
maður Frakka sem lék með Napólí
á Ítalíu sl. vetur, mun leika með
Marseille næsta keppnistímabil.
Blanc, sem er 25 ára, vaf seldur frá
Montpellier til Napólí fyrir ári síðan
á 285 milljónir ÍSK, en samkvæmt
heimildum ítalska blaðsins Gazetta
dello Sport greiðir Marseille 240
milljónir ÍSK fyrir Blanc. Frönsku
meistararnir hafa þegar keypt Kró-
atann Zvonimir Boban og mun lík-
lega kaupa varnarmanninn Jean-
Marc Eydeliefrá Nantes á næstu
dögum.
■ ROB Witschge hjá Feyernood
hefur verið valinn í hollenska landsl-
iðshópinn í staðinn fyrir bróður sinn
Richard Witschge sem er meiddur.
■ ARGENTÍNSKI landsliðsmað-
urinn Claudio Caniggia mun leika
með AS Roma á næsta keppnistíma-
bíli. Hann lék með Atalanta í vetur.
■ BELGÍSKA landsliðsmarkverð-
inum Michel Preudhomme og
markverði Mechelen hefur verið
neitað af forráðamönnum félagsins
um að skipta yfir í ítalska félagið
Brescia, og er allt í járnum á milli
hans og félagsins.
■ BRESKI tugþrautarmaðurinn
Daley Thompson meiddist á öxl á
æfíngu nýlega og er óvíst hvort
hann verður búinn að ná sér fyrir
Ólympíuleikana í Barcelona í sum-
ar.
■ THOMPSON á að baki glæsi-
legan feril á Ólympíuleikum, en hann
varð Ólympíumeistari í tugþraut
1980 og 1984, en lenti í fjórða sæti
í Seoul 1988.
M ZOLA nokkur Pieterse náði
Ólympíulágmarki í 3.000 metra
hlaupi á mánudaginn, og kemur til
með að hlaupa fyrir hönd S-Afríku
í Barcelóna í sumar. Það væri
kannski ekki í frásögur færandi
nema vegna þess að hún hljóp fyrir
hönd Bretlands á síðustu tveimur
Ólympíuleikum og þá undir nafninu
Zola Budd.
■ TIM Taylor mun þjálfa banda-
ríska íshokkí liðið fyrir Vetrarólymp-
íuleikana í Noregi 1994. Bandaríska
Ólympíunefndin á að vísu eftir að
leggja blessun sína yfír ráðningu
hans, en fastlega er búist við að hún
samþykki hana.
■ HEIMSMETHAFINNIom Ja-
ger sigraði í 50 metra skriðsundi á
sterku sundmóti í Flórída síðustu
helgi. Hann synti á 23.49 sek.
■ TODD Pace kom annar í mark
rétt á eftir Jager á 23.56 sek. Matt
Biondi gullverðlaunahafí í greininni
frá síðustu Ólympíuleikum varð
þriðji á 23.63 sek.
■ JANET Evans heimsmethafi og
þrefaldur Ólympíumeistari, sigraði í
þremur greinum á mótinu; 200, 400
og 800 metra skriðsundi.
■ MIKE Barrowman sigraði í 200
metra bringusundi á 2 mínútum
16.46 sek. Barrowman á sjálfur
heimsmetið sem er 2:10.60 mín.
■ HEIMSMETHAFINM 200
metra baksundi, Spánverjinn Martin
Zubero sigraði í 100 metra bak-
sundi á 55.36 sek.
•9 INDI 500, kappaksturinn sem
kenndur er við Indianapolis var um
helgina. A1 Unser hinn yngri sigr-
aði í fyrsta sinn. Faðir hans A1
Unsef hin eldri sigraði þrívegis í
þessum kappakstri. Þetta er í fyrsta
sinn sem sonur fyrrverandi sigurveg-
ara fer með sigur af hólmi.
■ LYN St. James, stúlka frá
Florida var eina konan sem tók
þátt í akstrinum og er þetta í fyrsta
sinn í 20 ár sem kona tekur þátt.
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR SUNNUDAGUR
31. MAI 1992
t
KNATTSPYRNA
Arndís bikarmeist-
ari með Arsenal
ARNDÍS Ólafsdóttir, knatt-
spyrnukona úr KA á Akureyri,
varð enskur bikarmeistari
með kvennaliði Arsenal. Hún
dvaldi í Englandi f vetur og lék
með liðinu í deildar- og bikar-
keppninni og stóð sig vel. Hún
er nú komin heim til Akureyrar
og ætlar að leika með KA f
sumar eins og hún hefur gert
fimm sfðustu árin.
Arndís, sem er tvítug, byijaði
að æfa knattspymu með KA
þegar hún var 12 ára gömul. Hún
æfði einnig í handbolta á sínum
yngri árum en síðan varð knatt-
spyrnan ofaná. Hún varð fyrsti
íslandsmeistariKA í 2. flokki
kvenna 1988. Á síðasta keppnis-
tímabili var hún markahæst í liði
KA - gerði 7 mörk, en liðið féll í
2. deild. Hún fór síðan til Englands
sl. haust til að gerast „au pair“
og lék jafnframt með Arsenal.
„Það var mjög gaman að leika
með Arsenal. Við lékum í 2. deild
og unnum alla leikina og tryggðum
okkur sæti í 1. deild. Við lékum
til úrslita í bikarkeppninni gegn
Millwall, sem varð í þriðja sæti í
ensku 1. deildinni, og unnum 1:0.
Ég kom inná sem varamaður þar
sem ég hafði átt við meiðsli að
stríða rétt áður. Ég lék flesta leiki
liðsins í deildinni og skoraði í þeim
fjögur mörk,“ sagði Arndís, sem
leikur á miðjunni.
Hún sagðist hafa hug á því að
fara aftur til Englands til að leika
með Arsenal. Þijár stúlkur úr
Arsenal eru í enska landsliðinu og
var ein þeirra í byijunarliðinu gegn
íslendingum í Évrópukeppninni
fyrr í mánuðinum, er England sigr-
aði 4:0. „Fyrir keppnistímabilið var
deildarskipting tekin upp í Eng-
landi og liðið sett í 2. deild. Menn
voru ekki á eitt sáttir með að
Arsenal var sett í 2. deild og við
sýndum það og sönnuðum í vetur
að Arsenal á heima í 1. deild,"
sagði Arndís.
Amdís kom heim til íslands í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Arndís Ólafsdóttir er hér í Arsenalbúningnum og með verðlaunagripinn sem hún fékk fyrir að verða enskur bikar-
meistari með Arsenal. Hún mun klæðast KA-búningnum í sumar.
síðustu viku og er byijuð að æfa
með KA og verður lögleg með lið-
inu í fyrsta leik gegn UBK í bikar-
keppninni 9. júní. Hún þjálfar 3.
og 4. flokk KA í sumar eins og
hún gerði í fyrra.
Pétur
Ormstev
Fram(1)
Hlynur
Birgisson
Þór(1)
Sævar
Jónsson
Val (1)
Andri
Marteinsson
FH(1)
Anton Björn
Markússson
Fram (1)
Baldur
Bjarnason
Fram (1)
Valdimar
Kristófersson
Fram (1)
Ríkharður
Daðason
Fram (1)
LIÐ 2. UMFERÐAR
uaiaunnn &o x&
stig úr lélegu
leikjunum
- segirSigurðurLárusson, þjálfari Þórs
ÉG er ánægður með byrjunina en þori ekki að spá neinu um fram-
haldið. Lið koma tíl með að eiga góða og lélega leiki en galdur-
inn við velgengni er að fá stig úr lélegu leikjunum. Það verða
svo aðrir að dæma um það hvort þessir leikir; gegn Fram og
Breiðablik tilheyri góðu eða slæmu leikjunum hjá okkur,“ segir
Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs sem vermir toppsætið í Sam-
skipadeildinni að afloknum tveimur umferðum.
Þórsliðið hafnaði i 2. sæti 2. deild-
ar í fyrra og nokkrar breyting-
ar hafa orðið á iiðinu frá í fyrra.
Fyrirliðinn Nói Bjömsson fór til
Magna, Þorsteinn Jónsson til FH og
Friðrik Friðriksson til ÍBV en liðið
hefur fengið Sveinbjöm Hákonarson
og Lárus Sigurðsson markvörðinn
sparklanga sem hefur haldið marki
Þórs hreinu í tveimur fyrstu leikjun-
um.
„Breytingamar em ekki miklar
frá í fyrra en nú emm við að eiga
við sterkari lið og höfum því fært
okkur aftar á völlinn", segir Sigurð-
ur sem telur spá forráðamanna 1.
deildarféiaganna fyrir tímabilið hafa
við lítið að styðjast.
„Spáin er fáránleg og sýnir fyrst
og fremst álit Reykjavíkurfélaganna
á landsbyggðarfélögunum. Lið Þórs
og KA fara eina ferð suður og eru
eins og beljur á svelli á gervigrasinu
og era dæmdir eftir því. Hins vegar
vil ég taka það fram að ég hef ekk-
ert á móti þessari spá. Við hlægjum
að henni og hún gerir það að verkum
að það er minna álag á liðinu," seg-
ir Sigurður.
Sigurður sagði að hann hefði ver-
ið með stífar æfíngar 5 fímm vikpr
fyrir jólin. Leikmenn hefðu síðan
fengið hálfs mánaðar frí yfír hátíð-
ina en síðan hefði henn verið að smá
auka við æfingálagið allt fram að
íslandsmótinu. Það er hins vegar
I